Dagblaðið - 11.01.1979, Qupperneq 13
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 1979. DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 1979.
Stefniríbaráttu
íslands og Sví-
þjóðar um 5. sætið
— á Baltic-Cup og að dönsku
liðin leiki umsæti7-8.
Svíar unnu Norðmenn tvívegis
fyrir Baltic-Cup
Sviar hafa nú i tvigang tapað stðrt fyrir austur-
blukkinni. í gærkvöld töpuðu Svíar stórt fyrir A-Þjöð-
verjum, 28—20. t Danmörku er almennt litið svo á að
það verði þýzku liðin, sem leika til úrslita þó vissulcga
sé möguleiki á að úrslitaleikurinn frá i vor verði end-
urtekinn — viðureign V-Þjóðvcrja og Sovétmanna.
En úrslit i gærkvöld urðu:
A-riðill:
V-Þýzkaland—ísland 17—14
Danmörk—Pólland 15—22
B-riðill:
Sviþjóð—A-Þýzkaland 20—28
Danmörk B—Sovétrikin 17—23
Staðan i riðlunum er nú:
A-riðill:
V-Þýzkaland 2 2 0 0 36-32 4
Pólland 2 1 0 1 40- -34 2
tsland 2 1 0 1 32- -32 2
Danmörk 2 0 0 2 30- -40 0
B-riðill:
A-Þýzkaland 2 2 0 0 52- -34 4
Sovétrikin 2 2 0 0 53-36 4
Svíþjóð 2 0 0 2 39- -54 0
Danmörk B 2 0 0 2 31- -47 0
Ef að likum lætur munu tslendingar og Svíar leika um
5. sætið — því möguleikar tslendinga til að sigra Pól-
verja hljóta að vera litlir. Þrautþjálfaðir atvinnumenn
Pólverja er æfa tvisvar á dag eiga mun auðveldara með
að fara i gegnum svo sterkt mót án þess að missa púst.
Danir fara tæplega að vinna V-Þjóöverja og ætli ís-
land að leika um 3.—4. sætið verða íslendingar að
sigra Pólland með 5 marka mun. Sviar hljóta að sigra
B-lið Dana — og mæta íslendingum.
Áður en Svíar héldu á Baltic-Cup léku þeir tvo
landsleiki við Norðmenn, unnu þann fyrri 22—17 og
þann síðari með niu mörkum, 29—20.
Leikur Dana
og íslendinga ekki
sýndur
í sjónvarpinu
Vegna þeirra ummæla að sjónvarpið ætlaði ekki að
fá landsleik íslands og Danmerkur í Baltic keppninni
hingað til sýningar, hafði DB samband við Bjarna
Fclixsson og spurði hvað stæði i vegi fyrir þvi að fá
þennan leik. Sagði hann að danska sjónvarpið hefði
ekki tekið leikinn upp og þess vegna væri ekkert hægt
að fá. Vegna fréttar i einu dagblaðanna i gær, þar sem
sagt var að leikurinn hefði verið sýndur beint um
gjörvalla Danmörku, hringdi fjöldinn allur af fólki í
sjónvarpið og kvartaði yflr því að sjónvarpið skyldi
ekki sýna þennan leik. Bjarni sagði að fólk skildi það
ekki að þótt við tækjum upp flesta landsleiki gerðu
Danir það ckki.
Danir sýndu i gær lcik Danmerkur og Póllands og
munu einnig sýna leik Danmerkur og V-Þýzkalands
auk úrslitaleikja Baltic-C'up. -GHP-
Borðtennismót
Víkings 1978
Sunnudaginn 7. janúar var keppt i kvennaflokki i
litla salnum i Laugardalshöll. Kcppendur voru aUs 7
og léku allir við alla og urðu úrslit sem hér segir:
1. sæti Ragnhildur Sigurðardóttir UMSB
2. sæti Dagrún Hjartardóttir Viking
3. -4. sæti Nanna Harðardóttir Víl ing
3.-4. sæti Sigrún Sverrisdóttir Viking
Mánudaginn 8. janúar var lcil ió í 2. flokki og nú i
Fossvogsskóla. Keppendur voru alls 11 og var lcikinn
einfaldui útsláttur. Úrslit urðusem hérsegir:
1. sæti Brynjólfur Þórisson Gerplu
2. sæti Ragnar Ragnarsson Örninn
3. -4. sæti Gylfi Pálsson UMFK
3.-4. sæti Bjami Kristjánsson UMFK.
