Dagblaðið - 20.03.1979, Blaðsíða 9
wa
VIÐ FLYTJUM
á Nýbýlavegi 2 að Skemmuvegi 6
Um leið og ég þakka viðskif Mvinum mínum
samstarfið síðastliðin 15 ár býð ég ykkur áfram-
haldandi viðskipti í nýjum og stórglæsilegum
húsakynnum að
SKEMMUVEGI6, KÓPAVOGI
Við veitum eftirtalda þjónustu:
• Dekkjasala, ný og sóluð dekk
• Negling í notuð og ný dekk
• Jafiivœgisstilling
• Alhliða dekkjaviðgerðir \ 0 /
..-
i....
• Öllþjónusta
fer fram innandyra.
BREYTT SfMANÚMER 75135
Hjólbarðaviðgerð Kópavogs
Skemmuvegi 6 - Sími 75135, Kóp.
Bryngeir Vattnes - (Binni)
Vonast enn eftir samkomulagi
„Ég vona, að könnun geli leitt til
samkomulags stjórnarflokkanna um
þetta frumvarp og sem víðtækastrar
samstöðu á þingi,” sagði Ólafur
Jóhannesson, forsætisráðherra, í fram-
söguræðu fyrir efnahagsfrumvarpi sínu
igær.
Hann sagði, að við athugun mætti
vera, að menn kæmust að þeirri niður-
stöðu, að ágreiningur stjórnarflokk-
anna sé ekki eins mikill og virzt hafi,
sérstaklega þegar hugsað sé til kaup-
máttarins.
Ólafur kvaðst vona, að ráðherrar
Alþýðubandalagsins mundu styðja
frumvarpið, áður en lyki.
Ólafur taldi, að viðskiptakjör kynnu
að verða 6—7 prósentum lakari í ár en
þau voru í fyrra. Búast mætti við ein-
hverri aukningu á framleiðslu, en
lakari viðskiptakjör gerðu að verkum,
að ekki mætti búast við meiru en að
þjóðartekjurnar héldust óbreyttar frá í
fyrra.
Forsætisráðherra lagði áherzlu á, að
opinberir starfsmenn yrðu að fallast á
eftirgjöf á 3% kauphækkun, sem á að
verða samkvæmt samningum 1. april.
Slík kauphækkun mundi draga dilk á
eftir sér, sagði forsætisráðherra.
Hann sagði, að atvinnuöryggi hefði í
frumvarpinu verið sett í efsta sætið.
Það hefði nokkuð komið fram í, að
ekki tækist að koma verðbólgunni eins
langt niður og vonað hefði verið.
Nokkru um það ylli einnig, að komið
hefði verið til móts við hagsmunasam-
tök einkum ASÍ með breytingum á
frumvarpinu frá upphaflegri útgáfu
þess.
Loks lagði ráðherrann til, að með-
ferð málsins yrði hraðað. Rétt væri, að
nefndir beggja þingdeilda ynnu saman
að afgreiðslu málsins. -HH
DB-mynd Bjarnleifur.
„Kjaraskerð-
— segja stjórnarandstæðingar
„Frumvarpið er umbúðir utan um ofstjórnar og stjórnleysis, sem nú réði
kjaraskerðingu, sem allir stjórnar-
flokkarnir eru sammála um að fram-
kvæma,” sagði Eyjólfur Konráð
Jónsson alþingismaður, sem hafði til
ráðstöfunar meginpartinn af ræðutíma
stjórnarandstöðunnar.
„Það er eins og klætt í cellofan,”
sagði Eyjólfur. Hann sagði, að versn-
andi kjör hlytu að verða fylginautur
þess samblands af tilburðum til
ferðinni.
„Allt, sem sett er inn fyrir krata i
frumvarpinu, er jafnóðum tekið út
fyrir komma,” sagði þingmaðurinn og
gat þess, að hvarvetna væru settir fyrir-
varar, þegar farið væri að tillögum
krata. Frumvarpið væri að mestu
marklaust.
Hann sagði, að merkilegt væri, að
ríkisst jórnin riðaði til falls út af
tveimur hundraðshlutum í kaup-
mætti,” einum blóðmörskepp í slátur-
tíðinni.”
