Dagblaðið - 18.08.1979, Blaðsíða 2

Dagblaðið - 18.08.1979, Blaðsíða 2
í Hver er „sölu- maður dauðans?” Jónmundur Kjartansson, Bolungar- vík, hringdi: 1 Vikunni, 31. tbl. 1979, er birt við- tal við „sölumann dauðans”, mann sem sagður er selja fíkniefni í Reykja- vík. Er ekki lögbrot að hylma yfir með glæpamanni? Er ekki athugandi fyrir yfirvöld að fara ofan i málið og kanna það? ,,Er ekki lögbrot að hylma yfir með sölumanni fíkniefna?” Myndin sýnir maríjúana-reykingamann. Raddir lesenda Stýrimaðurinn var á vakt: „HRING FOR HÚN EKKr Erlingur Halldórsson, stýrimaður á mb. Lárusi Sveinssyni, hringdi: Ég vil gera athugasemd við frétt i DB 10. ágúst, sem höfð er eftir Hálf- dáni Kristjánssyni, sjómanni á Flat- eyri. Hún var þess efnis að litlu hafi munað að trilla Hálfdáns hefði verið sigld niður af mb. Lárusi Sveinssyni. Þar sem ég var á vakt aðfaranótt II. júli, þegar umrætt atvik átti sér stað, vil ég taka fram að rangt er að enginn hafi verið í brúnni. Þar var ég á vakt. Hitt er annað, Hálfdán, að ég sá þig ekki fyrr en togarinn var kom- Hirsihmann Utvarps-od ( sjónvarpsloltnet fyrir litsjónvarpsteeki,- magnarakerfi og tilheyrandi' loftnetsefni. Odýr loftnet og gód. f Aratuga reynsla Hcildsala Smásala. Sendum l póstkröfu. Radíóvirkinn Týsgötu 1 - Simi 10450 inn mjög nálægt trillunni þinni. Þá hægði ég á og fylgdist með trillunni aftur með stjórnborðssiðu togarans. Ekki sá ég að skakrúllur eða mastur snertu togarann. Þú talar um að trill- an hafi snúizt til, en hring fór hún ekki. Eftir smástund sá ég að þú settir á ferð i norðausturátt. Það er með ólikindum hve trillur sjást oft illa og þarf að sjálfsögðu að vera vel á verði. Lipur af greiðslumaður: Bjargaði verzló fyr- ir Patreks- firðingi Pafreksfirðingur hringdi: Bílaumboðin eru oft skömmuð fyrir lélega þjónustu. Ég get nefnt dæmi um góða þjónustu og vil þakka hana. Ég á Cortinu. Fyrir verzlunar- mannahelgi pantaði ég varahlut í hana frá Fordumboðinu í Skeifunni. Afgreiðslumaður sendinga út á land fór með hann á Vöruflutningamið- stöðina. Ég komst síðan að því að ekki yrði bílferð hingað frá Reykja- vík fyrr en eftir helgi og hringdi í um- boðið hálftima áður en flugvél til Patró átti að leggja af stað. Af- greiðslumaðurinn brá við og fór strax með hlutinn út á völl. Bíllinn komst i lag og var notaður í ferðalag um Strandirnar. Þessi lipri og góði af- greiðslumaður bjargaði verzlunar- mannaheiglnni fyrir mér. DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 1979. „Benedikt Gröndal og Kjartan Jóhannsson eru slikir heiðursmenn að þeir láta kunningsskap við Norðmenn engin áhrif hafa á sig.” Hér eru þeir tvfmenningar á tali við Magnús Magnússon ráðherra. DB-mynd Bjarnleifur Dagblaðið ofgott tilaðtaka undir róg Þjóðviljans Guðmundur Jónsson, Æsufelli 2, skrifar: Hvernig væri fyrir Dagblaðið að athuga svona i ró og næði, hvort það hefur ekki gengið of langt i rógskrif- um um Benedikt Gröndal út af Jan Mayen-málin og tekið um of trúan- legan gauragang og froðufall Ólafs Ragnars Grímssonar, ásamt ótrúleg- ustu „lekum”. Og athuga hvort til- lögur utanríkisráðherra eru ekki ein- mitt betri en aðrar tilllögur sem fram hafa komið í málinu? Um norskt „kratagull” er ekki við- eigandi að ræða í þessu sambandi. Allir vita að þeir Benedikt Gröndal og Kjartan Jóhannsson eru slíkir heiðursmenn að þeir láta kunnings- skap við Norðmenn engin áhrif hafa ásig i þessum efnum. Dagblaðið er of gott blað til