Dagblaðið - 13.03.1979, Side 12
12!
íþróttir
Luschersigur-
vegari íheims-
bikamum
— en Stenmark vann
sinn níunda sigur
ístórsvigi
Ingemar Stenmark vann níunda
stórsvigssigur sinn í vetur i heimsbikar-
keppninni en missti um leið af heims-
bikarstign. Peter Luscher, Sviss,
hreppti heimsbikartignina. Þrátt fyrir
eindæma sigurgöngu i stórsviginu—
sérgrein Stenmarks, en hann hefur
unnið allar stórsvigskeppnir, er
Luscher sigurvegari. Peter Lushcer
hefur hreppt stig i bruninu einnig en
Stenmark hefur neitað að taka þátt í
bruninu. Ákvörðun, sem réttlætt var í
raun þegar hinn ungi ítali, Leonardo
David slasaðist alvarlega i bruni.
Stenmark sigraði í South ,Lake
Tahoe, Kaliforníu. Hann var i þriðja
sæti eftir fyrri umferðina en fór siðari
umferðina stórkostlega og var þá
heilum tveimur sekúndum á undan
næsta manni. Og það du'gði til sigurs —
slíkir eru yfirburðir Stenmarks. Annar i
South Lake varð Bojan Krizaj,
Júgóslavíu, tæpri sekúndu á eftir og
þriðji Hans Enn, Austurríki. Fjórði
varð síðan Pieero Gros, ítaliu og Peter
I.uscher hafnaði i fimmta sæti.
Staða efstu manna i baráttunni um
heimsbikarinn er.
Peter Luscher, Sviss, 185
Phil Mahre, USA, 155
Ingemark Stenmark, 149
Andreas Wenzel, Lichtenstein, 148
Leónhard Stock, Austurriki, 142
Pieero Gros, Ítalíu, 131
íslandsmet
Austra
— íinnanhúss-
knattspymu
Sex ungir menn úr ungmenna-
félaginu Austra á Eskifirði settu um
helgina nýtt íslandsmet í
maraþonknattspyrnu innanhúss i
iþróttahúsinu Eskifirði.
. Byrjað var kl. 9 á laugardags-
morgun og haldið áfram sleitulaust til
kl. 17.30 á sunnudag eða í 32 1/2 klst.
og gcri aðrir betur.
Þeir sem þreyttu þoiraun þessa voru
fjórir piltar úr 3. flokki Austra, þeir
Sófus Hákonarson, Jóhann Kristins-
son, Ingvar Kristinsson og Guðmundur
Árnason, auk meistarafiokks-
mannanna Sigurbjörns Marinóssonar
og Sigurjóns Kristjánssonar.
Alls voru skoruð 4443 mörk og ríkti
oft mikil spenna á meðan keppninni
stóð, þó svo að í lokin hafi munað um
100 mörkum á liðunum.
Um sex hundruð áhorfcndur komu
og fylgdust með af áhuga og urðu vitni
að fyrsta íslandsmetinu sem sett er á
Eskifirðk Valur í Reykjavik lék slfka
knattspyrnu um síðustu helgi i 32 tima.
Regína Eskifirði.
Maraþon í
Borgarnesi
Meistarafiokksmenn Skallagríms i
Borgarnesi hafa uppi áform um að
hnekkja íslandsmetinu i maraþon-
knattspyrnu. Þeir ætla að leggja í
maraþonknattspymuna nk. föstudags-
kvöld kl. 20.00 og leika eins lengi og
kraftarleyfa.
FH-Haukar
íFirðinum
FH og Haukar mætast f 1. deild
íslandsmótsins i handknattleik f
Hafnarfirði i kvöld. Og það verður
barizt bæði i karla- og kvennaflokki.
Konurnar byrja kl. 20 — og sfðan f 1.
deild karla eigast við stórlið Hafnar-
fjarðar — FH og Haukar. Fimmta
viðureign liðanna f vetur og staðan er
jöfn, 2-2.
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 13. MARZ 1979.
íþróttir____________________íþróttir ____________íþróttir________________íþn
Dæmigert fyrir viðureign KR og Vals
Val og skóp sigur liðsins.
Tim Dwyer hefur betur við Hudson f frákasti. Dwyer átti stórkostlegan leik með
DB-mynd Hörður Vilhjálmsson
Dýrlingamir sigruðu
WBA 2-1 í Bikamum
—og mæta Arsenal í 6. umf erð. Dregið í Bikamum í gær og
Liverpool mætir annaðhvort Tottenham eða Manch. Utd.
