Dagblaðið - 11.05.1979, Síða 15
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 1979.
19
þróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
2
ingu tslandsbikarsins. Skagamenn urðu meistarar þetta árið og á myndinni eru frá
, Jón Leósson, Sveinn Teitsson, Kristinn Gunnlaugsson, Þórður Jónsson, Halldór Sigur-
i er Laugardalsvöllurinn þarna eins og teppi, en tslandsmótið i ár verður að hefjast á möl
DEILDINNI
IM HELGINA
iðureign KR og Vals á þriðjudaginn
verið frískir eins og undanfarin ár en
allt of lítið hefur komið út úr liði þeirra
enn sem komið er. Þeir voru án Páls
Ólafssonar og Sverris Brynjólfssonar í
Reykjavíkurmótinu, en eftir þvi sem
bezt er vitað munu þeir báðir verða
með á morgun. Jafntefli er líklegast en
Þróttarsigur kemur einnig sterklega til
greina.
Á Akureyri maetast á sama tima á
morgun, kl. 14, KA og nýliðar Hauka.
Það verður vafalítið mjög hart barizt á
Akureyri og sá leikur fer fram á möl-
inni líka þar sem enn lengra er í að
grasið þar verði tilbúið. KA barðist við
fall í fyrra og tókst að sleppa á síðustu
ir allt
Brady
Brian Talbot, Liam Brady, Graham
Rix, Frank Stapleton og Alan Sunder-
land. Varamaður verður Steve Wal-
ford. Lið United: Gary Bailey, Jimmy
Nicholl, Arthur Albiston, Gordon
McQueen, Martin Buchan, Brian
Greenhoff, Sammy Mcllroy, Micky
Thomas, Steve Coppell, Jimmy Green-
hoff, Joe Jordan, Lou Macari og Andy
Ritchie.
Arsenal setur allt sitt traust á Liam
Brady en fullt eins líklegt er að þetta
verði hans síðasti leikur með Arsenal
því hann hyggst leika á Spáni næsta
keppnistímabil. Gamla kempan
Jimmy Greenhoff, sem skoraði sigur-
markið á Wembley fyrir tveimur árum,
verður vafalítið með og kemur til með
að spila stórt hlutverk. Arsenal er talið
líklegri sigurvegari i leiknum en við
höllumst að sigri United.
hindrun. Ekki er ólíklegt að bæði þessi
lið verði í botnbaráttu í sumar og
verður því ekkert gefið eftir. Haukarnir
hafa mjög óreynt lið en inn á milli eru
reyndir baráttujaxlar. Við spáum þó
sigri KA — en naumt verður það.
Á mánudagskvöldið leiða Vikingur
og Fram saman hesta sína. Ef eitthvað
má marka leiki liðanna í Reykjavíkur-
mótinu virðist ekkert nema Framsigur
geta komið til greina Framarara
virkuðu mjög sannfærandi í mótinu, en
hið sama verður ekki með sanni sagt
um Víkingana. Framsigur ætti að
verða uppi á teningnum. Leikurinn
hefst kl. 20.
Stórleikur 1. umferðarinnar verður á
þriðjudagskvöldið kl. 20. þegar nýliðar
KR mæta íslandsmeisturum Vals. KR-
ingar sýndu dálítið misjafna leiki í vor
en enginn vafi er á að mikið býr i
liðinu. Valur vann reyndar Reykja-
víkurmótið en ekki með neinum yfir-
burðum og oft á tíðum fylgdi þeim stór
sneið af meistaraheppninni. Hvorugt
liðið mun gefa eftir en við spáum KR-
sigri á þriðjudaginn.
Síðasti leikur 1. umferðarinnar
verður háður í Keflavík á miðvikudags-
kvöld og þá mætast heimamenn og
bikarmeistarar Akurnesinga. Skaga-
menn ferskir og nýkomnir úr
Indónesíuferðinni ættu að hafa undir-
tökin en Keflavíkurliðið er mikið
baráttulið, sem aldrei gefst upp. í fyrra
varð jafntefli 2—2 í samsvarandi leik
og jafntefli er einnig líklegast níu.
Önnur deildin hefst, sem fyrr sagði, í
kvöld með leik UBK og Selfoss og á
morgun verða tveir leikir. Nýliðar
Magna frá Grenivík leika gegn Austra á
Akureyrarvelli kl. 16.30 og FH og
Fylkir leika á Kaplakrikavelli kl. 16.
Það ætti að geta orðið hörkuleikur. Á
sunnudag leika síðan Reynir og fsa-
fjörður kl. 14.30 í Sandgerði og kl. 16
leika Þór og Þróttur Neskaupstað á
Akureyri.
-SSv,-
Fjölmargir
leikmenn hafa
skipt um félag
— en ekkert f élag hef ur f engið fleiri
menn til sín en Grótta
Nú i vor, sem endranær, hafa mikil
félagaskipti átt sér stað hjá knatt-
spyrnumönnum. Mest ber að sjálf-
sögðu á „stóru” nöfnunum en margir
hinna litt þekktari falla í skuggann.
