Dagblaðið - 08.05.1979, Qupperneq 13
i
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 1979.
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 1979.
íþróttir
Iþróttir
Sþrótt
!'■ .j
Iþróttir
Iþróttir
i
Sex með ellefu
rétta um helgina
í 36. leikviku Getrauna komu fram 6 raðir með 11
réttum og var vinningur fyrir hverja röð kr.
151.000.- en með 10 rétta voru 97 raöir og vinningur-
inn kr. 3.600.- Einn leikurinn, Leeds — Q.P.R., var
færður fram til föstudagskvölds og fellur því niður
af seðlinum, og eru 11 réttir því allir leikir réttir.
Þessir sex seðlar voru frá Borgarnesi, Patreksfirði,
Akureyri, Eyrarbakka, auk tveggja frá Reykjavík.
Með þessum seðli lýkur starfi Getrauna að þessu
sinni, í ágúst verður þráðurinn tekinn upp að nýju
um leiö og enska knattspyrnan fer af stað á ný.
Frank McGarvey
til Liverpool
fyrir 300 þús.
sterlingspund
Bob Paisley, framkvæmdastjóri Liverpool, festi í
gær kaup á miðherja St. Mirren, Frank McGarvey
að nafni, fyrir 300.000 sterlingspund. McGarvey
þessi hefur lengi verið undir smásjá stóru félaganna
en lengst af var taliö að Arsenal myndi klófesta
hann.
McGarvey er mjög sterkur miðherji, sem skorar
mikið með skalla. Kaupin á McGarvey komu tals-
vert á ó.vart þar sem ekki er að sjá að Liverpool sé í
mannahraki. Paisley hyggst einnig krækja sér í Peter
Barnes og er reiðubúinn að snara 750.000 pundum á
borðið fyrir hann og er þá líklegt að David Fairclogh
fljóti með i kaupunum en honum hefur ekki tekizt
að vinna sér fast sæti í Liverpoolliðinu í vetur, enda
ekki heiglum hent. Liverpoo! keypti nýlega Abi
Cogen frá ísrael fyrir 200.000 pund þrátt fyrir að
tveir mjög sterkir bakverðir, Phil Neal og Alan
Kennedy, séu fyrir hjá Liverpool.
John McEnroe sló
þeim beztu við
— Þrátt fyrir sigurinn er enginn vafi á því, að
Björn Borg er ennþá langbezti tennisleikari
heimsins, sagði hinn tvítugi John McEnroe eftir
ævintýralegan sigur sinn yfir bæði Björn Borg og
Jimmy Connors á miklu tennismóti, sem haldið var í
DallasTexas.
McEnroe þurfti að berjast við Borg í 3 klukku-
stundir og lokst tókst honum að ná fram sigri og
verða þar með fyrsti maðurinn, sem er yngri en
Borg, til að sigra hann. McEnroe vann 7—5, 4—6,
6—2 og 7—6 eftir að Borg hafði komizt í 5—3 i sið-
ustu lotunni. McEnroe fékk 100.000 dollara fyrir
vikið — ekki amalegur peningur það. í undanúrslit-
unum vann hann Jimmy Connors sannfærandi, en
McEnroe er á fyrsta ári sem atvinnumaður í tennis.
Fyrir skömmu vann hann sér inn 100.000 dollara á
móti, þannig að hann hefur haft um 200.000 dollara
í tekjur á sl. 20 dögum
Brian Greenhoff
meiddist í gær
Manchester United varð fyrir miklu áfalli i gær-
kvöldi er hinn sterki varnarmaður þess Brian Green-
hoff meiddist illa í leiknum gegn Úlfunum. Allar
líkur eru taldar á þvi, að hann verði alls ekki með á
laugardaginn í úrslitaleiknum gegn Arsenal á
Wembley.
DB-mynd Hörður.
Sigurður N. Brynjólfsson — annar frá vinstri — í hópi kunnra glímumanna á árum áður.