Þriðjudaginn 9. janúar var enn á ný leikið I Foss-
vogsskóla og nú í 3. Bokki. Skráðir voru til keppni 58
keppendur en þvi miður vegna slæmrar færðar
komust ekki þátttakendur frá UMSB, 8 talsins, og að-
eins 1 frá Keflavík af 5 skráðum en engu að síður fór
fram jöfn og skemmtileg keppni. Úrslit urðu sem hér
segir:
1. sæti Guðmundur Maríusson KR
2. sæti Kristján Jónasson Vikingur
3. -4. sæti Gunnar Andrésson Fram
3.-4. sæti Jónas Kristjánsson Örninn.
Glæsimarkvarzla lagði
grunn að þýzkum sigri
— V-þýzku markverðirnir vörðu 19 skot
—4 víti fóru forgörðum hjá íslandi er heimsmeistarar
V-Þjóðverja sigruðu íslendinga 17-14 í Viborg
Heimsmeistarar V-Þjóðveja sigruðu
tslendinga 17-14 i Baltic-Cup i Viborg i
gærkvöldi. Þriggja marka sigur i leik
hinna sterku varna. Já, sannarlega
sterkar varnir í Viborg og frábær mark-
varzla. Þannig vörðu markverðir Þjóð-
verja 19 skot frá tslendingum, þar af
fóru fjögur vitaköst tslands forgörðum á
afdrifaríkum augnablikum. Þrjú mörk
skildu liðin i lokin, fjögur vitaköst for-
görðum. Menn geta aðeins getið f eyð-
urnar. En islcnzka liðið stóð sig sem
heild mjög vel. Varnarleikurinn var mjög
sterkur og enn einu sinni var markvarzla
Ólafs Benediktssonar snjöll — hann
varði 13 skot. „Og þau erfið þvi V-Þjóð-
verjar eru gifurlega agað lið og skjóta
ekki nema i góðum færum,” sagði
Jóhann Ingi Gunnarsson, landsliðsþjálf-
ari.
„Vörn íslands var aöall liðsins,” bætti
Jóhann Ingi við, „það áttu allir mjög
sterkan varnarleik. Að vísu fékk Ólafur
Jónsson á sig þrjú mörk í röð, virðist
þreyttur en þá tók stöðu hans Þorbjörn
Guðmundsson og kom í veg fyrir lek-
ann. 1 sókninni gekk hins vegarekki eins
vel. Vörn Þjóðverja var gífurlega sterk,
og markvarzlan frábær. En þetta var
einfaldlega ekki dagur stórskyttna
okkar. Ólafur Einarsson skoraði sitt
mark úr víti, af tveimur mörkum Jóns
Péturs skoraði hann annað af linu og af
þremur mörkum Viggós Sigurðssonar
var eitt úr langskoti. En islenzka liðið
hefur sannað að minu mati styrkleika
sinn, með sterkum varnarleik, mjög
góðri markvörzlu og agaðri sóknarleik
en oft áður,” sagði Jóhann lngi ennfrem-
ur.
Þorbjörn Guðmundsson skoraði
fyrsta mark Islands í Viborg í gær, jafn-
aðiþá 1-1. Þjóðverjarnáðusiðan2-1 for-
ustu en Ólafur Jónsson jafnaði enn, úr
horninu. Síðan fylgdu i kjölfarið þrjú v-
þýzk mörk, heimsmeistararnir komust í
5-2. Það var afdrifarikur kafli fyrir ís-
lenzka liðið, eftir það þurfti það ávallt að
sækja á brattann. Ólafur Einarsson
skoraði þriðja mark Islands — úr víti, 5-
3 — eina vítið sem ísland notaði af
fimm.
