Dagblaðið - 16.03.1979, Blaðsíða 1
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 16. MARZ 1979.
13
Hvað er á seyði tun helgina?
Sjónvarp næstuviku...
BJARTSÝNISFÓLK—sjénvarp 24. marz kl. 21,55:
GAMANLEIKARINN OG
FÁTÆKU BÖRNIN
Peter Sellers og hundurinn í myndinni Bjartsýnisfólk.
Sjónvarp
Dagskrárliðir eru i litum nerria
annað sé tekið fram.
Laugardagur
17. mars
16.30 íþróttir. Umsjónarmaður Bjarni Felixson.
18.25 Sumarvinna. Finnsk mynd 1 þremur þátt-
um um tólf ára dreng, sem fær sumarvinnu í
fyrsta sinn. Fyrsti þáttur. Þýðandi Trausti
Júlíusson. (Nordvision — Finnska sjónvarpið).
18.55 Enska knattspyrnan.
Hlé.
20.00 Fréttir og veöur.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Björgvin Halldórsson. Ásta R. Jóhannes-
dóttir rifjar upp söngferil Björgvins og hann
syngur nokkur lög, gömul og ný. Stjórn upp-
töku Egill Eðvarðsson.
21.15 Allt er fertugum fært. Breskur gaman-
myndaflokkur. Fyrsti þáttur. Þýðandi Ragna
Ragnars.
21.40 Skonrok(k). Þorgeir Ástvaldsson kynnir
ný dægurlög.
22.10 Glerhúsiö. (The Glass House). Bandarísk
sjónvarpskvikmynd frá árinu 1972, byggð á
sögu eftir Truman Capote og Wyatt Cooper.
Leikstjóri Tom Gries. Aðalhlutverk Alan
Alda, Vic Morrow, Clu Gulager og Dean
Jagger. Myndin lýsir valdabaráttu og spillingu
meðal fanga í bandarísku fangelsi. Myndin ér
ekki við hæfi barna. Þýðandi óskar Ingimars-
son.
23.35 Dagskrárlok.
Sunnudagur
18. mars
16.00 Húsiö á sléttunni. Sextándi þáttur. Ást
læknisins. Efni fimmtánda þáttar: Hæfnispróf
á að fara fram i skólanum í Hnetulundi og eru
glassileg verðlaun í boði fyrir þann, sem verður
efstur. María Ingalls les af kappi fyrir prófið,
og til að raska ekki ró Láru fer hún út i hlöðu.
Hún veltir þar um ljóskeri, svo að kviknar
I hlöðunni. í refsingarskyni bannar móðir
hennar henni að taka prófið. María ætlar að
óhlýðnast, því að freistingin er mikil, en hættir
þó víð á siðustu stundu, óánægð en með
hreina samvisku. Þýðandi Óskar Ingimarsson.
17.00 Á óvissum timum. Þetta er þriðji og siðasti
viðræðuþáttur Galbraiths og gesta hans, en
þeir eru: Gyorgy Arbatov, Ralf Dahrendorf,
Katharine Graham, Edward Heath, Jack
Jones, Henry Kissinger, Kukrit Pramoj,
Arthur Schlesinger, Hans Selye, Shirley
Williams og Thomas Winship. Þýðandi Gylfi
Þ. Gíslason.
18.00 Stundin okkar.Umsjónarmaður Svava
Sigurjónsdóttir. Stjórn upptöku Þráinn Bert-
elsson.
Hlé.
20.00 Fréttir og veöur.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Spegilk spegill... Frá upphafi vega hefur
mannfólkið reynt að fegra sig með ýmsu móti
og á hverjum tíma hafa verið til viðteknar feg-
urðarimyndir. Hvað er fegurð? í þættinum er
m.a. leitað svara við þessari spumingu. Raett er
við Árna Bjömsson lækni um fegrunarað-
gerðir, Þórð Eydal Magnússon um tannrétt-
ingar, faríð er á hárgreiðslu- og snyrtistofur og
rætt við fjölda fólks. Umsjónarmaður Guðrún
Guðlaugsdóttir. Stjóm upptöku Valdimar
Leifsson.
