Dagblaðið - 23.05.1979, Qupperneq 2
2
r
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR23. MAÍ1979.
V
Hafði nótu en enga
og gengur þvíilla að fá greitt
Sveinn Jóhann Sveinsson, bílstjóri
hjá sendibilastöðinni Þresti, skrifar:
Fyrir stuttu var ég beðinn að flytja
timbur fyrir fyrirtæki eitt í bænum.
Hafði ég vitanlega afrit af nótu fyrir
timbrinu í höndunum og hljóðaði
upphæð hennar upp á 79.380 krónur.
Er ég kom með timbrið á tiltekinn
stað tók á móti því maður sem bauðst
til þess að kvitta fyrir akstursreikn-
ing minn. Taldi ég það óþarfa þar
sem ég hefði í höndunum sönnun
fyrir flutningi mínum þar sem nótan
fyrir timbrinu var.
Fékk ég síðan að vita að aksturs-
reikning minn fengi ég greiddan á
skrifstofu fyrirtækisins á miðviku-
dögum milli kl. 9 og 11. Er þangað
kom var reikningsgreiðandi ekki við
og var mér sagt að koma viku síðar.
Ég átti leið þarna framhjá hálfum
mánuði síðar og fór því inn með
reikning minn. Hitti ég þar fyrir þann
sem greiðir slíka reikninga og lét
hann hafa reikning minn fyrir
akstrinum ásamt afriti af nótunni
fyrir timbrinu. Leit hann á hvort
tveggja og sagði svo að þetta þyrfti
hann að athuga því hann vissi ekkert
hvort ég hefði skilað timbrinu á
réttan stað, þar sem akstur-
reikningurinn var ekki undirritaður
af móttakanda. Tók ég þá reikning
minn og hugðist hitta mann þann sem
tók á móti timbrinu og biðja hann að
kvitta. Er ég kom á staðinn var búið
að slá upp timbrinu sem ég hafði flutt
og maðurinn hvergi sjáanlegur. Lítur
þyi helzt út fyrir að ég fái reikning
minnekkigreiddan.
kvittun
Myndin er tekin á bilastæði sendibilastöðvarínnar Þrastar við Siðumúla.
[HUSTLER
PoiMilarOedwnlcs
mm. rmsim swoimím
cmm^*
ftmsm
Þetta er aðeins sn*ásýnisHorn
af okkar mikla úrvali.
Póstsendum um land allt.
n fcniv iiiii —
BOftA HCJSIÐ
Sími 86780.
Laugavegi178
viö öll tœkifœri
SIGMAR 6. MARÍUSSON
Hverfisgötu 16A — Slmi 213SS.
Ég vil því vara bilstjóra við því að
flytja nokkurnskapaðan hlután þess reikninginn, því það er slæmt að vera flytja á og fá reikning sinn kannski
að láta kvitta fyrir því á akstur- sakaður um að hafa stolið því sem aldreigreiddan.
Þingmenn
og ráð-
herrar
— skapi gott fordæmi
ílaunamáium
Jón Ólafur Bjarnason skrifar:
Eftir að hafa fimmtudaginn 17.
maí hlustað á talsmenn allra stjórn-
málaflokka, ráðherra og alþingis-
menn, hef ég komist að þeirri
niðurstöðu, að ef þeir ætlast til þess
af almenningi og á ég þá við bæði
hina svonefndu þrýstihópa, sem hið
svokallaða láglaunafólk, að hann
slaki á sínum launakröfum, verði þeir
sjálfir að gefa fyrst eftir eitthvað af
sínum háu launum, svo og þeim fjöl-
mörgu fríðindum sem þeir sjálfir
hafa skammtað sér úr sameigin-
legum sjóði þjóðarbúsins, en þeir
hafa sjálfir ákveðið að þau skuli vera
skattfrjáls.
Án þess að þeir gangi á undan og
ætlist svo til góðs eftirleiks, þurfa
þeir ekki að búast við að almenning-
Bunki við bunka.
ur, hvorki hár né lágur, sé reiðubúinn
til að slaka á um greiðslu á
umsömdum launum sinum, né því
sem þeir telja sanngjarnar launakröf-
ur.
Ef svo heldur fram, sem horfir,
munu allir halda fast fram þeim
samningum sem þeir hafa gert og
þeim launakröfum, sem þeir telja að
eigin mati sanngjarnar.
Ef áframhald verður á þeim kröfu-
gerðum og stéttastríði, sem nú geisar
víðsvegar í þjóðarlíkamanum, mun
verðbólgudraugurinn magnast meira
en nokkru sinni fyrr.
Það er því liklegt, að ef ekkert
verður að gert á þessu mikilsverða
þjóðmálasviði, geti svo farið að
spádómar stjórnarandstæðinga og
fleiri, um 50—100% verðbólgu fyrir
lok þessa árs, verði að veruleika, en
allir viðurkenna, að það yrði allri
þjóðinni til stórtjóns og mest yrði þá
tjón hinna lægst launuðu og
þeirra sem minnst mega sín í lífsbar-
áttunni. Það eru einmitt þeir, sem
þessir þjóðkjörnu fulltrúar fólksins í
landinu þykjast ætla að vernda og
vilja vernda þegar þeir stíga niður
og tala til almennings.
Ljósmynd með leyfi
—þingmenn spéhræddir?
Andri skrifar:
Eru nú blessaðir þingmennirnir
okkar líka spéhræddir? Mér fannst
það heldur broslegt þegar ég sá í
blöðunum að nú mega ljósmyndarar
ekki taka af þeim myndir nema með
sérstöku leyfi. Þeir eru víst hræddir
um að fá af sér afkáralegar myndir í
blöðin. Ekki hef ég hingað til rekizt á
eina einustu mynd af alþingismanni
sem hefur verið svo afkáraleg að hún
mætti ekki birtast. Það er heldur
enginn að ætlast til þess að þessir
menn sitji á þingi með stífar grímur á
andlitinu. Þeir verða þó að geispa,
klóra sér í höfðinu og annað eins og
ég og þú á vinnustað. Mér finnst því
að leyfa ætti ljósmyndurum allar
myndátökur á þingi og ef einhverjum
lesanda finnst eitthvað fyndið við
það að sjá þingmann með einhver
svipbrigði þá skulum við bara leyfa
þeim að hlæja. Þeir sjá þá kannski
eitthvað gott við Alþingi.
Og ég held að þeir ættu bara að
vera ánægðir með að sem flestar
myndir séu af þeim teknar. Þeir geta
þá ekki kvartað yfir því að vera ekki í
sviðsljósinu.
Raddir
lesenda
KASSABILARALLY SKATA
frá Hverageröi til Kópavogshælis til styrktar Kópavogshæli dagana 26. og27 maínk.
CTVDIÍT A PMIA A D semía^ramteruhappdrættismiðar, verða
911IfIV I Alf IflltlMII seldirnæstudaga —
Takið sölumönnum vel og styrkið gott málefni—Markmiðið er að kaupa
FÓLKSFLUTNINGABÍL FYRIR VISTFÓLK KÓPAVOGSHÆLIS
—— .......mmmmmmm—mm—Friálst framlae er hæst að senda á gírónúmer63336-4—