Dagblaðið - 20.03.1979, Síða 11

Dagblaðið - 20.03.1979, Síða 11
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 20. MARZ 1979. ríkin. Það er þannig hugsað, að ef Sovétríkin vilja fá þennan samning þá verði þau að hafna sumum grund- vallarsjónarmiðum sínum í utanríkis- og jafnvel innanríkismálum. En staðreyndin er að báðir aðilar þarfnast samningsins og báðir græða á honum. Með þetta í huga væri eðli- legt að Sovétríkin gerðu hliðstæðar kröfur til hins aðilans. En það er alveg ljóst að slíkt myndi á engan hátt flýta fyrir undirritun hans eða færa hann nær. Það ætti að vera fyrir löngu orðið öllum ljóst að þýðing samningsins er svo mikil að það má ekki tengja undirritun hans neinu öðru. IT I JI Að lokum finnast þeir sem gagn- rýna samninginn af því að, sam- kvæmt þeirra áliti, hann gangi ekki nógu langt í átt til raunhæfrar afvopnunar. Vissulega gerir hann það ekki, það er ekki hægt að búast við að hann taki til slíkra langtíma- sjónarmiða. Það reyndist nógu erfitt á þessu stigi málsins að fá reist þak á þróun hinna hættulegri vopna- tegunda. En það sem er þýðingar- meira er að Salt-2 samningurinn skapar hagstæðar kringumstæður til að ná lengra á vegi raunhæfrar afvopnunar, bæði hvað snertir vopnategundir og vopnamagn, en þetta væri að miklum mun erfiðara án Salt-2samnings. Salt-2 samningurinn er líklegur til að gefa nýjum afvopnunarviðræðum byr undir báða vængi, svo sem um al- gert bann við tilraunum með kjarn- orkuvopn, eða niðurskurð víg- búnaðar og fækkun í herjum í Mið- Evrópu. Síðast en ekki sízt, undir- ritun saltsamningsins myndi án efa hafa mjög jákvæð áhrif á alþjóðlegt andrúmsloft í heild. Hvað gerist ef samningurinn verður ekki uridirritaður? Það gæti orðið endurvakning kalda stríðsins, ásamt áróðri striðsæsingamanna sem vilja halda áfram vigbúnaðarkapp- hlaupinu. Slíkt myndi leiða til hömlu- lausrar vopnaframleiðslu. Með öðrum oröum yrði kjarnorkueyði- legging fyllilega raunhæfur mögu- leiki. nauðgunum, sem eiga sér stað. Og að þær séu af öðrum ástæðum en flestar nauðganir. Ýmsar rannsóknir benda til þess, að algengustu nauðganirnar séu þær, þar sem þolandinn þekkir afbrota- manninn. Þau hafi ekki hist af tilvilj- un, heldur hafi stefnumótið verið fyrir fram ákveðið. Jafnvel eru dæmi þess, að menn skipuleggi nauðguniná^ áður, að svo miklu leyti, sem það er hægt. Hér duga ekki þær skýringar, að maðurinn sé á einhvern hátt kyn- ferðislega afbrigðilegur. Þessar nauðganir eiga ekkert skylt við kyn- líf. Markmið nauðgunarinnar er að lítilsvirða og niðurlægja konuna. í slikum tilvikum er um beina valdbeit- ingu að ræða. Átök milli tveggja, þar sem hinn sterkari sigrar. Það hefur verið ríkjandi viðhorf að líta á nauðgun sem einstakan atburð. Sem sorglegt dæmi um ógæfu fólks. Þessi skoðun hefur orðið til vegna þess, að talið hefur verið, að nauðg- un táknaði útrás á bældum hvötum. Þessi viðhorf þarfnast endurskoðun- ar vegna þess, að afbrotið nauðgun verður ekki skýrt nema tengja það þjóðfélagsgerð þess þjóðfélags, sem um ræðir. Hér er átt við það að ríkj- andi viðhorf til kynlífs á hverjum tima hafa áhrif á það, hvernig litið er á nauðganir. Meðferðin á þolandan- um, konunni, fer eftir því, hvernig athafnafrelsi kvenna er háttað_og Kjallarinn HildigunnurOlafsdóttir eftir því hvaða leikreglur gilda um samskipti karla og kvenna. Eru allir sammála eða ríkir misskilningur um það, hvernig nútímakonan er? Hvernig er valdakerfi þjóðfélagsins byggt upp? Verða þeir, sem eru valdalitlir, að sætta sig við réttlæti, sem þeim er skammtað af hinum valdameiri? Þannig, að þeim sem kæra yfirgang er ekki trúað nema kæran falli inn í hina hefðbundnu mynd af nauðgunum? Hildigunnur Ólafsdóttir afbrotafræðingur. 