Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 08.05.1979, Qupperneq 10

Dagblaðið - 08.05.1979, Qupperneq 10
3 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 8. MAl 1979. MMBIAÐIÐ v>ígefandi: Dagbiaðið hf. mkvæmdastjóri: Svoinn R. Eyjólfsson. Ritstjóri: Jónas Kristjónsson. •• !>..stjómarfulltrúi: Haukur Holgason. Skrifstofustjóri ritstjómar: Jóhannos Roykdal. Fréttastjóri: Ómar i, Vrxkiimarsson. ‘--óttir Hallur Símonarson. Monning: Aðalsteinn Ingótfsson. Aðstoðarfréttastjóri: Jónas Haraldsson. Handrit: Ásgrímur Pálsson. "•laðamflnn: Anna Bjamason, Ásgoir Tómasson, AtJi Steinarsson, Bragi Sigurðsson, Dóra Stefánsdótt- r, Gissur Sigurðsson, Gunnlaugur A. Jónsson, Helgi Pétursson, Ólafur Geirsson, Sigurður Sverrisson. hönnun: Guöjón H. Pálsson. jósmyndir: Ámi Páll Jóhannsson, Bjamleifur Bjamleifsson, Höröur Vilhjálmsson, Ragnar Th. Sigurðs on, Sveinn Pormóðsson. Skrifstofustjóri: ólafur Eyjólfsson. Gjaldkeri: Þráinn Þorioifsson. Sölustjóri: Ingvar Svoinsson. Droifing- . rstjóri: Már E.M. Halldórsson. Titstjóm Síðumúla 12. Afgroiðsla, áskriftadeild, auglýsingar og skrifstofur Þvorholti 11. , Aðalsimi blaðsins er 27022 (10 tínur). Áskrift 3000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 150 kr. eintakið. i .otning og umbrot Dagblaðið hf., Síðumúla 12. Mynda- og plötugerð: Hilmir hf. Síðumúla 12. Prentun: 'lrvakur hf. Skoifunni 10. Ríkið sveltir Neytendasamtökin , ,,Núna á síðustu misserum hafa átt sér stað ánægjulegar breytingar í neyt- endamálum á íslandi,” sagði Svavar Qestsson viðskiptaráðherra nýlega í kveðju til Neytendasamtakanna. Síðan sagði hann: ,,Ein ástæðan, og ef til vill ekki sú þýðingarminnsta, er sú, að ýmis dagblaðanna hafa tekið upp fastar neytendamálasíður, sem hafa orðið til þess að vekja fjölda fólks, fleiri en nokkru sinni fyrr, til umhugsunar um neytendamálefni.” Lengst í þessu efni hefur gengið Dagblaðið, sem hefur um árabil birt daglega neytendasíðu. Þar hefur mikil áherzla verið lögð á verðkannanir, útgjaldakann- anir og kannanir á matreiðslukostnaði. Fjöldi fólks hefur tekið þátt í þessum útreikningum. Markmiðið er fyrst og fremst að afla neytendum verðskyns í verðbólgunni. Slíkt er einkar erfitt, þegar verðbreytingar eru örar. Mismunandi verð getur verið á sömu vöru*i sömu búð, þóttálagning sé jafnan rétt. Er varan þá yfírleitt keypt til landsins á mismunandi tíma og á misjöfnu gengi. Um þetta segir Svavar: ,,Svona þröskuldar mega hins vegar ekki verða til þess, að menn gefist upp. Ég held, að þessir þröskuldar verði í raun og veru að verða mönnum hvatning til þess að ganga enn rösklegar til verks en ellaværi.” Reynsla Dagblaðsins er sú, að neytendur geti þjálfað með sér verðskyn, þrátt fyrir verðbclguna. Hin ótal- mörgu bréf, sem blaðinu hafa borizt út af athugunum á heimiliskostnaði, benda til þess, að margar fjöl- skyldur verði sér úti um umtalsverða lífskjarabót með útsjónarsemi í innkaupum. Þetta nýja verðskyn þarf að virkja í frjálsum sam- tökum. Viðskiptaráðherrann segir réttilega í kveðju sinni, ,,að umtalsverður árangur verði aldrei, fyrr en upp hefur risið í landinu víðtæk og marktæk neytenda- hreyfing, hreyfing sem er svo sterk, að stjórnvöld verði að taka tillit til óska hennar og ábendinga.” Neytendasamtökin hafa eflzt á undanförnum miss- erum. Stofnun ákaflega öflugrar deildar í Borgarnesi varð hvati stofnunar deildar á