Dagblaðið - 13.03.1979, Side 9

Dagblaðið - 13.03.1979, Side 9
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 13. MARZ 1979. >"■'...... Hjálparstofnun kirkjunnar og Lions-hreyfingin „Ijúka verkinu”: 9 \ Nú á að byggja sundlaugina yfir 12 ára gamlan grunninn „Hjálparstofnunin hefur ávallt reynt að styðja jöfnum höndum er- lend og innlend líknarverkefni. Nú á föstunni sendum við enn á ný slíkt kall til þjóðarinnar. Á meðal okkar eru margir, sem vegna fötlunar geta ekki notið gæða lífsins á sama hátt og við, sem heilbrigð erum. Landssam- tök fatlaðra, Sjálfsbjörg, hafa bent á, að eitt þarfasta verkefnið í þágu þessa fólks væri bygging sundlaugar. Lions-klúbbarnir hafa drengilega komið auga á þetta verkefni og leitað samstarfs við Hjálparstofnun kirkj- unnar um fjársöfnun til styrktar þessu máli.” Þannig farast orð sr. „Framkvæmd upp á hundrað milljónir” — segir Friðrik Jörgensen, formaður Baldurs „Þetta er framkvæmd upp á hundrað milljónir og Hjálparstofnun kirkjunnar þyrfti sjálfsagt að safna um 30 milljónum, en Lions-klúbb- arnir hafa sínar eigin fjáröflunar- leiðir og þegar hafa safnazt hjá okkur um 10 milljónir,” sagði Friðrik Jörg- ensen, formaður Lions-klúbbsins Baldurs. Erfðafjársjóður kemur til með að lána sömu upphæð og safn- ast, en frjáls framlög til Sjálfsbjargar nema nú líklega milli 5 og 6 millj- Friðrik Jörgensen, form. Lions- klúbbsins Baldurs (l.v.) og Guð- mundur Einarsson, framkvæmda- stjórí Hjálparstofnunar kirkjunnar. ónum. Takmarkið er að koma þessu upp með söfnunarfé og lánum.” -GAJ- Háskóli íslands: Kosið í Stúdenta- ráð og Háskólaráð Frá fundi nokkurra alþingismanna með stúdentum þar sem meðal annars var rætt um lánamál stúdenta og málefni Félagsstofnunar stúdenta. Vafalaust verða þau tvö mál meðal þeirra sem mest verða rædd nú i kosningabaráttunni. DB-mynd Hörður. Á fimmtudaginn fara fram kosning- ar meðal nemenda við Háskóla íslands. Kosnir verða 13 fulltrúar í Stúdentaráð til tveggja ára en í ráðinu eiga sæti 26 stúdentar. Einnig verður kosið um tvo af fjórum fulltrúa stúdenta. Fulltrúar stúdenta í Háskólaráði eiga jafnframt sæti i Stúdentaráði. í framboði eru tveir listar, A-listi Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúd- enta og B-listi, listi vinstri manna. Stúdentaráð er nú svo skipað, að vinstri menn eiga þar 16 fulltrúa auk tveggja fulltrúa í Háskólaráði. Vaka á þar 10 fulltrúa auk tveggja fulltrúa í Háskólaráði. Hefur þetta hlutfall verið óbreytt milli fylkinganna frá 1977. Kosið verður í Hátíðasal Háskóla fs- lands frá kl. 9.00—18.00 og auk þess kýs hluti líffræðinema að Grensásvegi 12. -GAJ- Braga Friðrikssyni, formanni fram- kvæmdanefndar Hjálparstofnunar kirkjunnar í fréttabréfí stofnunarinn- ár Höndinni. Hjálparstofnun kirkjunnar og Lions-hreyfmgin á íslandi hafa ákveðið að taka höndum saman um landssöfnun þessa viku og hófst söfn- unin sl. sunnudag og lýkur henni nk. sunnudag. Eins og flestum lands- mönnum er kunnugt hefur það verið baráttumál Sjálfsbjargar um margra ára skeið.að koma upp sund- og æf ingarlaug í tengslum við endurhæf- ingarstöðina að Hátúni 12 í Reykjavík. Grunnur sundlaugarinnar var steyptur árið 1966, en allar götur síðan hefur hann staðið þar án þess að fjármagn hafi fengizt til þess að halda framkvæmdum áfram. Landssöfnun þessi er farin undir yfirskriftinni „Ljúkum verkinu”. Aðstandendur söfnunarinnar eru þess fullvissir að landsmenn munu ekki liggja á liði sinu í þessu innlenda verkefni og skora á alla að sýna sam- stöðu með fötluðum, svo að draumur þeirra um sund- og æfingarlaug verði aðveruleika. Framlögum má koma á giróreikn- ing Hjálparstofnunar kirkjunnar nr. 20005, á skrifstofu Hjálparstofnun- arinnar, Biskupsstofu Klapparstíg 27 og til sóknarpresta um allt land. -GAJ- Þannig var skilið við grunninn fyrír tólf árum siðan - Wmá ■ § nú á að Ijúka verkinu. DB-mynd: Hörður Míckíe Qee heldur áfram! HANN HEFUR NÁÐ 1200 TÍMA TAKMARKiNU TIMA TAKMARKiNU OG HANN ÆTLAR SER AÐ GERA BETUR Munið söfnunina GLEYMD BÖRN '79, giro nr. 1979-04 GLEYMD BÖRN’79. ÞAKKA Starfsfólki Tryggingast. ríkisins VEITTA FJÁRHAGSAÐSTOÐ Fognum HEIMSMETI íÓDALI t kvöld

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.