Dagblaðið - 13.03.1979, Blaðsíða 15
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 13. MARZ 1979.
15
Innlend myndsjá
Önnur sýning Íslenzku óperunnar i l'aglia.cicr i kvöld, en frumsýningin var i
fyrrakvöld og fögnuöu áhorfendur ákaft í Háskólabió. Hér eru söngvararnir
Friðbjörn G. Jónsson og Halldór Vilhelmsson, sem fara með stór hlutverk i
óperunni.
DB-mynd Bj. Bj.
X
Fjöldi vasklegra ungmenna hefur sótt
DB heim undanfarið. í síðustu viku
voru hjá okkur Kristin Gestsdóttir úr
Þorlákshöfn og Páll Þ. Guðmunds-
son frá Vestmannaeyjum. Þau
kynntust lífi og starfi ritstjórnarinnar
og daglcgum rekstri hennar. Á stærri
myndinni er hópur úr
grunnskólanum í Sandgerði i stuttri
heimsókn á ritstjórn. Lengst til hægri
er Jóhannes Reykdal, skrifstofustjórí
ritstjórnarinnar, að leiða þau í allan
sannleikann um tilurð dagblaðs.
DB-myndir
Hörður.
Vonandi verður þetta síðasta stórhríðarmynd vetraríns, enda er fólk nú mjög faríð að horfa til vorsins með hækkandi
sól. í hríðinni og skafrenningnum í Reykjavík fyrír helgi var þessi mynd tekin niður við höfn, er veríð var að hemja
togara þar við bryggju. DB-mynd K. tn.
Sjónvarpsleikrítahöfundar — núverandi og væntanlegir — hafa setið á skólabekk i sjónvarpinu undanfaríð undir hand-
leiðslu Hrafns Gunnlaugssonar dramatúrgs og fleiri góðra manna. Myndin var tekin við upphaf námskeiðs þeirra. Fyrír
enda borðsins situr Jón Þórarínsson, forstöðumaður Lista- og skemmtideildar sjónvarps, og honum til vinstri hand-
ar Hrafn Gunnlaugsson. DB-mynd Hörður.
Grýlukerti hangandi i þakrennum hafa verið vegfarendum i borginni hinn
mesti ógnvaldur undanfaríð, bæði gangandi og akandi. Alls kyns kröfur og
rifrildi eru i gangi þessa dagana á milii þeirra sem orðið hafa fyrir kertunum og
hins vegar viðkomandi húseigenda. Sumir hafa þó tekið sig til og leigt sér menn
til að mölva niður kertin og eyða þar með slysahættu, en full ástæða er til að
benda fólki á að vera gætið og forðast að ganga undir slikt.
DB-mynd Páll Þ. Guðmundsson.