Dagblaðið - 19.05.1979, Síða 5
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 19. MAÍ 1979.
5
VíkíMýrdal:
HQLSUGÆZLUSTÖD-
IN ÓNOTUÐ FRÁ SL
HAUSH
—þrátt fyrir að hún sé fullkláruð
í vikunni kom læknir úr Reykjavík
til Víkur i Mýrdal að prófa heyrn
heimamanna. Gengu fjölmargir
Vikurbúar undir þetta heyrnarpróf
sem fór fram í hinni nýju og glæsi-
legu heilsugæzlustöð í þorpinu. Er
það fyrsta starfsemin sem fer fram
þar. Stöðin hefur hins vegar ekki enn
verið tekin formlega í notkun en
reiknað er með að það verði innan
tíðar. Þykir ýmsum sem timi sé
kominn til að taka hana í notkun því
að hún hefur staðið fullkláruð en
ónotuð frá því í haust. Mun þessi
dráttur einkum stafa af því að staðið
hefur á ýmsum tækjábúnaði.
—GAJ/KG, Vík.
Magnús Gíslason, formaður Lionsklúbbsins Suðra i Vík, afhendir Vigfúsi
Magnússyni héraðsiækni hjartalínurita frá klúbbnum fyrir skömmu. Að baki
Magnúsi stendur liknarnefnd klúbbsins. DB-mynd Kristmundur.
Hún Lóló, sem verið hefur i starfskynningu á Vikunni, nágranna okkar, sl.
viku, dró úr réttum krossgátulausnum í gær.
DB-mynd RagnarTh.
Hinir heppnu í
páskakrossgátu
Dagblaðsins
Þá er búið að draga úr réttum
lausnum sem bárust við páskakross-
gátunni. Upp komu þessi nöfn:
1. Guðrún Erlingsdóttir,
Garðavegi 20, Hvammstanga.
2. Stefán Már Ingólfsson,
Kaplaskjólsvegi 27, Rvík.
3. Halldór Karlsson,
Asparfelli 6, Rvík.
Í þetta sinn hefur gátan sennilega
verið talsvert strembin þvi það voru
mjög margir sem ekki voru með báð-
ar vísurnar réttar. Flestir voru þó
með aðra visuna (Fátt er betra en
friðsælt skjól) rétta. Hin vísan var
aftur á móti mörgum erfið, enda tók
ég fram að hún væri „torskilin og
stirt kveðin”. Það var fyrsta orðið í
síðustu línu vísunnar sem olli mörg-
um vandræðum. Margir voru með
„fargar” eða „fagnar” en þar á að
standa „fangar” (höndlar, grípur).
Svo voru líka margir sem misskildu
„æskusinni” („æskuhugur, geð),
höfðu þar tvö orð og héldu að
„sinni” væri fornafn. Nokkrir, sem
þó voru með vísurnar réttar, vissu
ekki að númerin á vísunum voru ann-
ars vegar vinstra megin og hins vegar
hægra megin í reitum gátunnar, og
það kalla ég gott. En hérna eru þá
vísurnar:
Fátt er betra en friðsælt skjól
i fangi mömmu sinnar,
þegar bliknar bernsku sól
og bleyta tárin kinnar.
Vinar þcl og velsæmi
valdi breytni þinni,
því fullorðinna fordæmi,
fangar æskusinni.
Svo þakka ég ykkur kærlega þátt-
tökuna og lofa því að næsta vísugáta
verði ekki svona strembin.
Kveðjur,
Ranki.
í langþráð f rí
fyrir mæðrablómin
í dag, laugardag, mun Mæðrastyrks-
nefnd Reykjavíkur efna til sölu á
mæðrablómum. Ágóðanum af sölu
þessari mun verða varið til eldri kvenna
sem ekki eiga kost á að fara í hvíldar-
viku í sumar.
Eru þær konur fjölmargar sem þessa
hafa notið undanfarin ár en hefðu ann-
ars farið á mis við alla sumarhvild. Þess
má geta að síðastliðið sumar dvöldu
um 40 konur að Flúðum í Árnessýslu.
Mæðrablóm Mæðrastyrksnefndar
verða seld í blómaverzlunum og einnig
munu sölubörn ganga í hús og bjóða tU
sölu.
Mæðrastyrksnefnd skorar á Reyk-
víkinga að taka sölubörnum hennar
vel. -SÞ.
EIGNATJONSSLYSUM
í UMFERDINNIFER
ÖRT FJÖLGANDI
—en tala óhappa með slysum á fólki svipuð
Heildartala umferðarslysa í apríl-
mánuði varð 522 samkvæmt bráða-
birgðaskráningu Umferðarráðs. í apríl
í fyrra urðu slysin 480 talsins. Aukning-
in er öU í slysum þar sem einungis er um
eignatjón að ræða. Slík slys urðu nú
492 en voru 449 i fyrra. Slys með
meiðslum i aprílmánuði urðu nú 30 og
er það sama tala og i apríl i fyrra. í
fyrra varð eitt dauðaslys í apríl í um-
ferðinni, ekkert núna.
Tölur þessar eiga við allt landið en
flest eru slysin í apríl að sjálfsögðu í
Reykjavík eða 248. Næst kemur Kefla-
vík með 31 slys, 25 urðu i Hafnarfirði,
23 á Akureyri, 21 i Kópavogi, 19 i Ár-
nessýslu, 15 á Keflavíkurflugvelli, 14 á
Akranesi, 13 í S-Múlasýslu og 10 í
Garðabæ, Snæfells- og Hnappadals-
sýslu og i Húnavatnssýslu.
Það sem af er þessu ári hafa tveir
látið lífið í umferðarslysum (4 í fyrra)
en 156 hafa slasazt í umferðinni (182 í
fyrra). Umferðarslys, þar sem aðeins
varð eignatjón, eru 2450 á þessu ári en
voru 2079 í fyrra.
Niðurstaðan er að útkoman er heldur
betri í ár en í fyrra hvað snertir umferð-
aróhöpp með slysum á fólki, en heild-
artala annarra slysa hefur hækkað um
næstum 20%.
-ASt.
Ríkið leggur nú 144 krónur ofan á hið hækkaða innkaupsverð hve
bensínlítra. Hér er hæsta bensínverð sem vitað er um í heiminum.
Mótmælaaðgerð 1.
Allir bíleigendur í landinu þeyta bílhornin í 2 mínútur n.k. mánudags-
kvöld klukkan hálf átta. (þ.e. frá kl. 19.30 til 19.32.)
ATH
Sé bíllinn þar sem hávaðinn getur valdið skaða, s.s. nálægt sjúkrahúsi
eða elliheimili, þarf eigandinn að koma honum hæfilega langt þaöan í tíma.
Mótmælaaðgerð 2.
Næsta dag, þriðjudaginn 22. maí, hreyfum við ekki bíla okkar
NÚSEGJUMVID
-OGÞOFYRR
HEFÐIVERIÐ
F.f.B.