Akranesi. í undirbún- ingi eru deildir á Akureyri, Húsavík, Egilsstöðum og Norðfirði. Vonandi fylgja aðrir kaupstaðir og kaup- tún landsins í kjölfarið. Svavar Gestsson segir líka: ,,Svona hreyfíng þarf að komast af stað miklu víðar og ef það gerist, þá líður ekki langur tími þangað til neytendasamtök í landinu verða virkt afl í verzlunar- og viðskiptamálum öllum.” Verðlags- og gæðaeftirlit er bezt komið í höndum neytenda og samtaka þeirra. Á þann hátt einan geta neytendur komið fram sem sterkur aðili að markaðin- um á sama hátt og seljendur vöru og þjónustu. Til- raunir ríkisins til verðlagseftirlits ættu að beinast að stuðningi við rannsóknir og fræðslu Neytendasamtak- anna. Nágrannar okkar á Norðurlöndum hafa séð þetta. Þar er víðast hvar lítið sem ekkert opinbert verðlags- eftirlit, en neytendasamtök njóta aftur á móti mikils stuðnings hins opinbera. Þar eru opinberir styrkir 80®7o af tekjum samtakanna en hér aðeins 25%. Neytendasamtökin skortir mikið fé til eigin rann- sókna og til staðfæringar erlendra rannsókna, svo og til fræðslu og skipulagsmála. Útgáfumálin koma svo af sjálfu sér, því að samtökin hafa greiðan aðgang að Dagblaðinu og ýmsum öðrum fjölmiðlum. Nú síðast hafa samtökin samið við Vikuna um neytendafræðslu. Ríkið þarf bara að margfalda fjárframlögin til neyt- endamála. Vestræn samvinna: Aö halda Tyrk- landiá floti —ef nahagsvandi Vestur-Evrópu ekki jaf n mikilvægur fyrir Atlantshafsbandalagið síðan á dögum Marshall- hjálparinnar Efnahagslíf vestræns ríkis hefur ekki blandazt jafnmikið inn í við- horfið til Atlantshafsbandalagsins siðan á tímum Marshallhjálparinnar. Augu manna beinast að Tyrklandi, einu af meðlimum Atlantshafs- bandalagsins þar sem löngum hefur verið sviptivindasamt í efnahags- málum. Ástandið þykir óvenju alvar- legt um þessar mundir. Forráðamenn Atlantshafsbanda- lagsins hafa mestar áhyggjur af því að núverandi lýðræðisstjórn í land- inu falli og við taki hernaðareinræði. Þar með gæti hafizt keðja atburða sem eru ófyrirsjáanlegir en mjög al- varlegir í augum hernaðarsérfræð- inga Atiantshafsbandalagsins. Tyrkland er og hefur verið talið ráða yfir þeim landsvæðum sem mikilvægust eru fyrir bandalagið hvað varðar allt eftirlit á hernaðartil- burðum Sovétmanna. Mikilvægi Tyrklands hefur enn aukizt eftir að Khomeini og menn hans ráku Banda- rikjamenn frá íran og þeir geta því /0\ ekki lengur rekið eftirlitsstöðvar sínar þar í landi. Stöðugleiki í Tyrklandi er einnig mikils virði fyrir ríki Vestur-Evrópu ekki síður en Bandaríkin. Tyrkland er stærsta ríkið innan Atlantshafs- bandalagsins i Evrópu. Um það bil jafnstórt að fiatarmáli og Frakkland og Vestur-Þýzkaland til samans. Mannfjöldi þar er um það bil 43 milljónir og Tyrkland hefur einnig mestan fjölda undir vopnum af Vestur-Evrópurikjum, 600.000 manns. Ekkert riki Atlantshafsbandalags- ins hefur lengri sameiginleg landa- mæri með Sovétríkjunum en Tyrk- land. Auk þess Jiafa tyrknesk yfir- völd stöðugt auga með ferðum allra sovézkra skipa sem leið eiga úr Svartahafinu út á Miðjarðarhafið. Efnahagslífið í Tyrklandi er aftur á móti í rústum. Verðbólgan hefur verið rúmlega fimmtíu af hundraði árlega. Afkastageta atvinnuveganna, í það minnsta iðnaðar, er aðeins nýtt til hálfs. Atvinnuleysi er rúmlega tuttugu af hundraði. Stjórnendur Tyrklands hafa stöð- ugt síðan í byrjun síðasta árs farið fram á efnahagsaðstoð