Viggó Sigurðsson bætti við fjórða
marki tslands, enn þrjú mörk — þá 7-4.
island náði að minnka muninn í tvö
mörk, 8-6, með mörkum jyeirra félaga úr
Val, Jóns Péturs Jónssonar og Steindórs
Gunnarssonar. En lokakaflann skoraði
ísland aðeins eitt mark gegn þremur V-
Þjóðverja — Steindór Gunnarsson var
þá að verki.
1 upphafi síðari hálfleiks minnkaði
Bjarni Guðmundsson muninn í þrjú
mörk, Þjóðverjar svöruðu með tveimur
mörkum og Viggó Sigurðsson skoraði 9.
mark íslands, 13-9. Aftur svara Þjóð-
verjar fyrir sig, 14-9, en Ólafur Jónsson
minnkaði muninn i fjögur mörk, 14-10.
Þjóðverjar náðu enn fimm marka for-
ustu en í kjölfarið fylgdu þrjú íslenzk
mörk. Bjarni Guðmundsson, 15-11, Páll
Björgvinsson 15-12 með gegnumbroti,
og Jón Pétur Jónsson 15-13. Þegar níu
mínútur voru eftir gafst Islandi færi á að
minnka muninn i eitt mark, 15-14 er
Island fékk víti brást bogalistin, þeir
Ólafur Einarsson 2, Jón Pétur Jónsson
og Þorbjörn Guðmundsson misnotuðu
vítin.
Þjóðverjar náðu hraðaupphlaupi og
juku muninn í þrjú mörk aftur, 16-13,
og sigurinn í raun tryggður. Viggó
Sigurðsson skoraði síðasta mark Islands,
og er flautan gall var knötturinn á leið í
mark Þjóðverja eftir hörkuskot Ólafs
Einarssonar — kom sekúndubroti of
seint. Siðustu sex mínúturnar voru
Islendingar einum fleiri, einum leik-
manna vikið af velliogVlado Stenzel lét
óspart í sér heyra og fékk meira að segja
gula spjaldið. „En þýzka liðið leikur svo
agað og sterkt að það tókst ekki að nýta
þetta til að knýja fram jafntefli. Þeir
fengu að halda knettinum, ein sókn
þeirra stóð í 2 mínútur, náðu ávallt að
láta brjóta á sér,” sagði Jóhann Ingi.
„Ég er i sjálfu sér ánægður með is-
lenzka liðið. Við höfum leikið mjög
sterkan varnarleik, fengið 32 mörk á
okkur i 2 leikjum. Markvarzla Ólafs
Benediktssonar verið mjög góð. Við
höfum reynt að byggja sóknarleikinn á
skynsemi. Ég var mjög ánægður með
Viggó Sigurðsson í gærkvöld. Hann lék
alveg eins og fyrir hann var lagt, vel ógn-
andi og ég hef trú á að hann sé að koma
aftur upp. Hann á mjög erfitt uppdrátt-
ar heima í landsleikjum, vegna þess hve
áhorfendur eru andsnúnir honum. Það
sem mér finnst nokkuð táknrænt hér er
hve sterka hornamenn við eigum,
byggjum upp á hraðaupphlaupum og
sterku línuspili — en tsland hefur ein-
mitt ávallt verið þekkt fyrir stórskyttur,
þeirra dagur var einfaldlega ekki í gær-
kvöld,”sagði Jóhannlngiaðlokum.
Mörk íslands skoruðu: ViggóSigurðs-
son 3, Ólafur Jónsson, Jón Pétur Jóns-
son, Steindór Gunnarsson og Bjarni
Guðmundsson skoruðu allir 2, Þorbjörn
Guðmundsson, Ólafur Einarsson og Páll
Björgvinsson I mark.
