Dagblaðið - 11.05.1979, Blaðsíða 22
26
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 1979.
Veðriðj
Spáð er hngviðri með snjóéljum á|
austanverðu Norðuriandi og Austur-
landi. Bjart verður með köflum en
skúrir á stöku stað á Suðuriandi.
Smáál verða á Vestfjöröum en bjart
að öðru kjyti á Vesturiandi.
Klukkan sex í morgun var 0 stigs
hhi og skýjað f Raykjavlc, — 1 og skýj
að á Gufuskákim, —1 og abkýjað á
Gattarvita, —1 og akkýjað á Akur-
eyri, 3 stiga frost og atekýjað á
Raufarhöfn, —2 og alskýjaö á Dala-
.tanga, 1 stigs hiti og léttskýjaö á
Höfn og skýjað og 3 stiga hiti f Vest
mannaeyjum.
i Þórshöfn var skýjað og 6 stiga
hiti, hátfskýjað og 5 f Kaupmanna-
höfn, léttskýjað og 5 í Osló, rigning
og 10 f London, skýjað og 5 f Ham-
•' borg, heiðrikt og 9 f Madrid, Mttskýj-
” aö og 17 f LMsabon og Mttskýjað og
p20 stiga hhi f Naw York.
Arkdlát
Guðjón Bjarnason lézt hinn 25. april sl.
Hann var fæddur 15. marz 1892 að
Ánastöðum í Breiðdal. Foreldrar hans
voru hjónin Sigurveig Daníelsdóttir og
Bjarni Bjarnason. Vorið 1917 fluttist,
Guðjón að Búðum og bjó þar það sem
eftir var ævi. Hann kvæntist Ólafíu
Björgu Jónsdóttur og áttu þau saman
12 börn en tvö börn átti Ólafía fyrir.
Útför Guðjóns var gerð þann 3. maí frá
Búðakirkju.
Halldóra Samúelsdóttir, Sjafnargötu 3,
lézt fimmtudaginn 10. maí.
Jóna Guðmundsdóttir, Langholtsvegi
131, fyrrum húsfreyja að Álfadal á
Ingjaldssandi, lézt að morgni 10. maí.
Sigríður V. Eggertsdóttir, Bragagötu
24, lézt 9. maí.
Árni Jónsson, fyrrverandi verkstjóri í
Járnsteypunni hf., lézt 9. maí. LJtför
hans fer fram á þriðjudaginn kl. 10.30j
frá Fríkirkjunni i Reykjavík.
Soffia H. Ólafsdóttir er andaðist 27.
apríl. Hún verður jarðsungin frá Foss-
vogskirkju mánudaginn 14. maí kl.
13.30.
Einar Sveinsson frá Ólafsvík verður
jarðsunginn frá Ólafsvíkurkirkju
laugardaginn 12. mai.
Tilkynningar
VIKAN, 19. tbl.
Aðalcfni blaösins cr viðtal við Guðna Guðmunds
son, rcktor Mcnntaskólans í Reykjavík, viðtal, sem
áreiöanlega á eríndi við marga, þvi þar er fjallað um
mál, sem enginn getur látið sér óviðkomandi. Hressi-
kgt og tæpitungulaust viðtal, eins og búast má við,
þegar Guðni er annars vegar.
Þá er litið inn hjá ríkisfjölmiðlunum, rabbað við
Dóru Hafsteinsdóttur, sem hefur starfað við þýðingar
hjá sjónvarpinu frá upphafí, og fylgzt með þeim Páli
Heiðarí og Sigmarí i einum Morgunpósti.
Guðfinna Eydal sálfræðingur fjallar um slys á
bömum í heimahúsum, Jónas Kristjánsson skrifar um
ýmis frönsk rauðvin, og grein Ævars R. Kvaran
nefnist Bænheitur berserkur.