Íslandsglíman 1979 — Sigurður N. Brynjólfsson:
Utsláttarfyrirkomu-
lag á ekki rétt á
sér á íslandsmótinu
Íslandsglíman var háð i íþróttahúsi
Kennaraskólans 27. apríl sl. Keppendur
voru 13, frá eftirtöldum félögum og
héraðssamböndum: frá Armanni 3,
Víkverja 1, HSK einn og HSÞ 3. Keppt
var með svokölluðu útslátt arfyrir-
komulagi, sem fer þannig fram eftir
þvi, sem stendur í mótsskrá. ,,Þeir, sem
saman eigast glima jafnaðarglímu,
þ.e.a.s. þeir glima saman í það minnst
tvær viðureignir. Hafi annar hærri
vinningstölu eftir tvær viðureignir
sigrar sá, en séu þeir sem jafnir glíma
þeir eina viðureign i viðbót til að útkljá
jafnaðarglimuna og þá án tillits til lotu-
lengdar. Sá, sem ber lægri hlut í jafn-
aðarglimunni gengur úr, en sigurvegar-
inn glímir áfram.”
Glimustjóri var Gunnlaugur J.
Briem, en yfirdómari Sigurður Jóns-
Æðisgengin barátta
á toppi 3. deildar
Æðisgengin barátta er nú á milli
þeirra fimm liða, sem eru á toppi 3.
deildarinnar í Englandi. Enn er ekki
séð hvaða liö fara upp, en þrjú efstu
liöin færast upp í 2. deild. Gillingham
tapaði dýrmætu stigi í gærkvöldi gegn
Colchester. Það stefndi þó allt í sigur
Gillingham því Gary Armstrong og
Danny Westwood komu Gillingham í
2—0 en með mikilli baráttu tókst Col-
chester að jafna fyrir leikslok með
mörkum Ian Allison og Bobby Gough.
1. daild
Manchester Unitcd — Wolves 3—2
QPR — Birmingham City i —3
2. doild
Cardiff Cit'y — Bristoi R. 2—0
Wrexham — Luton Town 2—0
3. deild
Colchester — Gillingham 2-2
Hull — Exeter 1—0
Lincoln — Blackpool 1—2
Mansfield — Shrewsbury 2—2
Shefficld Wed. — Rotherham 2-1
4. doild
Bradford — Wigan 1 — 1
Darlington— Hartlepool 0—1
Halifax— Rochdale 2—1
Hereford — Portsmouth 0-1
York — Port Vale 4—0
Staðan á toppi 3. deildar:
Watford 45 23 12 10 79- -52 58
Swansea 45 23 12 10 81- -60 58
Shrewsbury 44 19 19 6 55- -39 57
Swindon 43 24 7 12 69- -44 55
Gillingham 44 19 17 8 61- -43 55
HANDKNATTLEIKS-
ÞJÁLFARAR!
Handknattleiksdeild U.M.F. Selfoss óskar að
ráða þjálfara næsta keppnistímabil.
Fullkomin aðstaða, mikill áhugi.
Upplýsingar veitir Þórður i síma 99-1740 eða
99 1139 U.M.F. SELFOSS.
son. Áhorfendur voru með fleira móti,
en nokkur vonbrigði urðu það móts-
gestum að beltishafinn frá þvi í fyrra,
Ómar Úlfarsson, keppti ekki og tveir
ágætir glímumenn, þeir Hjálmur
Sigurðsson og Eyþór Pétursson, gátu
ekki keppt sökum meiðsla.
Sigurvegari varð lngi Þór Yngvason
HSÞ. Annar Pétur Yngvason HSÞ og
þriðji Guðmundur Ólafsson Ármanni.
