Dagblaðið - 11.04.1979, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 11.04.1979, Blaðsíða 1
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 1979. 17 Fimmtudagur 12. aprfl Skfrdagur 8.00 Fréttir. • 8.05 Morgunandakt Séra Siguröur Pálsson . vígslubiskup flytur ritningarorð og bæn. 8.15 Veðurfregnir. Forustugreinar dagblaðanna (útdr.). 8.35 Morguntónleikar. a. Konsert fyrir tvö blásaratríó og strengjasveit eftir Georg Friedrich Hándel. Enska kammersveitin leikur; Raymond Leppard stj. b. Sellókonsert í G-dúr eftir Nicolo Porpora. Thomas Blees leikur með Kammersveitinni í Pforzheim; Paul Angerer stj. c. „Á Olíufjallinu”, óratoria fyrir þrjá einsöngvara, kór og hljómsveit eftir Ludwig van Beethoven. Elizabeth Harwood, James King og Franz Crass syngja með Söng- félagi og Sinfóníuhljómsveit Vínarborgar; BernhardKlee stj. 10.10 Veðurfregnir. 10.25 Um páskaleytið. Blandaður dagskrár- þáttur i umsjá Böðvars Guðmundar. Lesarar með honum: Silja Aðalsateinsdóttir og Sverrir Hólmarsson. 11.00 Messa í Fríkirkjunni. Prestur: *Séra Kristján Róbertsson. Organleikari: Sigurður Isólfsson. 12.15 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Veðurfregnir. Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 13.25 „Vetrarferðin”, síðari hluti lagaflokksins eftir Franz SchuberL Guðmundur Jónsson syngur ljóðaþýðingu Þórðar Kristleifssonar. Fritz Weisshappel leikur á pianó (Fyrri hluta var útv. 18. feb.). 14.00 Matur er mannsins megin. Finnborg Scheving talar við Vigdísi Jónsdóttur skóla- stjóra um manneldisráð og fleira varðandi mataræði. 14.30 Miðdegissagan: „Sú nótt gleymist aldrei” eftir Walter Lord. Gísli Jónsson menntaskóla- kennari les þýðingu sína (2). 15.00 Miðdegistónleikan Frá tónlistarhátíðinni í Berlin í september sl. Heinrich Schiff og Sunna Abram leika saman á selló og píanó. a. Sónötu í F-dúr op. 99 eftir Johannes Brahms. b. Sónötu í A-dúr eftir César Franck. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veður- fregnir). Tónleikar. 16.30 Lagið mitt: Helga Þ. Stephensen kynnir óskalög barna. 17.20 (Jtvarpssaga barnanna: „Leyniskjalið”. eftir Indriða Úlfsson. Höfundur les (6). 17.40 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar. 19.35 Daglegt mál. Árni Böðvarsson flytur þáttinn. 19.40 íslenzkir einsöngvarar og kórar syngja. 20.00 LeikriL* „Ævintýri á gönguför” eftir C. Hostrup. Þýðendur: Jónas Jónasson frá Hrafnagili, Lárus Sigurbjömsson og Tómas Guðmundsson. Áður útv. 1971. Leikstjóri: Gísli Halldórsson. Persónur og leikendur: Svale assessor-Árni Tryggvason, Lára, dóttir hans-Helga Þ. Stephensen, Jóhanna, bróður- dóttir hans-Soffía Jakobsdóttir, Kranz kammerráð-Þorsteinn ö. Stephensen, Helena, kona hans-Margrét Ólafsdóttir, Vermundur skógfræðingur-Gísli Halldórsson, Herlöv, Ejbæk.,-stúdentar- Þórhallur Sigurðsson og Jón Gunnarsson, Hans Mortensen, kallaður Skrifta-Hans-Jón Sigurbjörnsson, Pétur, bóndi-Guðmundur Pálsson. 22.30 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. 22.50 Víðsjá. Umsjónarmaður: Hermann Svein- björnsson. 23.05 Áfangar. Umsjónarmenn: Ásmundur Jónsson og Guðni Rúnar Agnarsson. 23.50 Fréttir. Dagskrárlok. G !) ^ Sjónvarp Föstudagur 13. apríl Föstudagurinn langi 17.00 Skin milli skúrt s/h (The Pumpkin Eater). Bresk blómynd frá árinu 1964. Leik- stjóri Jack Clayton. Aðalhlutverk Anne Bancroft, Peter Finch og James Mason. Jo Armitage er margra barna móöir. Hún er þrigift og núverandi eiginmaður hennar er ekki við eina fjölina felldur i ástamálum. Jo elskar mann sinn ákaft, og þegar hún kemst á snoðir um fjöllyndi hans, liggur henni við sturlun. Þýðandi Ellert Sigurbjömsson. Áður á dagskrá 25. mars 1972. 