Báðar framhaidssögumar, Á krossgötum eftir
Arhtur Laurents og Dauðinn úr djúpinu eftir June
Vigor, enda i þessu blaði, og ný framhaldssaga hefur
göngu sina. Nefnist hún Pilagrimsferð til fortíðarinnar
eftir Malcolm WiIIiams og fjallar um ungan mann,
sem lofar deyjandi fööur sinum aö takast á hendur
ferö til æskustöðva föðuríns til þess aö sanna sakleysi
hans i sambandi við hörmulegt slys, sem hafði hrakið
hann i útlegö til Afriku mörgum árum áður.
Andlitiö, sem aldrei gleymdist heitir' grein, sem
segir frá einstæörí uppljóstrun i morömáli. Og réttur-
inn, sem Skúli Hansen matreiðslumaður býður upp á,
er súrsætur kjúklingur á kinverska visu.
Sóknarkonur
ánægðar
Aöalfundur Starfsmannafélagsins Sóknar var haldinn
nýlega. Aöalheiður Bjarnfreðsdóttir var endurkjörin
formaöur, og aðrir i stjórn eru Ester Jónsdóttir vara
formaöur, Gerður Torfadóttir ritari, Dagmar Karls
dóttir gjaldkeri og Hjördis Antonsdóttir meðstjórn
andi.
Fundurinn lýsti yfír ánægju meö félagsstarfið i
vetur, sem hefur verið mjög fjörlegt, þótt nokkur
skoðanaágreiningur hafi verið um markmið og bar-
áttuaðferðir.
Nú er um ár liðið síðan félagið flutti í nýtt og rúm-
gott húsnæði aö Freyjugötu 27, og ríkir mikill áhugi
fyrir að nýta þaö sem bezt. M.a. er á döfinni aö stofna
til umræðufundar um mál, sem eru ofarlegá á baugi i
þjóðfélaginu. Sá fyrsti verður 17. maí n.k. og verður
þá hið nýsamþykkta efnahagsfrumvarp tekið til með-
ferðar. Ætla konurnar sjálfar að semja stuttar fram-
söguræður um viðhorf sín til þess að síðan að ræða
málin.
nnniiiiiHuiiiiiiiiniiiiHiiHKiuiiiiii
ökukennsla — Bifhjólapróf.
^Kenni á Mazda 626 árg. 1979. Hringdui
og fáðu reynslutima strax án nokkurraj
skuldbindinga af þinni hálfu. ökuskóli1
og öll prófgögn ef óskað er. Eiður H.(
Eiðsson.sími 71501.
Ökukennsla er mitt fag,
á þvi lief ég bezta lag.
Verði stilla vil í hóf,
vantar þig ekki ökupróf.
í nítján átta níu sex,
náðu í síma og gleðin vex.
í gögn ég næ og greiði veg
Geir P. Þormar heiti ég.
Sími 19896.
ökukennsla — æfingartímar — bif-
hjólapróf,
ökuskóli og prófgögn ef óskað er. Kenni
á Mazda 626 árg. ’79, reynslutími án
skuldbindinga. Lúðvík Eiðsson, sími
74974 og 14464.
llnsúM liT Œ0
PLASTPOKAR
Til sýnis og sölu í dag
Ford Mercury Monarch árg. 1975, 8 cyl., sjálfskiptur,
vökvastýri, ekinn 100 þús. km, útvarp, vetrardekk og
sumardekk. Gullfallegur bíll, litur blár. Verð 4,3 millj.
Bílasalan Skeifan
Skeifunni 11 — Sími84848
Lögberg—
Heimskringla
Með vaxandi tengslum milli lslands og Kanada hefur
mjög aukizt gagnkvæmur áhugi tslendinga og landa
þeirra í Vesturheimi. 1 Winnipeg er gefíð út á íslenzku
og ensku blaðið Lögberg-Heimskringla og stjómar þvl
blaði íslenzkur gestaritstjóri, Jón Ásgeirsson.