H.Halls.
Óli Ben varði einnig vel —13 skot V-Þjóðverja.
Vlado Stenzel þjálfari heimsmeistaranna fékk gula
spjaldið er íslendingar minnkuðu muninn í tvö mörk, 15-13
„Er ekki bjartsýnn á
sigur gegn Pólverjum”
— sagði Jóhann Ingi. Fjórar breytingar á íslenzka liðinu.
„Viðhöfumsettstefnunaáfimmta sæti, að sigra Svía”
„Ég er ekki bjartsýnn á sigur gegn
Pólverjum, þó auðvitað sé stillt upp að
standa sig sem bezt. Það hefur oft sýnt
sig hjá okkur að i svona sterku móti er
þriðji leikur mjóg erfiður fyrir okkur,
þreytan kemur þá fram. Pólverjar hins
vegar hafa ekkert fyrir þcssu — enda
æfa þeir tvisvar á dag,” sagði Jóhann
Ingi Gunnarsson um leik íslands við Pól-
verja í kvöld.
„Ég mun gera breytingar — fjórir
leikmenn koma inn. Þeir Brynjar
Kvaran, Stefán Gunnarsson, Axel
Axelsson og Þorbjörn Jensson. Við
tókum ekki áhættu á að láta Axel leika,
vildum að hann næði sér fullkomlega af
meiðslum,” sagði Jóhann Ingi. Þeir sem
detta út eru Steindór Gunnarsson,
Ólafur Benediktsson, Ólafur Einarsson
og Jón Pétur Jónsson.
„Ég hvíli Ólaf Benediktsson. Mér er
það engin launung, ég mun gera til-
raunir með islenzka liðið. Við munum
leika pýramídavörn, verðum að eiga
varavörn. Markmið Baltic-Cup er að
finna út kjarna. Það er ekki nóg að eiga
einungis 12 leikmenn, við verðum einnig
að geta stillt upp varamönnum.
Þetta verður 5. leikur Islands á 6
dögum og ég á von á að þreytan komi
fram i íslenzka liðinu í kvöld. Við höfum
sett stefnuna á 5. sætið — að mæta
Svíum um það og sigra þá. Þannig er ég
að reyna að skapa stemmningu fyrir
Svíaleikinn, en við munum einmitt
mæta slíkum kringumstæðum á Spáni,”
sagði Jóhann Ingi ennfremur.
Islenzka liðið i kvöld verður skipað:
Markverðir:
Jens Einarsson, ÍR,
Brynjar Kvaran, Val.
Aðrir leikmenn:
Árni Indriðason, Viking,
Páll Björgvinsson, Víking,
Ólafur Jónsson, Víking,
Viggó Sigurðsson, Víking,
Þorbjörn Guðmundsson, Val,
Bjarni Guðmundsson, Val,
Þorbjörn Jensson, Val,
Stefán Gunnarsson, Val,
Ólafur H. Jónsson, Dankersen,
Axel Axelsson, Dankersen.
„Kjarninn er byggður eins og áður úr
Val og Víking. Það skapar að vissu leyti
vandræði því Víkingur er frábært sókn-
arlið, Valur frábært varnarlið og því eru
innáskiptingar tiðari en gott telst,” sagði
Jóhann Ingi aö lokum.
Jóhann Ingi.
Óli Ben., Ólaf ur Einarsson, Jón Pétur
Jónsson og Steindór Gunnarsson
hvfla gegn Pólverjum
—á White Hart Lane í bikarnum
enska bikarsins — og þar að venju var
margt um óvænt úrslit.