Fjölmargir minni spámenn reyna þó ár
hvert að freista gæfunnar hjá hinum
ýmsu 1. deildarfélögum með ákaflega
misjöfnum árangri. Fram til þessa
hefur ekki verið fjallað mikið um
félagaskipti leikmanna, en þar sem
íslandsmótið hefst nú um helgina er
ekki úr vegi að lita yfir listann.
í apríl skipti t.d. Magnús Teitsson
um félag og gekk úr FH í Stjörnuna í
Garðabæ, en Magnús hóf einmitt feril
sinn þar. Bjarni Sigurðsson gekk í raðir
Skagamanna en hann lék áður með
Keflavík. Annar markvörður — Þor-
bergur Atlason — er kominn „heim” á
ný, en hann hefur tilkynnt félagaskipti
úr KA yfir í Fram. Þá hefur Erlendur
Daviðsson, sem getið hefur sér gott orð
í handknattleik með Fram, gengið í
Þrótt Neskaupstað.
Á stjórnarfundum KSÍ þann 26.
apríl og }. maí voru samþykkt félaga-
skipti 54 leikmanna og kennir ýmissa
grasa í þeim hópi.
Adolf Guðmundsson hefur tilkynnt
félagaskipti úr Víkingi yfir í Hugin frá
Seyðisfirði, en Adolf var einn af efni-
legri leikmönnum Víkinga. Benedikt
Valtýsson, hinn eitilharði baráttujaxl
Skagamanna, hefur tilkynnt sig yfir í
'Vestra ísafirði, en Benedikt mun þjálfa
ísFirðingana í sumar.
Karl Hermannsson, fyrrum lands-
liðsmaður úr ÍBK, mun leika með
Njarðvíkingunum í sumar, en á síðast-
liðnu sumri komst Njarðvík í úrslit 3.
deildar keppninnar, en tapaði fyrir
Magna í leiknum um 2. deildarsætið.
Njarðvíkingar hyggja vafalítið á
bættan árangur í sumar.
Gamla markamaskínan Hreinn
Elliðason hefur gengið til liðs við
Stjörnuna í Garðabæ, en auk hans og
Magnúsar munu Þorvaldur Þórðarson,
markvörður FH í fyrra, og Guðmund-
ur Yngvason, sem lék með KR 1977 og
Þrótti Neskaupstað í fyrra, leika með
Stjörnunni 1 sumar.
Stjarnan leikur í sama riðli og Njarð-
vík í sumar, þannig að það verður hart
barizt um toppsætið í riðlinum.
Gunnlaugur Kristfinnsson, unglinga-
landsliðsmaður úr Víkingi, ætlar að
þjálfa Súluna á Stöðvarfirði í sumar og
taka sér frí frá 1. deildinni. Þá hafa
þeir félagar Haraldur Haraldsson og
Þorgils Arason, báðir úr Víkingi, til-
kynnt félagaskipti yfir í Austra.
Það, sem vekur þó langmesta athygli
í þessum 54 manna hópi er það, að 9
leikmenn hafa gengið til liðs við Gróttu
á Seltjarnarnesi á þessum hálfa
mánuði. Þar af koma sjö þeirra frá KR
og tveir koma frá Snæfelli. Meðal KR-
inganna má nefna Ólaf B. Lárusson og
Sigurð Pál Óskarsson, en þeir voru
báðir fastamenn í sigurliði KR í 2.
deildinni í handknattleiknum í vetur.
Grótta er einnig í sama riðli og
Stjarna og Njarðvík og má búast við
þeim sterkum í sumar. Grótta ætlaði
sér að vera með í 3. deildinni á síðasta
sumri en þá tókst ekki betur til en svo
að það gleymdist að tilkynna liðið í
íslandsmótið og þar með var
draumurinn fyrirbí.
Þorbergur Atlason
Enn tapa Banda-
ríkjamenn íkörfu
— nú fyrir Tékkum 75-77
Bandaríkjamenn gera það svo sann-
arlega ekki endasleppt I hinni miklu
keppni milli landsliða i körfuknattleik
frá heimsálfunum sitt hvorum megin
við Atlantshafið. Sl. laugardag töpuðu
þeir fyrir Frökkum, á þriðjudag fyrir
Rússum og í gærkvöldi máttu þeir þola
enn eitt tapið — nú fyrir Tékkum 75—
77, eftir að staðan i hálfleik hafði verið
41—26 Tékkunum í vil.
Bandarikjamennirnir hófu leikinn
afar illa og eftir aðeins þrjár mínútur
voru Tékkarnir komnir með 10 stiga
forystu, sem þeir smájuku framaðleik-
hléi. Leikur Bandaríkjamannanna var
laus í reipunum. og hittnin var fyrir
neðan allar hellur.
Loksins tóku þeir sig á og völduðu
mótherjana betur en áður i vörninni.
Það skilaði sér fljótlega því þegar 6
mín. voru til leiksloka var jafnt 63—63.
