Dagblaðið - 09.02.1979, Side 4
18
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1979.
Á VEIÐUM—sjónvarp á föstudagskvöldið:
Berklaveika, afkasta
mikla, rússneska
skáldið
Sovézkar bíómyndir eru sjaldgæfar i
íslenzku sjónvarpi. En eina fáum við að
sjá á föstudagskvöldið í næstu viku.
Nefnist sú mynd Á veiðum og er gerð
eftir smásögu Antons Tsjekhovs. Að
sögn Evgenis Barbukho, sem vinnur hér
á landi hjá APN og hefur oft skrifað
greinar í Dagblaðið, er myndin mjöggóð
og vel þess virði að horfa á. Oleg Jankov-
skí, sem leikur annað aðalhlutverkið, er
einn af albeztu leikurum Sovétmanna og
Galja Béljaéva, sem leikur hitt aðalhlut-
verkið, er mjög góð, þó ekki jafnist hún
á við Oleg.
Bíómyndin fjallar um rithöfund sem
semur sögu um morð á ungri stúlku.
Þegar útgefandi hans les söguna sér
hann strax hvernig sambandi rithöfund-
arins við hina myrtu var háttað.
Anton Tsjekhov, höfundur sögunnar
sem myndin er gerð eftir, lifði aðeins 44
ár en náði því samt að verða einn þekkt-
asti höfundur Rússa. Evgení sagði að
enn væru sögur eftir ha«n lesnar á
hverju einasta rússnesku heimili og sá
sem ekki væri vel að sér i ritum hans
væri ekki samræðuhæfur.
En undir Tsjekhov var ekki mulið.
Faðir hans, sem átti litla verzlun, ól son
sinn og fimm systkini hans upp undir
orðtækinu „Enginn verður óbarinn
biskup”. Seinna sagðist Anton aldrei
hafa átt neina æsku því þó að draumar
hans um að ganga í skóla rættust þurfti
hann að vinna í búð föður síns, oft fram
á rauða nótt. Anton var einnig einrænn
og eignaðist því enga félaga í skólanum.
Þegar hann var 15 ára varð faðir hans
gjaldþrota og varð þá Tsjekhov að fara
að vinna fyrir sér með skólanum. Og um
leið varð hann að sjá fyrir fjölskyldu
sinni. Til þess að afla sér fjár kenndi
hann í fyrstu en fór siðan að skrifa
sögur.
Hann las til Iæknis og árið 1884 tók
hann embættispróf. Þá þegar hafði hann
skrifað um 2 þúsund sögur til þess að
vinna fyrir sér. Þó hann væri orðinn
læknir ákvað hann að leggja ekki skrift-
Anton Tsjekhov og kona hans, Olga Knipper.
irnar á hilluna, hann vildi vera bæði rit-
höfundur og læknir.
Árið eftir embættisprófið fór hann að
hósta blóði. Þó hann tryði því ekki
sjálfur var hann kominn með berkla. Til
þess að sanna fyrir sjálfum sér að hann
væri alheill skrifaði hann meira en
nokkru sinni fyrr. Árið 1887 byrjaði
hann að skrifa leikrit. t fyrstu fengu þau
dræmar undirtektir en þegar farið var að
sýna þau í Pétursborg ætluðu áhorf-
endur vitlausir að verða af hrifningu.
Þegar Tsjekhov var 38 ára hitti hann
leikkonuna Olgu Knipper og tókust með
þeim ástir. Þau giftust nokkrum árum
seinna en urðu fljótt að skilja því
Tsjekhov varð að halda til Jöfu heilsu
sinnar vegna en Olga varð eftir í
Moskvu.
Þegar hann var 44 ára var leikrit
hans Kirsuberjagarðurinn frumsýnt
með Olgu I aðalhlutverki. Fékk leikritið
fádæma góðar undirtektir. Nokkrum
mánuðum seinna dó svo Tsjekhov.
- DS
Útvarp
Ásgeirsson framkvæmdastjóra um kaupskipa-
útgerð.
11.15 Morguntónleikan Roberto Szidon leikur
Pianósónötu nr. 3 í fis-moll op. 23 efíir
Alexander Skrjabín / Gervase de Peyer og Erik
Parkin leika Fantasíusónötu fyrir klarinettu
•• og pianó eftir John Ireland.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar.
