Dagblaðið - 13.03.1979, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 13. MARZ 1979.
Erlendar
fréttir
Karen Ann
lifir enn
— þremur árum eftir að
hjartavélin vartekin
ursambandi
Nú í marz eru þrjú ár liðin frá því að
fjölskylda Karen Ann Quinlan fékk
leyfi dómstóla til þess að taka tæki þau
er héldu í henni Ijfinu úr sambandi.
Áður höfðu miklar umræður átt sér
stað i fjölmiðlum um liknarmorð og
vélar sem héldu lífi í dauðvona fólki.
En undrið gerðist. Karen Ann dó
ekki þegar vélin var tekin úr sambandi.
Og hún lifir enn. Þótt hún hafi verið
meðvitundarlaus allan þennan tíma,
heldur hjarta hennar áfram að slá. Hún
ernú 25 ára að aldri. ,
Af og til opnar hún augun, en að
sögn lækna sér hún ekkert, og engar
líkur eru taldar á því að hún komist
aftur til meðvitundar. En talið er að
mörg ár geti liðið þar til hún deyr.
Karen Ann Quinlan
7
Rennur hin djarfa áætlun Carters út í sandinn?
Ferð Carters ekki
nógu árangursrík
— Fer aftur til Kaíró í dag og síðan til Washington
— mikil vonbrigði í sendinefnd Bandaríkjanna
Bandarískir og ísraelskir
embættismenn unnu í nótt í sam-
einingu að því að bjarga því sem
bjargað verður vegna hinnar
áhættusömu ferðar Carters Banda-
ríkjaforsetá til Egyptalands og
Ísraels.
Að því er israelskar heimildar
greina náðist árangur í tveimur
mikilsverðum málaflokkum í friðar-
samningnum, en enn er ósam-
komulag i mikilsverðum efnum.
í morgun ætluðu Begin og Carter
að snæða saman morgunverð, þar
sem gerð verður úrslitatilraun til þess
að ryðja úr veg þeim hindrunum sem
koma i veg fyrir friðarsamning milli
ísraels og Egyptalands.
Að loknum morgunverðinum og
fundi þeirra leiðtoganna, var áætlað
að Carter- flygi til Kairó, til fundar
við Sadat, til þess að sjá hvort
möguleiki væri á frekari málamiðlun
áður en Carter heldur til
Washington.
Eitt af þeim málum sem ísraels-
menn sögðu að lausn hefði fengizt á
voru tengsl friðarsamnings við sjálf-
stjórn Palestínumanna ávesturbakka
Jórdanár og Gazasvæðinu. En engin
lausn fékkst t.d. á þeirri kröfu
ísraelsmanna að þeim verði tryggð
olía úr Sínai eyðimörkinni.
Embættismenn Carterstjórn-
arinnar bundu þó góðar vonir við
það að andstaða Egypta gegn því að
skiptast á sendiherrum við stjóm
ísraels færi minnkandi. Þá hefur ósk
ísraelsmanna um það að friðar-
samningurinn sé rétthærri en varnar-
skuldbindingar Egypta við aðrar
arabaþjóðir verið fullnægt.
Carter hélt ræðu í ísraelska
Carter Bandaríkjaforseti fer aftur til Kaíró I dag til viðræðna við Sadat Egyptalandsforseta. Þar reynir hann til þrautar
að ná málamiðlun milli fsraels og Egypta. Takist það ekki er Ijóst að hin djarfa för Bandaríkjaforseta ber ekki árangur
og getur það haft talsverðar afleiðingar, bæði fyrir löndin tvö og fyrir Carter persónulega, sem á fyrir höndum harða
kosningabaráttu á næsta ári. Myndin var tekin af þeim Sadat og Carter i Kaíró á dögunum.
þinginu, Knesset, í gær og var
greinilega vonsvikinn, vegna lítils
árangurs af ferðinni fram að því.
