Dagblaðið - 11.05.1979, Page 14
14
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 1979.
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Sþróttir
Þorsteinn Magnússon, íslandsmeistari 1
billjard sl. tvö ár.
íslandsmótið
íbilljard
verðurum helgina
Nú um helgina fer fram íslandsmótið
í billjard og verður það háð íJúnó-saln-
um við Skipholt. Þátttakendur munu
verða 24 talsins og verður keppt í þrem-
ur riðlum.
Úr hverjum riðli komast þrír menn í
úrslitakeppnina, sem fram fer á sunnu-
daginn á sama stað. Allir beztu billj-
ardleikmenn landsins munu verða
meðal keppenda. T.d. koma 5 kepp-
endur frá Akureyri og íslandsmeistar-
inn, Þorsteinn Magnússon, sem hefur
unnið mótið sl. tvö ár verður á meðal
keppenda.
Billjard er tiltölulega ung íþrótt hér-
lendis og er einkum stunduð hér í
höfuðborginni, á Akureyri og nú fyrir
skemmstu var opnuð billjardstofa í
Keflavík. Áhugi á billjard virðist fara,
vaxandi og má gera ráð fyrir að 150—
200 keppendur stundi þessa íþrótt að
staðaldri.
Þátttökugjald í mótinu er kr. 10.000,
en fyrir fyrsta sætið er veittur fagur
bikar auk þess, sem þrír efstu fá pen-
ingaverðlaun.
Valur68áraídag
Knattspyrnufélagið Valur er 68 ára í
dag. Félagið var stofnað árið 1911 af
Friöriki Friðrikssyni. Af þessu tilefni
verður opið hús og kaffiveitingar að
Hliðarenda frá kl. 15—18 í dag og má
þúast við fjölmenni. Allir félagsmenn
og velunnarar félagsins eru velkomnir. j
Innanhússmót hjá
tryggingafélögum
í kvöld kl. 20 gengst Brunabótafélag-
ið fyrir innanhússknattspyrnumóti
milli tryggingafélaganna. Keppt verður
í íþróttahúsinu Ásgarði I Garðabæ. Sex
lið taka þátt i keppninni, Brunabóta-
jfélag íslands, Tryggingamiðstöðin, Al-
mennar tryggingar, Ábyrgð, Sam-
vinnutryggingar, og Trygging hf.
Keppt verður um veglegan bikar,
sem Brunabótafélagið hefur gefið til
keppninnar.
Coventry City
til Færeyja
Enska 1. deildarfélagið Coventry
City er nú sem stendur i heimsókn hjá
vinum okkar Færeyingum. Coventry
ætlar að spila þrjá leiki I Færeyjum en
liðið kom til eyjanna á miðvikudag.j
Leikmenn munu halda aftur til Eng-
lands á laugardaginn. Eftir að hafa
komizt á snoðir um þetta þykir manni
anzi hart, að hér uppi á íslandi skuli
ekki sjást erlend félagslið nema í
Evrópukeppnunum á haustin.
Jafntefli
Danir og Finnar gerðu jafntefli 1—1
í landsleik i knattspymu, sem fram fór i
gærkvöldi. Leikurinn var liður i undan-
keppni ólympiuleikanna. Jan Andersen
skoraði fyrir Dani en Harri Lindholm
jafnaði fyrir Finna. Áhorfendur voru
2600.
Shrewsbury skauzt
á topp 3. deildar
Shrewsbury skauzt i gærkvöldi á
toppinn í 3. deildinni i fyrsta sinn í
vetur, er liðið vann góðan sigur á
Rotherham á heimavelli sínum. Wat-
ford og Swansea hafa skipzt á um for-
ystuna i deildinni í vetur — Watford
oftast verið efst, en nú er meira að
segja sá möguleiki fyrir hendi að hvor-
ugt þeirra komist upp.
Úrslit í gærkvöldi urðu þessi:
2. deild Wrexham — Bristol Rovers 0—1
3. deild Shrewsbury — Rotherham 3—1
4. deild Hartlepool — Port Vale 1—2
Skotland — 1. deild Dundee — Ayr United 2—2
2. deild Albion Rovers — Alloa 2—1
Cowdenbeath — East Stirling 2—1
Wrexham lék sinn þriðja leik á fjór-
um dögum og þar sem liðið er nú úr
allri fallhættu gátu leikmenn leyft sér
að tapa á heimavelli fyrir Bristol
Rovers, sem er þekkt fyrir flest annað
en góðan árangur á útivöllum í vetur.
En það er 3. deildin, sem allir fylgj-
ast nú með af miklum áhuga. Fimm lið
eru enn í baráttunni þótt staða Gilling-
hani sé næsta vonlaus nú. Shrewsbury
hefur hvergi gefið eftir á lokasprettin-
um og það uppbyggingarstarf, sem
Alan Durban vann hjá félaginu er nú
að skila sér ríkulega.