18.45 Hlé. 20.00 Fréttir, veður og dagskrárkynning. 20.20 Landið helga. Kanadisk kvikmynd, tekin eingöngu úr þyrlu, um söguslóðir bibliunnar allt frá timum Abrahams fram á daga Krists. Þýðandi og þulur Ingi Karl Jóhannesson. Einnig em tilvitnanir i biblíuna. 21.20 Sagan af Davíð. Bandarísk sjónvarpskvik- mynd í tveimur hlutum frá árinu 1976, byggð á frásögnum Gamla testamentisins. Aðalhlut- verk Timothy Buttoms, Anthony Quayle, Keith Mitchell, Susan Hampshire og Jane Seymour. Fyrri hluti. Davíð og SáL Margar» raunir sækja að Sál, konungi ísraelsmanna. Hann á i styrjöld við Filista, hann hefnr stöðugar þrautir í höfði og þvi hefur verið spáð að dagar hans sem konungs séu senn taldir. Ungum fjárhirði, Davið, tekst að lina þjáningy ar konungs, sem gerír hann að skjaldsveini sin: um i þakklætisskyni. Þýðandi Rannveig Tryggvadóttir. Siðari hluti myndarinnar verður sýndur laugardagskvöldið 14. april. 22.50 Giselle. Ballett eftir Jean Coralli við tónlist eftir Adolphe Adam. Aðalhlutverk Natalja Bessmertnova og Michail Lavrovski. Upptaka frá Bolshoi-leikhúsinu i Moskvu. 00.15 Dagskrárlok. Föstudagur 13. apríl Föstudagurinn langi 9.00 Morguntónleikar. 10.10 Veðurfregnir). a. „Krossgangan” tónverk fyrir kór og orgel eftir Franz Liszt. Flytjendur: BBC-Northern Singers og Francis Jackson; Gordon Thome stj. b. Fiðlukonsert i A-dúr eftir Alessandro Rolla. Susanne Lautenbacher leikur með Kammersveitinni i WOrttemberg; Jörg Faerberg stj. c. Sinfónia nr. 5 í c-moll op. 67 eftir Ludwig van Beethoven. Columbiu- sinfóniuhljómsveitin leikur: Bruno Walter stj. 11.00 Messa í Hallgrimskirkju. Prestur: Séra Karl Sigurbjörnsson. Organleikari: Antonio D. Corveiras. 12.15 Dagskráin. Tónleikar. 12.25 Veðurfregnir. Fréttir. Tónleikar. 13.40 Fyrir Pilatusi. Árni Bergmann ritstjóri flytur leikmannsþanka á föstudaginn langa. 14.00 Þýzk sálumessa op. 45 eftir Johannes Brahms. Flytjendur: Söngsveitin Fílharmonia og Sinfóniuhljómsveit íslands, Stjómandi: Dr. Róbert A. Ottósson. Einsöngvarar: Hanna Bjamadóttir og Guðmundur Jónsson. 15.15 Krosskveðjur. Séra Sigurjón Guðjónsson fyrrum prófastur segir sögu sálmsins „ó höfuð dreyra drifið”. 15.45 Chaconna I d-moll eftir Bach. Gidon Kremer leikur á fiðlu. 16.00 Fréttir. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Umboðsmaður húsmennskufóUcs og hjá- leigubænda. Hjörtur Pálsson tekur saman dag- skrá um sænska rithöfundinn Ivar Lo-Johans- son. Lesari með honum: Gunnar Stefánsson. Áður út. 23. febrúar sl. 17.20 „(Jtvarpssaga barnanna: „LeyniskjaUð” eftir Indriða Úlfsson. Höfundur les (7). 17.40 Miðaftanstónleikar. „Haffner-serenaðan” eftir MozarL Pinchas Zukerman fiöluleikari leikur með Ensku kammersveitinni og stjómar , jafnframt. Áskell Másson kynnir. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. 19.30 „í sókn og vörn”. Valgeir Sigurðsson talar við dr. Sigurð Sigurðsson fyrrum landlækni um baráttuna viö berklaveikina: fyrri hluti. 20.00 „Sjö orð Krists á krossinum” Strengja- kvartett op. 51 eftir Joseph Haydn. Amadeus- kvartettinn leikur. 20.55 ó, göngum tvö á grænan jaðar sands”. Magnús Á. Ámason listamaður segir frá ferð sinni til lrans 1973, er hann fór með Barböru konu sinni. Guðbjörg Vigfúsdóttir og Baldur Pálmason lesa siöari hluta ferðasögunnar. 21.40 Frá franska útvarpinu. Pascal Rogé leikur með Frönsku ríkishljómsveitinni Píanókonsert nr. 2 í g-moll op. 22 eftir Camille Saint-Saéns. 