Southampton tryggði sér rétt til að
leika í 6. umferð ensku
bikarkeppninnar eftir 2—1 sigur á
WBA á The Dell f gærkvöld. Það var
fyrst í framlengingu að Southampton
tókst að knýja fram sigur og mætir þvi
Arsenal f 6. umferð. Hörkuleikur á The
Dell en Dýrlingarair undir stjórn Alan
Ball marsera áfram. Þeir hafa þegar
tryggt sér farseðilinn til Wembley og
mæta Nottingham Forest f úrslitum
deildabikarins og hlið Wembley eru
þegar farin að opnast fyrir
Southampton f Bikaraum.
WBA náði forustu á 52. mínútu á
The Dell fyrir WBA. Skoraði laglegt
ÍR-Njarðvík í
undanúrslitum
bikarsins
Spennandi leikur f körfuknattleikn-
umverðurf Hagaskóla f kvöld. Þá leika
ÍR-ingar við Njarðvfkinga f undanúr-
slitum bikarkeppni KKÍ. Leikurinn
hefst kl. 20.30 . Ekki hefur enn verið
ákveðið hvenær hinn leikurinn f undan-
úrslitum verður háður.
Á fimmtudag leika ÍS og KR f úr-
valsdeildinni i Kennaraháskólanum.
Leikurinn hefst kl. 20.00.
mark en Dýrlingarnir náðu að jafna,
1—1 á 77. mínútu en þá var David
Peach að verki úr víti eftir að Alaister
Robertson hafði fellt Terry Curran. Og
á 103. mínútu leiksins — 13. mínútu
framlengingarinnar skoraði Phil
Boyer sigurmark Southampton og
áhorfendur á The Dell fögnuðu gífur-
lega. Loka varð hliðum The Dell áður
en leikurinn hófst, 25755 manns á The
Dell — hið mesta í vetur.
Southampton mætir því Arsenal í 6.
umferð. Arsenal ásamt Liverpool eru
nú talin sigurstranglegustu liðin í
Bikarnum. Liverpool mætir annað-
hvort Tottenham eða Manchester
United í undanúrslitum. Og ef að líkum
lætur ætti Liverpool að komast til
Wembley því Liverpool sigraði Totten-
ham 7—0 á Anfield og United 3—0.
Sigurvegarinn úr viðureign
Southampton og Arsenal mætir
Úlfunum eða Shrewsbury í undanúr-
slitum. Flestir veðja á Arsenal í
viðureigninni við Southampton en
leikurinn fer fram á The Dell og nýlega
sigraði Southampton lið Arsenal 2—0 á
TheDelli l.deild.
En úrslit í gærkvöld á Englandi
urðu:
íþróttir
3. deild:
Mansfield-Plymouth 5—0
Southend-Carlisle 1—1
Og í velska Bikarnum sigraði
Wrexham Swansea 3—2 í Wrexham.
Dómarar
með aðalfund
Framhaldsaðalfundur Knatt-
spyrnudómarafélags Reykjavikur
verður þriðjudaginn 20. marz að Hótel
Loftleiðum, Leifsbúð, og hefst kl.
20.00.
Celtic fær
Hibernian
— sigri liðið Aberdeen
ískozka Bikamum
í gær var dregið f skozku bikarkeppn-
inni og Celtic, lið Jóhannesar Eðvalds-
sonar mætir Hibernian f undanúrslit-
um — það er ef Celtic nær að sigra
Aberdeen á Park Head i Glasgow en
liðin skildu jöfn, 1—1 f Aberdeen.
Rangers mætir Patrick Thistle f hinum
úrslitaleiknum þannig að nú stefnir f
úrslitaleik Celtic ogRangers.
Huds
að KF
— réðstádón
„Þeir John Hudson og Garðar
Jóhannsson komu báðir á eftir mér,
slógu til mín og hrintu mér. Hudson lét
síðan hnéð fylgja og rak það harkalega
f mig,” sagði Guðbrandur Sigurðsson
dómari eftir leik Vals oj> KR í Laugar-
dalshöll f gærkvöld. ,,Eg sýndi John
Hudson umsvifalaust rauða spjaldið
og mun bera fram kvörtun yfir fram-
komu Garðars,” bætti Guðbrandur
ennfremur við. Enn eru því erlendir
leikmenn á Íslandi i sviðsljósinu fyrir
óprúða framkomu. Hver man ekki
hnefahögg Trukksins á Jimmy Rogers
hér um árið — f vetur var Paul
Stewart í sviðsljósinu vegna slagsmála i
Njarðvíkum og nú John Hudson —
þessi annars geðugi blökkumaður frá
Bandaríkjunum.