Þeim tókst siðan að komast yfir í fyrsta
sinn i leiknum og voru komnir i 71 —
65. Tékkunum tókst að jafna metin og
þegar 30 sek. voru til leiksloka var
staðan 75—75.
Bandaríkjamenn höfðu knöttinn og
léku með hann þar til 5 sek. voru eftir,
að einn þeirra skaut að körfu Tékk-
anna. Boltinn hitti ekki ofan í og Tékk-
arnir brunuðu upp og skoruðu sigur-
körfuna á lokasekúndu leiksins. Von-
brigði Kananna voru mikil, enda hafa
þeir tapað þremur leikjum í „sinni
eigin íþrótt" áeinni viku.
Þá unnu Frakkar Mexíkana í gær-
kvöldi í sömu keppni 109—82 eftir
55—45 í hálfleik.
Stefnirí24
lið á HM
Allt bendir nú til þess að það verði 24
lið, sem taki þátt í úrslitakeppni HM á
Spáni 1982. Framkvæmdastjóm HM-
keppninnar 1982 mun hittast á fundi
með FIFA í næstu viku og þá verður
ákveðið hvort fjölga skuli úrslitaliðun-
um úr 16 í 24.
Verði af þessu mun þurfa a.m.k. 12
velli til að keppa á. Eins og fyrr sagði
eru allar líkur á að 24 lið keppi til úr-
slita og myndu þá verða 13 frá Evrópu,
3 frá S-Ameríku, tvö frá Afríku, Asíu,
Mið- og Norður-Ameríku og síðan
gestgjafarnir og sigurvegarar síðustu
keppni, sem í þessu tilviki eru Spánn og
Argentína.
Vegleg verðlaun eru I boði á fyrsta
opna golfmóti sumarsins.
Fyrsta opna
golf mót sumarsins
Golfvcrtíðin hjá Keilismönnum hefst
á morgun með Beefeater / Borzoi
Open mótinu, sem er 18 holu mót.
Þetta er fyrsta opna mót ársins og
keppt verður um vegleg verðlaun sem
Íslenzk-Ameríska verzlunarfélagið
hefur gefið. Verða veitt þrenn verð-
laun, með og án forgjafar.
Gert er ráð fyrir að mótið hefjist kl.
9 í fyrramálið, en síðari hópurinn
verður liklegast ræstur um kl. 13. Þeir
sem hafa áhuga á þátttöku geta fengið
allar upplýsingar i síma 53360.
Sundsambandið
með merkjasölu
Sundsamband íslands hefur komið
af stað merkjasölu til stuðnings hinu
unga landsliði sinu sem mun á þessu ári
glíma við mörg og skemmtileg verk-
efni.
Merki þessi verða seld við alla sund-
staði landsins, á mannamótum og i ein-
stöku tilfelli verður gengið í hús. Merk-
in kosta krónur 200 og er fólk hvatt til
að bregðast vel við þegar merkin verða
boðin til kaups, en hluti andvirðis
verður látinn ganga til styrktar sundi i
viðkomandi heimabyggð.
Kepptu í Danmörku
Akurnesingar hafa fram til þessa
dags ekki haft stórkostiegu körfuknatt-
leiksliði á að skipa. Þeir hafa tekið þátt
í 3. deildinni i íslandsmótinu en ekki
gengið allt of vel.
Fyrir skömmu lögðu þeir land undir
fót og snöruðu sér yfir til Danmerkur
til þátttöku á körfuknattleiksmóti, sem
haldið var i vinabæ Akraness, Tönder.
Það er skemmst frá að segja að Skaga-
mennirnir urðu í 5. sæti af 10 liðum og
verður það að teljast góður árangur.
Vill deyjaáAnfield
Bob Paisley, framkvæmdastjóri
Livcrpooljýsti því yfir í ítarlegu viðtali
við enska dagblaðið The Sun á þriðju-
daginn, að hann ætti sér aðeins tvær
óskir. Önnur væri sú, að Liverpool
yrði Evrópumeistari i 3. sinn næsta
keppnistímabil en hin var á þá leið, að
hann vildi fá að deyja á Anfield, leik-
velli Liverpool.
Reykjavíkurmót
fatlaðra
Fyrsta Reykjavíkurmótið i íþróttum
fyrir fatlaða verður haldið um helgina í
Árbæjarskóla og Hagaskóla.
Á morgun verður keppt í sundi í
Sundlaug Árbæjarskólans og hefst
keppnin þar kl. 15.
Á sunnudaginn hefst keppni kl. 13 i
íþróttahúsi Hagaskólans og verður þá
keppt í borðtennis og boccia. Lyftingar
verða kl. 15 og sveitakeppni f boccia kl.
15.30.
Aðalfundur Gróttu
Aðalfundur iþróttafélagsins Gróttu á
Seltjarnarnesi verður haldinn á laugar-
daginn kl. 14 i Félagsheimili Scltjarnar-
ncss. Fyrir fundinum liggja tillögur um
lagabreytingar auk venjulegra aðal-
fundarstarfa.