Dagblaðið - 13.03.1979, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 13. MARZ 1979.
3
námsmaima latarí
Erumakar
en
aðrir?
6867—2937 skrifar:
Mig langar að spyrja þá sem ráða
Lánasjóði íslenzkra námsmanna um
atriðið varðandi námsmenn með
eiginkonu eða sambýliskonu sem
ekki vinnur úti, en er líkamlega heil-
brigð til þess, hvort hann fái sam-
kvæmt nýju reglunum minna lán
vegna þessa. Hafa þessir menn hugs-
að eitthvað út í það hvað gera eigi við
börn þessara námsmanna á meðan
konan er úti að vinna. Þó það eigi að
heita svo að börn einstæðra foreldra
og námsmanna gangi fyrir á dagvist-
unarstofnunum er það ekki svo í raun
varðandi börn námsmanna (a.m.k.
ekki í mínu tilviki) nema það sé svona
gifurlegur fjöldi einstæðra foreldra
hérna i Reykjavik.
Fylgistu með
fréttum af frammi-
stöðu íslenzku skák-
mannannaí
Miinchen?
Þórir Sigurðsson, atvinnulaus: Nei, ég
geri það ekki og ég hef litinn áhuga á
skák.'
Fataverzlun
Hamraborg 14 Kópavogi,
Flauelisbuxur kr. 9.500,
Gallabuxur kr. 8.900,
En kannski vilja þessir menn sem
setja reglur um hvernig námslánaveit-
ingu er háttað taka það að sér að
passa þau börn námsmanna sem ekki
fá pláss á dagvistunarstofnunum á
meðan makinn er úti að vinna eða
hvað leggja þeir til málanna? í þessu
atriði nýju námslánakjaranna finnst
mér verið að stimpla maka náms-
manna lata, að þeir nenni ekki að
vinna úti og vilji bara lifa í vellysting-
um á lánum eins og snikjudýr á
þjóðfélaginu, eins og svo vinsælt er
að nefna námsmenn vegna þessara
lána.
Það tekur enginn ián aðeins með
það fyrir augum að þurfa ekki að
vinna og ég á erfitt með að trúa þvi
að námsmenn séu eitthvað öðruvísi
hugsandi varðandi lántökur. En hvað
eigum við sem ekki fáum pláss á dag-
heimilum að gera við börnin svo við
getum farið að vinna úti, það vildi ég
gjarnan fáaðvita.
Það er ekki hægt að láta sem þau
séu ekki til eða er verið að refsa
námsmönnum fyrir það að eiga börn.
Einnig væri fróðlegt að vita hvar
Lánasjóður islenzkra námsmanna
fær upplýsingar um það hver sé lík-
amlega heilbrigður og fær til vinnu
Það virðast fleiri en námsmenn vera orðnir þreyttir á viðskiptum sinum við Lánasjóð íslenzkra námsmanna.
Sönglagakeppnin í
Sopot alveg f rábær
V.S. skrifar:
Ég vildi gjarnan spyrja forráða-
menn skemmtideildar Sjónvarpsins
hvort líkur séu á þvi að danska Grand
Prix sönglagahátíðin verði sýnd i
sjónvarpinu á næstunni. Einnig vildi
ég spyrja sömu menn hvort íslenzka
sjónvarpið hafi tryggt sér sýningarrétt
á stórkostlegri sönglagahátíð sem fer
fram árlega i ágústmánuði í Sopot i
Póllandi, en þúsundir Norðurlanda-
búa fara ár hvert til Póllands til þess
að vera viðstaddir hátíð þessa. Ég
var svo lánsamur að sjá og heyra dag-
skrá frá þessari hátíð í pólska sjón-
varpinu og ég fullyrði að Eurovision
sönglagakeppnin er mörgum þrepum
neðar en Sopothátíðin. Þátttakendur
eru ekki aðeins frá Austur-Evrópu
heldur einnig frá Norðurlöndum og
Vestur-Evrópu. Ég skora á sjón-
varpið að tryggja sér gott efni, því
svo sannarlega finnst manni oft ekki
veita af því.