Staðan á toppi 3. deildar.
Shrewsbury 45 20 19 6 56—38 59
Watford 45 23 12 10 79—52 58
Swansea 45 23 1 2 10 81—60 58
Swindon 44 25 7 12 71-45 57
Gillingham 44 19 17 7 61—43 55
0DDUR STAL
SENUNNI
— á vormóti ÍR í gærkvöldi
Ungur stórefnilegur hlaupari úr KA á
Ákureyri, Oddur Sigurðsson, stal al-
gerlega senunni á vormóti ÍR, sem fram
fór í Laugardalnum í gærkvöldi. Odd-
ur, sem reyndar er fæddur og uppalinn
Reykvikingur, vann 400 m hlaupið á
stórgóðum tíma — 49,3 sek. og 100 m
hlaupið á 10,5 sek. Vindur var 3 m/sek
þannig að undir löglegum kringum-
stæðum hefði hann hiaupið 100 metr-
ana á 10,6—7 sek. Bæði hlaup Odds,
sem er tvítugur, stálu senunni á mót-
inu, en árangur varð allþokkalegur í
mörgum greinum.
Úrslit í mótinu urðu þessi:
400 m hlaup karla
Oddur Sigurðsson, KA, 49,3 sek.
Aðalsteinn Bernharðss., KA 49,7 —
Gunnar P. Jóakimsson, ÍR 51,5 —
Kúluvarp kvenna
Guðrún Ingólfsdóttir, Á, 12,82 m
íris Grönfeld, UMSB, 10,14 —
Katrín Einarsdóttir, ÍR, 9,49 —
1500 m hlaup drengja
Magnús Haraldsson, FH, 4:31,5 mín.
Jóhann Sveinsson, UBK, 4:35,8 —
Einar Sigurðsson, UBK 4:43,4 —
Langstökk karla
Oddur Sigurðsson, KA, 6,48 m
Helgi Hauksson, UBK 6,00 —
Óskar Thorarensen, ÍR, 5,79 —
500 m hlaup karia
ÁgústÁsgeirsson, ÍR, 15:18,4mín.
Steindór Tryggvason, KA, 16:03,8 —
Gunnar Snorrason, UBK 17:06,3
Langstökk kvenna
Sigríður Kjartansdóttir, KA, 5,41 m
Bryndis Hólm, ÍR, 5,33 —
íris Grönfeld, UMSB, 5,23 —
Kúluvarp karla
Pétur Pétursson, UÍA, 14,78 m
Þorsteinn Þórsson, UMSS 12,45 —
Kúluvarp sveina
Guðni Karlsson, FH 12,61 m
Ólafur Arnarson, ÍR 12,52 -
Guðni Sigurjónsson, UBK 10,11 —
Hástökk karla
Þorsteinn Þórsson, UMSS, 1,85 m
Hafsteinn Jóhannesson, UBK, 1,80 —
Hafliði Maggason, ÍR 1,65 —
100 m karla
Oddur Sigurðsson, KA 10,5 sek.
Jón Sverrisson, UBK 11,3 —
Kristján Gizurarson, Á 11,4 —
110 m grindahlaup karla
Valbjörn Þorláksson, KR, 15,1 sek.
aðrir luku ekki keppni.
100 m hlaup sveina
Jóhann Jóhannsson, ÍR ll,6sek.
200 m hlaup kvenna
Sigríður Kjartansd., KA, 25,7 sek.
Helga Halldórsdóttir, KR, 26,3 —
Hrönn Guðmundsd., UBK, 27,2 —
800 m hlaup kvenna
Thelma Björnsdóttir, UBK,2:23,6 mín.
Sigurborg Guðmundsd., Á, 2:27,8 —
Guðrún Karlsdóttir, FH, 2:31,1 —
Helga Halldórsd., KR, 2:32,5 —
Það er ekki oft sem tveir íslenzkir
hlauparar hlaupa 400 metrana undir 50
sek. í sama hlaupinu. Það gerðu þeir
félagar úr KA þó í gær og KA var afar
sigursælt á þessu móti. Árangur þeirra
Odds og Aðalsteins er því betri, að
frekar kalt var þegar hlaupið var,
þannig að báðir ættu að geta hlaupið
mun betur síðar í sumar.
Guðrún Ingólfsdóttir, sem nú keppir
fyrir Ármann, náði góðum árangri í
kúluvarpinu og lofar góðu fyrir sumar-
ið.
Tími Ágústs Ásgeirssonar í 5000
metra hlaupinu er nokkuð góður svona
snemma sumars og ekki má gleyma því
að Ágúst hljóp 36,5 km í sólarhrings-
hlaupi ÍR um sl. helgi.