Southend — Liverpool 0-0
Nottingham Forest — Aston Villa 2-0
Tottenham — Altringham 1-1
Ipswich — Carlisle 3-2
Sunderland — Everton 2-1
Millvall — Blackbum 1-2
Aldrei fyrr í sögu Southend hafa jafn-
margir komið til Roots Halls, leikvallar
félagsins. 1 gærkvöld var völlurinn þétt-
setinn, og svo mikil var ásókn að áhorf-
endur voru enn að koma sér fyrir þegar
nálgaðist leikhlé — ástæðan, jú Evrópu-
meistarar Liverpool voru í heimsókn. Og
Southend stóð fyllilega fyrir sínu,
markalaust jafntefli og skömmu fyrir
leikslok bjargaði Phil Thompson er
knötturinn stefndi í markið. Áður hafði
Ray Clemence þurft að hlaupa út fyrir
vítateig til að bjarga. Þeir Gary Rowell
og Bob Lee skoruðu mörk Sunderland í
2-1 sigri gegn Everton, Martin Dobson
skoraði fyrir Everton, sem áður hafði
tapað aðeins 2 leikjum i vetur á
Englandi. Þeir Kevin Beattie og Arnold
Muhren komu bikarmeisturum Ipswich
2-0 yfir en Carlisle úr 3. deild jafnaði
með mörkum Mike Tait og David
Kemp. John Wark skoraði sigurmark
Ipswich úr víti skömmu fyrir leikslok.
David Needham og Tony Woodcock
skoruðu mörk Forest gegn Aston Villa.
Frest^ varð leikjum Man. Utd. og Chel-
sea og Newcastle og Torquay.
Þeir voru sneyptir, leikmenn 1.
deildarliðs Tottenham er þeir yfirgáfu
Whit Hart Lane 1 gærkvöld. Áhangend-
ur þeirra púuðt' á þá og kyrjuðu „lélegt,
lélegt”. Jú, Altringham, úr Norðurdeild-
inni ensku, náði jafntefli gegn Totten-
ham, 1-1. Og jafnteflið varengin tilviljun
— sanngjörn úrslit.
Peter Taylor náði forustu fyrir
Tottenham í fyrri hálfleik er hann
skoraði úr vítaspyrnu eftir að brotið
hafði verið á Osvaldo Ardiles. Altring-
ham varðist vel og skyndisóknir liðsins
voru ávallt hættulegar. Og þolinmæði
leikmanna Altringham gaf rikuleg laun
á 85. minútu, aðeins fimm mínútum
fyrir leikslok. Þá jafnaði Jeff Johnson,
vélfræðingur. Hann fékk góða sendingu,
og skoraði með góðu skoti — i fyrra
skoraði hann 37 mörk fyrir liðsitt. Þjálf-
ari Altringham er Tony Sanders en hann
þjálfaði áður Víking.
En litum á úrsiit leikja i 3. umferð
ALTRINGHAM NÁÐI
JÖFNU GEGN SPURS
Ef leikmenn vilja, þá er
ég reiðubúinn að hætta
sagði Leif Mikkelsen, landsliðsþjálfari Dana eftir ósigurinn gegn Pólverjum
ogáðurgegníslandi
Cup. „Ég hef trú á að við munum leika
„Ef leikmenn vilja það, þá er ég reiðu-
búinn að hætta,” sagði Leif Mikkelsen,
eftir ósigur Dana gegn Pólverjum 1 gær-
kvöld, 22-15. Mikkelsen er nú undir
mikilli pressu, þvi Danir eru sáróánægð-
ir með frammistöðu danska liðsins.
Það er þó næsta vist að dönsku leik-
mennirnir eru reiðubúnir til að bakka
þjálfara sinn upp, mjög góð samvinna er
milli Mikkelsen og leikmanna hans.
Danir hafa ekki gleymt hinni góðu
frammistöðu danska liðsins á HM er
Danir náðu4.sæti.
Mikkelsen var bjartsýnn fyrir Baltic-
Viðureign
Óla og Berg
Það köm á óvart i Reykjavik þegar
Jóhann Ingi Gunnarsson lét Ólaf H.
