Dagblaðið - 18.08.1979, Blaðsíða 13
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 1979.
Í
Iþróttir
Iþróttir
13
Iþróttir
Iþróttir
I
Enski boltinn rúll-
arafstaðáný
—meistarar Liverpool eiga þó f rí í fyrstu umf erð
Enski boltinn byrjar að rúlla í dag á
nýjan leik eftir rúmlega þriggja mán-
aða hlé og það eru vafalítið margir hér
heima á Fróni sem dusta rykið af gamla
útvarpstækinu og fara að leggja við
hlustir á laugardagseftirmiðdögum en
laugardagamir i BBC eru undirlagðir
af iþróttaviðburðum og skipar knatt-
spyman, sem þjóðariþrótt Breta, veg-
iegan sess. Miklar hreyfmgar hafa
orðið á leikmönnum hjá mörgum 1.
deildarfélaganna og hér á eftir er
ætlunin að fara yfir hvert einstakt lið
og segja frá kaupum og sölum á leik-x
mönnum.
Arsenal
Arsenal hefur aðeins keypt John
Hollins frá QPR á 75.000pund og þótti
mörgum það undarleg kaup. Félagið
reyndi mjög að fá Johann Neeskens til
sín en það tókst ekki og hann hélt til
móts við dollaraflóðið í Bandaríkjun-
um og gerðist leikmaður með New
York Cosmos. Arsenal hefur engan
leikmann selt svo vitað sé frá síðasta
keppnistimabili, en Malcolm
McDonald mun ekki klæðast búningi
félagsins aftur, þar sem hann meiddist
illa í æfingaleik í Þýzkalandi og er
hættur fótbolta.
Aston Villa
Villa hefur keypt Bob Morley frá
Burnley fyrir 200.000 pund og selt þá
John Gregory til Brighton fyrir 300.000
pund og Tommy Craig til Swansea fyrir
150.000 pund. Aðrar breytingar hafa
ekki orðið hjá Villa en allar líkur eru á
að tvær skærustu stjörnur félagsins,
Andy Gray og John Gidman, yfirgefi
það á næstu vikum. Báðir vilja þeir
fara frá félaginu og einkum og sér í lagi
eru mörg lið á höttunum eftir Gray,
sem metinn er á 1 milljón sterlings-
punda.
Nottingham Forest hefur verið eins
og grár köttur á eftir honum og þeir
félagar, Brian Clough og Peter Taylor,
sem þar ráða ríkjum, eru reiðubúnir til
að láta Tony Woodcock og Gary
Birtles í skiptum fyrir kappann auk
peningaupphæðar. önnur félög er sýnt
hafa Gray áhuga eru Liverpool, Ever-
ton og Arsenal en Tottenham vill fá
Gidman í sínar raðir. Ef að líkum lætur
munu þeir báðir fara innan fárra vikna.
m
Bolton Wanderers
Ian Greaves hefur ekki gert miklar
breytingar á liði sínu. Hann hefur þó
keypt þá Len Cantello frá WBA fyrir
350.000 pund og Dave Clement frá
QPR fyrir 100.000 pund. Félagið hefur
engan leikmann selt og hætt er við að
tímabilið verði erfitt fyrir þá.
Bristol City
Alan Dicks, sem hefur setið lengur
við stjórnvölinn hjá félagi sínu en
nokkur annar framkvæmdastjóri í 1.‘
deild, treystir einnig á gamla hópinn að
mestu. Hann hefur þó keypt Frank
Fitzpatrick frá St. Mirren fyrir 300.000
pund og finnska landsliðsmanninn
Mikkala Junntainen. Gary Collier fór
frá félaginu til Coventry fyrir 200.000
pund og „gömlu” mennirnir Norman
Hunter og Terry Cooper eru báðir
farnir. Hunter gerðist leikmaður hjá
Bamsley, sem er undir stjórn fyrrum
félaga hans Allan Clark og Cooper
verður player/coach (leikmaður og
þjálfari) hjá Bristol Rovers.
Brighton
Alan Mullery hefur náð mjög góðum
árangri með lið sitt og hann hefur
styrkt annars sterkan hóp með þeim
John Gregory frá Villa og Colin Foster
frá Portsmouth, sem hann keypti á
150.000 pund í sumar. Félagið hefur
engan leikmann selt en Peter Ward
hefur lýst yfir miklum áhuga á að fara.
Coventry City
Coventry hefur keypt Collier frá
Bristol C og Gary Jones frá Everton á
250.000 pund og í fyrradag seldu þeir
Terry Yorath til Tottenham fyrir
300.000 pund, sem er ærið mikill pen-
ingur fyrir svo gamlan leikmann.
Crystal Palace
Palace hefur keypt þá Gerry Francis
frá QPR á 450.000 pund og Mike
Flanagan frá Charlton á 650.000 pund.
Einn leikmann hafa þeir selt og var það
piltur nokkur sem fór til Manchester
City fyrir 300.000 pund. Sá heitir
David McKenzie og hefur aldrei leikið í
aðalliði Palace hvað þá meira og er þar
að auki kornungur.
Derby County
Derby, eða „Hagkaup” eins og liðið
var gjarnan nefnt í fyrra vegna sífelldra
kaupa og sala á leikmönnum, hefur
haft ótrúlega hljótt um sig í sumar enda
er framkvæmdastjórinn, Tommy
Docherty, farinn til QPR og byrjaður
að ausa út peningum þar.