að vera að taka undir róg Þjóðviljans um ráðherra Alþýðuflokksins. Og því miður er ekki lengra síðan en i fyrra að Dagblaðið birti í ógáti upp- logna frétt um fjárstyrk frá Norður- löndum til handa Alþýðuflokknum. Þar á ég við hið fræga falsskeyti, sem varð að dómsmáli vegna þess að Dag- blaðið birti umrædda „frétt” án þess að kanna sannleiksgildi hennar. Sendum hjálpargögn til flóðasvæðanna í Bandaríkjunum Helgi skrifar: Þó islenzkum ráðamönnum sé orðið tamt að lítillækka sig, skríða fyrir bandariskum hermönnum og þakka fyrir sig, þá er sannleikurinn sá að bandarískur almenningur, er á annað borð veit að ísland og islen- dingar eru til, fréttir ekki slíkt og hugsar því með hlýjum hug og velvild til íslendinga. Trú þeirra, að á íslandi búi stoltir afkomendur víkinga, með erfðaeiginleika forfeðara sinna, stoltir og trúir þjóðerni sínu, leiðir af sér virðingu í garð íslendinga. Af þessum ástæðum hefur það oft komið í ljós að Bandaríkjamenn hafa komið rausnarlega fram og sem sann- ir vinir íslendinga bæði hér á landi og erlendis. Síðustu „stórverk” íslenzkra stjórnmálamanna í þjóðernismálum íslendinga verða tæplega til að efia álit á islenzku þjóðinni. En vera má að það verði minnstur skaðinn af þeim bleyðulegu myrkraverkum. Nú sem oftar hafa Bandaríkin orðið fyrir mjög sterkum hverfilvind- um og rigningum, svo að stór land- svæði liggja undir vatni. Fólk hefur þurft að flýja heimili sín í hundruða þúsunda tali. Mikið af þessu fólki er það fátækasta sem fyrirfinnst í Bandaríkjunum, svo að varla var á þess vandamál bætandi. Nú geta ís- lendingar sýnt hvað i þeim býr, þegar þeir sem hafa verið rausnarlegir við þá eru í vanda. Flytjum ekki kyn- þáttavandamál til íslands en sýnum vinum okkar drengskap. Sendum matvæli, klæðnað, sérfræðinga, lækna og peninga til neyðarsvæða Bandaríkjanna. Ein raunhæf leið væri t.d. að ís- lenzka stjórnin semdi við Coldwater og Sambandið um að setja upp bráðabirgða „Fish and chips” staði á neyðarsvæðunum og gæfi eða seldi á mjög lágu verði þennan vinsæla fisk- rétt. Ég er ekki að tala um að leysa ein- hver stórvandamál á kostnað fram- tíðarkynslóðar íslendinga. En hér er eitt tækifærið til að ganga uppréttir með reisn og sýna vinum vorum rausn. Hver ræður í Torff umálinu? RciAur húsfriðunarsinni hringdi: Er Ragnar Arnalds að hafa okkur húsfriðunarmenn að fíflum með yfir- lýsingu sinni á dögunum, eða hefur Bernhöftstorfan verið friðuð í raun? Ég skildi yfirlýsingu ráðherrans á þann veg að héðan í frá yrði haldið verndarhendi yfir Torfunni. Svo hefur vafalaust verið um fieiri, þar á meðal formann Torfusamtakanna. En svo ryðst Óli Jó fram á völl og dæmir yfirlýsingu Ragnars mark- lausa! Forsætisráðherrann segir að Ragnar Arnalds eigi bókstaflega ekk- ert með að ráðskast með Torfumálið. Það heyri undir sitt embætt. Enn segir Óli að ef af endurbyggingu Bernhöftstorfu verði, þá skuli hún notuð undir skrifræðisbákn stjórnar- ráðsins! Mér þykir nóg komið af ráðherra- karpi um Jan Mayen og fieiri stór- mál, þó ekki bætist Bernhöftstorfan við. Ríkisstjórnin verður að leggja spilin á borðið: Hvaða ráðherra hefur vald til þess að láta endur- byggja eða rífa niður Bernhöfts- torfu? Og hver er afstaða ráðherr- anna til málsins? „Rikisstjórnin veröur að leggja spilin á borðið: Hvaða ráðherra hefur vald dl þess að láta endurbyggja eða rífa niöur Bernhöftstorfu?” DB-mynd Hörður

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.