Dagblaðið - 13.03.1979, Page 13
DAGBLAÐIÐ. ÞRIDJUDAGUR 13. MARZ 1979.
5ttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
on lét hnefana tala eftir
Ólafur Einarsson — landsliðsmaðurinn
kunni leikur ekki meir með Víking i
vetur.
Ólafur Einars
son hættur
ívetur
— leikurekki meir
með Víkingi
,,Eg mun ekki leika meira með i
vetur. Hef ekki tíma, bæði vegna vinnu
og eins tekur föðurhlutverkið drjúgan
tíma,” sagði Ólafur Einarsson, lands-
liðsmaðurinn úr Viking en athygli vakti
að hann lék ekki með félögum sínum
gegn Fram á sunnudag. Ólafur Einars-
son treysti sér ekki til að fara til Spánar
og vakti það á sínum tíma mikla
athygli.
Og á sunnudag lék hann ekki með
liði Víkings, en slíkt er mannavalið hjá
Viking að það virtist ekki koma að sök
þó Sigurður Gunnarsson, hinn ungi
landsliðsmaður, sé meiddur og ekki
með heldur. Þeir Steinar Birgisson og
Einar Magnússon skiluðu hlutverkum
sínum með prýði. „Það er alls ekki af
deilum við Víking eða þjálfarann,
Bogdan Kowalzcyk að ég hætti. Síður
en svo, ég tel Bogdan mjög hæfan
þjálfara en stundirnar leyfa ekki hand-
bolta í vetur. Hvað ég geri næsta vetur
veit ég ekki enn,” sagði Ólafur Einars-
sonaðiokum. H.Halls.
Jóhann sigraði
SigfúsÆgi
I Um helgina fór fram í húsi TBR,
Meistaramót Reykjavíkur í badminton.
lÚrslit urðu sem hér segir:
Meistaraflokkur —einliðaleikur karla: .
Jóhann Kjartansson TBR sigraði
Sigfús Ægi Árnason TBR, 15/6 og
15/3.
Meistaraflokkur — tviliðaleikur karla:
Sigfús Ægir Árnason TBR og Sigurður
Kolbeinsson TBR sigruðu Jóhann
Kjartansson TBR og Sigurð Haralds-
son TBR, 15/8 og 15/7.
Meistaraflokkur — tvíliðaleikur
kvenna:
Kristin Magnúsdóttir TBR og Kristin
Berglind TBR sigruðu Hönnu Láru
Pálsdóttur TBR og Lovísu Sigurðar-
dóttur TBR, 17/16 og 15/10.
Meistaraflokkur — einliðaleikur
kvenna:
Kristín Magnúsdóttir TBR sigraði1
Kristinu Berglind TBR, 11/4 og 11/7.
Meistaraflokkur — tvenndarleikur:
Haraldur Koreliusson TBR og Lovísa
Sigurðardóttir TBR sigruðu Jóhann
Kjartansson TBR og Kristinu Berglind
TBR 17/14 og 15/1
Þátttakendur í mótinu voru um 70
frá TBR, Víking og KR.
t beið lægri hlut gegn Val
narann, sló til hans og sparkaði í hann. Fékk rauða spjaldið eftir leik KR og Vals
á Hudson — Tim Dwyer var þá að
verki. Eftir miklar stimpingar, japl,
jaml og fuður var dæmt á KR. En
Dwyer braut gróflega á Hudson — það
sáu flestir í Höllinni. Ekkert dæmt og
Dwyer slapp þar með skrekkinn því
hann var þá þegar kominn með fjórar
villur. Hin fimmta hefði þýtt brott-
rekstur. Þessi stæðilegi Bandarikja-
maður er rúmlega hálft lið Vals — að
minnsta kosti eins og Valsmenn léku í
gærkvöld. Valsmönnum tókst að
standast áhlaup KR-inga og sigra 79—
77 — í æsispennandi leik en ekki að
sama skapi vel leiknum.