Hudson átti erfitt með að sætta sig
við ósigur KR gegn Val í toppbaráttu
úrvalsdeildarinnar í gærkvöld. Og
hann lét því hnefana tala — óaf-
sakanlegt en betur hefði John Hudson
látið snilli sína tala allan leikinn fyrir
sig. Þá er ekki að efa að KR hefði farið
með sigur af hólmi. Það var aðeins á
kafla í síðari hálfleik, lokakaflann, að
snilli Hudson fékk notið sín og á líka
saxaði KR óðum á forskot Valsmanna.
Annars var Hudson alveg heillum
horftnn, ólíkur sjálfum sér. Af hverju
Hudson skeytti skapi sínu á
Gfiðbrandi er erfitt að segja?
Guðbrandur ásamt Sigurði Val
Halldórssyni var í erfiðu hlutverki og
þeim urðu á sín mistök í leiknum, rétt
eins og leikmönnum. Dæmdu þó
þokkalega. Þó urðu þeim á afdrifarík
mistök á 16. mínútu — KR-ingar náðu
hraðaupphlaupi en staðan var þá 69—
66 Val í vil. Jón Sig.son lék laglega
upp, gaf á John Hudson, sem stökk
upp undir körfunni. Þar voru fyrir þrír
Valsmenn og það var greinilega brotið
Stórsv
Árm
— íBláfjöllui
Stórsvigsmót Ármanns var haldið í
Bláfjöllum um helgina er það opið
mót, en aðeins einn keppandi mætti til
keppni sem ekki var af Reykjavíkur-
svæðinu, var það Erling Yngvason frá
Akureyri sem keppti í flokki drengja
13—14 ára og vann hann þann flokk.
Keppt var í öllum aldursflokkum. Á
laugardag var keppt í fiokkum barna,
en á sunnudag í unglinga- og
fullorðinsflokkum. Keppendur voru
alls um 220 talsins. Fjölmennastur var
flokkur drengja 13—14 ára, alls 56
keppendur. Átta keppendur Ármanns í
ftokkum fullorðinna, fjórir piltar og
fjórar stúlkur, gátu ekki verið með
vegna Þorramótsins sem fram fór á fsa-
firði um sömu helgi. Ágætisveður var i
Bláfjöllum báða keppnisdaganna.
Mótstjóri var að vanda Halldór Sigfús-
son, en brautarlagningu annaðist
Guðmund Södrin.
Heistu úrslit urðu þessi:
Stúlkur 10 ára og yngri
1. Kristín Ólatsdóttir Á. 61.65—61.44 123.09
2. Auður Jóhannsdóltir KR 69.14—72.60 141.74
3. Svava Skúladóttir Á. 83.57-90.72 174.29
Drengir 10 ára og yngrí.
1. Sveinn Rúnarsson KR
2. Guömundur Pálsson Á.
3. Eggert Kristinsson Á.
61.00—59.84 120.84
62.91—62.54 125.45
73.44—72.90 140.34
55.73—57.65 113.38
Stúlkur 11—12 ára:
1. Tínna Traustadóttir.Á.
2. Dýrleif A. Guömundsd. Á. 60.44—62.82 123.26
3. Anna Birgisd. ÍR. 63.07—63.01 126.08
Ddrengir 11—12 ára:
1. Haukur Þorsteinsson Á. 56.05—55.51 111.62
2. Baldvin Vaidimarsson Á. 59.76—59.27 119.03
3. Kristján Valdimarsson ÍR. 61.12—61.23 122.35
Stúlkur 13—14 ára:
1. Rósa Jóhannsd. KR 69.29—65.62 134.91
2. Ásta Óskarsd. Á. 68.25—67.00 135.25
3. Marta Óskarsd. Á. 69.90—66.31 136.21
Drengir 13—14 ára:
1. Eriing Yngvason. Akureyri 57.55—65.80 123.35
2. Tryggvi Þorsteinsson. Á. 58.60—66.55 125.15
3. Örnólfur Valdimarsso.i ÍR. 60.15—66.90 127.05