12.25 Veöurfregnir. Fréttir. Tilkynningar. Á frí-
vaktinni. Sigrún Siguröardóttir kynnir óskalög
sjómanna.
14.25 Miðlun og móttaka. Annar þáttur Emu
IndriÖadóttur um fjölmiðia. Fjallað verður um
útgáfu dagblaða og rætt við blaðamenn.
15.00 Middegistónleikan Hljómsveitin „Har-
monien” I Björgvin leikur „Zorahayda prins-
essu" sinfónískt Ijóð op. 11 eftir Johann
Svendsen; Karsten Andersen stj. / Filhar-
moniusveitin í Vin leikur Sinfóniu nr. 6 í C-
dúr eftir Franz Schubert; Istvan Kertesz stj.
15.45 Til umhugsunar. Karl Helgason tekur
saman þáttinn, sem fjallar m.a. um áfengis-
lausa dansleiki.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veður-
fregnir).
16.20 Popp.
17.20 Tónlistartími barnanna. Egill Friðleifs-
son stjórnar timanum.
17.35 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki.Tilkynningar.
19.35 Steyttur hnefi l Paris. Dr. Gunnlaugur
Þórðarson flytur erindi.
20.05 Kammertónlist. Strauss-kvartettinn leikur
Kvartett í C-dúr op. 76 nr. 3, „Keisarakvart-
ettinn”, eftir Joseph Haydn.
20.30 Útvarpssagan: „Eyrbyggja saga”. Þor-
• varður Júlíusson les (3).
21.00 Kvöldvaka. a. Einsöngun Ólafur Þor-
steinn Jónsson syngur við pianóundirleik
ólafs Vignis Albertssonar. b. Sagan af Lykla-
Pétri og Magellónu. Séra Sigurjón Guðjóns-
son fyrrum prófastur les þýðingu sína á gam-
alli sögn, sem kynjuð er frá Frakkiandi. Baldur
Pálmason les brot úr rímum, sem séra Hail-
grimur Pétursson orti út frá sömu sögu. c. Til
sjós á striðsárunum. Jón Gislason póstfulltrúi
talar við Áma Jón Jóhannsson sjómann, m.a.
um minnisverða ferð með Goðafossi vestur
um haf. d. Kórsöngur. Kór Söngskólans í
Reykjavik syngur undir stjóm Garðars
Cortes; Krystyna Cortes leikur á píanó.'
22.30 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgun-
dagsins. Lestur Passiusálma (2).
22.55 Víðsjá: ögmundur Jónasson sér um þátt-
inn.
23.10 Á hljóðbergi. Umsjónarmaður: Bjöm Th.
Bjömsson listfræðingur. „The Hobbit” eftir
J.R. Tolkien: Omstan um Arknastein; Bilbo
Baggins snýr heim frá afrekum. Nicol William-
son les síðari lestur.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Miðvikudagur
14. febrúar
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Tónleikar.
7.10 Leikfimi. 7.20. Bæn.
7.25 Morgunpósturínn. Umsjónarmenn: Páll
Heiðar Jónsson og Sigmar B. Hauksson (8.00
Fréttir).
8.15 Veðurfregnir. Fomstugr. dagbl. (útdr.).
Dagskrá.
8.35 Morgunþulur kynnir ýmis lög að eigin
vali. 9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: Geirlaug Þor-
valdsdóttir heldur áfram að lesa „Skápalinga”,
sögu eftir Michael Bond (17).
9.20 Leikfimi.
9.30 Tilkynningar. Tónleikar. 9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. I0.10 Veðurfregnir.
10.25 Morgunþulurkynnirýmislögfrh.
ll.OO Horft til höfuðátta. Séra Helgi Tryggva-
son les kafla úr bók sinni „Visið þeim veginn”.
11.25 Kirkjutónlist: Verk eftir Felix Men-
delssohn. Wolfgang Dallmann leikur
Orgelsónötu nr. 3 i A<lúr, og kór Kirkju-
tónlistarskólans í Westfalen syngur fjórar
mótettur, Wilhelm Ehmann stj.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir. Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
13.20 Litli barnatíminn. Sigríður Eyþórsdóttir
stjórnar. Lesið úr bókinni „Fólk” eftir Jónas
Ámason.