Staðan á toppi úrvalsdeildarinnar er
því tvísýn og hörð — nú hafa Njarðvík,
Valur og KR öll tapað 12 stigum og
sannleikurinn er, að möguleikar
KR hljóta nú að hafa minnkað
verulega. Ekki aðeins munu þeir verða
án John Hudson í næsta leik heldur og
er Jón Sigurðsson — eini íslenzki leik-
maðurinn sem hefur getu á við Banda-
ríkjamennina, aðeins hálfur maður.
Hann meiddist í upphitun fyrir leik KR
í Njarðvík um daginn. Gat ekki leikið
þá — og það var eins og við manninn
mælt, KR tapaði. Jón var aðeins svipur
hjá sjón gegn Val, þó hann stæðist
islenzkum leikmönnum snúning. En
kraftinn vantar, snerpuna, sending-
arnar, gegnumbrotin og nákvæmni í
skotum. Þetta reyndist KR-ingum af-
drifaríkt. Svo mikilvægur er þessi leik-
maður liði sinu að nú í dag er vart
hugsanlegt að KR geti unnið til fremstu
afreka án Jóns — þrátt fyrir að aðeins
tæp tvö ár séu síðan hann gekk til liðs
við KRúrÁrmanni.
En lítum á leikinn — Valsmenn
einokuðu fyrri hálfleik í orðsins fyllstu
merkingu. Á meðan flest gekk upp hjá
Valsmönnum, gekk allt á afturfótunum
hjá KR. Hittni afleit, hvað eftir annað
var knettinum klúðrað klaufalega og
John Hudson alveg heillum horfinn.
Valsmenn náðu góðri forustu og í
leikhléi var staðan 47—43 Val í vil.
En KR-ingar náðu upp góðri
baráttu í síðari hálfleik. Að vísu ekki
strax, munurinn hélst framan af.
Þannig var staðan 53—39 — á meðan
allt gekk á afturfótunum hjá Hudson
sýndi Dwyer snilli sína. Hirti öll fráköst
sem komu nálægt honum og í sókninni
brást honum ekki bogalistin. En þetta
átti eftir að breytast.
Þegar staðan var 53—39 Iék Gunnar
Gunnarsson þjálfari KR sterkan leik.
Hann tók Hudson útaf, kældi hann í
tvær mínútur og sendi Jón Sigurðsson
inná. Skömmu síðar kom Hudson inná
og með þá félaga í broddi fylkingar,
Jón að vísu meiddan, tók KR óðum að
saxa á forskot Vals. Sextán stig skildu
þegar Hudson kom inn, en um miðjan
síðari hálfleik, á 10. mínútu, skildu níu
stig. Og á 12. minútu aðeins fimm stig,
59—54. Hudson var þá drjúgur,
skoraði hverja körfuna af annarri.
Dwyer fékk skömmu síðar sína fjórðu
villu og Valsmenn virtust vera að
,brotna. Þrjú stig skildu, 65—63 á 13.
mínútu eftir að Hudson hafði troðið
stórkostlega og aðeins eitt stig og þrjár
minútur til leiksloka, 69—68. Skömmu
áður hafði Dwyer sloppið með skrekk-
inn og KR skorti herzlumuninn. Aðal-
lega vegna þess að minni spámenn KR
: brugðust alveg. Áttu slæmar
sendingar og Valsmenn náðu að snúa
vöm í sókn. Komust í fimm stig, 3 úr
einni sókn eftir að Birgir Guðbjörnsson
hafði gert sig sekan um ótrúlega slæma
villu. Og KR var að missa af lestinni —
47 sekúndur og þá skildu þrjú stig. Enn
slæm villa og Valsmenn brunuðu upp.