11 SLAGORD LEYSA ENGAN VANDA 1 33. þing Alþýðusambands íslands markaði stefnu í Iánamálum, sem kölluð var þá launajöfnunarstefna. Þessi stefna setti svip sinn á samningana sem gerðir voru 1977, hina svokölluðu „sólstöðu- samninga”. Þá var tekin upp sú regla að hækka kauptaxta um sömu krónutölu upp launastigann, en ekki i prósentuvís, einnig var það látið gilda um verðlagsbætur, þær komu í sömu krónutölu á allt kaup. Þarna var tekin upp launajöfnun, sem lengi var búin að vera réttlætismál og er reyndar enn. En Adam var ekki lengi í Paradís, því í mars 1978 var aftur upptekin, við verðbótaútreikninginn, sú gamla útjaskaða prósenturegla, sem alla tíð hefur stuðlað að launamisrétti í landinu. Hvers vegna hefur forusta Alþýðusambandsins fallið frá þeirri launajöfnunarstefnu sem samþykkt var á 33. þingi þess? Ætlar stjórn Alþýðusambandsins ekki að fara að koma til framkvæmda ályktunum um atvinnumál og kjara- og efna- hagsmál og beita til þess öllum tiltækum ráðum? Síðan þetta þing var haldið, hefur margt gerst og mikið vatn runnið til sjávar. Kosningar fóru fram á síðasta ári, og þá gerðist sá gleðilegi at- burður, sem lengi verður í minni hafður, að fyrrverandi ríkisstjórn fékk verðskuldaða ráðningu, en verkalýðsflokkarnir unnu sinn glæsilegasta sigur fram að þessu. En slíkum sigri fylgir mikil ábyrgð sem þessir flokkar mega ekki bregðast, þeir verða að fara að vinna að framgangi þeirra mála sem Alþýðusambandsþing gerði ályktanir um, og þeir tóku upp á arma sína í kosningabaráttu sinni, og er baráttan við verðbólguna þar efst á blaði. Hér dugir ekkert hálfkák lengur, það verður að ráðast að rótum meinsins af festu og áræði. Sama ráðning Forsætisráðherra hefur lagt fram drög að frumvarpi í ríkisstjórninni, þar sem gerð er heiðarleg tilraun til að takast á við þann vanda, sem verðbólgan er og hefur alltaf verið, en þegar loksins á að takast á við meinið í fullri alvöru, þá fara sumir stjórnmálamennirnir og forustu- menn verkalýðshreyfingarinnar, allt í einu að hlaupa útundan sér, og það í takt við sjálft afturhaldið í landinu,. höfuðóvin alþýðunnar. Þeir þora ekki að skera að rótum meinsins, vegna þess að það gæti orðið óvinsælt hjá einhverjum og kannski og í stjórn landsins, að nú geta þeir komið þessum málum fram ef hugur fylgir máli. Hví er það ekki gert, til hvers er verið að draga þetta á langinn? Það er ekki nóg að semja fagrar ályktanir. Það þarf að koma þeim í framkvæmd. Fyrir verð- bólgubraskarana Ennfremur segir: „Efnahagsá- stand er nú ótryggt og þjóðarbúið gengur á stórkosdegri skuldasöfnun erlendis, sem vex ár frá ári. Sóknin i verðbólgugróða beinir fjárfestingu í óskynsamlegar framkvæmdir, sem ekki skila auknum þjóðartekjum og nýtast ekki alþýðu landsins.” Er ekki kominn tími til að stöðva slíka fá- sinnu? Hverjum er verið að hampa með því að viðhalda þessu ástandi? Ekki hinum almenna launamanni, sem engan veginn getur látið dag- vinnutekjur sínar hrökkva fyrir brýnustu