Einnig vil ég skora á sjónvarpið að
sýna myndir með Chaplin, Gög og
Gokke og annað létt efni. Fyrir hönd
'barna minna vil ég biðja um barna
tíma, en ekki þetta sem öllum hund-
leiðist.
Dagblaðið fékk þær upplýsingar
hjá Birni Baldurssyni dagskrárritara
sjónvarpsins að sjónvarpinu hefði
hvorki boðizt til sýningar danska
sönglagahátiðin né sú pólska. Bréfrit-
ari virðist því verða að sætta sig við
að fá hvoruga þeirra að sjá i íslenzka
sjónvarpinu. Einnig fengum við þær
upplýsingar frá góðum poppara í
bænum að danska Grand Prix
keppnin er aðeins undankeppni fyrir
Eurovision sönglagakeppnina sem
við höfum fengið að sjá alloft í
íslenzka sjónvarpinu.
og hver ekki. Því ekki er spurt um
heilsu maka né beðið um vottorð á
umsóknareyðublöðum lánasjóðs.
Dagblaðið' hafði samband við
Lánasjóð íslenzkra námsmanna og
fékk þær upplýsingar að samkvæmt
nýju reglunum er sérstaklega tekið
tillit til maka námsmanna ef hann
hefur litlar eða engar tekjur. Það sem
lánasjóðurinn telur m.a. vera eðlilega
ástæðu fyrir lágum tekjum maka er
ef hann er svo veikur að hann getur
ekki unnið utan heimilis eða er öryrki
og þarf þá læknisvottorð að fylgja
umsókninni um námslán. Ef ekkert
slíkt vottorð fylgir er eðlilega gert ráð
fyrir þvi að maki sé heilbrigður.
Einnig telur sjóðurinn eðlilegt ef
sambýlisfólk eða hjón eiga tvö eða
fleiri börn að maki sé heima og hafi
því ekki tekjur. Ef aðeins er um eitt
barn að ræða er ekki talið eðlilegt að
námsmaður fái hærra lán, m.a.
vegna þess að hann þarf ekki að
greiða barnaheimilisgjald. Er i þessu
tilviki ekki tekið tillit til þess hvort
barnaheimilispláss fæst eða ekki.
Tommy Seeback bar sigur úr býtum i
dönsku Grand Prix sönglagakeppn-
inni og mun því keppa fyrir hönd
Danmerkur i Eurovisionkeppninni,
sem fara mun fram í Jerúsalem 31.
marz nk.
Ef námsmaður aftur á móti sér sér
engan veginn fært að framfleyta sér
og fjölskyldu sinni á því láni sem
hann fær er honum heimilt að sækja
um aukalán og mun þá sjóðsstjórn
fjalla um þá umsókn sérstaklega.
Raddir
lesenda
Bjarni Jensson, iðnnemi: Ég geri það
eftir því sem ég get, og ég þekki sjálfan
Margeir Pétursson. Friðrik stendur sig
vel, en það er erfitt að eiga við þessa
stórkarla sem keppa á þessu móti og
Friðrik er líka farinn að dala.
Rúnar Reynison, iðnnemi: Ég geri litið
að því. Ég kann mannganginn og búið.
Ámi Sæmundsson, nemi: Nei, ég
fylgist ekkert með þvi og hef ekki
mikinn áhuga á skák.
Hafsteinn Viktorsson, nemi: Nei, ég
fylgist ekkert með því. Ég tefli dálitið
sjálfur og ég fylgist með sumum
mótum eins og til dæmis heims-
meistarakeppninni.
Björn Styrmir Árnason, 11 ára: Eg hef
lítið heyrt af því ennþá. Ég tefli
stundum sjálfur og fer stupdum á skák-
mót eins og t.d. þegar Hort tefldi hér.