Flestir keppendurnir voru áhorfendum
að góðu kunnir frá mörgum mótum
undanfarin ár, því vakti það athygli að
frá KR komu, auk hinnar gömlu
kempu Rögnvalds Ólafssonar sem ekki
hefur keppt um nokkurt skeið, fjórir
ungir og mjög efnilegir glímumenn. Al-
veg sérstaka athygli vakti stórglæsileg
frammistaða hins unga glímumanns
Ólafs Hauks Ólafssonar, sem hafnaði í
4. sæti. Þá keppinauta sína, sem hann
sigraði, lagði hann á hreinum og falleg-
um brögðum, og veitti þeim köppum
Inga og Guðmundi Ólafssyni harða
keppni. Að sjálfsögðu kom það glöggt
fram á þessu móti að hann á margt eftir
ólært sem von er til. Helzti galli hans er
að hann er allt of stífur og nær ekki
nauðsynlegri afslöppun á milli bragða.
Eins þarf hann að bæta klofbragðsvörn
sína, sem er ekki rétt útfærð. En allt
slíkt stendur til bóta hjá svo ungum
manni. Ef sá drengur heldur áfram að
æfa af alúð verður enginn of sæll af að
sækja sigur í greipar hans tvítugs.
Úrslitaglímurnar milli þeirra tvíbura-
bræðra Inga og Péturs var þeim báðum
til mikils sóma. Ástæða var til að ætla
að viðureign þeirra svo jafnra og kunn-
ugra manna mundi lenda i sviplitlu
varnarþófi þegar um sjálft Grettisbeltið
var að keppa, en svo varð aldeilis ekki.
Glímur þeirra voru snarpar og frjáls-
legar, sem sagt með beztu glimum sem
á mótinu sáust.
Ekki hef ég trú á því að þetta útslátt-
arfyrirkomulag eigi rétt á sér — í það
minnsta ekki hvað íslandsglimuna
áhrærir. Keppendafjöldinn er sjaldan
svo mikill, því miður, að mótið sé ill-
viðráðanlegt sakir fjölmennis. Ég efast
um að sú verði raunin á að marga fýsi
að sækja slíkt mót, jafnvel um langan
veg, til þess eins að glíma viðeinn ein-
asta mann, en sú verður raunin á hjá
mörgum með þessu fyrirkomulagi. Ef
um mjög fjölmennt mót er að ræða, tel
ég miklu heppilegra að glimt sé í riðlum
en með þessu fyrirkomulagi.
Sigurði Jónssyni fórst dómgæzlan
vel úr hendi að vanda. Hann er án efa
einn af okkar vandvirkustu og ná-
kvæmustu dómurum. Verðlaunin af-
henti að þessu sinni Ingimundur Guð-
mundsson fyrrverandi glímukappi. Á
þessu vori eru einmitt rétt 40 ár síðan
hann vann beltið. Hann sleit einnig
mótinu skörulega með nokkrum vel
völdum orðum.
Sigurður N. Brynjólfsson.
Hvað gera nýlið-
amir í sumar?
— íslandsmótið í knattspyrnu hefst um helgina.
Hvernig verður 1. deildin í sumar með nýliðana Hauka
og KR innanborðs?
"Magnús Jónatansson stjórnar æfingu hjá KR í gærkvöldi. KR er nú 1 fyrstu deild á ný eftir eins árs fjarveru. DB-mynd Hörður.
Vel heppnað Reykja-
víkurmót fatlaðra
Nú líður óðum að fyrstu leikjunum í
íslandsmótinu, en það hefst á föstu-
dagskvöld á Selfossi með leik heima-
manna og Breiðabliks i 2. deildinni. Á
laugardag byrjar boltinn svo að rúlla í
1. deildinni með leik Þróttar og ÍBV. I
fyrra féllu Breiðablik og FH niður í 2.
deild en í stað þeirra komu KR og
Haukar úr Hafnarfirði. Haukarnir
leika nú í fyrsta sinn i 1. deild undir
eigin nafni, en hér á árum áður tefldu
FH og Haukar fram sameiginlegu liði
— ÍBH. KR lék í fyrsta skipti i 2. deild
og var ekki að sjá að þeim líkaði dvölin
þar ýkja vel því þeir unnu 2. deildina
með miklum yfirburðum og eru því
komnir á meðal hinna beztu á ný.
