Dagblaðið - 23.05.1979, Qupperneq 5
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 1979.
5
Stóraukinn útflutn-
ingur á ferskfiski
flugleiðis?
Fiskútflutningur með flugvélum
kann að vera á næstu grösum i veru-
lega stærri stíl en hingað til hefur
þekkzt. Samkvæmt áreiðanlegum
heimildum hefur fyrirtæki í Luxem-
burg nú leitað eftir því við Cargolux
að fá flutt 45—50 tonn af ferskfiski
frá íslandi til Luxemburg um þessar
mundir.
„Mér vitanlega hefur umsókn um
slíka flutninga ekki borizt Flugmála-
stjóm enn,” sagði Björn Jónssor,
deildarstjóri í viðtali við DB í gær,
,,Slik umsókn kann að vera á leið-
inni,” sagði Björn, ,,og ég sé engin
tormerki á því að leyfi verði veitt ef
eftir því er leitað.”
„Tugir tonna hafa verið fluttir
með farþegavélum Flugleiða hf.,
meðal annars til New York og
London,” sagði Sveinn Sæmunds-
son, blaðafulltrúi Flugleiða hf., í
viðtali við DB í gær. Sveinn kvað
samtals um 40 tonn hafa verið flutt
út í marzmánuði og þá í fragt með
farþegaflugvélum. Hefði megnið
farið til New York og Bretlands eins
og fyrr segir. Þá mun eitthvað hafa
farið til Luxemburg og þaðan til
Þýzkalands og víðar.
Könnun hefur að undanförnu
verið gerð á möguleikanum á beinu
fragtflugi á fiski með Cargolux.
Virðist sú könnun hafa leitt i ljós að
hagkvæm viðskipti sé hægt að gera
með fiskútflutningi í flugi og góðar
horfur á því að þau verði að veruleika
ef ekkert óvænt gerist. -BSi
Kópavogsbúar fá 1000
símanúmer f rá Breiðholti
— þvíætti að rætast úr miklum símavandræðum Kópavogsbúa
snemma næsta árs
Mikil vandræði hafa verið í síma-
málum Kópavogsbúa og margir
beðið lengi eftir því að fá síma.
Stækkun símstöðvarinnar i Kópavogi
hefur dregizt úr hömlu vegna fjár-
skorts Pósts og síma.
Á bæjarstjórnarfundi nýlega
spurðist bæjarfulltrúi borgaralistans
í Kópavogi fyrir um hvað liði úrbót-
um í símamálum Kópavogs. Björgvin
Sæmundsson bæjarstjóri svaraði
fyrirspurninni og kom fram í máli
hans að vegna mikillar fjölgunar sím-
notenda í Kópavogi hefði verið gripið
til aðgerða til þess að flýta lausn
vandans.
Fengið er fjármagn til þess að
hraða viðbyggingu við símstöðina og
er búið að semja við verktaka. Vænzt
er þess að húsið verði uppsteypt í
september.
Þar sem langur afgreiðslufrestur er
á tækjabúnaði erlendis frá, allt að 2
ár, hefur verið ákveðið að taka
tækjabúnað fyrir 1000 númer sem
áttu að fara i símstöð í Breiðholti og
setja þau i þess stað í nýju Kópavos-
stöðina. Þess er vænzt að hægt verði
að hefja uppsetningu tækjabúnaðar-
ins í september og taka viðbótina,
1000 númer, í notkun í byrjun árs
1980.
Þetta er aðeins hægt með því að
láta innréttingu hluta byggingarinnar
bíða en einbeita sér fyrst eingöngu að
vélasalnum.
Vegna þarfa iðnfyrirtækja í nýja
iðnaðarhverfinu í Kópavogi hafa til
bráðabirgða verið tengdar línur úr
Múlastöð við hverfið, þ.e. númer
sem byrja á 7, og þannig leystur mesti
vandinn vegna nýrra fyrirtækja.
Að beiðni bæjarstjóra Kópavogs
hefur póst- og símamálastjóri fallizt
á að setja upp sjálfsala í einstökum
fjölbýlishúsum, t.d. við Engihjalla og
á miðbæjarsvæði.
