Dagblaðið - 13.03.1979, Blaðsíða 24

Dagblaðið - 13.03.1979, Blaðsíða 24
„Sýndistþettaveraaðspringaíloftupp” _ A Iþýðubandalagið með nýiar vísitölutillögur Miklar sviptingar urðu i stjórnar- samstarfinu í gær, og kennir hver öðrum um.” Ólafur Jóhanesson hefur tvisvar í sama mánuði sett ríkisstjórnina í þá stöðu, að teflir lífi hennar í hættu,” sagði Ólafur Ragnar Grímsson alþingismaður (AB) í morgun. f frumvarpsdrögum forsætis- ráðherra hefði verið útgáfa af vísitölumálum, sem hefði komið Alþýðubandalagsmönnum á óvart og falið í sér mikla kauplækkun. Þetta ætti við um að setja vísitöluna í 100 á 3ja mánaða fresti en ekki bara einu sinni og um kaflann um olíuhækkanir, sem gæfu stjórn- völdum heimild til að gera nánast hvað sem er án þess að kaup hækkaði, bara ef það væri rökstutt sem aðgerðir vegna olíukreppunnar. „Þetta er stríðsyfirlýsing gagnvart verkalýðshreyfingunni,” sagði Ólafur Ragnar. Alþýðubandalagsmenn báru í gærkvöldi fram nýjar tillögur í hinu umdeilda vísitölumáli. f tillögum þeirra segir, að vísitalan skuli nú sett í 100 en því ekki breytt á 3ja mánaða fresti. Þá skuli vísitala taka mið af viðskiptakjörum. Hins vegar skuli fella niður það sem segir um olíuhækkanir og kjaraskerðingu þeirra vegna í frumvarpi forsætis- ráðherra. „Rennurekki eins og jólaölið" „Okkur sýndist þetta vera að springa í loft upp í gærkvöldi,” sagði Árni Gunnarsson (A). „Kannski leggur Ólafur Jóhannesson frumvarpið fram einn, ef sam- komulag næst ekki og við alþýðu- flokksmenn styðjum það,” sagði Ámi. Magnús H. Magnússon ráðherra sagði í morgun að málið væri á mjög viðkvæmu stigi og enginn leið að spá um framhaldið. „Það er ekki von að þetta renni ofan í mann eins og jólaölið,” sagði Svavar Gestsson ráðherra í morgun. Svavar sagði að snörp viðbrögð ASf settu strik í reikninginn og ekki væri búið að ákveða, hvernig eða hvort tillit yrði tekið til þeirra, eins og hann komstaðorði. Miðstjóm ASf samþykkti einróma í gær andmæli við vísitölukaflann í frumvarpinu, og stóðu alþýðuflokks- og framsóknar- menn að samþykktinni auk alþýðubandalagsmanna. Á fundi framkvæmdastjórnar Alþýöubanda- lagsins var vísitölukaflanum illa tekið og ráðherrar flokksins snupraðir fyrir slappleika að hafa látið þetta framhjá sér fara. Á fundi flokks- stjórnar Alþýðuflokksins var frumvarpinu vel tekið nema greininni um verðlagsmál. Ríkisstjómarfundur í gærkvöldi, boðaður í skyndinu, var heitur og stóðu járn í járn í vísitölu- málinu. Fundurinn stóð til miðnættis og var frestað til fjögur í dag, enda höfðu ráðherrar Alþýðubanda- lagsins þreytzt á fundarsetu og farið nokkru á undan öðrum. -HH. Hiibner efstur íMiinchen: Jafntefli Friðriks við Spassky í 13. umferð skákmótsins í Múnchen sem tefld var í gær gerði Friðrik Ólafsson jafntefli við Spassky og Guðmundur Sigurjónsson gerði jafntefli við Pfleger. Þá vann Guðmundur biðskák sína við Dankert og hefur hann nú 5 vinninga úr 12 skákum og Friðrik 5 1/2 vinning úr 11 skákum. Húbner er efstur á mótinu með 8 1/2 vinning úr 12 skákum. Anderson hefur 7 1/2 vinning úr 11 skákum. Spassky er þriðji með 7 vinninga úr 11. skákum. Aðrir keppendur eru i einum hnapp og eiga vart sigurmöguleika í mótinu lengur. 14. og næstsíðasta umferð mótsins verður tefld á morgun og teflir Friðrik þá við Stean og Guðmundur við Lieb. -ÓV. Hæ, krakkarl Ekki fara á undan mér Hs krakkar, ekki fara á undan mér, gæti hún verið að segja, skessan hans Ásmundar Sveinssonar á Stakkagerðistúninu i Vestmannaeyjum, þar sem Jónas Sigurðsson tók þessa mynd. DÆMT í GRJÓT- JÖTUNSMÁLINU Búizt er við, að í dag verði mennirnir hafi keypt skipið frá kveðinn upp í sakadómi Reykjavíkur Noregi á sinum tima fyrir 2.4 dómur i svoköUuðu GrjótjötunsmáU. milljónir norskra króna, en gefið hér Ákærðir eru tveir lögmenn fyrir fjár- upp 2.8 milljónir og þannig t.d. drátt, umboðssvik og falska fengið aukna lánafyrirgreiðslu. skýrslugjöf 1 sambandi við kaup Rannsóknin hefur staðið yfir í nær sanddæluskipsins Grjótjötuns til þrjú ár og farið fram að hluta til i fandsins 1974. Noregi. Þvi er m.a. haldið fram af Dómari í