Dagblaðið - 20.03.1979, Page 4
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 20. MARZ 1979.
DB á ne ytendamarkaði
0
Forðizt slysin
íhálkunni:
) DRAGID UT KLÆRNAR
Daglega berast okkur fréttir af vin-
um eða kunningjum, sem dottið hafa
á öllum þeim svellbunkum, sem nú
eru um allar götur. Menn eru að
bráka sig eða beinbrotna og þessi
„litlu slys” eru af mörgum talin þau
slys, sem hvað mestu tjóni valda.
Fólk er frá vinnu vikum saman, —
eitt ökklabrot getur þýtt margra
vikna erfiði og leiðindi sem eru því
samfara að þvælast um í gifsi og því-
umlíku.
Það er því ekki óskiljanlegt, að
menn leiði hugann að því, hvað hægt
sé að gera til þess að koma í veg fyrir
slys af þessu tagi. Margir taka þann
pól í hæðina, að bezta ráðið sé að
vera ekkert á ferli þegar svellalög eru
mikil, en eins og veðurfar hefur verið
hér á landi að undanförnu er slíkt
varla gerlegt, myndi þýða margra
mánaða inniveru.
Mannbroddar hafa löngum talizt
góð verkfæri í hálkunni og margir
notfært sér þá. Hins vegar eru þeir
illmeðfærilegir og því þóttu menn
hafa himin höndum tekið, er þeim
var bent á enn eina nýjungina á þessu
sviði, klær, sem festar eru á skóna og
þarf ekki nema eitt handtak til þess
að draga þær út.
Þrjár skóvinnustofur hér á landi
verzla með klær þessar, Skóvinnu-
stofa Einars i Sólheimum, Skóvinnu-
stofa Hafþórs í Hafnarstræti og Skó-
vinnustofa Halla Péturs á Akureyri.
Þessar hugvitssamlegu klær eru
fluttar inn frá Englandi og hafa notið
mikillar hylli af skiljanlegum ástæð-
um.
Skósmiðirnir, sem nefndir eru,
festa klæmar á skóna fyrir 4.700
krónur og á meðfylgjandi myndum er
sýnt, hvemig klóm þessum er beitt.
Fyrir litinn pening sóla skósmiðir svona skóhlifar, sem eingöngu er ætlaðar til
brúks yfir vetrartimann.
Uppskrift dagsins:
Fiskf lök með fyllingu
500 g fiskflök
(tvö þunn fiskflök eða eitt stórt) ca
340 kr.
sitrónusafi, salt og pipar
laukur, tómatar, sveppir, paprika
eða annað smátt skorið grænmeti
fyrir ca 300 kr.
25 g smjörlíki
nokkrar ostsneiðar.
1. Hreinsið flökin, þerrið þau og
kryddið.
2. Saxið grænmetið smátt og látið á
annað flakið. Leggið hitt flakið yfir.
Ef þið eru með eitt stórt flak er hægt
að skera rauf eftir endilöngu, láta
fyllinguna þar í og festa aftur með
tannstönglum. Látið flökin i eldfast
fat eða ofnmót og stráið smjörlíkis-
bitum yfir. Ef flökin eru vafin í
álpappír þarf ekki að festa þau
saman með tannstönglunum.
3. Steikið flökin við 200 gráður
neðarlega í ofninum í 30—40 mín.
4. Leggið ostsneiðamar yfir og
steikið þær með ef till siðustu
mínúturnar.
Berið fram með soðnum
kartöfium.
Myndirnar þrjár sýna hvernig klónum er komið fyrir við hæl skónna. Með einu
handtaki er svo hægt að „draga klærnar út” og beita þeim. DB-mynd RTHS.
Guðlaugur kaupmaður skrifar
Þrjár verzlanir
á Eyrarbakka
Guðlaugur Pálsson kaupmaður á
Eyrarbakka hefur sent blaðinu línu
vegna fréttar á Neytendasíðu 2. þ.m.
Vitnar hann í Kristján Ásgeirsson
kaupfélagsstjóra á staðnum, sem
sagði í viðtalinu að kaupfélagið væri
eina verzlunin á staðnum, fyrir utan
það að gamall maður væri þar með
smáverzlun, sem opin væri nokkra
tima á dag. Um þetta segir Guðlaug-
ur í bréfi sínu:
„Nei Kristján, þú situr svo sannar-
lega ekki að allri verzlun á Eyrar-
bakka og kem ég að því síðar.
Hvað viðvíkur lokunartima okkar
þá hefi ég 12 klst. lengur opið í viku
hverri heldur en útibú KÁ og vissu-
lega veit Kristján það.
Það er rétt hjá Kristjáni, að gamall
máður, 83ja ára, er ég, enda tæpast
getað verið búinn að verzla i rúm 62
ár ef svo væri ekki.
Ég get eins og Kristján gerði í sinni
grein nefnt nokkrar vörutegundir,
svo sem allar algengar matvörur (þö
ekki kjötvörur), ritföng, tóbak, húsa-
olíu o.fl., sem of langt yrði upp að
telja.
Að gera Kristjáni grein fyrir því,
að önnur verzlun sé á staðnum er
nærtækast með því að benda á að ég
greiddi í söluskatt í desember og
janúar krs 299.500. Þetta er að vísu
ekki há upþhæð og mætti vera hærri,
en auk þess sel ég söluskattsfrjálsar
vörur svo sem matvörur allar, tóbak
og olíur.
Og Kristján heldur áfram: Að reka
verzlun þar sem engin verzlun er fyrir
er mikill vandi. Þetta kalla ég ný-
mæli.
Einu gleymdir þú, Kristján, í
ákefðinni í að telja fólki trú um, að
engin verzlun væri hér á staðnum
nema þin: Það er þriðja verzlunin hér
á staðnum, verzlunin Túnberg. Hún
er með mikið af vörum ekki síður en
við.”