Hér á landi er vaxandi áhugi fyrir því að fylgjast með
málefnum Vestur-lslendinga og hefur vaxandi fjökli
Islendinga sýnt það í verki með þvi að gerast áskrif-
endur að blaðinu, sem að jafnaði kemur út vikulega.
Áskrift kostar kr. 4000.
Með tilliti til mikilla ferðalaga síðustu ár og þeirra sem
framundan eru I sumar, má ætla að þeir séu fleiri sem
óska eftir að fá sent blaðið reglulega og vill útgáfan
vekja athygli á, að hægt er að senda beiðni um
áskriftir til afgreiðslunnar að Dúfnahólum 4, Reykja-
vlk, slmi 74153 eða með tilkynningu I pósthólf 1238,
Reykjavík.
Aðalfundur Rithöfunda-
sambands íslands
var haldinn I Norræna húsinu laugardaginn 28. april.
Njörður P. Njarðvlk, formaður, flutti skýrslu um
störf sambandsins á liðnu starfsári. Hann sagði að þau
hagsmunamál rithöfunda, sem hæst heföi borið og
tekið mestan líma stjórnarinnar, hefðu verið
samningamál og vandamáliö um ólöglega fjölföldun
ritverka.
Kristinn Reyr gerði .grein fyrir reikningum sam-
bandsins og Stefán Júlíusson fyrir starfi Rithöfunda
ráðs.
1 stjórn eiga nú sæti: Njörður P. Njarðvík, for-
maður, Kristinn Reyr, Vilborg Dagbjartsdóttir, Pétur
Gunnarsson, Þorvarður Helgason og til vara Baldur
Ragnarsson og Ása Sólveig. Stjórnin hefur ekki enn
skipt með sér verkum. Endurskoðendur voru endur-
kjörnir Jónas Guðmundsson og Ási í Bæ.
Fulltrúi I Bandalagi ísl. listamanna, endurkjörinn
Thor Vilhjálmsson.
Eftirfarandi áskorun á rikisstjórnina var samþykkt
einróma á fundinum:
„Aöalfundur Rithöfundasambands íslands 28. april
1979 lýsir furðu sinni á þvi að ríkisstjórnin skuli láta
mál Ríkisútvarpsins hafna i þeim ógöngum sem nú
blasa viö.
Skorar fundurinn á ríkisstjórnina að gera gangskör
að þvi að létta fjársveltinu af þessum mikilvægu stofn-
unum, útvarpi og sjónvarpi, þannig að þær geti rækt
menningarhlutverk sitt betur en áður i staö þess að
draga saman seglin."
Bjallan gefur út
bókaflokk um landafræði
Hér á landi hefur um árabil verið skortur á aðgengi-
legum uppsláttarritum I landafræði fyrir skóla og hinn
almenna lesanda. Til þess að koma á móts við þessa
þörf hefur Bjallan hafíð útgáfu á enskum bókaflokki,
sem hefur verið þýddur á mörg tungumál og hvar-
vetna notiö mikilla vinsælda.
Fyrstu tvær bækurnar I þessum bókaflokki, Landa-
bskur BjöUunnar, eru STÓRA BRETLAND I þýð^
ingu Sigurðar R. Guðjónssonar og SOVÉTRÍKIN I
þýðingu Ernu Árnadóttur. Bækur þessar eru auð-
veldar I notkun fyrir börn og fullorðna. Lesefni er
skipt niður I stutta kafla og ítarleg efnisorðaskrá aufr
veldar lcsendum leit að einstökum atriðum. Fjöldi lit-
prentaðra Ijósmynda, korta, teikninga og Hnurita eru I
bókunum.
Prentstofa G. Benediktssonar annaðist setningu,
umbrot og fílmuvinnu. Bækumar eru prentaðar I
Bretlandi.
Þroskaþjálfaskóli íslands
Umsóknarfrestur um skólavist árið 1979—1980 er til
1. júní. Umsóknareyðublðð fást á skrifstofu skólans.
