Dagblaðið - 20.03.1979, Side 6

Dagblaðið - 20.03.1979, Side 6
6 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 20. MARZ 1979. POIMTIAC FORMULA1975 Nýinnfluttur til sölu. Mjög glœsileg sportbifreið. o o Sýningahöllinni við Bíldshöfða. Símar 81199 og 81410 Liðsmannafiindur Samfylkingar 1. maí verð- ur haldinn að Hótel Esju 2. hæð miðvikudaginn 21. marz (á morgun) kl. 20.30. Fjölmennið. Stjórnin. Kranabif reið til sölu 30 tonna kranabifreið til sölu, með hagstæð- um greiðslukjörum ef samið er strax. Nýupp- tekin vél, með nýju olíuverki, nýir lagerar á snúningshring. 4ra öxla undirvagn með drifi á báðum afturöxlum. Tækið, allt í góðu standi. Uppl. í símum 91—19460 og 91—32397 (kvöldsími.) SAIHFYLKING Elning á grnndvelll stéttabaráttu! Starf við innheimtu og sendiferðir hjá Hafnarskrifstofu er laust til umsóknar. Umsækjandi sé minnst 16 ára og æskilegt er að hann hafi vélhjól til afnota. Umsóknir sendist skrifstofu minni fyrir mið- vikudaginn 28. marz, nk. Hafnarstjórinn Reykjavík. LÖGREGLUSTÖÐ í KEFLAVÍK Tilboð óskast í að reisa og fullgera lögreglu- stöð í Keflavík. Frágangi hússins að innan sé lokið 15. marz 1980, en utanhússverkum sé lokið 15. ágúst 1980. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri Borgartúni 7, Rvk., gegn 30.000.- kr. skila- tryggingu. Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn lO.apríl 1979, kl. 11.00 f.h. INNKAUPASTOFNUN RIKISINS ^ORGARTÚNI 7 §IMI 26844 PÓSTHOLF 1441 TELEX 2006 Weisman varnarmálaráöherra Israels: ÍSRAELA 0G EGYPTA GREINIR NÚ Á UM „EINA 0LÍUTUNNU” Ezer Weizman varnarmálaráðherra ísraels sagði í gærkvöld að fsraelar og Egyptar hefðu ekki leyst síðasta ágreiningsefnið, sem stendur í vegi fyrir því að fullar sættir náist milli land- Mannskæðir árekstrar við Zagreb Sjö manns fórust og fimmtán slösuðust í tveimur árekstrum á aðalveginum milli borgarinnar Zagreb í Norðvestur-Júgóslavíu og Adríahafsins í gær. Að sögn júgóslavnesku lög- reglunnar lentu hvorki meira né minna en 25 bílar af öllum stærðum og gerðum í þessum á- rekstrum. Ástæðan var lélegt skyggni vegna þoku og reyks frá ruslahaugi, þar sem verið var að brenna sorpi. — Árekstrarnir urðu um það bil átján kílómetra frá Zagreb. anna. En hann kvaðst vera þess fullviss að málið — dagsetning brottflutnings ísraels frá Sinai olíuvinnslusvæðunum — yrði leyst áður en langt um liði. Weizman, sem var í Bandaríkjunum er hann gaf þessa yfirlýsingu, flaug heim til ísraels í nótt til að taka þátt í umræðum um friðarsamningana á þingi. Hann sagði að skilnaði við fréttamenn: ,,Nú greinir okkur aðeins á um eina litla olíutunnu.” Hann var að því spurður, hvort annað hvort ríkið yrði að gefa eftir til að endanlegir samningar næðust. Varnarmálaráðherrann taldi svo vera. ,,I öllum samningaviðræðum verðurðu að láta af einhverjum kröfum.” Hann bætti því við að hann byggist við því að nefndin, sem undirskrifar friðar- samningana fyrir ísraels hönd myndi » Weizman varnarmálaráðherra: Býst við að ísraelski hópurinn, sem undir- ritar friðarsamningana við Egypta leggi af stað til Bandaríkjanna á laugardagskvöldið. leggja af stað til Washington á laugar- dagskvöld. STEINUM ÚR KÍNAMÚRNUM STOUÐ TIL HÚSBYGGINGA Sifellt færist i aukana að kínverskir húsbyggjendur leiti sér fanga um byggingarefni i Kínamúrn- um margfræga. Af þessum sökum, er hann orðinn hálfóhrjálegur sums staðar, þar sem menn hafa látið greipar sópa hvað mest. Það var Dagblað alþýðunnar, sem skýrði frá þessum spjöllum á múrnum. Þar var sömuleiðis frá þvi sagt að skemmdir hafi verið unnar á fornum görðum i austurhluta landsins. Aðeins sjö garðar af etiefu ásamt garðhúsunt og hofum hafa verið lánir i friði. Dagblað alþýðunnar hvatti til þess að menn yrðu ráðnir til að vernda fornar leifar landsins, svo að þær mættu standa enn lengur íbúum landsins til ánægju. » Olíuborpallur á Statfjord i Noregj F.nglendingum og Norðmönnum er ráðlagt að selja sem mest af oliufram- leiðslu sinni. Það skili mun meiri hagnaði en að nota hana á heima- markaði. Bretar og Norömenn: Seljið sem mest af Norðursjávarolíunni Bretar og Norðmenn eiga að ein- beita sér að því að flytja sem mest út af Norðursjávarolíu sinni í stað þess að nota hana á heimamarkaði, segir meðal annars i skýrslu, sem fjárhags- ráðgjafi Lloydsbauka birti í Financial Times i gær. Ráðgjafi þessi, Christopher Johnson, sem reyndar var eitt sinn ritstjóri Financial Times, fullyrðir að ríkisstjórnir landanna tveggja eigi að leggja allt kapp á að leita annarra orkulinda í stað oliunnar, — það sé mesti hagnaðurinn. Þannig eigi Bret- ar að einbeita sér að aukinni kola- og gasneyzlu auk kjarnorku, en Norðmenn á rafmagn úr vatns- virkjunum. Hagnaðinum af olíusölunni eigi að verja til þessara endurbóta.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.