Dagblaðið - 13.03.1979, Page 2

Dagblaðið - 13.03.1979, Page 2
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 13. MARZ 1979. Þetta er ekki boðlegt Engin vett lingatök Rauðu MAX VINYLglóIarnir eru með grófri krumpálerð. Hún auðveldar erfið störf og útilokar öll vettlingalök. Um endinguna vitna þeir sem nota þá. MAX' Rauðu MAX VINYLglófarnir. Heildsölubirgðir og dreifing Daviö S. Jónsson og Co. hf. S 24333. lengur Ágústaskrifar: Aðeins nokkrar línur til að- standenda barnatíma Sjónvarpsins frá fjögurra barna móður. Vinsam- legast takið til greina ábendingar og mótmæli foreldra og ekki síður þeirra barna sem á barnatímann reyna að horfa. Það er ekki lengur hægt að bjóða okkur öllum upp á þessa þrautleiðinlegu barnatíma Sjónvarpsins. Það er eins og stjórnandi geri sér ekki grein fyrir því að i daglegu lífi sínu stunda flest börn uppeldisstofn- anir, s.s. dagheimili, leikskóla og ekki sizt hina ýmsu barnaskóla. Það er verið að fræða börnin allan lið- langan daginn á einn eða annan hátt, sem auðvitað er mjög jákvætt. Hvað ætli sé hægt að eyða miklu meiri olíu í fiskiskip- um en nú er Kristján Vilhelmsson, Efstahjalla 15, Kópavogi, skrifar: Þessar línur mínar eru til komnar vegna greinar í DB 21. febr. um olíu- austur og fleira sem haft er eftir KriStjáni Finnbogasyni eiganda Boga hf. Það er leitt til þess að vita að hinn fullkomni olíustillibekkur þeirra „Bogabræðra” skuli ónýttur, því það vita allir sem inn á vélar þekkja að mjög mikilvægt er aðhafa elds- neytistækin vel stillt og góð. Það er ósköp einfalt að setja upp falleg reikningsdæmi og reikna út alls konar sparnað annars vegar og bruðl hins vegar, en þegar það er gert verður að ætlast til þess að forsend- urnar fyrir útreikningnum standist. Kristján Finnbogason er óhræddur að taka stórt upp í sig og finnst mér vera hálfgerður svartoliunefndar- framsetningur á sparnaðartölunum hans enda hefur hann trúlega smitazt af henni í viðskiptum við hana. Kristján tekur dæmi um togara sem hann fór höndum um og eftir það eyddi hann tæpum 2 millj. minna í olíu í túr. Þetta er falleg tala, en hvað skyldi þessi togari brenna miklu í einum 10 daga túr miðað við vel stillta vél. í togaranum er Deutz 545 1500 hestafla vél og fyrir þá vél gefur framleiðandi upp eyðsluna 156 gr/hah við fullt álag og 161 gr/hah við hálft álag. Ef maður gefur sér að notað sé fullt álag í 3 daga og hálft álag í 7 daga, eðlis- þyngd olíu sé 0,9 og verð hennar 57.55 kr. pr. 1. brennir þessi togari fyrir tæpar 2,4 millj. en að hann hafi brennt fyrir 4,4 millj. fyrir stillingu er ég vantrúaður á. Á einum stað í greininni segir ,,að vélaslit skipa sem brenna svartolíu sé sízt meira en skipa sem brenna gas- olíu og oftast minna.” Hvaðan skyldi Kristján hafa þessa vitneskju? Er þetta hans reynsla? Ef svo er finnst mér að hann eigi að láta uppskátt hvaða vél hann notar, því þó að útgerðarmenn séu eyðslusamir ög vélstjórar þekkingarsnauðir hljóta þeir að skipta yfir á svartolíu í þeirri olíukreppu sem nú er og að sjálf- sögðu einnig að kaupa svona forláta vél, sem hann einn veit um. í samtali sem ég og fleiri áttum við hr. Bruggenbors, sem kom hingað á vegum MAK verksmiðjanna og í DB. 16. febr. var titlaður „olíusér- fræðingur” kom fram að reikna mætti með allt að 30% meira sliti við svartoliubrennslu og var þá aðeins rætt um olíu með 100—200 Redwood sek. seigju. Enda þarf enga stórkost- lega spekinga til að sjá þetta, aðeins að athuga efnisinnihald olíanna. Vanstillingu vélar veit Kristján um á ýmsum stöðum og ætla ég ekki að efast um það, en eitt er víst að því er ekki fyrir að fara alls staðar. Eitt töludæmi tekur Kristján fyrir og nefnir mismun á olíunotkun Dagrúnar og Hugrúnar frá Bolunga- vík. Hér held ég að orðið hafi rugiingur á nöfnum og átt sé við Heiðrúnu en ekki Hugrúnu, því Dagrún og Heiðrún stunda togveiðar en að öðru leyti eru skipin ekkert lík, ekki sama stærð, ekki sama byggingarlag og síðast en ekki síst ekki sams konar vélar, eins og sagt er í greininni. 