Dagblaðið - 23.05.1979, Page 1
5. ÁRG. - MIÐVIKUDAGÚR 23. MÁÍ1979 - 116. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI1 l.-AÐALSÍMI 27022.
(
Stór-Reykjavíkursvæðið:
>
FJARSKIPTABUNAÐUR
LÖGREGLU- OG
SJÚKRABÍLA ER RUSL
■( — sjábls.9 >
iámm
Nei, ég kem út, ég kem út — ekki koma inn! Kaupmaðurinn í Sport á Laugavegi 13 var fljótur út þegar hestamenn bar þar ad garöi og vildu fá beizli á hesta sína í mót-
mælaskyni við „bensínokur” ríkisvaldsins. DB-mynd Sv. Þorm.
Bráða-
brigða-
löginá
borðinu?
Þingmenn ræddu um það i göng-
um Alþingishússins í gærkvöldi, að
ríkisstjórnin væri með á borði sinu
nokkurn veginn tilbúin bráðabirgða-
lög til að stöðva verkfall farmanna.
Ráðherrar fengust ekki til að
viðurkenna þetta. Sumir þingmenn
sögðu, að nú ætti að senda þingið
heim í dag tjl auðvelda setningu laga
til að stöðva verkfallið. Eftir þing--
lausnir nægja bráðabirgðalög, sem
kunnugt er, og lögin þurfa þá ekki að
fara gegnum þingið.
„Við höfum áður lýst því hvernig
við bregðumst við bráðabirgðalögum
ríkisstjórnarinnar,” sagði Páll Her-
mannsson blaðafulltrúi FFSÍ í
morgun. „Við erum sameinaðir og
það kom fram fyrir viku, að ekki
verður farið að slíkum lögum. Við
erum í verkfalli.”
-HH/JH.
----------\
Kratar
káluðu
frumvarpi
Steingríms
^^--sjábaksíðu
Ekkert
samkomulagí
ríkisstjórninni:
Hinkrað f biðstöðunni
—bíðum ekki límdirvið stólana, segir Tómas
„Menn geta ekki beðið eftir því,
límdir við þessa stóla, að ný holskefla
verðbólgu ríði yfir þjóðina, án þess
að hafast okkuð að,” sagði Tómas
Ámason fjármálaráðherra í viðtali
við DB í morgun, þegar hann var
spurður um það, hvernig stjórnar-
samstarfið gengi nú. ,,Ég vil kalla
stöðuna nú biðstöðu,” sagði Tómas.
„Við framsóknarmenn höfum lagt á
það þunga áherzlu að þetta geti ekki
gengið lengur í áttina til vaxandi
verðbólgu,” sagði ráðherra. Hann
kvað framsóknarmenn hafa lagt til,
að staðan yrði fryst um nokkurn tíma
til þess að launamálin og kjaramálin
fari ekki úr böndunum og þá efna-
hagsmálin öll. Tíminn verði notaður
til þess að undirbúa allsherjarkjara-
samninga frá áramótum og þá til
tveggja ára. „Samtímis verður að
gera ýmsar breytingar, meðal annars
á vísitölunni, þannig að hún rási ekki
stjórnlaus. Um þetta er ekki sam-
staða í ríkisstjórn,” sagði Tómas.
Hann kvað Alþýðuflokkinn tala
um heildarkjarasamninga nú strax í
haust. Alþýðubandalagið talaði um
launahækkanir án tiltekins hámarks.
„Það er því alveg ljóst, að sam-
komulag er ekki um þessi stóru mál
eins og sakir standa í ríkisstjórn,”
sagði fjármálaráðherra. Niðurstaðan
er líklegust sú, að sáttanefndir ráði
fram úr vinnudeilum þeim , sem nú
geisa, en menn hinkri um sinn í bið-
stöðunni, til þess að leita að samnefn-
ara, sem enn er ekki fundinn,” sagði
Tómas Árnason fjármálaráðherra.
- BS