13.40 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Húsið og hafið” eftir
Johan Bojer. Jóhannes Guðmundsson
islenzkaði. Gisli Ágúst Gunnlaugson les (14).
15.00 Miðdegistónleikar: Fíiharmoniusveit
Lundúna leikur „Scapino” gamanforleik eftir
, William Walton; Sir Adrian Boult stj./ Paul.
Tortelier og Boumemouth sinfóníuhljómsveit-
in leika Konsert nr. 1 i Es-dúr op. 107 fyrir
sclló og hljómsveit eftir Dimitri Sjostakovitsj;
Paavo Berglund stj.
15.40 íslenzkt mál. Endurt. þáttur Gunnlaugs
Ingólfssonar frá 10. þ.m.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veður-
fregnir).
16.20 Popphorn: Halldór Gunnarsson kynnir.
17.20 Otvarpssaga barnanna: „Bernska i byrjun
aldar” eftir Erlu Þórdlsi Jónsdóttur. Auður
Jónsdóttir leikkona byrjar iesturinn.
17.40 Á hvltum reitum og svörtum. Guðmundur
Amlaugsson flytur skákþátt.
18.10 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar.
19.35 Frá tónleikum í Háteigskirkju 18.
desember sl. Serenaða nr. 12 i c-moll fyrir
blásaraoktett (K388) eftir Mozart. Flytjendur:
Duncan Campbell, Lawrence Frankel, Einar
Jóhannesson, óskar Ingólfsson, Hafsteinn
Guðmundsson, Rúnar Vilbergsson, Gareth
Mollison og Þorkell Jóelsson.
20.00 Cr skólalifinu. Kristján E. Guðmundsson
stjórnar þættinum, sem fjallar um skipulag og
baráttumál Iðnnemasambands íslands.
20.30 Útvarpssagan: .Eyrbyggja saga”. Þor-
varður Júliusson ies (4).
21.00 Hljómskálamúsik. Guðmundur Gilsson
kynnir.
21.30 Hvoru megin er hjartað? Jónas
Guðmundsson les frumort Ijóð.
21.45 íþróttir. Hermann Gunnarsson segir frá.
22.05 Ludwig Streicher leikur á kontrabassa lög
. eftir Giovanni Bottesini; Norman Shetler
leikur á pianó.
22.30 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Lestur Passiusálma (3).
22.55 Úr tónlistarlífinu. Knútur R. Magnússon
sér um þáttinn.
23.10 Svört tónlist. Umsjón: Gerard Chinotti.
Kynnir: Jórunn Tómasdóttir.
>3.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Fimmtudagur
15. febrúar
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Tónleikar.
7.10 LeikfimL 7.20 Bæn.
7.25 Morgunpósturínn. Umsjónarmenn: Páll
Heiðar Jónsson og Sigmar B. Hauksson. (8.00
Fréttir).
8.15 Veöurfregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.).
Dagskrá.
8.35 Morgunþulur kynnir ýmis lög að eigin
vali. 9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: Geirlaug Þor-
valdsdóttir lýkur lestri „Skápalinga”, sögu eftir
Michael Bond i þýðingu Ragnars Þorsteins-
sonar(18).
9.20 LeikfimL
9.30 Tilkynningar. Tónleikar. 9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
10.25 Morgunþulur kynnir ýmis lög, frh.
11.00 Verzlun og viðskipd. Umsjón: Ingvi
Hrafn Jónsson.
11.15 Morguntónleikan John Wiliams og
Filadelfiuhljómsveitin ieika Gítarkonsert i D-
dúr op. 99 eftir Mario Castelnuovo-Tedesco;
Eugene Ormandy stj./ Lamoureux
hljómsveitin i París leikur „Francesca da
Rimini”, hljómsveitarfantasiu op. 32 eftir
Pjotr Tjaíkovsky, Igor Markevitsj stj.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir. Fréttir. Tilkynningar. Við
vinnunæTónieikar.