1 Dagrúnu er 1800 ha Crepelle vél en í Heiðrúnu er 1450 ha Alfa vél. Ég vona að Kristján haldi ekki að ég sé á móti stilltum vélum og telji stillingu þarflausa. Það er síður en svo en slettugangur með fullyrðingar sem hafa við lítil eða engin rök að styðjast er mjög hvimleiður og er sízt til að auka hróður eins eða neins. Því miður sjást þess háttar hlutir allt of oft og það undarlega er að þar eru æði oft menn sem ætla að spara olíu- kostnað I fiskiskipum og tala þá ekki um neinn smáaurasparnað, heldur hefur maður stundum á tilfinning- unni, að þeir ætli sér að dæla olíu í land eftir hvern túr, slíkar eru öfgarnar. Enginn vinnur sér hylli út- gerðarmanna og vélstjóra með sleggjudómum sem þeim er viðhafðir eru í DB 21. febrúar. En börn hafa misjafna aðstöðu til að „lyfta sér upp” en þar er aðstaða foreldra oft önnur. Ekki hafa öll börn aðstöðu til að fara í kvikmynda- hús, leikhúseðajafnvel í Hollywood. Þau börn sem heima sitja krefjast þess að þörf þeirra fyrir glens og gaman sé að einhverju leyti uppfyllt með sjónvarpsefninu sem í boði er fyrir börn. Á mínu heimili er ennþá talað um hversu skemmtilegur Jógi björn hafi verið í dagskránni á að- fangadag ásamt þeim teiknimyndum sem „stöku” sinnum hafa verið sýndar. Efni barnatímans er allt of þurrt og alvarlegt, of mikil fræðsla. Börn vilja skemmtiefni, auðvitað blandað að litlu leyti fræðslu. Hvers- dagslíf margra barna í dag er ekkert grín. Mörg þeirra sjá lítið annað en alvöru lífsins frá morgni til kvölds. Vissulega er það virðingarvert að reyna að fræða börnin, en of mikið má af öllu gera. Sjónvarpið er, hvort sem okkur líkar betur eða verr, hluti af okkar daglega lifi. Sjáið nú að ykkur. Slappið af og komið með teiknimyndir, jafnvel þótt þær séu amerískar. Þær eru oftast skemmti- legastar. Um leið og ég læt þessar ábending- ar fara frá mér vil ég þakka Sjón- varpinu viðleitni til þess að gera laug- ardagskvöldin að fjölskyldukvöld- um. Undanfarið hefur eitthvert efni höfðað til flestra aldurshópa. Beztu þakkir fyrir það og haldið áfram á sömu braut. Með hækkandi sköttum, bensínverði og skemmtana- gjaldi hefur venjulegt fólk vart efni á að sækja skemmtanir utan heimilis lengur. Með beztu kveðjum og vinsamleg- ast hlustið á fólkið. Það væri óskandi að sjónvarpið tæki upp eitthvert léttmeti í barnatímanum. Er sjónvarpið auglýsinga- stofnun fyrir Hljómplötuút- gáfuna? Lesandi skrifar: Þriðjudaginn 6. marz sl. lét 4913— 1038 góð skrif frá sér fara í Dagblað- ið um Hljómplötuútgáfuna og sjón- varpið. Það sem í greininni stóð er allt sannleikur frá upphafi til enda. Sjónvarpið er auglýsingastofnun Hljómplötuútgáfunnar í meira lagi, og hefur flutningur á efni frá þeim Magga og Jóni framkvæmdastjóra í sjónvarpinu farið út í öfgar. Þó skal viðurkennt að Jón er með betri fram- kvæmdastjórum á landinu. Hann er svo góður að hann getur gefið út yfir- lýsingar sem ekki eru á rökum reistar, eins og t.d. það að Hljómplötuútgáf- an sé að fara á hausinn. Já, herra Jón framkvæmdastjóri, ég hef heyrt mikið um þín fram- kvæmdastjórastörf. Sem dæmi um þau má nefna að engin hljómsveit á landinu nema Brunaliðið getur sett upp 900.000 krónur fyrir að spila i 60 minútur eða svo á balli og boðið öðrum hljómsveitum að spila á sama balli fyrir 60—100.000 krónur. Bjartsýnn ertu. Kannski þér hafi tekizt þetta nokkrum sinnum en varla mikið oftar, því það mætti segja mér að fólk væri farið að sjá gegnum reykinn þar sem hann er þynnstur. Að lokum vil ég að þessi sönnu skrif um Hljómplötuútgáfuna nái til fólks og veki það til umhugsunar um hvað verið er að bjóða því upp á. "HemSsJ /æknir Raddir lesenda taka við; skilaboðum til umsjónar- manns þáttarins „Heimil- islæknir svarar" ■ síma 27022, kl. 13-15 alla virka daga.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.