Dagblaðið - 20.03.1979, Page 8
8
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 20. MARZ 1979.
%
<<
Munið okkar vinsælu
rétti fyrir fermingar
Röld borð
Heitir og kaldir
réttir
Snittur
Brauðterttur
Rjómaterttur
O.fl.
m
a/ftwrum
í Glæsibæ
MOKKA-
JAKKAR
KÁPUR
Veitum 15% afslátt
AF MOKKAFLÍKUM OG PELSUM
NÆSTU DAGA
SKINNHÚSIÐ
AUSTURSTRÆTI 8
Þorlákshöfn:
72% aflaaukning íbol-
fiski f rá því f fyrra
—8422 lestir í ár móti 4900 lestum í fyrra
Gífurleg aukning hefur orðið á
fiskafla þeim sem borizt hefur til
Þorlákshafnar á vertíðinni í ár miðað
við fyrra ár. Hafa alls borizt á land í
Þorlákshöfn frá áramótum til 18.
marz 8422 lestir af bolfiski. Á sama
tíma í fyrra var heildaraflinn 4900
lestir. Aukningin milli ára er því 3522
lestir eða tæplega 72% og hefur afli
í Þorlákshöfn aldrei verið jafnmikill
á þessum árstíma.
Meðalaflinn í róðri er nú 10,3 lestir
en var í fyrra 9.2 lestir. Heildar-
loðnuaflinn sem til Þorlákshafnar
barst var 14500 tonn og kom Húna-
röst með 10750 tonn af því magni.
Nokkrir bátar hófu netaveiðar
strax upp úr áramótum. Fjórir afla-
hæstu netabátanna eru:
Höfrungur Ill.með 646 lestir í 25
sjóferðum, Jón á Hofi með 613 lestir
í 25 sjóferðum, Jóhann Gíslason með
588 tonn í 25 sjóferðum og Friðrik
Sigurðsson með 558 tonn í 22 sjó-
ferðum. Skuttogarinn Jón Vídalin
hefur fengið 600 lestir af fiski fráára-
mótum.
Þorlákshöfn mun nú í ár vera með
allra hæstu aflastöðum. Til Grinda-
víkur hefur borizt um 100 lestum
meira en til Þorlákshafnar en tölur í
Vestmannaeyjum fengust ekki í gær,
en þessir munu þrír efstu löndunar-
staðimir.
-GS/ASt.
Falla þessi tré til þóknunar blikkbeljunni?
DB-mynd Bjarnleifur.
Á að fórna íslenzkum trjám
á altari blikkbeljueignar
bankamanna?
,,Við, sem búum hérna i grenndinni
og eigum daglega ferð um, megum ekki
til þess hugsa, að einn elzti og fegursti
garðurinn í borginni verði eyðilagður
og tekinn undir bílastæði,” sagði Pétur
Pétursson, útvarpsþulur, í viðtali við
DB. Pétur á þarna við fallegan trjálund
i garðinum við Suðurgötu númer 12 í
Reykjavík.
Pétur sagðist hafa veður af þvt. að
fyrir borgarráðsfund í dag verði lögð
beiðni um þessa röskun. Fylgdi það
sögunni að með þessu ætti að leysa
vöntun einhverra banka á bílastæðum.
„Þarna er verið að ráðgera óbætan-
legt tjón fyrir svipmót þessarar gömlu
og virðulegu götu,” sagði Pétur. Hann
bætti við: „í Grænu byltingunni
verður að vcrnda þennan stað fyrir
árásum rauðu knteranna.”
Ekki hefur verið leitað álits eða
samráðs íbúasamtaka Vesturbæjar um
þettamál.
„Þarna við Suðurgötu 12 ræktaði
Niels Dungal, prófessor, einhver
dýrustu og fegurstu skrautblóm jarðar-
innar í mörg ár. Nú sjást þarna aðeins
rústir af grindum gróðurhúsanna.”
sagði Pétur. ,,Við því er ekkert að segja
né gera, þótt orkídeuræktun hafi verið
hætt i Suðurgötunni af eðlilegum
ástæðum,” sagði Pétur. ,,Hitt eralvar-
legra, ef nú á að fórna ekki færri en 15
íslenzkum trjám í hjarta borgarinnar á
altari blikkbeljueignar bankamanna og
leggja í þeirrastaðdautt malbik.”
„Þetta er mál, sem okkur Reykvík-
inga varðar og kjörnum fulltrúum
okkar í borgarráði er nteðal annars
treysttilað standa vörð um.”
Óþolandi skattaívilnun
samvinnufélaganna
öll íslenzk f yrirtæki sitji við sama borð segja
íslenzkir stórkaupmenn
miamuituii vi v,iui 11 l£,j ui 11
andi og þarf að hverfa, segir í ályktun manna.
-BS.
Fjörutíu og sjö snúðar
Samvinnufélögin sitja við allt annað
og betra borð í skattamálum en önnur
félagsform að mati Félags íslenzkra
stórkaupmanna. Þetta kom fram á
aðalfundi félagsins nýlega.
Það var álit fundarins, að skattlagn-
ing fyrirtækja skuli fara eftir sömu
reglum, óháð því, hvert rekstraform-
ið er. í ályktun aðalfundarins var bent
á heimild samvinnufélaganna til
greiðslu á 3/4 hlutum ágóðans i stofn-
sjóð. Þessi heimild veldur því, að sam-
vinnufélögin njóta algerrar sérstöðu
við skattlagningu tekjuskatts. Þessi
Bókaútgáfan Bros hf. í Hafnarfirði
hefur sent frá sér nýja teiknimyndabók
eftir Gísla J. Ástþórsson. Nefnist hún
Fjörutíu og sjö snúðar. Þar er greint
frá i máli og aðallega myndum Siggu
Viggu, Blíðu og Gvendi.
Allt eru þetta þekktar fígúrur úr
Morgunblaðinu, Sigga Vigga hefur
unnið hjá Þorski h/f síðan hún man
eftir sér, Blíða hefur griðarlegt dálæti á
snúðum ogtorgarað meðaltali 47 stk. á
dag og Gvendur útgerðarmaður sent
grætur á útborgunardögum.
-JH