14.30 Heimili og skóli. Umsjón: Birna G. Bjam-
leifsdóttir, sem ræðir ásamt Bryndisi Helga-
dóttur við Ásgeir Guðmundsson skólastjóra
um samstarf heimili og skóla. Einnig rætt við
Sigfriði Angantýsdóttur.
15.00 Miðdegistónleikan Peter Schreier syngur
lög eftir Felix Mendelssohn; Walter Olbertz
leikur á pianó/André Watts Ieikur
Píanósónötu í h-moll eftir Franz Liszt.
16.00 Fréttir. Tilkynningar (16.15 Veður-
fregnir).
16.20 Tónleikar.
16.40 Lagið mitt: Helga Þ. Stephensen kynnir
óskalög bama.
17.20 ÚtYarpssaga barnanna: „Bernska í byrjun
aldar” eftír Erlu Þórdisi Jónsdóttur. Auður
Jónsdóttir leikkona les (2).
17.40 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. FréttaaukL Tilkynningar.
19.35 Daglegt mál. Ámi Böðvarsson flytur
þáttinn.
19.40 íslenzkir einsöngvarar og kórar syngja.
20.10 Leikrit: „Linditréð” eftir J. B. Priestley.
Mollie Greenhalgh bjó til útvarpsflutnings
Þýðandi og leikstj.; Ævar R. Kvaran: Per-
sónur og leikendur: Linden prófessor-Rúrik
Haraldsson, Isabel-Guðbjörg Þorbjamar-
dóttir, Rex Linden-Gísli Alfreðsson, Jean
Linden, læknir-Margrét Guðmundsdóttir,
Marion de Saint Vaury-Sigríður Þorvalds-
dóttir, Dinah Linden-Helga Þ. Stephensen,
Edith Westmore-Steinunn Jóhannesdóttir.
Aðrir leikendur, Klemenz Jónsson, Jón
Gunnarsson og Bryndís Pétursdóttir.
22.00 Samleikur í útvarpssal: Símon H. tvarsson
og Carl Hánggi leika gítartónlist eftir Villa-
Lobos, Antonio Lauro, de Falla, Turine.
22.30 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. (Lestur Passiusálma (4).
22.55 Viðsja: Friðrik Páll Jónsson sér um
þáttinn.
23.10 Áfangar. Umsjónarmenn: Ásmundur
Jónsson og Guðni Rúnar Agnarsson.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Föstudagur
16. febrúar
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Tónleikar.
7.10 LeikfimL7.20 Bæn.
7.25 Morgunpósturínn. Umsjónarmenn: Páll
Heiðar Jónsson og Sigmar B. Hauksson. (8.00
Fréttir).
•ú
8.15 Veðurfregnir. Fomstugreinar dagbl.
(útdr.) Dagskrá.
8.35 Morgunþulur kynnir ýmis lög að eigin
vali. 9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: Helga
Stephensen les tvær sögur, „Söguna af Héppa”
eftir Kathryn og Byron Jackson og „Þegar
haninn hélt veizlu fyrir þá ríku og ráðsettu”
" eftir Hugo Gyllander. Þýðandi: Þorsteinn frá
Hamri.
9.20 Leikfimi.
9.30 Tilkynningar. Tónleikar. 9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
10.25 Morgunþulur kynnir ýmis lög: — frh.
11.00 Ég man það enn: Skeggi Ásbjamarson
sér um þáttinn.
11.35 Morguntónleikan Mozart-hljómsveitin í
Vin leikur þrjá menúetta (K363) eftir Mozart;
Willi Boskovsky stjJ Han De Vries og
Filharmoniuhljómsveitin i Amsterdam leika
Inngang, stef og tilbrigði i f-moli op. 102 eftir
Hummel; Anton Kersjesstj.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir. Fréttir. Tilkynningar. Við
vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegisdagan: „Húsið og hafið” eftír
Johan Bojer. Jóhannes Guðmundsson þýddi.
Gísli ÁgústGunnlaugsson les (15).
15.00 Miðdegistónleikan Alicia De Larrocha og
Fílharmoniusveitin í Lundúnum leika
Pianókonsert i Des-dúr eftir Aram Khat-
sjatúríjan; Rafael Friibeck de Burgos stj.