-JH
Vafalaust gæti þessi litli lækur í Blesugrófinni verið hreinlegri þannig að l'remur
væri prýði að honum en hitt. DB-mynd Bjarnleifur.
Blesugróf:
Sóðalegur lækur
íbúar í Blesugróf í Reykjavík hafa Guðmundsson verkfræðing hjá borgar-
kvartað við Dagblaðið vegna lækjar í verkfræðingi og sagði hann að aðeins
Blesugrófinni sem sé lítt geðslegur og væri regnvatn í læknum. Klóak væri
jafnvel leitt klóak í lækinn. Þarna séu alls ekki í honum. Klóak frá húsum
börn að leik og fylgi því sóðaskapur þarna í grenndinni væri leitt í þéttu röri
hinnmesti. i jörð þarna skammt frá..
Dagblaðið ræddi við Ólaf -JH.
HALLELÚJA!
— Pétur þulur skammaður fyrir
„hnútukast” fgarð sjónvarpsmanna
Eiður Guðnason og fleiri útvarps-
ráðsmenn gagnrýndu Pétur Pétursson
fyrir kynningu á laginu Hallelúja að
morgni9. maí.
Taldi Eiður að Pétur hefði misnotað
aðstöðu sína og verið með hnútukast í
garð starfsmanna sjónvarpsins. Raunar
hefði viðkomandi þulur oft notað út-
varpið sem tæki til að koma einka-
skoðunum sínum á framfæri. Ýmsir
útvarpsráðsmenn tóku undir þetta,
segir í fundargerð ráðsins.
Kynningin var svohljóðandi, gerð
eftir segulbandsupptöku sem útvarps-
ráð hlustaði á:
„Útvarp Reykjavík. Klukkan er
rúmlega 22 mínútur gengin í ellefu. Og
þá er komið að þvi, eins og segir hér i
dagskránni, að morgunþulur kynni
ýmis lög að eigin vali. Og auðvitað er
nú tekið tillit til fleiri sjónarmiða en
persónulegra eingönguT’ViS” ætlum að
byrja á þvi að hlýða á Hallelújasöpginn
úr söngvakeppni sjónvarpsstöðva.
Þetta var nú sýnt á sinum tíma í
íslenzka sjónvarpinu, þeirri deild Rikis-
útvarpsins sem hefir skjáinn og birtir á
honum ekki aðeins með myndum,
heldur einnig í orðum og tónum, fréttir
af helztu málefnum sem að ofarlega eru
á baugi og gætir náttúrlega óhlut-
drægni í hvívetna og kynnir mál ekki
bara frá báðum hliðum, ef hliðarnar
eru tvær, heldur frá öllum aðilum og
kynnir sjónarmið sem jafnast.
Svo var gert í sjónvarpskeppninni, en
eitt lag var það sem bar þó sigur úr
býtum — umdeilanlega — það var
Hallelúja þeirra ísraelsmanna og hér
kemur það.”
-ÓV.
Svar Péturs Péturssonar
..Logið með þögninni”
„Hvað á betur við „fréttaflutning”
af þessu tagi en orð séra Árna
Þórarinssonar: „Þeir voru snillingar í
að ljúga með þögninni,” segir Pétur
Pétursson útvarpsþulur í svari við yfir-
lýsingu fréttastofu útvarps sem kallaði
Pétur ósannindamann.
„Sigurður vefengir staðhæfmgu
mina um að fréttastofur útvarps og
sjónvarps hafi ekki starfað samkvæmt
reglum (7. grein) er þær kusu að leiða
hjá sér blaðamannafund Andófs ’79 og
einnig það að hvorug stofnunin gaf
fulltrúum okkar kost á aö koma fram
um leið og leitað var álits aðila er stóðu
að atkvæðagreiðslu um málið, en þátt-
taka var bundin við fulltrúa BSRB og
fjármálaráðherra,” segir Pétur. Hann
segir að synjun fréttastofu sjónvarpsins
við þeirri málaleitan að fulltrúi Andófs
fengi að koma fram til jafns við for-
mann BSRB að lokinni atkvæða-
greiðslu sé í beinu framhaldi af neitun
formannsins við þeim tilmælum sjón-
varpsins að hann kæmí fram í Kast-
Ijósi ásamt fulltrúa Andófs. Frétta-
stofur útvarps og sjónvarps kjósi nú að
bera smyrsl á sárin með því að leyfa
einleik Kristjáns Thorlaciusar, „eða
eigum við að segja samleik og pantleik
þeirra Kristjáns og Tómasar?” spyr
Pétur.