Jónsson leika bakvörð 1 vörn, gegn Pól-
verjum. Og skýringin kom 1 Ijós i leikn-
um gegn Dönum. Einn af hápunktum
viðureignar tslands og Dana var viður-
eign Ólafs H. Jónssonar og Mikhael
Berg. Sigurvegarinn i þcirri viðureign
var Ólafur — Berg skoraði aðeins eitt
mark gegn tslandi úr langskoti. Þá Uka
kom f Ijós ástæðan fyrir þvf að Jóhann
Ingi lét Ólaf leika bakvörð — það var
með þessa viðureign f huga.
«C
ísland
gleymdist
ísland gleymdist Fyrir Baltic-Cup sagði
Mikkelsen, þjálfari Dana, að lykilleikur
Dana væri gegn Pólverjum. Ef sigur ynn-
ist þá væri gatan greið gegn V-Þjóðverj-
um. En hann gleymdi tslandi og vonir
hans brugðust. Á myndinni skoðar Leif
Mikkelsen upplýsingamöppu sfna um
Pólverja. Mappan um tsland liggur
óhreyfð fyrir neðan.
til úrslita. Lykilleikur okkar verður við
Pólverja í Árósum,” sagði Mikkelsen
fyrir Baltic-Cup.
„Náum við að sigra Pólverja, þá tel ég
möguleika okkar gegn v-þýzku heims-
meisturunum mjög góða, og úrslitaleik-
inn í Bröndby-hallen raunhæfan mögu-
Afmælisbarnið KR vann sigur á Vals-
liðinu f sérstökum hátiðaleik f körfu-
bolta, sem fram fór f Laugardalshöllinni f
gærkvöldi. Lokastigin urðu 107 gegn
106 — bæriieg afmælisgjöf til KR á átta-
tlu ára afmælinu sem er f vetur. Leikur-
inn var allan tfmann mjög jafn en þó
komst ekki regluleg spenna f hann fyrr
en undir lokin en þá varð hann lika bráð-
skemmtilegur.
Þegar 4 minútur rúmar voru til leiks-
loka var staðan 99 stig gegn 96 fyrir KR.
Hudson rauf 100 stiga múrinn með þvi
að fá eitt stig úr víti. Valur bætti
stöðuna með tveim stigum Dunbars úr
vitum og sinni körfunni frá hvorum,
Dwyer og Rikharði. Staðan orðin 100-
102 fyrir Val. Gunnar Jóakimsson
jafnaði fyrir KR og tvær mínútur til
leiksloka. Dunbar og Dwyer bættu við
körfum, sinni hvor, fyrir Val, 102 gegn
106 fyrir Val og aðeins ein mínúta til
leiksloka. Síðan brunaði Jón Sigurðsson
upp og skorar fyrir KR. Aðeins tveggja
stiga munur og 45 sekúndur til leiksloka.
Valsmenn i sókn en allt of bráðir á sér.
Missa knöttinn og KR brunar upp.
Hudson reynir skot úr miðlungsfæri,
mistekst og dæmt viti á Dwyer —
umdeildur dómur. Hann fær þrjú skot
en hittir aðeins einu. 105 gegn 106 fyrir
Val. Valur fær knöttinn, sækir en klúðr-
ar sókninni aftur og Jón Sigurðsson á
skot beint í netið. KR hefur tryggt sér
leika.”
En Mikkelsen gleymdi einu —
tslandi. Hann ræddi aldrei um litla
ísland — það var sjálfsagt að sigur
ynnist gegn íslendingum. Pólverjar og
V-Þjóðverjar, það voru þjóðirnar er
varð að sigra. tsland skipti ekki máli. En
svo fór að Danir töpuðu fyrir íslending-
sigur á siðustu andartökum leiksins.
Fátt kom á óvart i þessum leik KR,
sem styrkti lið sitt með Mark Christian-
sen sem leikur með Þór Akureyri og Val
en þar léku með þeir Dirk Dunbar, ÍS,
Poul Stewart, ÍR, Mark Holmes,
UMFG, og John Johnson, Fram.