DB brá sér á æfingu hjá KR í gær-
kvöldi og þar stjórnaði Magnús
Jónatansson af mikilli röggsemi.
Magnús er yngsti I. deildarþjálfarinn i
ár en hefur náð mjög góðum árangri
undanfarin ár. KR virðist hafa nógan
mannskap og mikill áhugi var ríkjandi
á æfingunni.
KR hefur fengið þá Jón Oddsson og
Hreiðar Sigtryggson frá ísafirði til liðs
við sig og hafa þeir styrkt liðið mikið.
Jón eldsnöggur framherji og Hreiðar
örugggur í markinu. Einnig hefur það
flogið fyrir, að Stefán Örn Sigurðsson,
sem hefur leikið með Holbæk í
Danmörku, hyggist snúa heim á ný og
þá að sjálfsögðu til KR.
Eggert Jóhannesson, þjálfari Haukanna,
á æfingu á Hvaleyrarvelli i gær.
DB-mynd Hörður.
Baráttan um skozka meistaratitilinn
er nú að komast á lokastig og Ijóst er að
hún mun aðeins koma til með að
standa á milli Glasgowrisanna Celtic og
Rangers. I innbyrðislcik liðanna á
laugardag vann Rangers 1—0, en liðin
mætast á heimavelli Celtic á þriðjudag í
næstu viku og verður sá leikur líklegast
úrslitaleikurinn um titilinn.
KR ætti að spjara sig vel i 1. deild-
inni og það er trú mín, að það verði í
efri helmingi deildarinnar.
Haukarnir hafa ekki verið nógu
sannfærandi í æfingaleikjunum í vor
og ekki unnið marga sigra. Eggert
Jóhannesson var með æfingu hjá
Haukunum í gærkvöldi og ríkti mikill
áhugi í herbúðum Haukanna rétt eins
og hjá KR. Haukar komust frekar
óvænt upp í 1. deildina í fyrra og liðið
hefur ekki mjög sterkum einstaklingum
yfir að ráða. Leikmenn eru mjög sam-
■ hentir og ætti það að geta fleytt þeim
áfram, en þeir verða vafalítið í fallbar-
áttunni. Vörnin er þeirra höfuðverkur
ásamt markvörzlu og geti Eggert lag-
fært þetta tvennt er ekki að vita nema
Haukarnir standi sig i sumar.
Það verður að öllum líkindum
harðari barátta um fallið en á toppn-
um. Þau lið, sem gætu lent í þeirri bar-
áttu eru auk Haukanna, Þróttur, KA
frá Akureyri, ÍBV og jafnvel Keflavík
og Víkingur.
Þróttur hefur sýnt slaka leiki í vor.
Ekki skortir kraftinn í leikmenn en oft
leika Þróttarar af meira kappi en
forsjá. í nýafstöðnu Reykjavíkurmóti
sýndu Þróttarar ákaflega lítið og
maður hafði það á tilfinningunni að
leikmenn skorti alla trú á sjálfa sig.
Þrótlarliðið er mikið baráttulið og það
má fara langt á henni. í fyrra dróst
Þróttur i fallbaráttuna og slapp naum-
lega við fall en fallið gæti hæglega
orðið þeirra í sumar, ef þeir ekki gá að
sér.
KA bjargaði sér á ævintýralegan hátt
frá falli í fyrra. Leikmenn voru úti á
Spáni, vitandi vits að Breiðablik, sem
þá var langneðst, yrði að vinna FH í
síðasta leik liðanna til að KA héldi
sæti sinu. Það ótrúlega gerðist og leik-
menn KA ætluðu varla að trúa eigin
augum er þeir fengu skeyti héðan að
heiman þar sem þeim var sagt að þeir
væru áfram í I. deild.