Útvarpsráð hefur vísað á bug gagn-
rýni Péturs um hlutdrægni fréttastofu
útvarpsins.
-HH.
Nnstui liF QE0
PLASTPOKAR>
82655
Ik The GLOBE STUDY CENTRE
For ENGLISH
EXETER á suðurströnd Englands
Gefðu enskunni færi á að festast
Nýttu sumqrið til enskunáms í Englandi.
3—10 vikna námskeið fyrir byrjendur og lengra komna.
I fyrra sumar dvöldu margir ánægðir Islendingar á enskum heimilum í
Exeter og stunduðu jafnframt nám í ensku við Globe Study Centre for
English. Tækifæri býðst aftur í ár og er skráning hafin.
Brottfarardagar frá íslandi:
23. júní (3ja vikna námskeið)
14. júlí (3ja vikna námskeið)
4. ágúst (4ra vikna námskeið)
Þeir sem fara
utan 23. júní
geta dvalist
3— 1 0 vikur.
Þeir sem fara
14. júlí geta
verið 3—7
vikur. Þeir sem
fara 4. ágúst
verða 4 vikur.
Verð fyrir
3 vikur kr.
237.000.
Hafðu
samband
strax í dag
Ummæli
nemenda
frá sumrinu 1978.
Birna Björnsdóttir, Raufta-
læk, R. sagW: Skólinn og
skólastjórn var stórkostleg.
Kennslan var ineó afbrigB-
um góB. Engar vélrænar aB-
ferBir notaBar , heldur
persónuleg kennsla I smá-
hópum. Nú get ég talah-
skrifaB- og lesiB ensku og
hefur þaB opnaB algjörlega
nýja veröld fyrir mér. Allt
skipulag kennslu og ferBa-
laga var eins og best var á
kosiB. allt stóBst. ViB gistum
hiá úrvals enskum fjol-
skyldum sem alltaf voru
boBnar og búnar til aB hjálpa
okkur. Feröalögin eru okkur
öllum ógleymanleg enda
undir öruggri fararstjórn
kennara og Islenska farar-
stjórans. öll aöstoö farar-
stjóra frá byrjun og til enda
feröar hefur ómetanlegt gtldi
fyrir okkur sem kunnum
aöeins' fáein orö I ensku viö
upphaf feröar. ÞaB er mjog
auBvelt aö mæla meö „THE
GLOBE”
Innifalið í verði er:
1. Aðstoð við útvegun farseðla og gjald-
eyris.
2. Flugfargjöld (-f-flugvallarskattur) báð-
ar leiðir.
3. Bilferð: London-Exeter-London flug-
völlur
4. Aðstoð islensks fararstjóra, Keflavik-
Exeter allan timann.
5. Fulit fæði og húsnæði hjá valinni enskri
fjölskyldu (einn islenskur nemandi hjá
hverri fjölskyldu.)
6. 14-20 kennslustundir á viku.
7. Allar kennslubækur og gögn ókeypis.
8. Skemmti og kynnisferðir 5 daga vik-
unnar (t.d. 1 heildagsferð á viku, —þar af
ein ferð til Lundúna á hverju námskeiði.)
9. Nauðsynleg læknis og tannlæknisþjón-
usta.
Allar nánari upplýsingar um tilhögun og
verð gefur fulltrúi skólans á íslandi,
Böðvar Friðriksson, i síma 44804 alla
virka daga milli kl. 18 og 21 og um helgar.
Litmyndabæklingur frá dvöl íslendinga i
, fyrrasumar og upplýsingabréf sent þeim
1 sem þess óska.
Fyrir byrjendur og lengra komna Fyrir unglinga og fullorðna