Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 08.05.1979, Qupperneq 5

Dagblaðið - 08.05.1979, Qupperneq 5
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 1979. 5 Garðar frá PatreksGrði. Elzta skip flotans en eigi að sfður færði það mest afla- verðmæti að landi f krónum talið allra vertfðarbáta. BÍLALEIGA Til sölu er bílaleiga á góðum stað, leiguhús- næði, um 250 ferm, góð aðstaða. Hentugt að reka verkstæði eða sprautun jafnhliða. Til- boð leggist inn á augld. DB merkt „Bíla- ieiga" fyrir 15. maí. Elzta skipið — mest verðmæti — Garðar f rá Patreksf irði með efstu skipum — verðmæti aflans mest eða 120,5 milljónir „Verðmæti fisksins upp úr sjó var 120,5 milljónir króna, mesta verð- mæti á vertíðarbát í vetur,” sagði Jónatan Stefánsson vélstjóri á mb. Garðari Ba-64 frá Patreksfirði þegar DB hitti hann á förnum vegi í Reykjavík í gær. Garðar var með aflahæstu bátum á vetrarvertíð, þó ekki efstur, en vegna góðs mats á fiskinum og mikils þorsks í afla var afli hans verðmæt- astur í heildina. Garðar er sem kunnugt er eitt elzta skip islenzka bátaflotans og stundum kallaður — sögualdarbærinn —. Skipið er stálskip, smíðað i Noregi árið 1912, en eigi að síður mjög gott skip með öruggri aflvél, 460 ha. List- er Blackstone frá árinu 1964. „Hún sló aldrei feilpúst og hlýddi eins og þægt barn,” sagði Jónatan vélstjóri okkur. „Mætti kannski vera hraðgengari en stundum er líka gott að fara hægt en komast það.” Kannski fylgir góður andi þessu forna aflaskipi sem 'eitt sinn var þekkt sem aflaskipið Siglunesið á síldveiðum fyrir Norðurlandi. Áhöfnin .var samhent að sögn Jóna- tans og eitt var sameiginlegt með bátnum og matsveininum: báðir komnir á ellilaunaaldurinn, 67 árin. Stóðu báðir líka vel fyrir sínu. Mest fengu þeir á Garðari 42 tonn i lögn í vetur. Næsta verkefni skipsins er að fara í slipp í Stykkishólmi en þar á að hressa eitthvað upp á hinn sextíu og sjö ára öldung. —emm/ÓG. Ný leið til að minnka smjörf jallið? SMJÖR BLANDAÐ S0JA0LÍU — smjörlíkislögin ekki látin gilda Osta- og smjörsalan hefur áhuga á framleiðslu á smjöri með íblöndun óhertrar jurtaolíu, sojaolíu, svipað því sem Svíar hafa selt síðustu 10 ár undir nafninu Bregott. Með stjórnar- frumvarpi, sem kom fram í gær, er ætl- unin að greiða fyrir slikri framleiðslu hér. Með frumvarpinu á að taka slíka af- urð undan lögum um tilbúning og verzlun með smjörlíki og láta gilda um hana sömu lög og taka til framleiðslu á venjulegu smjöri. Með breytingunni, sem frumvarpið felur í sér, á að koma þeirri skipun á að önnur feitiefni en úr mjólk megi nema allt að 25% af heildarfeitimagni rjóma, smjörs, osta eða mjólkur án þess að nefnist smjör-, rjóma-, ost- eða mjólk- urlíki. í greinargerð segir að þessi breyting eigi að vera kleif með hliðsjón af nýjum viðhorfum við geymslu og gerð mat- væla. Mun þess vegna talið að ekki þurfi jafnströng lög. -HH. Fóturinn tvíbrotnaði í vélh jólaslysi Ungur piltur hlaut mjög alvarlegan áverka í umferðarslysi fyrir síðustu helgi. Var hann léttu vélhjóli á leið austur Álfhólsveg er hann lenti í árekstri við bifreið sem kom móti honum Álfhólsveginn og sveigði svo að því er virtist fyrir hann upp i Meltröð. Höggið var mikið og bæði bill og hjól skemmdust mikið. Pilturinn lærbrotnaði og einnig brotnaði leggur sama fótar og var það opið brot. Að sögn Kópavogslögregl- unnar missti pilturinn mikið blóð og var um tíma í gjörgæzludeild en dvelst nú í skurðdeild til aðgerða. -ASt. Kuldinn róaði menn niður Kuldinn virðist hafa haft nokkuð reglunni. Að vísu væri ávallt nóg að letjandi áhrif á marga um liðna helgi. gera við ýmiss konar vandamál fólks en Rúnar Guðmundsson aðalvarðstjóri í engin stórmál hefðu verið á ferðinni. Reykjavíkurlögreglunni sagði að bæði Einkum ætti þetta við þegar tekið væri aðfaranótt laugardags og sunnudags tillit til að þetta var fyrsta helgi eftir hefði verið venju fremur rólegt hjá lög- mánaðamót. -ÓG. Línubrengl í f rétt DB Línubrengl varð í baksíðufrétt DB í „Sambýliskona Ómars Valdimars- gær um nýja fréttastjóra blaðsins, sonar er Dagmar Agnarsdóttir og eiga þannig að merkingin varð mjög vill- þau þrjú börn.” andi. Rétt átti umrædd málsgrein að vera svona: Þetta leiðréttist hér með. Þú sparar þér 10% af bensínnotkun þinni ef þú setur ný Champion kerti í bílinn þinn á 8—10 þús. km fresti. Hvar er þetta ókeypis bensín? Það er í bensíntankinum á bílnum þínum, ef þú gætir þess að setja alltaf ný Champion kerti í bílinn á réttum tíma, en kaupir áfram bensín í sama magni og sá sem trassar það. Eyði bíllinn 10 lítrum á hundraðið sparar þú bensín fyrir kr. 25.600 á 10 þús. km akstri. Kerti í 4 cyl. vél kosta kr. 2.240. Endanlegur sparnaður er þá kr. 23.360. Fyrir þá upphæð færðu á núverandi verði 91 lítra af bensíni. Tekur tankurinn þinn svo mikið? CHAMnON o -< r~ 2 3J + Q P° I iv> cn Allt á sama stað Laugavegi 118-Simi 22240 EGILL VILHJÁLMSSON HE

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.