Sigríður Kjartansdóttir úr KA vann
þrenn gullverðlaun á mótinu, rétt eins
og Oddur, og hún virðist í góðri
æfingu. Þá náði Pétur Pétursson, UÍA,
sinum bezta árangri í kúluvarpi til
þessa — varpaði 14,78 m.
Oddur Sigurðsson kemur i mark f 100 m hlaupinu i gærkvöldi á 10,5 sek.
DB-mynd Bjarnleifur.
Þessi mynd er frá árinu 1957. A henni sést Björgvin Schram halda ræðu fyrir afhend
vinstri: Guðjón Finnbogason, Guðmundur „styrkur” Sigurðsson, Helgi Björgvinsson
björnsson, Þórður Þórðarson, Helgi Danfelsson og Rikharður Jónsson. Eins og sjá mí
inni. Myndina tók að sjálfsögðu Bjarnleifur Bjarnleifsson.
KEPPNI í 1.
HEFST NÚ U
— stórleikur 1. umferðar verður vi
Þá hefst íslandsmótið í knattspyrnu
loksins um helgina. Margir eru orðnir
ærið langeygir eftir fótboltanum en nú
um helgina fer íslandsmótið af stað af
fullum krafti. Heil umferð verður
Icikin í 1. og 2. deildinni en keppni i 3.
deild hefst ekki fyrr en í júnibyrjun. En
hvaða leiki býður 1. umferðin upp á?
Við skulum renna lítillega yfir leiki
helgarinnar og kfkja aðeins fram í
næstu viku.
í kvöld er reyndar fyrsti leikur
íslandsmótsins í ár — Breiðablik og
Selfoss leika saman á grasvellinum í
Kópavogi en vöUurinn þar er sá eini á
landinu, sem er tilbúinn fyrir sumarið.
Liðin mætast eiginlega á miðri leið.
Selfoss vann 3. deildina í fyrra en
Breiðablik féll niður úr þeirri fyrstu.
Blikarnir verða þó að teljast mun sigur-
stranglegri í þessum leik.
En það er, eins og áður sagði, fyrsta
deildin sem menn eru hvað spenntastir
fyrir, a.m.k. hinn almenni áhorfandi.
Aðeins einn leikur er í höfuðborginni
um helgina í 1. deild. Þróttur og ÍBV
leika saman á morgun kl. 14 og verður
leikurinn háður á Melavellinum þar
sem talsvert langt er enn í land með
grasvöllinn í Laugardalnum.
Það er nokkuð erfitt að spá um úrslit
þessa leiks þar sem Eyjamenn hafa
misst mannskap og ekki leikið mikið af
æfingaleikjum i vor. Þróttararnir hafa
Arsenal setu
sitt traust á I
— Manchester United virðist alltaf
leika bezt, þegar ekki er búizt við neinu
af liðinu, sagði Bobby Charlton i gær.
— Það má ekki gleyma því, að Man-
chester United vann Liverpool og það
þarf sterkt liö til að geta það, sagði
Lawrie McMenemy, framkvæmda-
stjóri Southampton. Þrátt fyrir þessi
ummæli eru Arsenal taldir iíklegri
sigurvegarar.
Á morgun fer fram mesti sýningar-
leikur í knattspyrnuheiminum hvert ár.
Úrslitaleikur enska bikarsins á
Wembley hefur alltaf verið hápunktur
hvers keppnistímabils og svo verður
einnig nú en þetta er í 56. sinn, sem
leikið er til úrslita á Wembley leikvang-
inum.
Arsenal leikur því til úrslita annað
árið í röð, en United í 3. sinn á sl. 4
árum. Það hefur verið nokkuð undan-
tekningarlitil regla í úrslitaleikjum
enska bikarsins, að tapi lið í úrslitum
og komist í úrslit aftur næsta ár vinnur
það nær alltaf. Arsenal tapaði fyrir
Ipswich í fyrra 0-1 og samkvæmt regl-
unni ætti það því að vinna United.
Síðasta dæmið um þetta er Manchester
United 1976 og 1977.
Brian Talbot, sem var aðalstjarnan í
sigurliði Ipswich i bikarnum í fyrra,
hefur nú gengið til liðs við Arsenal og
hann vonast eftir sigurlaunum annað
árið í röð. Uppselt er á leikinn fyrir
löngu og rúmlega 90.000 áhorfendur
munu koma til með að öskra sig hása á.
Ieiknum á morgun.
Arsenal tilkynnti endanlegt lið sitt í
gær, en United tilkynnti 13 manna hóp.
Liðin eru þannig: Arsenal: Pat Jenn-
ings, Pat Rice, David O’Leary, Willie
Young, Sammy Nelson, David Price,