Ríkharður fékk tvö vitaskot en mis-
notaði bæði. Sekúndurnar tifuðu hver
af annarri og skyndilega kom óvæntur
dómur. Ruðningur á Jón Sig. eftir stór-
snjalla sendingu hans inn á mann undir
körfunni. KR hafði tapað — Valsmenn
skoruðu fjögur stig, 79—74 og
ósigurinn fór illa í skapið á KR-ingum.
Og fjöldi unglinga streymdi inn á
völlinn en áhorfendur voru um 700.
Þeir höfðu uppi ókvæðisorð, kenndu
dómurum um ósigurinn, sem auðvitað
|gekk alls ekki. Þeir voru í erfiðum hlut-
verkum, þeir Guðbrandur og Sig-
urður. Unglingar ráku upp ókvæðis-
orð, þetta er allt of algengur hlutur í
körfunni — gerist nánast eftir hvern
einasta leik og setur leiðinlegan svip.
En fordæmið er fyrir hendi — því
„goðin” — leikmennirnir úti á vellin-
um eru sifellt að formæla dómurum,
fussandi og sveiandi og mótmæla. Svo
þegar hnefarétturinn er látinn ráða þá
auðvitað fylgja óharðnaðir unglingar á
eftir — þetta verður að stöðva.
Tim Dwyer skoraði flest stig Vals-
manna — 44 eða rúmlega helming stiga
Vals. Aðrir leikmenn virkuðu lang-
tímum saman aðeins statistar, rétt til að
hjálpa Dwyer, blokkera fyrir hann.
Rikharður Hrafnkelsson skoraði 13.
Hjá KR var John Hudson stiga-
hæstur með 31 stig, Jón Sigurðsson 16
og Garðar Jóhannsson 11.
H. Halls.
Dæmigerö mynd — Hudson liggur og
KR-ingar fá ekkert ráðið við Tim
Dwyer.
DB-mynd Hörður Vilhjálmsson.
Skúli Hansen,
yfirmatreiöslumaöur á
Hótel Holti,
gefur súper uppskrift í dag
fyrir fjóra.
anns
rci um helgina
Blökkumenn hafa áður lent i slagsmálum hér á landi. Frægt varð hnefahöggið sem Trukkurinn sló Ármenninginn
Jimmy Rogers og Bjarnleifur náði að festa á filmu.
Bjarni Þórðarson KR sigraði i stórsvigi
karla.
DB-mynd Þorri
Drengir 15—16 ára:
1. Rikharð Sigurðson. Á.
2. Einar Úlfsson Á.
3. Óskar Kristjánsson KR.
4. Þórður Bjömsson Vík.
5. Þráinn Hreggviðsson ÍR.
63.26—53.51
66.86—53.43
66.63—58.50
68.18— 57.14
68.18— 57.55
116.77
120.29
125.13
125.32
125.73
Kvennaflokkur:
1. Svava Viggósd. KR. 68.64—71.57 140.41
2. Guðrún LUja Rúnarsd. ÍR 74.45—75.86 150.31
3. Jóhanna Eriingsd. KR 76.74—73.85 150.59
•Karlaflokkur:
1. Bjðmi Þórðarsson. KR 57.48—62.30 119.78
2. Guðmundur Jakobsson ÍR 58.19—62.00 120.19
3. Ámi Sigurðsson. Á. 58.15—62.29 120.44
Nœsta skíðamót hér sunnanlands
verður haldið í Skálafelli um næstu
helgi. Keppt verður í flokkum fullorð-
inna og unglinga. Verður það
svigkeppni.
Þorri
smjörsteikingu
fram yfir«
Smjörsteikt ýsuflök meö karrýhría-
grjónum. (Áœtlið u.þ.b. 250 g á
mann).
Ý8uflökin eru skorin í hœfilegar
sneiðar og velt upp úr hveiti.
Kryddað með:
Season all og engiferi. Steikt upp úr
Í8len8ku 8mjöri. Látið 2 epli, afhýdd og
sneidd, með á pönnuna. Að síðustu er
1/2-1 dl afhvítvíni hellt yfir.