Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 11.11.1978, Qupperneq 24

Dagblaðið - 11.11.1978, Qupperneq 24
Ráðherra ogfylgdarlið kom að rafmagnslausu RAFHA: „ Vægast sagt óþokkalegt að loka svona á okkur” — segir forstjóri Rafha og telur að hér hafi verið um hefndarráðstöfun að ræða Um kl. 10.30 i gærmorgun stöðvuðust skyndilega allar vélar í Raftækjaverksmiðju Hafnarfjarðar og Ijós slokknuðu. Ekki vissu menn i fyrstu hver orsökin var en i Ijós kom að starfsmaður Rafveitu Hafnar- fjarðar hafði verið að verki og lokað fyrir rafmagn til fyrirtækisins vegna skuldar. Axel Kristjánsson forstjóri sagði DB að „skuldin” sem um væri að ræða væri hluti af síðasta rafmagnsreikningi fyrirtækisins. Væru þeir 1,6 til 1,7 milljónir fyrir hvert tveggja mánaða tímabil. Búið hefði verið að greiða inn á reikninginn rúmlega þriðjung og til hefði staðið að greiða nú um helgina helming eftirstöðvanna. „Ég fékk upphringingu frá stúlku sem talin er gjaldkeri Rafveitunnar fyrr í vikunni og sagði hún að lokað yrði fyrir rafmagnið á föstudag ef greiðsla hefði ekki borizt. Síðan skeði þetta fyrirvaralaust i gærmorgun að lokað var fyrir rafmagnið. Engum verkstjóra var gert viðvart og allar vélar voru í gangi. Getur slíkt raf- magnsrof orsakað alvarleg slys,” sagði Axel. Axel taldi að um einhverjar hefndarráðstafanir væri að ræða af hálfu Rafveitunnar er. Rafha hefur unnið tvö mál fyrir domstólum sem verksmiðjan og Rafveitan höfðu deilt um. Taldi Axel að mörg fyrirtæki í Hafnarfirði ættu í greiðsluerfiðleikum og margir skutduðu Rafvcitunni meira en Rafha en ekki hefði verið lokað „Ég er á Þuðubog” — nýtt dagheimili opnað í Breiðholti Daghcimilið Suðurborg, eða Þuðubog, eins og væntanlegir dvalar- gestir munu vafalítið bera það fram i fyrstu. cr nú að verða fullbúið og hefur ein af fjórum deildum þegar verið tekin í notkun. Það er skóladagheimilisdeild fyrir börn á skólaaldri. Hcimilið er i Suðurhólum i Breiðholti og rnun rúma 71 barn, þegar það verður fullbúið um áramót, eins og áætlað er. Tvær deildir verða fyrir börn á aldrinum sex mánaða til þriggja og hálfs til sex, auk áðurnefndrar deildar. For- stöðumaður er Sigríður Gisladóttir fóstra. -G5. Hún Perla er fimm ára og unir sér vel á Suðurborg. Hún sat og sagði okkur að hún væri að bródera. Verkið vannst henni vel, gluggarnir búnir. DB-mynd R. Th. Sig. Fjársvikamálið í Keflavík: Svikin nema um 5 milljón kr. á þessu ári Rannsókn á skýrslum fyrrí ára hefst eftir helgi Við rannsókn á fjársvikamálinu i Keflavík, sem tengt er atvinnuleysis- tryggingasjóði, hefúr komið í Ijós að fiskvinnslufyrirtæki það sem í hlut á hefur fengið greiddar í kauptryggingu úr sjóðnum um 9 milljónir kr. á þessu ári. Sumt af þeirri upphæð hefur reynzt fullkomlega réttmætt, en stærri hlutinn. eða á að gizka um 5 milljónir. virðist hafa verið svikinn út. Allars skýrslur varðandi mál fyrir- tækisins eru vel unnar og eins og lög' gera ráð fyrir undirritaðar af trúnaðar- manni á vinnustað og einnig fulltrúa verkalýðsfélagsins í úthlutunarnefnd. Þessir fulltrúar hafa enn ekki verið yfirheyrðir nema að hluta en munu verða kallaðir til yfirheyrslu. Virðast þeir hafa undirritað skýrslurnar i „góðri trú" án þess að kynna sér rétt- mæti skýrslnanna. Endurskoðunardeild RLR er með bókhald fyrirtækisins til rannsóknar. Lýkur henni væntanlega eftir helgina. Hefst þá rannsókn á skýrslum fyrir- tækisins frá fyrri árum. Við hana verður dagbók verkstjóra mikilvægt viðmiðunargagn. -emm/ASt. Egilsstaðir: hjáöðrum fyrirtækjum. „Rafha hefur starfað i Hafnar- firði yfir 40 ár. Fyrirtækið skuldar engum, hvorki bæjarfélagi, ríki eða öðrum, gamlar skuldir og á engar skuldir ógreiddar nema þær sem eðli- legar geta talizt i fyrirtækjum. Hér starfa allt í allt 65—70 manns. Það er vægast sagt óþokkaháttur að loka á fyrirtækið fyrir þennan hluta sem ógreiddur er af síðasta reikningi. Og verði ekki búið að opna þegjandi og hljóðalaust á mánudag er ekki um annað að gera en senda fólkið heim og loka fyrirtækinu,” sagði Axel. Rafveitustjórinn neitaði að svara spurningu