frá banda- mönnum sínum í vestri. Lítið hefur gengið í þeim efnum til skamms tíma. En þó tókst Bulent Ecevit, forsætis- ráðherra Tyrklands, sem kom til valda snemma á árinu 1978, að semja við Alþjóðabankann um greiðslufrest og fá ráðamenn Atlantshafsbanda- lagsþjóðanna til að lofa að kanna málefni Tyrklands gaumgæfilega. Alexander Haig, yfirmaður herafla bandalagsins, hefur lagt þunga áherzlu á nauðsyn þess að styðja Tyrkland efnahagslega. Eftir stöðug- an drátt á ákvörðunum virðist nú svo komið að fjölþjóðahjálparáætlun sé í burðarliðnum. r Til hvers er barizt? Séu þeir einhverjir launþegarnir i þessu landi sem skilið eiga hærri laun en almennt gengur og gerist eru það vissulega sjómenn. Vil ég sist að þeim sneiða i þeim efnum en hitt er þó jafnvist að miðað við ástand kjara- mála i landinu nú og þjóðfélags- ástandið yfirleitt eru síðustu launa- kröfur yfirmanna á farskipum full- komlega óverjandi. Þó mikill munur sé á kjörum þessara manna og flug- manna eru verkfallsaðgerðir þessara stétta nú til að knýja fram óheyri- legar kröfur beint tilræði við vinnu- friðinn og allar tilraunir til að hemja víxlhækkanir kaupgjalds og verðlags. Það er kannski sorglegast til þess að hugsa þegar fjallað er um kjara- mál að forysta verkalýðsfélaga og ríkisstjórnir landsins hafa gersamlega brugðist þvi hlutverki að stemma stigu við óhóflegum launamismun í landinu. Hann hefur á síðustu ára- tugum vaxið að mun og af þeim sök- um er friðurinn á vinnumarkaði eilíf- lega í hættu og það ekkert síður vegna ágreinings milli starfsstéttanna en milli atvinnurekenda og launþega. Og nú er svo komið að ótrúlegt er að hinir lægstlaunuðu meðal launþega geti tekið á sig kjaraskerðingu eða að minnsta kosti kaupstöðvunina sem fyrirsjáanleg er ef einhver árangur á að nást í baráttunni við verðbólguna en hún er jafnframt mestur vágestur einmitt þessara þjóðfélagshópa. Og til hvers er þá barist? Launaaðall Sjómannastéttin er á ýmsan hátt miðlæg I allri launamálaumræðu i landinu enda þótt allflestir sjómenn eigi öðrum lögmálum að lúta en flestir launþegar, þ.e.a.s, aflahlut. Sú staðreynd kom þóekki í veg fyrir það að fyrir nokkuð mörgum árum hófu nokkrar stéttir launþega róttæka kjarabaráttu og vildu miða sig í laun- um við skipstjóra á aflahæstu bátum, einkum sildarbátum. Þótt ótrúlegt sé varð þessum hópum vel ágengt og eru nú orðnir að launaaðli í landinu. Þeir verja nú kjör sín með tilvísun til kjara stéttar- bræðranna erlendis enda þótt aug- Ijóst sé að væri öðrum stéttum gefinn' kostur á slíku þyrftu tekjur manna allvíða að tvö- eða þrefaldast. Síðan þessi óheillastefna var upp tekin og af því ekki var spyrnt nægi- lega við fótum I upphafi hefur stöð- ugt aukist launamismunurinn milli launþega og er nú svo komið að í landinu hefur komist á legg launaað- all, launþegar sem ekki „arðræna” aðra launþega samkvæmt ritúalinu en ræna þá samt. í þeim hópi ber mest á flugmönnum en þar er einnig að finna fjölda háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna og margar stéttir launarrjanna aðrar. Óhófleg yfirvinna nokkurra stétta verður raunar til að skekkja þessa mynd þar sem slíkir hafa miklar 9 „Ríkisvaldiö og samtök launþega ættu aö taka strax höndum saman um að segja aðlinum stríð á hendur með það fyrir augum að bæta hin verri kjör á kostnað óhófsins.” I

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.