Dagblaðið - 23.05.1979, Page 16
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 1979.
Iþróttir
Iþróttir
D
16
d
Iþróttir
Iþróttir
V-Þjoðverjar
lögðu írana
— og Skotar unnu N-íra 1-0 — Englendingar
tefla fram gerbreyttu liði gegn Wales íkvöld
Vestur-Þjóflverjar unnu írland I vin-
áttulandsleik, sem fram fór i Dublin í
gærkvöldi að viðstöddum rúmlega
20.000 áhorfendum. Staðan í hálfleik
var 1—1. Þetta var fyrri leikur V-
Þjóðverja í vikunni en sem kunnugt er
halda þeir frá írlandi hingað til íslands
og eru reyndar væntanlegir til Keflavík-
urflugvallar upp úr kl. 17 f dag.
Leikurinn í gær var mjög skemmti-
legur á að horfa fyrir áhorfendur og
bæði liðin léku opinn sóknarleik enda
ekkert i húfi. Heimaliðið náði forystu á
Þotukeppnin
um helgina
Golfvertíðin hófst opinberlega fyrir
tveimur vikum og hefur verið mjög gófl
þátttaka i þeim tveimur stórmótum,
sem haldin hafa verið til þessa. Fyrsta
stigamót sumarsins verður háð um
næstu helgi á Hvaleyrarholtsvellinum
og er það sjálf Þotukcppni Flugleiða,
sem um árabil hcfur verið eitt allra
skemmtilegasta golfmót sumarsins.
Leiknar verða 36 holur mefl og án
forgjafar og er ráflgert að keppnin hefj-
ist kl. 8.30 á laugardagsmorgun.
Þátttaka tilkynnist í síma 53360 fyrir
kl. 19 á föstudag. Þátttakendur eru vin-
samlega beðnir afl sýna forgjafarkort
sitt. Hvaleyrarholtsvöllurinn verður
opinn til æfinga á morgun og föstudag.
Mjög glæsileg verðlaun (sjá mynd að
ofan) eru I boði og þar afl auki verða
veitt aukaverðlaun þeim sem næstur
verður holu á 5. og 17. flöt. Aukaverð-
launin eru flugfar til Akureyrar frá
Reykjavík, fram og til baka.
26. mínútu þegar Gerry Ryan skoraði
með stórkostlegri hjólhestaspyrnu.
Þetta var fyrsta mark Ryan fyrir írska
landsliðið. Dýrðin stóð þó ekki lengi og
þrátt fyrir að í lið Þjóðverja vantaði
marga af þeirra beztu leikmönnum tók
það þá ekki nema tvær mínútur að
jafna metin. Karl Heinz Rummenigge
skoraði þá fallegt mark með lúmsku
skoti og eftir það náðu V-Þjóðverjar
betri tökum á leiknum.
Þaðgekk þó hvorki né rak og boltinn
barst marka á milli án þess að mark
væri skorað. Það stefndi því í jafntefli
en á 80. minútu urðu miðverði íranna,
Mick Martin, á herftleg mistök. Hann
gaf boltann beint i tæmar á varamann-
inum Walther Kelsch og hann þakkaði
boðið og stormaði upp völlinn og skor-
aði. Réttri minútu fyrir leikslok innsigl-
aði síðan Dieter Höness sigur Þjóðverj-
anna. Þetta var fyrsta tap íranna á
heimavelli í rúm tvö ár — töpuðu síðast
fyrir Spánverjum i febrúar 1977.
Þá léku Skotar og Norður-írar í
landsliðakeppni Bretlandseyjanna í
gærkvöldi og unnu Skotar 1—0 eftir að
Jock Stein hafði gert talsverðar breyt-
ingar á liði sínu, m.a. sett þá Rough,
Hansen og Wallace út. Skotarnir höfðu
umtalsverða yfirburði allan leikinn án
þess þó að skapa sér verulega hættuleg
færi. Eina mark leiksins kom á 75.
minútu þegar Arthur Graham potaði
boltanum í netið eftir að Pat Jennings
hafði aðeins hálfvarið skot frá Kenny
Dalglish. Graham var langbezti maður
skozka liðsins og hann skoraði reyndar
annað mark á 89. mínútu, sem var
dæmt af vegna þess að Joe Jordan
hafði handleikið knöttinn. í kvöld leika
Englendingar og Walesbúar á Wembley
og er mikill áhugi fyrir leiknum eftir
hinn glæsilega sigur Wales yfir
Skotlandi á laugardag þegar John
Toshack skoraði þrennu. Englendingar
unnu N-íra 2—0 i Belfast á laugar-
dag og þrátt fyrir þann góða sigur ger-
breytir Ron Greenwood liði sínu. Joe
Corrigan kemur í markið i stað Ray
Clemence. Keith Sansom úr Crystal
Palace leikur líkast til sinn fyrsta lands-
leik, sem vinstri bakvörður.
Þá leikur Laurie Cunningham einnig
að öllum likindum sinn fyrsta lands-
leik, en hann hefur eins og Hughes ekki
verið fastamaður i félagsliöi sínu siðari
hluta vetrar og vekur val hans því tals-
verða undrun.
Wales teflir hins vegar fram ná-
kvæmlega sama liði og vann Skotana,
nema hvað aðalmaðurinn, Toshack,
getur ekki verið með vegna meiðsla.
adidas
íþróttavörur best þekktar -— mest seldar
f EINKAUMBOÐ Á (SLANDI
Björgvin Schram
[ Umbods- 03 hefldYewhw
^ Trygairaaata 8 Sími ÍWO
íslenzka landsliðið I badmonton á æfingu í gær. DB-mynd Bjarnleifur.