DB um hvort lokað hefði verið hjá fleiri fyrirtækjum en Rafha vegna skulda og ekki heldur hvort Rafha væri stærsti skuldarinn hjá Raf- veitunni. Var þá leitað til Kristins Guðmundssonar bæjarstjóra um svör. Eftir könnun svaraði hann því til að Rafha væri stærsti skuldarinn ef undan væru skilin bæjarfyrirtæki, eins og t.d. BÚH sem skuldar um 25 milljónir króna. Það var kaldhæðni örlaganna að í gær kom iðnaðar- og orkuráðherra ásamt föruneyti í heimsókn til að skoða verksmiðjur Rafha. Þá var þar að vonum dautt á öllum vélum og hvergi hægt að kveikja. Ekki náðist i ráðherrann til að fá ummæli hans um hina myrku og hljóðlátu heimsókn hans í þetta gamla raftækjafyrirtæki. -ASt. YFIRMENN RAFVEITUNNAR STOFNUDU VERKTAKAFYRIRTÆKI í RAFIDNAÐI — og iðnaðarráðuneytið skipar þeim að hætta fyrír áramót Iðnaðarráðuneytið hefur fyrir- skipað þremur yftrmönnum rafveit- unnar á Austurlandi að hætta fyrir áramót aðild sinni og stjórnarsetu í nýlega stofnuðu verktakafyrirtæki á Egilsstöðum. Mennirnir þrír hafa enn ekki tekið ákvörðun um hvort þeir hlýða boði ráðuneytisins eða hætta störfum hjá rikinu. í byrjun marz sl. stofnuðu fyrir- tækið Tækniþjónustan hf. á Egils- stöðum þeir Erling Garðar Jónasson rafveitustjóri, Jón Pálmi Pálsson skrif- stofustjóri rafveitunnar og Heimir Sveinsson tæknifræðingur rafveit- unnar. I tilkynningu til firmaskrár é Eskifirði sagði að tilgangur félagsint væri „að reka verktakastarfsemi I lág- spennu- og háspennuvirki, verzlun, iðnaði og tækniþjónustu.” lðnaðarráöuneytið taldi að hér væru þessir embættismenn að brjóta lög um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna skv. 38. grein þeirra laga. Óskaði ráðuneytið eftir skýringum og gengu bréf á milli i nokkurn tima. Það var svo 22. september sl. að ráðu- neytið skrifaði þremenningunum bréf og tilkynnti að þeim „bæri að hafa lokið aðild” sinni að Tækniþjónust- unni hf. Áður hafði stjórn Rafmagnsveitna ríkisins komið saman og ályktað að þátttaka þeirra Erlings Garðars, Jóns Pálma og Heimis væri óæskileg og ekki i samræmi við reglur. Erlingur Garðar sagði í samtali við fréttamann blaðsins um málið að hann sæi enga ástæðu til að leggja fyrir- tækið niður. Það hefði aldrei starfað en það myndi gera það „hvort sem við verðum þar með eða ekki,” sagði hann. „Enginn okkar vissi um þessa 38. grein. Við höfum frest til að ákveða okkur til áramóta og getum þá tekið okkar ákvörðun á gamlárskvöld. Það er okkar að ákveða hvort við hættum eða ekki.” .^y y Kakkalakkar eins og sá sem er næstur eldspýtustokknum hrjá menn á Kefla- vikurflugvelli. — DB-mynd R. Th. Sig. Keflavíkurflugvöllur: Stórir kakka- lakkar virðast land- lægir þar „Þessir stóru kakkalakkar eru alveg landlægir á Keflavíkurvelli,” sagði Ævar Petersen þegar hann sýndi blaða- mönnum DB ýmis af þeim skordýrum sem borizt hafa til íslands frá útlöndum. Þessi skordýr eiga það flest, ef ekki öll, sameiginlegt að þeim gengur illa að lifa við íslenzkar aðstæður. En kakka- lökkunum virðist þó líða vel hjá hermönnunum. „Þessi sem við erum með hérna fannst reyndar i Reykjavík, en við fáum sjaldan tilkynningar héðan um svona dýr,” sagði Ævar. -DS. Ólympíuskákmótið: Ungverjar með sigur- möguleika Kúba vann tsland 2.5—1.5 í 13. umferð ólympíuskákmótsins. Ekki var getið í frétt Reuters hvor gerði jafntefli i biðskák sinni Margeir eða Jón L. Árna- son. Biðskákir úr 13. umferð voru tefldar í gær. Úrslit Sovétríkin-Kanada 3—1, USA-Pólland 2—2, Byrne tapaði fyrir Kuligovsky, England-V-Þýzkaland 2—2. Sviss-Austurríki 2.5—1.5. Rúmenia-Spánn2—2. Svíþjóð-Finnland 2.5—1.5 Argentína 2.5-Noregur 1.5. Fjórtánda og síðasta umferðin verður tefld í dag. Staða efstu þjóða: 1. Ungverjaland 34 v. 2. Sovétríkin 33.5 v. 3. Bandaríkin 33. v.4. V-Þýzkaland 31.5 v. Síðan kom tsrael 30.5 — Kanada, Júgóslavía og Pólland 30 v. Svíþjóð 29.5 v. tsland hefur 27.5 v. eða um 53% vinningshlutfall. Samkvæmt því ætti ísland að vera nálægt 25. sæti. A&p A /S* Xaupra TÖLVUR. gl QG TÖLVUHR ®f BANKASTRÆTI8 £1*11

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.