Ríkisstjórnin gæti bezt bjargað
málum með því að bæta við einni grein,
sem gæfi láglaunamönnum þrátt fyrir
kauprán sömu kjör og þeir höfðu notið
eftir maílögin í fyrra, í stjórnartíð fyrri
rikisstjórnar.
Margar greinar frumvarpsins væri
svokallaðar „loforðagreinar”.
„Dengjum þeim i lagasafnið og
svíkjum svo allt saman,” segðu
stjórnarliðar. -HH.
ing í cellofan”
Ólafur Jóhannesson, forsætisráðherra, gengur til sætis síns að lokinni ræðu sinni í gær.
Kurr í Eyrbekkingum:
Mótmæla
gatnagerð-
argjöldum
Það er viðar en á Eskifirði sem
menn eru óánægðir með gatna-
gerðargjöldin. Fyrir stuttu voru
eigendum um fjörutíu húseigna
við hluta aðalgötunnar á Eyrar-
bakka sendar tilkynningar um
gatnagerðargjöld vegna malbik-
unar á um 500 metra kafla göt-
unnar sem framkvæmd var á
árunum 1974 og 1977. Gjöldin
voru mismunandi há og komust
upp í rúmar 800 þús. kr. en þá er
um að ræða mikil hús, stórar
lóðir og útihús.
Nú hafa 24 húseigendur sent
hreppsnefndinni bréf þar sem þeir
lýsa undrun sinni á gjöldunum og
, .mótmæla þeim sem allt of háum
og áskilja sé rétt til að leita úr-
skurðar dómstóla ef þurfa
þykir.”
GAJ/MKH, Eyrarbakka.
Þorri blótaður
íNewYorkborg
Hátt á annað hundrað manns
sóttu hið árlega þorrablót íslend-
ingafélagsins i New York, en það
var haldið laugardaginn 3. marz
sl. á Warwick hótelinu.
Samankomið var fólk frá New
York, nágrannaríkjunum og jafn-
vel eins langt að og Winnipeg,
Manitoba. Þorrablótið hófst með
ávarpi frú Svövu R. Eatough,
forseta- félagsins, en Kornelíus
Sigmundsson fastafulltrúi íslands
hjá Sameinuðu þjóðunum flutti
aðalræðu kvöldsins.
Hinn hefðbundni þorramatur
kom frá fslandi i tilefni hátíðar-
innar og naut mikilla vinsælda nú
sem endranær. Hljómsveitin
Geimsteinn kom frá íslandi,
skemmti blótsgestum og lék fyrir
dansi.
-JH.
Sýnlngarsalur
Tegund Arg. Verð
Fiat 132 GLS 78 3,900 þús.
Rat 132 GLS. 77 3.500 þús.
Rat 132 GLS 76 2.900 þús.
Rat132 GLS 75 2.300 þús.
Rat 132 GLS 74 1,800 þús.
Bronco '66 1.550 þús.
Mazda 818 78 3.100 þús.
Nova 73 2.350 þús.
Mazda 818 73 2.500 þús.
Rat 131 Sp. 77 2.800 þús.
Rat 131 Sp. 76 2.300 þús.
Rat 131 Sp. station 77 3.400 þús.
Rat128 Ce 77 2.350 þús.
Rat 128 Sp. 76 2.000 þús.
Rat 128 75 1.200 þús.
Rat128 74 900 þús.
Wagoneer '66 1.500 þús.
Cortina 1300 74 1.700 þús.
Cortina 71 900 þús.
Toyota Coroiia 77 3.100 þús.
Rat 127 CL 78 2.400 þús.
Rat127 77 1.900 þús.
Rat 127 Sp. 76 1.700 þús.
Rat 127 76 1.550 þús.
Rat 127 74 900 þús.
Rat 125 P station 78 2.000 þús.
Rat 125 P statkm 77 1.850 þús.
Rat 125 P. 78 2.000þús.
Rat 125 P. 77 1.700 þús.
Rat 125 P. 76 1.550 þús.
f FÍAT IINKAUMBOD A ISLANOI
DAVfÐ StoURÐSSON hf.
SlOOMULA 3». HMI «»»»
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 20. MARZ 1979.
f Ólafur um frumvarpið: