Dagblaðið - 20.03.1979, Page 5
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 20. MARZ 1979.
Virkjun Jökulsár í
Fljótsdal gefur 43%
ódýrari raforku en
fæst í Bessastaðaá
áform uppi um aðra stærstu virkjun f Evrópu á Austurlandi
0RKUST0FNUN-RAFMAGNSVBTUR RfKISINS
Forathuganir á virkjunarsvæði
þriggja jökulsáa á Austurlandi eru nú
tilbúnar hjá Orkustofnun. Fjalla þær
um það stórkostlega verkefni að veita
Jökulsá á Fjöllum og Jökulsá í
Fljótsdal í Jökulsá á Brú og reisa þar
tvær virkjanir, Hafrahvammavirkjun
og Brúarvirkjun. Þessar virkjanir eru
taldar gefa 1422 megavött raforku.
Kostnaðarverð hverrar kílóvattstund-
ar var talið 2.46 kr. á verði í
september 1977 og í þeim áætlunum,
var miðað við 12% vexti og full-
nýtingu strax. í janúar 1979 var
einingarverð kwstundar talið 3.06 kr.
Svæðið á Austurlandi sem athugað
hefur verið gefur eitt allra ódýrasta
vatnsafl, sem til er á landinu, en
vegna stærðar sinnar eru þessar virkj-
anir að sinni óhugsandi án stórnot-
enda, sem kaupi megnið af orkunni,
eins og segir í fréttatilkynningu frá
Orkustofnun.
Jökulsársvæðin gefa mikla og
margháttaða möguleika á virkjunar-
framkvæmdum. Heppilegast nú er
talið vera að bíða með stóru virkjan-
irnar við Hafrahvamma og Brúar-
virkjun en láta fyrsta áfanga Austur-
landsvirkjunar verða virkjun Jökuls-
ár í Fljótsdal, sem taka má ákvörðun
um án tengsla við virkjanir á Jökulsá
á Brú. Slík virkjun er reiknuð 1770
gígavött og 295 megavött miðað við
6000 stunda nýtingartíma á ári og
gefur orkuverðið 2.65 kr. á kílówatt-
stund á verðlagi í september 1977.
Hafrahvammsvirkjun er talin gefa
485 megavött og Brúarvirkjun 937
megavött eða samtals 1422 megavött.
Orkukostnaður er talinn verða 2.44
kr. á kílóvattstund. Fyrir liggja áætl-
anir um þá litlu áfangaskiptingu sem
orðið getur í þessum stórvirkjunum.
Miklar rannsóknir eru enn eftir til
að þetta virkjunarnet komizt á rann-
sóknarstig sem kallast verkhönnun.
Er þetta svæði talið á svipuðu stigi
hvað rannsóknir snertir og Þjórsár-
Hvítársv.æðið var 1966 er mynstur-
áætlanagerð lauk þar. Fyrst liggur
fyrir að einbeita sér að rannsóknum á
virkjunarsvæði Jökulsár í Fljótsdal
og stefna á tilbúna áætlun eftir 3—4
ár um stórvirkjun.
Virkjunarröðin í Austurlandsvirkj-
un er meðal hinna virkilega stóru i
heiminum. Brúarvirkjun ein er að
Austurlandsvirkjun
‘RATHUGUN VIRKJANA A VATNASVIDUM JðKUlíAR A FJOLLUM. JOKULSAR A BRÚ0GJÖKUI.SAR I FLJOTSOAL
afli til ein af 100 stærstu virkjunum
heims og að orkuvinnslugelu helm-
ingi ofar í stærðarviðmiðuninni.
í Evrópu utan Sovélrikjanna er um
næststærstu virkjun að ræða i afli.
Stærst er virkjun Dónár i Járnhlið-
inu. Sú virkjun er helmingi stærri að
afli en Brúarvirkjun. En hvort orku-
vinnslugeta hennar sé meiri en rann-
sóknarmönnum íslenzkum ekki
kunnugt um.
Stíflan í Hafrahvammagljúfri
skipar líka virðulegan sess þar sem
ekki er vitað um nema um 20 stíflur
hærri í heiminum 1973 þar af 5 í
Evrópu.
Hagkvæmni áðurnefndra stór-
virkjana á Austurlandi hefur verið
reiknað út á verðlagi í janúar 1979.
Til samanburðar eru sambærilgar
tölur fyrir nokkrar aðrar virkjanir,
sem að undanförnu hafa verið í sviðs-
ljósinu. í tölunum er alls staðar
reiknað með 6000 klst. nýtingartíma
á ári, svo hann sé marktækur. Afl-
tölur eru af þeim sökum aðrar fyrir
Bessastaðaá og Hrauneyjafoss en
þær sem algengastar eru í áætluninni.
r- -• V.s~ •• ■
Einingarverð kílóvattstundar Brúarvirkjun, l.áfangi Veita Jökulsárog 3.34 kr.
Heildartilhögun 1 3.11 kr. síðariáfangi Bog H 1.67 kr.
Fljótsdalsvirkjun 3.33 kr. Bessastaðaá (56 MW) 5.84 kr.
Jökulsárvirkjanir Blanda(135 MW) 3.71 kr.
á Brú í heild 3.06 kr. Villinganes (30 MW) 4.92 kr.
Hafrahvammavirkjun Hrauneyjafoss(154 MW) 3.43 kr.
1. áfangi 5.10 kr. -ASt.
Vestmannaeyjar:
Bullandi þorskur
— Grunnskólanemar drifnir fvinnu
Feikimikil atvinna hefur verið í Vest- Það er bullandi þorskur og ekki að sjá
mannaeyjum að undanförnu og svo að þorskurinn sé alveg búinn.
mjög að gefa varð frí í 9. bekk grunn- Trillukarlar hafa fengið góðan afia
skólans í Vestmannaeyjum, þar sem og þess eru dæmi að trillurnar fylli sig
sárlega vantaði mannskap til vinnu. tvisvar sama daginn. -RS/JH.
Eskif jörður:
„Piparsveina-
höllin” tilbúin
f maí
„Piparsveinahöllin” á Eskifirði
verið tilbúin í maímánuði að sögn
Ásgeirs H. Jónssonar, bæjarstjóra.
Vinna nú 10—12 fagmenn að uppsetn-
ingu tréinnréttinga í blokkina, sem í eru
átta íbúðir, en byrjað var á byggingu
hennar 1974.
í upphafi var blokkin ætluð verka-
fólki, sem lág laun hefur og sá sér ekki
fært að koma þaki yfir höfuð sér á
annan hátt. Var mikill áhugi í fyrstu
hjá fólki sem bjó í heilsuspillandi
húsnæði að fá íbúðir í blokkinni og
taldi það sig nú fyrst hafa dottið í
lukkupottinn og bjartir dagar væru
framundan.
En vegna seinagangs við bygginguna
og vaxandi dýrtíðar hættu fjölskyld-
urnar smátt og smátt viðsinn hlut.
Ungir peningamenn, sem ekki voru
komnir á giftingaraldurinn gengu í
kaupin og þess vegna er blokkin kölluð
í daglegu tali Eskfirðinga „piparsveina-
höllin”.
-Regína/ASt.
„Piparsveinahöllin” Eskifiröi.
DB-mynd JH.
Höfum fengið sendingu af hinum vinsælu
útskornu hurðum -
Takmarkaðar birgðir - Nú er tækifærið
Þeir sem lagt hafa inn pantanir eru beðnir að vitja þeirra
ATH! TAKMARKAÐAR BIRGÐIR
INNRÉTTINGAR SKEIFAN 7
Símar31113 - 83913