Simi 43541.
Júgóslavíusöfnun
Rauðakrossins
Póstgirónúmer 90000. Tekið á móti framlögum í öll-
um bönkum, sparisjóðum og pósthúsum.
Hjálpræðisherinn
tekur nú ekki á móti notuðum fatnaði fyrr en með
haustinu.
Af sendiherrum
Hinn 8. mal afhenti Henrik Sv. Björnsson sendiherra
Baudouin Belgíukonungi trúnaðarbréf sitt sem sendi-
herra lslands I Belgiu. Sama dag afhenti sendiherrann
Jean Francois Poncet, formanni ráöherraráðs Efna
hagsbandalags Evrópu, umboðsbréf sitt sem sendi-
herra hjá bandalaginu en áður hafði hann afhent Roy
Jenkins, forseta framkvæmdastjórnar bandalagsins,
sams konar umboösbréf.
Minningarspjöld
Langholtskirkju
fást hjá: Verzluninni Holtablómið Langholtsvegi 126,
sími 36711, Rósinni Glæsibæ, simi 84820, Verzlun S.
Kárasonar Njálsgötu 1, simi 16700, Bókabúðinni
Álfheimum 6, simi 37318, Elinu Álfheimum 35, simi
34095, Ragnheiði Finnsdóttur #Álfheimum 12, sími
32646, og Mariu Áreliusdóttur Skeiðarvogi 61, sími
83915.
Minningarkort
Hjartaverndar
fást á eftirtöldum stöðum:
'Skrifstofu Hjartavemdar, Lágmúla 9, s. 83755,,
Reykjavíkur Apóteki, Austurstræti 16,
Garðs Apóteki, Sogavegi 108,
Skrifstofu D.A.S., Hrafnistu,
Dvalarheimili aldraðra við Lönguhliö,
Bókabúðinni Emblu v/Norðurfell, Breiðholti,
Kópavogs Apóteki, Hamraborg 11, Kópavogi,
Bókabúð Olivers Steins, Strandgötu, Hafnarfírði og
jSparisjóði Hamarfjarðar, Strandgötu, Hafnarfírði.
Reykjavíkurhöfn er orðin full og einnig Hafnarfjarðarhöfn. Myndin var tekin við
Sundahöfn I morgun.
y DB-mynd Sv. Þorm.
„Ottumst að stjórn-
völd grípiénn f’
— árangurslaus sáttafundur ígær
— verkbann vinnuveitenda kom til framkvæmda
á miðnætti
Ekkert gerðist á sáttafundi i far-
mannadeilunni í gær. „Aðilar skýrðu
sín mál, en engin breyting hafði
orðið”, sagði Þorsteinn Pálsson fram-
kvæmdastjóri Vinnuveitendasambands
íslands í morgun. Annar fundur hefur
ekki verið boðaður.
Verkbann vinnuveitenda kom til
framkvæmda á miðnætti sl. og gengu
undirmenn þá af skipum sínum.
Sjómenn allir fara því af skipunum,
þegar það hefur verið bundið í öruggri
ísienzkri höfn. Undanþága er þó fyrir
einn vélstjóra á hvert skip, til þess að
halda vélum gangandi og frosti og
kulda í lestum.
„Það er okkar mat að þessi deila sé
ekki einangruð”, sagði Þorsteinn.
,,Það er verið að taka ákvörðun um öll
laun í þjóðfélaginu. Kauphækkanir nú
verða ekki til kjarabóta. Allir aðrir
hópar kæmu á eftir og fengju meiri
hækkun.”
„Þetta var maraþonkjaftæði á
samningafundinum”, sagði Páll
Hermannsson blaðafulltrúi FFSÍ í
morgun. „Verðbólgusögur Þorsteins
voru endurteknar”.