Hinir fimm hundruð áhorfendur
fengu að sjá léttan og skemmtilegan leik
par sem mikið var skorað á báða bóga.
Þó var hittni ekkert sérstök í fyrri hálf-
leik miðað við skottilraunir. Helzt vakti
athygli góð frammistaða þeirra Mark
Christiansen, Þór, og Mark Holmes,
Grindavik. Þetta eru þeir tveir útlend-
ingar i körfuboltanum sem verið hafa
frekar í skugganum en sýndu nú og
sönnuðu að þeir standa hinum ekkert að
baki. Auk þessa má nefna að stöðugt
undrunarefni hlýtur það að teljast
hvernig Dirk Dunbar getur leikið sinn
annars fótar körfubolta og jafnvel skotið
með góðum árangri. Sannarlega leitt
fyrir stúdenta og körfuknattleiksunn-
endur að hann verði að hætta vegna al-
varlegra meiðsla í hné.
I leiknum í gærkvöldi skoraði Hudson
41 stig fyrir KR, var hæstur og átti
raunar prýðisleik, Mark Christiansen
26, Jón Sigurðsson 14, Birgir Guð-
björnsson 10, Gunnar Jóakimsson 10,
Einar Bollason 2, Garðar 2, og Árni
Guðmundsson 2. Dunbar var stiga-
hæstur i Valsliðinu með 31 stig. Aðrir
um, og í kjölfarið fylgdi nánast hið óhjá-
kvæmilega — ósigur gegn Pólverjum.
Finn Andersen, aðstoðarmaður
Mikkelsens, var og bjartsýnn. „Island er
með lélegt lið nú. Við vinnum þá með 15
mörkum. Ég tel nánast víst að Islend-
ingar falli niður í C-hóp á HM á Spáni,”
lét hann hafa eftir sér. En málin þróuð-
ust öðruvísi — og þeir Andersen og
Mikkelsen eru nú undir pressu.
sem skoruðu voru Dwyer 23, Mark
Holmes 18, Stewart 16, Þórir Magnús-
son 8, Rikharður 5 og John Johnson 4.
ÓG
Dirk Dunbar skorar eitt af stígum slnum
gegn KR — en nú kveður þessi snjalli
leikmaður vegna meiðsla.
Stigaflóð er KR sigr-
aði Val í Höllinni
—80 ára af mælisleikur KR, sem sigraði Val 107-106
Glitrandi hvolfið var beint fram undan
flugvélinni. ,, Við komumst víst ekki
hjáþvt að berja þetta niður.''
TAJ m'
MAHAL
BEINT
FRAM UNDAN
—Jack Kent —
— Saga handa börn-
um á öllum aidri —
Bókin:
Heljartak
eftirMajorie Wallace
og Michael R obson
, .Frænka,” sagði sex ára snáðinn, þegar Hazel lagði hann í
bólið. ,,Hvers vegna lyfta læknarnir litlu börnunum upp á
fótunum og flengja þau, þegar þau eru nýfædd?”
Hazel velti því fyrir sér, hvað koma myndi á eftir þessari
spurningu, en skýrði fyrir honum tilganginn.
„Hvernig fóru þeir þá að því að flengja mig?” spurði litla
röddin. , ,í hvað gátu þeir haldið til að hafa endaskipti á mér? ’ ’
Hazel flýtti sér að svara: , ,Ég hugsa að þegar þú komst út hafi
þeir bara þrifið í eyraA á þér og skellt á bossann á þér, og þannig
lifnaðir þú við.”
Hann var lítill mannhnoðri, fótalaus og handalaus, en með
járnvilja til að komast yfir vansköpun sína. Övænt lágu leiðir
kjörforeldranna og fórnarlambs thalidomidelyfsins saman, og í
sameiningu unnu þau þrjú sigur á gráglettni örlaganna.
BÓK t BLAÐFORMI