nauðþurftum. Hann verður að vinna myrkranna milli til að lifa mannsæmandi lífi. Nei, hér er verið að vinna fyrir verðbólgubraskara og aðra þurfalinga íhaldsins. Enn skal vitnað i ályktunina: „Þingið telur að núverandi efnahags- ástand, sem einkennist af óða- verðbólgu, stórfelldri skuldasöfnun erlendis og óskipulegri fjárfestingu, valdi óvissu um atvinnuhorfur og gefi tilefni til uggs, þótt ekki hafi komið til almenns atvinnuleysis.” Þessi lýsing átti vel við ástandið eins og það var, er stjórn Geirs Hallgrímssonar sat að völdum, sem hélt að sér höndum og lyfti ekki einu sinni litla fingri til að sporna við verðbólgunni, en steig hrunadansinn af miklum fjálgleik, svo að nálgaðist heimsmet í verðbólguaukningu. Enda Kjallarinn Ólafur Sigurðsson £ „Það mætti líkja Alþýðubanda- íaginu við hest, sem lengi hefur verið í hafti en heldur áfram að hoppa, þótt búið sé að losa hann við haftið.” tapast eitthvað af atkvæðum. Nú verða þessir vísu menn að taka sig á og horfast í augu við vandann, beita raunhæfum aðferðum til Iangtímaúr- bóta í efnahagsmálum þjóðarinnar og kveða verðbólgudrauginn niður í eitt skipti fyrir öll. Ef þeir sameinast ekki um það nú að reisa efnahags- málin við og kveða verð- bólgudrauginn niður, já, þá eru þetta glataðir menn, sem ekki ættu að koma fram fyrir alþjóð í næstu kosningum, því þá fá þeir sömu ráðningu og íhaldið fékk í síðustu kosningum. f ályktun um atvinnumál frá 33. þinginu segir. „öryggi í atvinnu og afkomu verður einungis reist á heilbrigðu efnahagslifi. Beita verður samræmdri efnahagsstefnu til þess að tryggja vinnu og bæta kjör alls vinnandi fólks.” Finnst ykkur ekki, góðir forustumenn í ASÍ, vera kominn tími til að gera eitthvað raunhæft í þessum málum? Nú er tækifærið til að framkvæma hlutina og koma fram hagsmunamálum launþega. Nú er staða stjórnmálanna sú og styrkur flokkanna, sem telja sig berjast fyrir hina lægst launuðu, svo mikill á þingi var í lok kjörtímabilsins allt að fara í strand og atvinnulífið að stöðvast. Þá hélt atvinnuleysið innreið sína hér á Suðurnesjum, því það svæði hafi allt- af verið afskipt, ekki talið með öðrum landshlutum og þar af leiðandi illa í stakk búið til að standast þann mikla samdrátt i sjávarafla, sem orðið hefur hér á síðustu árum. Nú, en hefur þetta þá ekki lagast, síðan hinir ágætu sigurvegarar kosninganna tóku við? Því miður hafa viðbrögðin ekki verið nógu hressileg og borið alltof mikirin keim af hinum gömlu íhaldsúrræðum und- anfarandi ára, þar sem aldrei hefur verið tjaldað nema til einnar nætur í senn. Sanngjarnar verðbætur lægstlaunaðra Nei, ágætu stjórnmálaskörungar og forustumenn verkalýðshreyfing- arinnar, hættið þessum skrípaleik, sem búið er að leika alltof lengi, að rétta launafólki nokkrar krónur á þriggja mánaða fresti sem eru svo hirtar aftur um leið með hækkuðu verðlagi, gengissigi og alls konar brögðum, svo að verðlag breytist svo að segja daglega. Væri ekki rétt að þið gerðuð nú ærlega tilraun og að þið tækjuð upp sanngjarnar verðbætur á laun, þannig að hinir lægstlaunuðu séu ekki alltaf hlunnfarnir? Sé það niðurstaða verðlagsnefndar að verðbætur þurfi að greiða á laun, þá greiðið öllum sömu bætur, það er að segja að allir fái jafnmargar krónur. Það er algert ranglæti að sá sem hefur 400 þús. i mánaðarlaun fái helmingi hærri verðbætur en sá sem hefur 200 þús., svo