Hannsagðim.a.:
„Okkur hefur ekki alveg tekizt
það sem við ætluðum okkur. Fólkið í
báðum löndunum vill frið og er
reiðubúið að ganga til friðar-
samninga, en svo virðist sem leiðtog-
ar þjóðanna séu enn ekki tilbúnir.
Þeir virðast ekki reiðubúnir til þess
aðgrípaþetta tækifæri sem gefst.
Begin sagði við sama tækifæri að
góður árangur hefði náðst í þriggja
dagaviðræðum viðCarter.
En það voru greinileg vonbrigði í
bandarísku sendinefndinni, þar sem
áhættusöm för forsetans hafði ekki
heppnazt sem skyldi.
Carter lengdi för sina um einn dag
og tilkynnti i gærkvöldi að hann
kæmi við í Kaíró á heimleiðinni.
Cyrus Vance utanríkisráðherra
Bandaríkjanna hætti við að dvelja
lengur i Mið-Austurlöndum og eru
það talin merki þess að Bandarikja-
|Stjóm ætli að doka við og stokka
spilin, áður en næsta skref verður
stigið.
Kópadrápið við Kanadastrendur:
Greenpeacemenn
búast til átaka
veiðimönnum
— gegn kanadískum og
norskum
Yfirvöld á St. Antony á Nýfundna-
landi hafa veitt einum Greenpeace-
manni leyfi til þess að fylgjast með
hinum árlegu kópaveiðum, sem nú eru
að hefjast, undan strönd Labrador.
Greenpeacemaðurinn, Ed Chavies,
sagði fréttamönnum að samtökin létu
aldrei uppi fyrirfram til hvaða aðgerða
þau gripu i verndunarmálum sínum,
en bætti því við að mögulegt væri að
hann endaði i fangelsi fyrir aðgerðir
sínar úti á ísnum. Fyrirhugað var að
hann flygi í þyrlu út á ísinn í dögun í
morgun.
Kanadisk yfirvöld hafa að öðru leyti
bannað alla truflun á kópaveiðunum,
en kóparnir eru drepnir dagsgamlir
vegna verðmætis skinnanna.
Verndunarmenn segja lítið vitað um
selastofninn og því sé ekki vitað hve
nærri þessar veiðar gangi stofninum,
auk þess sem aðfarirnar séu grimmileg-
ar við drápið og skinnin eingöngu
notuðsem munaðarvara.
Greenpeacemenn gera sér grein fyrir
þvi að þeir geta ekki komið í veg fyrir
veiðar Kanadamanna og Norðmanna,
en veiðimennirnireru 300 talsins. En
þeir vonast til þess að geta vakið
athygli á málstaðnum, þannig að al-
menningsálitið í heiminum breytist og
sérstaklega breyti ákvörðunum stjórn-
valda í Kanada.
Fréttamenn og blaöaljósmyndarar fylgjast vel með kópadrápinu sem nú er aö
hefjast við Kanadastrendur og aðgerðum verndunarmanna.
Hitchcock heiðraður
Leikstjóranum heimskunna Alfred Hitchcock voru i gær veitt verðlaun
American Film Institut, en það eru samtök leikara og leikstjóra i Bandarikjun-
um. Verðlaunin voru afhent i Los Angeles á mikilli hátið, sem Ingrid Bergman
stjórnaði.
Hitchcock voru veitt verðlaunin fyrir frábært framlag til kvikmyndanna en
hann hefurnúverið i „bransanum” i 55 ár. Þessi sömu verðlaun hlaut leikarinn
Henry Fonda i fyrra.
Við þessa athöfn voru sýnd fjölmörg brot úr þekktum myndum hins aldna
meistara og á hátiðinni voru margir leikarar er leikið hafa í myndum hans,
þ.á.m. Ingrid Bergman og Gary Grant, sem enn heldur sér í bezta formi, þótt
hann sé orðinn 76 ára að aldri. -ÓG New York/-JH
K
DÖMU
FERMINGARSKÓR
Litur: Brúnt
Stærðir:
37-41
Póstsendum