Grjótjötunsmálinu _er ákæruvaldsins hálfu, að lög- Haraldur Henrýsson sakadómari. ÓV Flugmannadeilan: „SAMNINGAR TAKAST EKKIÚR ÞESSU” —segirfélagiíFÍA „Það hefur lengi legið í loftinu að og þeim orðum félagsmálaráðherra að svona kynni að fara, og ég held að það ríkisstjómin mundi grípa inn í deiluna. sé útséð um að samningar takist úr „Það verður bara að koma í ljós, þessu,” sagði einn samninganefndar- hvert framhaldið verður. Aðgerðir manna FÍA í samtali við DB í morgun okkar hefjast á föstudaginn, og á er blaðið innti hann álits á þeirri stöðu meðan enginn hefur samband við sem er komin upp í flugmannadeilunni okkur þáer biðstaða í þessu máli.”GAJ Bæjarsjóður Vestmannaeyja: UNDIRBYR MILUONA- KRÖFUR í ÞROTABU BREIDHOLTS HF. Endurskoðendur Bæjarsjóðs Vestmannaeyjar gerðu þær athuga- semdir við reikninga, er þeir lögðu þá endurskoðaða fyrir bæjarstjóm fyrir' skömmu að bæjarsjóður hafi ofgreitt Breiðholti hf., í lokauppgjöri við fyrirtækið vegna Byggingaáætlunar Vestmannaeyja. Vbtlar þeir, sem Bæjarsjóður samþykkti sem greiðslur, námu um áramótin ’77-’78 tæpum fjómm milljónum. Er upp komst um mis- tökin hætti sjóðurinn að greiða inn á víxlana, sem liggja í innheimtu hjá Landsbankanum. Með áföllnum kostnaði mun talan nú þvi standa í nálægt 5,5 milljónum. Bæjarsjóður vinnur nú að — vegna of mikilla greiðslna til fyrir- tækisins fyrir byggingafram- kvæmdir kröfugerð í þrotabú Breiðholts vegna þess máls og annarra krafna, sem upp hafa komið vegna verkefna fyrirtækisins í Eyjum. Er enn óljóst hver endanleg krafa verður, en talið er að hún verði allverulega hærri en fyrmefnd tala. -GS. ÞRIÐJUDAGUR 13. MARZ Loðnan: „Engin heilög tala um aflamagn” - en ótal endar upp á borð hjá ráðherra „Það virðist vera hálfgerð biðstaða i loðnuveiðimálum og ótal endar, sem liggja upp á borð hjá ráðherra í þeim,”sagði Andrés Finnbogason hjá loðnunefnd í viðtali við DB í morgun. „Við stöndum nú með samninga um mjög gott söluverð á meira magni en þegar hefur verið náð úr sjó,” sagði Andrés, og það er erfitt að hugsa sér nokkra heilaga tölu um skynsamlegt aflamagn. í hittifyrra kom mikil loðna að vestan með landinu og gekk inn í Faxa- flóann. Fiskifræðingar hölluðust allt eins að því, að þar væri um að ræða undantekningu. Engin loðna kom svo að vestan í fyrra, en nú er hún á ferð- inni þaðan og segja fiskifræðingar það „mikið magn”,” sagði Andrés. „Ætli það verði ekki leyft að veiða eitthvað meira en það, sem nú hefur náðst,” sagði hann að lokum. Talið er að veiða þurfi a.m.k. 100 þús. tonn til viðbótar til að standa við gerða samninga um fryst hrogn og loðnu, en fróðir menn um eðU göngunnar telja að þrátt fyrir að veiðar verði leyfðar ótakmarkað áfram, muni það magn aldrei nást, vegna þess hversu h ún er komin nálægt hrygningu. Að henni lokinni drepst loðnan. -BS/GS. Haukur Heiðar ákærðurídag í dag verður gefin út opinber ákæra á hendur Hauki Heiðar, fyrrum for- stöðumanni ábyrgðardeildar Lands- banka íslands, fyrir stórfeUdan fjár- drátt. Saksóknari hefur haft málið til meðferðar undanfarnar vikur og mun afgreiða það frá sér í dag með ákæruút- gáfunni, skv. þeim upplýsingum, sem DB hefur fengið hjá embættinu. Haukur Heiðar var handtekinn skömmu fyrir jól 1977 þegar upp komst um fjárdrátt hans og margra ára mis- ferli. Stóð rannsóknin yfir í rúmt ár og þótti sannað, að hann hefði dregið að sér að minnsta kosti 51 mUljón króna á því verðgUdi, sem var er féð var dregið. Málinu verður nú vísað tU sakadóms Reykjavíkur, þar sem dæmt verður í því. ÓV. Stokkseyri: Allt á kaf i f snjóogloðnu Unnið hefur verið að heita má dag og nótt í loðnu og fiski á Stokkseyri að undanförnu. Á laugardagskvöld fór hópur starfsfólks í frystihúsinu á ball og kom síðan til vinnu fljótlega að dansleik loknum, — fór heim og skipti um föt og síðan í vinnuna. Þá hefur allt verið á kafi í snjó á Stokkseyri að undanförnu og bílar ekki komizt milli húsa í þorpinu. Hefur lítið verið mokað nema að frystihúsinu. GAJ/AG, Stokkseyri. A v ír RauproWv TÖLVUR. W BANKASTRÆTI8 I \ í

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.