21.30 Rætur. Ellefti þáttur. Efni tíunda þáttar:
Hana-George kemur heim frjáls maður og er
fagnað vel af fjölskyldunni. Honum er gert
Ijóst, að dvelji hann lengur en 60 daga l sveit-
inni, missi hann frelsið. Því veróur hann að
fara aftur. Tom sonur Georges cr orðinn fjöl-
skyldumaður og vel metinn járnsmiöur. Borg-
arastyrjöldin skellur á, og eiga Suðurríkin i
vök að verjast. Ungur og fátækur, hvítur
bóndi, sem stríðið hefur komið á vonarvöl,
*
leitar á náðir svertingjanna og er vel tekið.
Hann verður síðar verkstjóri á Harvey-býlinu.
Þýðandi Jón O. Edwald.
22.20 Alþýöutónlistin. Fjórði þáttur. Jass.
Meðal annarra sjást í þættinum George Shear-
ing, Chick Corea, Kid Ory, Louis Armstrong,
Earl „Fatha” Hines, Paul Whiteman, Dizzy
Gillespie, Charlie Parker, John Lewis, Dave
Bmbeck, Miles Daves, John Coltrane og
Charles Mingus.Þýðandi Þorkell Sigurbjörns-
son.
23.10 Að kvöldi dags. Séra Árni Pálsson, sókn-
arprestur í Kársnesprestakalli, flytur hug-
vekju.
23.20 Dagskrárlok.
Mánudagur
19. mars
20.00 Fréttir og veöur.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 íþróttir. Umsjónarmaður Bjami Felixson.
21.00 Fölur sldn á festingunni máni. Leikin,
finnsk sjónvarpsmynd, byggð á þjóðsögu, sem
kunn er víða um lönd og segir frá svipnum,
sem vitjar heitmeyjar sinnar á tunglskins-
bjartri nótt. Handrit og leikstjórn Veikko
Kerttula. Leikendur Pirkko Nurmi og Pekka
Maaranen. Þýðandi Krisín Mántylá. (Nord-
vision — Finnska sjónvarpið).
21.50 Myndlist í Færeyjum. Dönsk mynd um
færeyska listmálara og verk þeirra. Þýðandi og
þulur Hrafnhildur Schram (Nordvision —
Danska sjónvarpið).
22.30 Dagskrárlok.
Þriðjudagur
20. mars
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Hver ert þú? Finnski geðlæknirinn Reima
Kampmann hefur í nokkur ár notað dáleiðslu
við rannsóknir og lýsir i þessari mynd helstu
niðurstöðum sínum. Þýðandi Borgþór
Kjærnested.
20.55 Þörf eöa dægradvöl? Umræðuþáttur um
fullorðinsfræðslu. Þátttakendur Guðmundur
Arnlaugsson, rektor Menntaskólans við
Hamrahlið, Guðrún Halldórsdóttir, for-
stöðumaður Námsflokka Reykjavíkur, Haf-
steinn Þorvaldsson, formaöur UMFÍ, Tryggvi
Þór Aðalsteinsson, fræðslufulltr. MFA og
Þórður Sverrisson, framkvæmdastj. Stjórn-
unarfélags Islands. Umræðunum stýrir
Haukur Ingibergsson skólastjóri.
21.45 Hulduherinn. Breskur myndaflokkur um
starfsemi neðanjarðarhreyfingar á striðs-
árunum. Annar þáttur. örþrifaráð. í fyrsta
þætti voru kynnt til sögunnar samtök, sem
nefnast Lifiinan og hafa að markmiði að
hjálpá flóttamönnum að komast úr landi.
Aðalbækistöð samtakanna er kaffihús i
Brílssel. Bresk yfirvöld senda enskan
liðsforingja, sem á að starfa með Líflinunni.
Þýðandi Ellert Sigurbjörnsson.
22.35 Dagskrárlok.
Miðvikudagur
21. mars
18.00 Barbapapa. Framvegis verða endursýndar
á miðvikudögum myndir um Ðarbapapa, sem
verið hafa i Stundinni okkar á næstliðnum
sunnudegi. Fyrsti þáttur. Þýðandi Þuriður
Baxter. Sögumaður Kjartan Ragnarsson.
18.05 Sumarvinna. Annar hluti fínnskrar mynd-
ar um tólf ára dreng sem fær vinnu I sumar-
leyfinu. Þýðandi Trausti Júliusson. (Nord-
vision — Finnska sjónvarpið).
18.45 Heimur dýranna. Fræðslumyndaflokkur
um dýrallf vlða um heim. Þýðandi og þulur
Gylfi Pálsson. ■
19.10 Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Nýjasta tækni og vfsindl. Umsjónarmaður
Örnólfur Thorlacius.