„Staðan er óljós vegna verkbanns-
ins, en við óttumst að verkfallið leysist
á óæskilegan hátt, þ.e. á þann hátt að
stjórnvöld grípi inn í. Stýrimannafélag-
ið mun funda í dag og þar verður
staðan metin. Ég tel að það sé komið úr
móð að fara beint eftir slíkum laga-
setningum, ef til koma og að við grip-
um til harðra aðgerða.”
Höfnin í Reykjavík er nú fuU og
sömuleiðis í Hafnarfirði og mikið af
skipum á heimleið. -JH.
Gefin hafa verið saman f hjónaband af
séra Óskari Þorlákssyni ungfrú
Sigríður Helga Siguröardóttir og Einar
Trúmann Einarsson Söring. HeimUi
jieirra er að Faxabraut 12, Kefiavik.
I Ljósmyndastofa Suðurnesja.
Minningarkort Styrktar-
félags vangef inna
fást á eftirtöldum stöðum: Bókaverzlun Snæbjamar,
Hafnarstræti 4, Bókabúð Braga, Lækjargötu, Blóma-
búöinni Lilju, Laugarásvegi 1, og á skrifstofú
félagsins, Laugavegi 11.
Einnig er tekið á móti minningarkortum i síma 15941
og síðan innheimt hjá sendanda meögiróseðli.
Happdrætti
Lionsklúbbsins Fjölnis
Dregið var 2. mal. Upp komu cftirtalin númer.
I.nr. 8837 2. nr. 29198
3. nr. 15883 4. nr. 20086
5. nr. 2688 6. nr. 19407
7. nr. 3462 8. nr. 11228
9. nr. 4149 10. nr. 11612
II. nr. 8966 12. nr. 5713
13. nr. 14466 14. nr. 29672
15. nr. 27190
Gefin hafa verið saman i hjónaband af
séra Gunnþóri Ingasyni i Þjóðkirkj-
unni í Hafnarfirði ungfrú LUja B.
Steinþórsdóttir og Kristinn Gunnars-
son. HeimUi þeirra er að Lindar-
hvammi 4, Hafnarfirði. Ljósmynda-
stofa Gunnars Ingimars, Suðurveri.
Gengið
GENGISSKRÁNlNG NR.86-10. mal 1979 : ' 3 Ferðamanna-' % gjaldeyrir
’Eining ^ Kaup \ S*í Kaup tSala
1 BandarStjadollar 331,90 332,70* 365,09 365,97* ’
1 Steriingspund v 681,00 682,60* 749,10 760,96*
1 Kanadadollar ^ 285,60 288,30 314,16 314,93
100 Danskar krónur 6206,50 8220,50* 6826,05 6842,55*
100 Norskar krónur 6416,00 6431,50* 7057,80 7074,65*
100 Sœnskar krönur ! 7550,90 7569,10* 8305,99 8326,01*
100 Finnsk mörk 1 8271,60 8291,60* 9098,76 9120,76*.
100 Franskk frankar 7583,30 7601,60* 8341,63 8381,78* 1
,100 Belg.frankar 1093,90 1096,60* 1203,29 1206,28*
100 Svissn. frankar 19338,70 19385,30* 21272,57 21323,83* |
100 GyHini 16061,75 18100,45* 17667,93 17710,50*
100 V-Þýzk mörk 17905,25 17547,45* 19255,78 19302,20* U
100 Lfrur 39,20 39,30* 43,12 43,23*
100 Austurr. Sch. 2379,20 2384,90* 2617,12 2623,39*
[ 100 Escudos 676,60 677,20* 743,16 744,92*
1 100 Pesetar 501,90 503,10* 562,09 553,41*
100 Yan 156,47 155,85* 171,02 171,44*
U.____. A _ ’ ^ — J--- . ' i. A
\ ytfrrg Irá atðuitu ikrdnlngu.1' ^ , -.7 ■ JtnavaH vagna 9«ngl««kfánlnfla gjj?j .,.