dæmi sé tekið. Hækkandi verðlag hlýtur að koma verr niður á þeim, sem lægri launin hefur, þannig að í raun og veru ætti hann að fá hærri verðbætur en hinn til þess að mæta hækkandi verðlagi, vegna þess að hann hefur helmingi minna til að spila úr. Finnst ykkur það nokkur sanngirni að sá, sem lægstu launin hefur, geti til dæmis aðeins fengið einn lítra af mjólk fyrir sínar verðbætur, þegar hinir, sem eru í hærri launaflokkum fá tvo lítra eða jafnvel fjóra lítra? Er þetta réttlæti? Nei, hér eiga allir að fá jafnt, annað er ekki réttlætanlegt. Enn segir í ályktun 33. þings ASI „Verðbólgan brennir upp spariféð, veldur þjóðfélagslega óhagkvæmri umframfjárfestingu og beinir fjár- magni frá atvinnuuppbyggingu og í spákaupmennsku og brask, jafnvel í svo ríkum mæli, að stofnað er til sýndarrekstrar til þess að fá aðgang að fjármagni og verðbólgugróða í skjóli aðstöðu og fáleitra skattaá- kvæða. Byrðunum af verðbólgunni er á hinn bóginn sífellt velt af fullum þunga yfir á herðar alþýðunnar. Þvi ítrekar þingið þá grundvallarkröfu, að dregið verði úr verðbólgunni og fjárfestingarmálum komið í skipulegt horf.” Sá flokkurinn, sem stærstan sigur vann í kosningunum í sumar, Alþýðuflokkurinn, en hann nær þre- faldaði þingmannatölu stna, setti á oddinn í kosningabaráttunni að glíma við verðbólguna, koma henni niður á viðráðanlegt stig og taka fjár- festinguna fastari tökum og beina henni inn á skynsamlegar brautir með hag alþjóðar í huga. Út á þessa stefnu vann hann sinn stóra sigur, því að það er staðreynd, sem þið stjórn- málamenn ættuð að taka tillit til, að launafólk er farið að sjá hvílík fjar- stæða og vitleysa það er að stíga á- ]fram þennan tryllta hrunadans verð- bólgunnar, þgr sem kaupgjaldið eltir verðlagið og verðlagið kaupgjaldið i eilífum hringdansi, eins og kom fram í fyrra, að 70% kauphækkun gaf aðeins 5% kaupmátt. Slíkt er dauðadæmt. Þetta jer launafólk farið að sjá og er því reiðubúið að taka á sig nokkrar jfórnir, tímabundið, til að hægt sé að Istöðva hringekjuna og taka upp ■heilbrigða launa- og efnahagsstefnu, er tryggir því bætta afkomu og betri |og öruggari lífskjör, er frá líður. Það er því alveg óskiljanlegt, að það skuli vera Alþýðubandalagið, 'hinn sigurvegari kosninganna, sem íennþá tvístígur í hringdansinum og tefur framgang þessa máls, þannig að ekki er enn eftir sex mánaða stjórnarsamstarf farið að gera neitt raunhæft til að stöðva darraðar- dansinn, heldur eilífar smáskammta- lækningar, með hinum gömlu íhalds- úrræðum, og aðeins tjaldað til einnar nætur. Það . mætti líkja Alþýðubandalaginu við hest, sem lengi hefur verið i hafti en heldur á- fram að hoppa, þótt búið sé að losa hann við haftið, þangað til hann áttar sig á þvi að hann getur hreyft fæturnar eðlilega. Það er kominn tími til fyrir Alþýðubandalagið að átta sig á því, að kjósendur veittu verkalýðsflokkunum brautargengi í síðustu kosningum og veittu þeim vald til að hafa áhrif á stjórn lands- ins, ekki til þess að allt veltist fram sem áður, heldur til að framkvæma þá „grundvallarkröfu, að dregið verði úr verðbólgunni og fjárfesting- armálum komið í skipulegt horf”. Takið á málunum af festu og einurð. Slagorð leysa engan vanda. Ólafur Sigurðsson formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Gerðahrepps.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.