KA-liðið átti afar misjafna leiki í
fyrra. Liðið gat spilað virkilega
skemmtilegan fótbolta en datt svo þess
á milli niður á meðalmennskuplanið.
Sóknin hefur verið nokkuð spræk, en
vörnin var vandamál i fyrra. Nú hefur
KA fengið Einar Þórhallssön, fyrrum
Blika, til liðs við sig og ætti hann að
geta bundið vörnina saman hjá þeim.
KA vcrður þó alls ekki laust við fall-
drauginn i sumar.
Eyjamenn hafa orðið fyrir mikilli
blóðtöku. Þeir hafa misst aðalmarka-
skorara sinn, Sigurlás Þorleifsson. Auk
þess urðu Eyjamenn að sjá á bak Karli
Sveinssyni til Svíþjóðar og Einar Frið-
og á ekki lengur möguleika á titlinum.
Það er sama hvernig leikur Celtic og
Rangers fer nk. þriðjudag, annað hvort
liðanna verður meistari.
Staðan á toppnum:
DundeeUtd. 36 18 8 10 56—37 44
Rangers 33 17 9 7 48—29 43
Celtic 33 18 6 9 54—35 42
Aberdeen 35 12 14 9 57—35 38
þjófsson er kominn upp á land. Þeir
hafa ekki mikinn mannskap, en eru
rómaðir baráttujaxlar. Menn eins og
Örn Óskarsson, sem aldrei gefast upp,
eru dýrmætir og líklegast verður það
reynsla eldri leikmanna liðsins, sem
sker úr um það hvar í deildinni Eyja-
menn verða.
Keflavík hefur ekki virkað sannfær-
andi í vor — utan Þorsteinn Ólafsson,
sem virðist ætla að spila sig beint inn í
landsliðið á ný, en hann hefur átt hvern
stórleikinn á fætur öðrum í markinu í
vor.
Keflvíkingar hafa á að skipa mjög
ungu og óreyndu liði, en þessu liði
tókst í fyrra að tryggja sér UEFA sæti í
haust. Leikmenn eru dálitið villtir og ef
Gisli Torfason verður þeim ekki til
traust og halds má búast við að liðið
vanti kjölfestu. Reynslan er ómetanleg
og Keflvíkingar hafa ekki mörgum leik-
reyndum köppum á að skipa. Með
góðri baráttu ætti Keflavík að geta
orðið í efri helmingi deildarinnar.
Víkingur hefur valdið geysilegum
vonbrigðum í vor og bókstaflega ekkert
hefur komið út úr liðinu. Dr. Youri lli-
tschew þjálfar þá í sumar jafnhliða
landsliðinu og enn hefur hann ekki náð
að setja sín mörk á leikmenn. Sigurlás
Þorleifsson kom til Víkings frá Eyjum
og ætti hann að skerpa fremur dapra
framlínu. Vikingar misstu mikið þegar
Arnór fór til Lokeren og það verður
væntanlega framlínan, sem verður
þeirra höfuðverkur i sumar. Vörnin er
traust og miðjuleikmennirnir eru
baráttuglaðir. Víkingur ætti að geta
orðið í efri helmingi deildarinnar en allt
eins er líklegt að liðið dragist í botnbar-
áttuna. Byrjunin í Islandsmótinu hefur
mikið að segja og ræður miklu um
þróun mála.
Valsmenn verða vafalítið toppliðið í
sumar. Lið, sem hefur efni á því að
geyma menn á við Ólaf Danivalsson á
varamannabekknum hlýtur að vera vel
sett. Sigurganga Valsmanna hefur
haldið áfram í vor og þeir hafa unnið
bæði Meistarakeppnina og Reykja-
víkúrmótið. Liðið er mjög sterkt og
varla veikan hlekk i því að finna, nema
ef vera skyldi markvarzlan. Þá má eitt-
hvað meira en lítið gerast ef Valur á
ekki aðverða meistari aftur.