Landsleikur gegn Færeyingum
verður háður á Selfossi á föstudaginn
Petur Hansen
Hans Jacob Stenberg
Einliðaleikur kvenna:
Sigrid Andreasen
Tvíliðaleikur karla:
Kari Nielsen
Petur Hansen
Hans Jacob Stenberg
Paul Michelsen
Tvenndarleikur:
Jóan Patur Midjord
Sigrid Andreasen
Nýtt sérsamband
íslenzka iandsliðið í badminton
leikur landsleik við Færeyinga föstu-
daginn 25. maí og fer hann fram i hinu
glæsilega iþróttahúsi á Selfossi.
Þetta er fyrsti landsleikur í badmint-
on, sem fer fram utan Reykjavtkur og
er það von stjórnar BSÍ, að Selfyssing-
ar og nágrannar þeirra fjölmenni á
þennan landsleik, þvi með því að koma
1 íþróttahúsið á föstudaginn koma þeir
til með að sjá alla sterkustu badminton-
leikmenn þjóðanna.
Þetta er fimmti landsleikur þessara
þjóða og hefur ísland unnið þá alla
hingað til.
í þessum landsleikjum er keppt um
forkunnarfagran bikar, sem gefinn cr
af Föroya Fiskasölu.
Undanfarin ár hefur aðeins verið
keppt i karlagreinum, vegna þess að
Færeyingar hafa ekki talið sig eiga
nægilega sterkt kvenfólk til að mæta
okkur. En nú hefur komið ósk frá þeim
um að bæta við kvennakeppni í þennan
landsleik og verður því keppt í 3 ein-
liðaleikjum karla, I einliðaleik kvenna,
2 tvíliðaleikjum karla og I tvenndar-
leik. Leikirnir verða því sjö í staðinn
fyrir fimm á undanförnum árum.
Fyrir ísland keppa eftirtaldir leik-
menn:
Einliðaleikur karla:
Jóhann Kjartansson
Sigfús Ægir Árnason
Broddi Kristjánsson.
Einliðaleikur kvenna:
Kristin Magnúsdóttir
Tvíliðaleikur karla:
Sigfús Ægir Árnason
Sigurður Kolbeinsson
Broddi Kristjánsson
Guðmundur Adolfsson
Tvcnndarleikur:
Jóhann Kjartansson
Kristín Berglind.
Fyrir Færeyjar keppa eftirfarandi
leikmenn:
Einliðaleikur karla:
Kári Nielsen
Stofnfundur íþrótlasambands Fatl-
aðra var haldinn 17. maí sl. að Hótel
Loftleiðum. Eftirtalin 12 héraðssam-
bönd stóðu að stofnun sambandsins:
íþróltabandalag Reykjavikur,
íþróttabandalag Akureyrar,
íþróttabandalag Kefiavikur,
iþróttabandalag Vestmannaeyja,
Ungmenna- og iþróttasamb. Austur-
lands,
Ungmenna- og íþrótlasamb. Ólafs-
fjarðar.
Héraðssambandið Skarphéðinn,
Íþróttabandalag Akraness,
Íþróttabandalag Siglufjarðar,
Héraðssamband Suður-Þingeyinga,
Íþróttabandalag tsafjarðar,
Héraðssamband V-ísfirðinga.
Gísli Halldórsson, forseti ÍSI stýrði
siofnfundinum og i setningarræðu
greindi hann frá tilkomu íþróltastarf-
semi fatlaðra hérlendis og aðdraganda
að stofnun sambandsins.
i 1. grein íþróttasambands fatlaðra
er tekið fram, að það sé æðsti aðili um
iþróttir fallaðra innan ÍSÍ og i 3. gr.
segir m.a., að það skuli vinna að efl-
ingu þeirra í hvívetna og koma fram er-
lendis i þvi sambandi. Lögin eru i ölluni
aðalatriðum samhljóða lögum annarra
sérsambanda innan ÍSÍ, sem nú eru
orðin 17 að lölu.
Starfsemi ÍSF verður þó miklu fiókn-
ari og víðtækari en annarra sérsam-
banda, þar sem starfsemi þess nær yfir
allar iþróltagreinar, sem fatlaðir iðka,
en þess utan er fötluðum skipt i niarg-
vislega flokka innbyrðis, allt eftir þvi
um hvers konar fötlun er að ræða. En
þegar i keppni er komiðer leitast við að
skapa sem jafnasta aðstöðu milli ein-
staklinganna og þá er höfð til hliðsjón-
ar fötlun viðkomandi iþróttamanns.
í fyrstu stjórn Íþróttasambands fatl-
aðra voru kjörin: Sigurður Magnússon
skrifstofustj., formaður, Páll B.
Helgason, orku- og endurhæfinga-
læknir, Hörður Barðdal, endurskoð-
andi, Sigriður Nielsdóttir iþróttakenn-
ari, Ólafur Þ. Jónsson nuddmaður.
Endurskoðcndur sambandsins voru
kjörnir Trausti Sigurlaugsson og
Þórður Þorkelsson.
Auövitaö
Benidorm
o
//
u< beint leiguflug
reroamiosfoöiri nf> aðalstræto—sími28
28133
Seljum farseöla
um allan heim
á lægsta veröi.