22.05 Kvöldsagan: „Heimur á við hálft kálf- sldnn” eftir Jón Helgason. Sveinn Skorri Höskuldsson les (16). 22.30 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. 22.45 Goldberg-tilbrigðin eftir Johann Sebasti- an Bach. Ursula Fassbind-Ingólfsson leikur verkið á pianó og skýrir það. 00.10 Dagskrárlok. ÆVINTÝRIÁ GÖNGUFÖR, — útvarp á skírdag kl. 20,00: Eitt vinsælasta leik- rit allra tíma hér Útvarpið flytur á skirdagskvöld hið geysivinsaela leikrit Ævintýri á gönguför eftir J.C. Hostrup. Leikritið hefur náð þeim vinsældum að óþarfi ætti að vera fyrir þá sem nokkuð eru við aldur að lesa lengra en aftur á móti hefur það nú ekki verið fært upp i tals- vert mörg ár þannig að þeir ungu ættu endilega að leggja eyrun við útvarpið á fimmtudagskvöldið. Æfintýri á gönguför gerist í Dan- mörku. Fjallað er um létta og káta stúdenta í skógarferð og jafnframt uppskafningshátt kammerherra og annarra yfirvalda. Einn af þeim er Svale assesor sem leikinn er af Áma Tryggvasyni. Lára dóttir hans er leikin af Helgu Stephensen og Jóhanna bróðurdóttir hans af Soffiu Jakobsdóttur. Kranz kammerráð er annar uppskafningur. Hann er í höndum Þorsteins Ö. Stephensen, Helenu konu hans leikur Margrét Ólafsdóttir. % Ævintýri á gönguför hefur verið tengdara sögu Leikfélags Reykjavíkur meira en nokkurt annað erlent leikrit eftir þvi sem segir i bókinni Leikhúsið við Tjörnina. Myndin er úr fyrstu uppfærslu á verkinu, 1899. Á myndinni eru Jón Jónsson Aðils (eldri), Gunnþórunn Halldórsdóttir og Kristján Ó. Þorgrimsson. Stúdentana Herlöv og Ejbek leika Þórhallur Sigurðsson og Jón Gunnars- son. Leikstjóri er Gísli Halldórsson en þýðingu verksins gerði Jónas Jónasson frá Hrafnagili og Láms Sigurbjöms- son. Leikritiðvaráðurflutt árið 1971. -DS. SKAMVINN SÆLA, — sjónvarp laugardag 21. apríl kl. 21,50: ASTIN DVINARI BRÚÐKAUPS- FERDINNI Skammvinn sæla (The Hearbreak Kid) nefnist bíómynd sem sjónvarpið sýnir laugardaginn 21. apríl. Ekki man ég betur en að myndin sú hafi verið sýnd hér í kvikmyndahúsi fyrir nokkmm árum, án þess þó að ég þori að fullyrða nokkuð um málið. Skammvinn sæla greinir frá Lenny Cantrow sem er ungur og framgjarn sölumaður. Hann kynnist ungri stúlku og þau ganga í það heilaga eftir stutt kynni. En strax í brúðkaupsferöinni suður til Flórída sér Lenny að sér hafa orðið á hrapaleg mistök. Það er ennþá fullt af fiskum í sjónum, fiskum, sem mun meira gaman væri að veiða en þann sem hann situr uppi með. Myndinni er leikstýrt af Elaine May og aðalkvenhlutverkið er í höndum dóttur hennar, Jeanie Berlin. Leikur hún eiginkonuna ungu sem er örlítið um of nöldursöm að smekk eigin- mannsins. Sá góði maður er leikinn af Charles Gordon en sá fiskurinn sem freistar hans mest í Florída er leikinn af Cybill Shepard. Kvikmyndahandbókin okkar er yfir sig hrifin af Skammvinnri sælu. Gefur hún myndinni allar þær fjórar stjömur >em hún hefur til umráða og segir að myndin sé stórkostlega fyndin. Hún sé bandarisk gamanmynd sem einstök sé í sinni röð. Hún sé nöpur ádeila á meðan hún er afskaplega fyndin og merkileg. Leikstjórnin sé frábær og eins leikur Berlin sem leikur alveg eins vel og mamma hennar gerði fyrr á árum. Ekki þó þannig að þær mæðgur séu mjög frægar hér á landi. Shepard fær einnig lof fyrir leik sinn i hlutverki fisksins freistandi. -DS. Allt I sælu á brúðkaupsdaginn. En sú Charles Grodin i hlutverkum sinum. sæla reyndist skammvinn. Jeanie Berlin og % 9

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.