Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 11.01.1979, Qupperneq 23

Dagblaðið - 11.01.1979, Qupperneq 23
23 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR ll.JANÚAR 1979. <§ Útvarp 9 t---------------;-------------------\ KABALAFRÆÐINGURINN A EAST BROADWAY - útvarp kl. 20.10 íkvöld „DRAUGARNIR TALA - myndi gefa hálf nóbelsverðlaunin til að geta rætt við kippu af djöflum, segir Isaac Bashevis Singer JIDDISKU Gissur Ó. Erlingsson les í kvöld í út- varp smásöguna Kabalafræðingurinn á East Broadway eftir Isaac Bashevis Singer sem hlaut nóbelsverðlaun í bók- menntum á síðasta ári. Singer er töluvert öðruvisi en fólk er flest. Hann flutti til Bandarikjanna fyrir meira en 40 árum en heldur samt tryggð við það samfélag gyðinga sem hann er sprottinn úr og skrifar jiddisku. blöndu af hebresku og Evrópumálum sem gyðingar töluðu sin á milli en er óðum að deyja út. Singer, sem er af hinni frægu sauma- vélafjölskyldu, er fæddur í Póllandi i héraði sem þá var undir stjórn Rússa- keisara. Foreldrar hans ætluðust til að hann næmi trúarbrögð og yrði rabbíi eins og faðirinn og afinn. En vegna áhrifa frá eldra bróður sínum ákvað Isaac heldur að skrifa. Fyrst skrifaði hann á hebresku en síðar á jiddisku. Árið 1935 flutti hann vestur um haf og hóf að skrifa greinar í blöð á jiddísku. Þar byrjaði hann einnig á smásögum sinum og stóru skáldsögunum. Skáldsögur Singers gerast meðal drauga og djöfla sem ásækja fátæka pólska gyðinga, fólk sem er haldið ótak- markaðri hjátrú og heimsku en er samt svo innilega mannlegt. Djöflarnir, sem ásækja það, eru svo eðlilegir i lýsingu Singer lifir i heimi fortiðarinnar og skrifar aðallega um fátæka pólska gyðinga og það umhverfi sem hann ólst upp 1. Singers að engu er líkara en að hann ekki einungis trúi á þá heldur þyki honum beinlinis vænt um þá. Enda segist hann myndu gefa hálf nóbelsverð- launin til að hitta kippu af djöflum og geta rætt við þá. Singer er sannfærður um að draugar og aðrar kynjaverur tali jiddisku og muni einn daginn rísa upp og spyrja höstum rómi: „Hvað hefur komið út á jiddísku nýlega?" Fyrir þá segist hann skrifa. Þeir sem á lífi eru og lesa málið eru hins vegar fáir og fer fækkandi. Þó voru bækur Singers lengi ekki þýddar á önnur tungumál. Frægð hans var því ákaflega takmörkuð og bækur hans seldust litið. Það var ekki fyrr en fyrir fá- um árum að farið var að þýða bækur hans á ensku og þá fóru menn að lesa þær i ríkari mæli. Singer er orðinn 74 ára og segist vera fullur bjartsýni á mannkynið. „Ég haga mér að minnsta kosti eins og ég sé bjart- sýnn. En ég trúi þvi í rauninni alls ekki. að þjóðfélagið verði neitt betra á morgun en það er i dag. Þvert á móti. Sömu vandamálin verða enn fyrir hendi. Það verður jafnerfitt fyrir stelpu að ná sér í strák og það er núna.” - DS <r Utvarp Fimmtudagur 11. janúar 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Veöurfregnir. Fréttir. Tilkynningar. Viö vinnuna: Tónleikar. 14.30 Miðdegissagan: „Á norðurslóðum Kanada” eftir Farley MowaL Ragnar Lárusson endar lestur þýðingar sinnar (11). 