Fram er það lið, sem líklegast kemur
mest á óvart í sumar. Þeir hafa endur-
heimt Martein Geirsson í vörnina og
auk þess mun Gunnar Bjarnason leika
með Fram. Vörnin ætti þvi ekki að
verða vandamál. Sóknarleikmenn
Fram eru litlir en ákaflega tekniskir og
þeir Guðmundur Steinsson og Pétur
Ormslev eiga eftír að skora mörg mörk
i sumar. Það er spá mín að Fram veiti
Val einna mesta keppni í sumar. Skaga-
menn, sem urðu bikarmeistarar i fyrra,
hafa orðið fyrir gífurlegri blóðtöku.
Þeir hafa misst þá Karl Þórðarson og
Pétur Pétursson i atvinnumennskuna
en þeir tveir ásamt Árna Sveinssyni
báru Akranesliðið uppi i fyrra.
Akurnesingar hafa fengið talsverðan
liðsauka og ber þar fyrst að nefna þá
Sigþór Ómarsson, Sigurð Lárusson og
Kristján Olgeirsson. Ekki er hægt að
búast við að þessir menn fylli algerlega
skarð það sem Pétur og Karl skildu
eftir sig en Skagaliðið er nógu sterkt til
að geta verið eitt af þremur efstu.
SSv.
Reykjavíkurmót fatlaðra var háð um
helgina — sundkcppni á laugardag í
Árbæjarskóla en aðalkeppnin í Haga-
skóla á sunnudag. Þátttaka var mikil
og keppendur cru stöðugt i framför.
Úrslit urðu þessi:
Sund konur 25 m frjáls aðferð
1. Edda Bergmann 29.9
2. Sunneva Þráinsdóttir 40.6
3. Guðrún Ólafsdóttir 41.0
Sund karlar 25 m frjáls aðferð.
1. Jónas Óskarsson 15.2
2. Pétur Kr. Jónsson 18.0
J. Óskar Konráðsson 22.3
Lyftingar, léttari flokkur.
1. Arnór Pétursson. Setti íslandsmet í
60 kg flokki, lyfti 95 kg. Eldra met
hans var 85 kg.
2. Jónas Óskarsson 87.5 kg
3. Jónatan Jónatansson 80 kg
Þyngdarmörk 67.5 kg. Jónas var í
67.5 kg flokki — Jónatan 56 kg.
Lyftingar, þyngri fiokknr.
I. Sigmar O. Maríusson 115 kg sem er
íslandsmet í 75 kg flokki.
Víkingur varð í gærkvöldi íslands-
meistari í 2. flokki kvenna í handknatt-
ieik eftir jafnan og spennandi úrslita-
leik við Val. I.okatölur urðu 5-4 eftir
að Vikingur hafði leitt 4-1 í hálfleik.
Upphaflega átti þessi leikur að fara
fram á Akureyri, sem hann reyndar
gerði á föstudag, en þá fengust ekki úr-
slit. Liðin gerðu jafntefli, 10-10, en
unnu síðan bæði Þór, þriðja liðið í úr-
slitunum. Var þvi ákveðið að færa leik-
2. Gísli Brynjólfsson 96.5 kg sem er
íslandsmet í 82.5 kg flokki.
3. Hafsteinn Jósefsson 85 kg.
í kvennaflokki í borðtennis sigraði
Guðný Guðnadóttir. Guðbjörg Eiríks-
dóttir varð önnur og Elsa Stefánsdóttir
þriðja. í karlaflokki sigraði Viðar
Guðnason. Sævar Guðjónsson varð
annar og Arnór Pétursson þriðja.
í boccia — standandi — sigraði
Jack Nicklaus, „gullbjörninn”, eins
og hann er iöulega kallaður var i gær
útnefndur íþróttamaöur áratugarins
1969—1979 í kosningu bandarískra
iþróttafréttamanna.