20.55 LIB Benovský. Nýr, tékknesk-ungverskur
myndaflokkur um ævintýramanninn og
ferðalanginn Moric August Benovský, ástir
hans og hetjudáðir. Benovský var uppi á
átjándu öld. Hann skrifaði æviminningar
síöar, og þær njóta enn hylli viða um lönd.
Fyrsti þáttur. Er sagan hefst er Benovský
ungur húsari I þjónustu Marlu Theresu
keisaraynju. Hann fer I óleyfi heim til
Slóvakiu að verja eigur sinar gegn ásælni
mága sinna. Þýðandi Jóhanna Þráinsdóttir.
21.50 Áfengismál á Norðurlöndum. Norsk
fræðslumynd: Annar þáttur. Þýðandi Jón O.
Edwald. (Nordvision—Norska sjónvarpið).
22.30 Dagskrárlok.
Bjartsýnisfólk (The Optimists)
nefnist bíómynd sjónvarpsins á laugar-
dagskvöldið í næstu viku. Sagt er frá
gömlum manni sem haft hefur þann
| starfa að skemmta fólki í því sem Bret-
ar nefna Music Hall. Slík hús þekkjum
við vel úr Prúðu leikurunum og
þáttunum um hina gömlu góðu daga í
Bretlandi. í músíkhöllunum eru
gamanleikir og söngvar bæði
skemmtikrafta og gesta.
Gamli maðurinn, sem er leikinn af
Peter Sellers, hittir tvö börn úr verka-
mannafjölskyldu og hafa þau notið
heldur lítillar umhyggju. Sjálfur hefur
hann verið heldur umkomulaus og
vináttan við börnin verður honum
mikils virði. Hann ákveður að hjálpa
börnunum að fá hund í fóstur.
Kvikmyndabiblían góða gefur
myndinni þrjár stjörnur af fjórum
mögulegum. Sellers fær hrós fyrir frá-
bæran leik og kemur það vist engum á
óvart. Myndin er tekin í Lundúnum og
víðar og fær leikstjórinn hrós fyrir frá-
bæra fneðhöndlun á aðstæðum.
Peter Sellers ætti ekki að þurfa að
kynna fyrir sjónvarpsáhorfendum.
Bæði er hann tíður gestur í sjónvarpi
og kvikmyndahúsum. Myndirnar um
Bleika pardusinn, þar sem hann leikur
„Þetta er svipað minni og í islenzku
draugasögunni Djákninn frá Myrká,”
sagði Kristin Mántyla um finnsku sjón-
varpsmyndina Fölur skín á festingunni
máni sem sýnd verður á mánudags-
kvöldið.
,,Sagt er frá manni sem kemur að
sækja brúði sína dáinn. Hann hafði
aðalhlutverkið, eru árlega jólamyndir
eins kvikmyndahúss í Reykjavik og
hljóta alltaf mjög góða aðsókn.
Stjarna Sellers skein samt enn
skærar á árunum upp úr 1960. Þá var
hann einn vinsælasti leikari í Bretlandi.
Hann átti tryggan aðdáendaskara og
lofað því og dauðinn hindrar hann ekki
í að standa við loforðið. Stúlkan veit
að hann er dáinn en fer samt með
honum og þau halda brúðkaup sitt.
Hann eyðir hjá henni brúðkaupsnótt-
inni en að morgni finnur hún lík hans.
Þetta er óttaleg sorgarballaða.
Myndin er unnin upp úr gömlum
hafði nóg að gera við að Ieika. Sú mynd
sem frægust hefur orðið af myndum
Sellers er liklega Doktor Strangelove,
þar sem Sellers lék þrjú hlutverk, for-
seta Bandaríkjanna, brezkan ofursta í
flughernum og Dr. Strangelove.
finnskum þjóðkvæðum sem eru tengd
saman í eina heild. Kvæðin eru héðan
og þaðan úrlandinu og er samtenging
þeirra og myndin í þjóðháttalegum
stíl,” sagði Kristin.
Hún sagðist ekki hafa séð myndina
nema í svart/hvítu en bjóst fastlega við
aðhúnværimjögfallegílitum. DS
' ' ■
-DS.
FOLUR SKIN A FESTINGUNNIMANI - sjónvarp
á mánudagskvöldið:
Draugur vitjar brúð-
ar sinnar
Myndin Fölur skin á festingunni máni
hefst á því að menn sjást róa yfir vatn.
Draugurinn notar hins vegar sleða með
hesti fyrir.
m