15.00 Miödeglstónleikan Sinfóníuhljómsveitin í Genf leikur milliþáttatónlist úr óperunni „Macbeth'* eftir Ernest Bloóh; Pierre Colombo stj. Sinfóníuhijómsveit rússneska útvarpsins leikur Sinfóníu nr. 6 í h-moll op. 54 eftir Dmitri Sjostakhovitsj; Alexander Gauk stj. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veður- fregnir). 16.20 Tónleikar. 16.40 Lagiö mitt: Helga Þ. Stephensen kynnir óskalög barna. 17.20 (Jtvarpssaga barnanna: „Dóra og Kári” eftir Ragnheiöi Jónsdóttur. Sigrún Guðjóns- dóttir les (5). 17.40 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. FréttaaukLTilkynningar. 19.35 Daglcgt mál. Eyvindur Eiríksson flytur þáttinn. 19.40 íslenzkir einsöngvarar og kórar syngja. 20.10 „Kabalafræðingurínn á East Broadway”, smásaga eftir Isaac Bashevis Singer. nýbak- aðan Nóbelshöfund. Gissur Ó. Erlingsson les eigin þýðingu. 20.30 Sinfóniuhljómsveit tslands leikur l Há- skólabiói. Fyrri hluta Beethoven-tónleika sveitarinnar útvarpað beint. Stjórnandi: Wilhelm Bruckner Rúggenberg. Einleikari: Pi Hsien-Chen, —• bæði frá Vestur-Þýzka- landi. a. Sinfónia nr. I í C-dúrop. 21. b. Pianó- konsert nr. 3 í c-moll op. 37. 21.35 Leikrit: „Eineggja tvíburar” eftir Agnar Þórðarson. Leikstjóri: Benedikt Ámason. Per- sónurog leikendur: Hún........................Kristbjörg Kjeld Hann....................Róbert Arnfinnsson 22.20 Sembalmúsik. William Neil Roberts leikur Sónötu í B-dúr og Sónötu I d-moll eftir Carlos Seixas. 22.30 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgun- dagsins. 22.50 Víðsjá: Friörik Páll Jónsson sér um þátt- inn. 23.05 Áfangar. Umsjónarmenn: Ásmundur Jónsson ogGuðni Rúnar Agnarsson. 23.50 Fréttir. Dagskrárlok. Föstudagur 12. janúar 7.00 Veöurfregnir. Fréttir. Tónleikar. 7.I0 Leikflmi. 7.20 Bæn. 7.25 Morgunpósturínn. Umsjónarmenn: Páll Heiöar Jónsson og Sigmar B. Hauksson. (8.00 Fréttir). 8.15 Veöurfregnir. Fomstugr. dagbl. (útdr.). Dagskrá. 8.35 Morgunþulur kynnir ýmis lög; frh. 11 -00 Það er svo margt. Einar Sturluson sér um þáttinn. II.35 Morguntónleikar: VIÐ STÆKKUM ] 0G BREYTUM bjóðum við flestar byggingavörur á sama stað í nýinnréttuðu húsnæði á 1. og 2. hæð, samtals 600 m2. Komið og skoðið. — Það er hagkvœmt að verzla allt á sama stað. Útveggjasteinn Þakpappi Eldhúsinnréttingar Veggfóður Milliveggjaplötur Múrnet Plaströr & fittings Veggstrigi Spónaplötur Rappnet Gluggaplast Gólfflísar Grindaefni Skrúfur Álpappir Veggflisar Plasteinangrun Þakrennur Garðastál Lím Gierullareinangrun Hreinlætistæki Lamir&skrár Gólfdúkur Steinuliareinangrun Blöndunartæki Rafmagnsverkfæri Korkflísar Glerullarhólkar Viðarþiljur Málningarvörur Saumur Þakjárn Baðskápar Verkfæri ALLT UNDIR EINU ÞAKI V BYGGINGARVÖRUDEILD JÓN LOFTSSON HF. HRINGBRAUT121 / Kerfisfræóingur með haldgóða þekkingu á rekstri óskar eftir góðu starfi. Tilboð merkt „Kerfis- fræðingur” sendist afgreiðslu Dagblaðs- ins. Reyðarfjörður Nýr umboðsmaður Dagblaðsins er Árni Elfsson, Túngötu 5, sími 97-4265. wmi/uai ÖKUÞÓRINN ÖKUÞÓRINN BRUCE DERN ■ ISABELLE ADJANI Æsispennandi litmynd. Bönnuö innan 14 ára. Hækkaö verö. Sýnd kl. 5,7,9 og 11.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.