Nicklaus er frægasti kylfingur heims
fyrr og síðar og hefur unnið fleiri stór-
keppnir en nokkur annar golfleikari.
inn til Reykjavíkur þannig að betra
hefði verið heima setið en af stað farið.
Lætur nærri að þessi ferð Víkinga til
Akureyrar hafi kostað félögin til sam-
ans hátt í eina milljón.
Hvað um það. Stúlkurnar voru ákaf-
lega taugaveiklaðar í báðum liðum og
greinilegt að taugaspenna þjakaði bæði
lið. Valsstúlkurnar voru ekkert líkar
sjálfum sér í fyrri hálfleik og guldu þess
því staðan í leikhléi var 4-1 fyrir Vík-
ing. Loks undir lok leiksins fór Valur'
Lárus Ingi Guðmundsson. Sævar Guð-
jónsson varð annar og Kristín Hall-
dórsdóttir þriðja.
í boccia — hjólastól — sigraði Viðar
Guðnason. Lýður Hjálmarsson varð
annar og Birna Ármannsdóttir þriðja.
í sveitakeppni í boccia sigruðu Jónas
Óskarsson, Birna Ármannsdóttir og
Guðný Guðjónsdóttir.
Hornaboltastjarnan Rod Carcw varð
annar i kjörinu, Kareem Abclul Jabbar
körfuknattleiksmaður varð þriðji og
ishokkileikmaðurinn Bobby Orr varð
fjórði.
Muhammed Ali vann þennan titil í
fyrra þegar kosið var á milli áranna
1968—1978.
að sýna tennurnar en það var bara of
seint og sanngjarn Víkingssigur var í
höfn.
Þá léku FH og Víkingur til úrslita i
bikarkeppni 2. flokks karla í gær-
kvöldi. FH vann 13-7 eftir að hafa
komizt í 5-0 og leitt 8-3 í hálfleik. FH
vann því tvöfalt í 2. flokki því á laugar-
dag unnu þeir íslandsmeistaratitilinn.
Handknaltleiksvertíðinni lauk þar
með í vetur, en þráðurinn verður tekinn
upp að nýju í haust.
Celtic og Rangers
unnu bæði í gær
íslandsmeistarar Víkings i 2. flokki, ánægðar á svip eftir sigurinn yfir Val i gærkvöldi.
r r
DB-mynd Hörður.
VIKINGUR VARDISLANDS-
MEISTARI í 2. FL. KVENNA
„Gullbjörninn” kjörinn
íþróttamaður áratugarins
í gærkvöldi léku bæði liðin og úrslit
leikja i skozku úrvalsdeildinni urðu
þessi:
Hearts-Morton 0—1
Ranges-Aberdeen 2—0
Partick-Celtic 1—2
Rangers vann afar sannfærandi sigur
á Aberdeen, sem er í fjórða sæti í deild-
inni. Sigur Celtic yfir Partick er
athyglisverður og greinilegt er nú að
Jóhannes og félagar leggja allt í söl-
urnar. Jóhannes var ekki með í gær-
kvöldi vegna meiðslanna sem hann
hlaut á laugardag. Dundee United er
enn efst en hefur lokið leiknum sínum
Símar: 29330/29331
Ford Galaxie árg. ’68, rauður, glimm-
er flake lakk, 302 cub., sjálfsk., 2 dyra,
hardtopp, bíll i sérflokki. Skipti koma
til greina.
Mercury Cougar árg. 1969,8 cyl., 289
cub., sjálfsk., sumard., útvarp, króm-
felgur, rauður og gulur. Góður i sukk-
ið. Verðl750 þús.
Cherokee árg. ’75, 6 cyl., beinsk.,
brúnn, aflstýri + -bremsur, krómfelg-
ur, góður. Verð 3,5 millj.
Ford Maverick árg. ’73, 6 cyl.,
sjálfsk., sumard., útvarp, brúnsanser-
aður. Fallegur bill I góðu standi. Verð
2,4 millj. — skipti.