15.40 Lesin dagskrá næstu viku.
16,00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veður-
fregnir).
16.30 Popphom: Dóra Jónsdóttir kynnir.
17.20 Útvarpssaga barnanna: „Bernska i byrjun
aldar” eftir Erlu Þórdisi Jónsdóttur. Auður
Jónsdóttir leikkona les (3).
17.40 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. FréttaaukL Tilkynningar.
19.40 Fróðleiksmolar um illkynja æxli. Dag-
skrárþáttur að tilhlutan Kabbameinsfélags
Reykjavíkur. Þátttakendur. Hrafn Tuliníus,
Jónas Hallgrímsson og Þórarinn Guðnason.
20.05 Frá tónieikum i Champs Elysées
leikhúsinu í París 23. nóvember sl. Franska
ríkishljómsveitin leikur Sinfóníu i e-moll op.
98 eftir Johannes Brahms.
20.50 Fast þeir sóttu sjóinn. Þriðji þáttur
Skreiðarferðir. Umsjón: Tómas Einarsson.
Lesarar ásamt honum: Baldur Sveinsson og
Snorri Jónsson.
21.30 Kórsöngur. Krosskórinn í Dresden syngur
alþýðleg lög. Stjórnendur: Rudolf Mauers-
berger og Martin Flámig.
22.05 Kvöldsagan: „Klukkan var eitt”, samtöl
við ólaf Fríðríksson. Haraldur Jóhannsson
skráði og les ásamt Þorsteini ö. Stephensen.
(1).
22.30 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Lestur Passiusálma(5).
22.55 Bókmenntaþáttur. Umsjónarmaður:
Anna Ólafsdóttir Bjömsson. I þættinum er
fjallað um lestur og kaup bóka á erlendum
málum.
23.10 Kvöldstund með Sveini Einarssyni.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Laugardagur
17. febiúar
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Tónleikar.
7.10 Leikfimi.
7.20 Bæn.
7.25 Ljósaskiptí: Tónlistarþáttur í umsjá
Guðmundar Jónssonar píanóleikara (endur-
tekinn frá sunnudagsmorgni).
8.00 Fréttir. Tónleikar. 8.15 Veðurfr.
Forustugr. dagbl. (útdr.). Dagskrá.
8.35 Morgunþulur kynnir ýmis lög að eigin
vali.
9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar.
9.20 LeikfimL
9.30 óskalög sjúklinga: Kristín Sveinbjöms-
dóttir kynnir. (10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir).
11.20 Að leika og lesa: Valgerður Jónsdóttir
aðstoðar hóp bama úr Snælandsskóla í Kópa-
vogi að gera dagskrá.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir. Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
13.30 t vikulokin. Blandað efni í samantekt ól-
afs Geirssonar, Jóns Björgvinssonar, Eddu
Andrésdóttur og Áma Johnsens.
15.30 Tónleikar.
15.40 íslenzkt mál. Guðrún Kvaran cand. mag.
flytur þáttinn.
16.00 Fréttir..
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Vinsælustu popplögin. Vignir Sveinsson
kynnir.
17.00 Söngleikir í Lundúnum, III. þáttur. Ámi
Biandon kynnir söngleikina „Ipi Ponpi” og „A
Chorus Line”.
17.55 Söngvar í léttum dúr. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar.
19.35 „Góði dátinn Svejk”. Saga eftir Jaroslav
Hasek i þýðingu Karls ísfelds. Gísli Halldórs-
son leikari byrjar lesturinn.
20.00 Hljómplöturabb. Þorsteinn Hannesson
kynnir sönglög og söngvara.
20.45 Ferðaþættir frá Vermalandi; fyrri hlutí.
Sigurður Gunnarsson segir frá.
21.20 Gleðistund. Umsjónarmenn: Guðni
Einarsson og Sam Daniel Glad.
22.05 Kvöldsagan: „Klukkan var eitt’, samtöl
við Ólaf Fríðríksson. Haraldur Jóhannsson
skráði og les ásamt Þorsteini ö. Stephensen
(2).
22.30 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morg,
undagsins. Lestur Passiusálma (6).
22.50 Danslög. (23.50 Fréttir).
01.00 Dagskrárlok.