Everton keypti Ian Bailey frá Black-
burn fyrir 250.000 pund og seldi Martin
Dobson til Bumley fyrir smáupphæð.
Mikil ólga er nú hjá félaginu og þeir
Dave Thomas og Bob Latchford vilja
báðir fara frá félaginu hvað svo sem úr
verður. Þeir hafa verið uppsprettan að
mörkum liðsins sl. keppnistímabil svo
ekki er gott að spá um gengi liðsins fari
þeir frá því.
• IPSWICH ■
IpswichTown
Þarna hefur engin hreyfing orðið
nema hvað Trevor Whymark var seldur
til Norwich fyrir skitin 25.000 pund og
þykir það útsöluprís fyrir þennan
ágæta leikmann. Lengi vel leit út fyrir
að framkvæmdastjórinn, Bobby Rob-
son, færi til Spánar og gerðist stjóri hjá
Atletico Bilbao en það datt upp fyrir á
síðustu stundu. Ipswich var Iengi á
höttunum eftír Wilkins en hafði engin
efni á að kaupa hann.
Leeds United
Leeds keypti strax í vor Alan Curtis
frá Swansea fyrir 400.000 pund og
einnig hafa þeir selt Tony Currie til
QPR fyrir sömu upphæð. Franlde
Gray fór til Forest, enn fyrir sömu upp-
hæð, en Leeds ætti að verða mjög
sterktívetur.
Liverpool
Liverpool hefur bezta félagsliði
Evrópu á að skipa en engu að síður
hafa tveir menn bætzt í hópinn. Liver-
pool keypti Frank McGarvey frá St.
Mirren fyrir 300.000 pund og áður Abi
Cohen frá Maccabi, Tel Aviv, fyrir
200.000 pund og þóttu það nokkuð
undarleg k'aup. Enginn vafi leikur á að
Liverpool verður það lið sem allir verða
að sigra i vetur til að ná árangri, en að
vanda verður það erfitt.
Manchester City
Hjá City hefur orðið alger hreinsun á
vegum þeirra Book og AUison og þykir
mörgum breytingar þeirra ganga geð-
veiki næst, enda er City spáð afleitu
gengi í vetur. Þeir hafa selt Asa Hart-
ford til Forest fyrir 500.000 pund,
Peter Barnes til WBA fyrir 650.000
pund og Gary Owen til sama félags
fyrir 450.000 pund. f stað þessara hafa
þeir svo keypt Mick Robinson frá
Preston fyrir 750.000 pund og unga
strákinn frá Palace, David McKenzie,
fyrir 300.000 pund. Ef þetta dæmi
gengur upp hjá City eru þeir félagar
Allison og Book hreinir töframenn.
Auk þessara breytinga hefur City mik-
inn áhuga á að ná í Steve Daly frá Úlf-
unum og hefur félagið boðið þá Mick
Channon og Colin Viljoen í skiptum
fyrir hann auk hárrar peningaupp-
hæðar.
Manchester United
Þarna hafa orðið dálitlar breytingar
(og þær að sjálfsögðu helztar að Man-
chester United keypti Ray Wllkins fyrir
825.000 pund frá Chelsea fyrr í vik-
unni. United hefur selt þá Stuart
Pearson til West Ham fyrir 200.000
pund og David McCreery til QPR fyrir
200.000 pund einnig og lét Tommy
Docherty hafa eftir sér eftir þau kaup
að hann hefði aldrei gert betri kaup í
nokkrum manni. Þá eru einnig allar
líkur á að Brian Greenhoff fari til West
Ham.
Middlesbrough
Undir lok síðasta keppnistímabils
keypti Boro Bosco Jankowich frá
Júgóslavíu fyrir 100.000 pund og fyrir
skömmu festi félagið kaup á Irving
Nattrass, fyrrum fyrirliða Newcastle,
fyrir 200.000 pund.
NQRWICHCITVFC
IMorwich City
Norwich hefur keypt tvo leikmenn í
sumar, þá John McDowell frá West
Ham fyrir 100.000 pund og Trevor
Whymark frá Ipswich fyrir fjórðung
ftay Wilkins mun leika með Manchester United gegn Southampton á „The Dell” i
dag, en félagið keypti hann frá Chelsea i vikunni fyrir 825.000 sterlingspund. Wilkins
er hér f ensku landsliðspeysunni en hann hefur klæðzt henni reglulega sl. ár og I sumar
sýndi hann mjög góðan leik með enska landsliðinu.
þeirrar upphæðar. Félagið hefur engan
selt enda ekki um auðugan garð að
gresja og í raun merkilegt hvað John
Bond hefur náð langt með þann mann-
skap, sem hann hefur yfir að ráða.
Q
Nottingham Forest
Forest hefur heldur betur styrkt lið
sitt frá í fyrra og greinilegt er að nú er
ætlunin að krækja í titilinn á nýjan leik
en hætt er við að Liverpool sleppi
honum ekki svo auðveldlega. Forest
hefur keypt þá Asa Hartford frá City á
500.000 pund og Frankie Gray frá
Leeds á 400.000 pund. Fyrir skömmu
seldi Forest Archie Gemmill til Birm-
ingham fyrir 150.000 pund. Þá hefur
Frank Qark lagt skóna á hilluna og
gerzt aðstoðarframkvæmdastjóri hjá
Sunderland. Ennfremur fór Chris
Woods til QPR fyrir 200.000 pund.
Southampton
Þetta er eitt þeirra fáu félaga þar sem
engar breytingar hafa verið gerðar á
mannskap, en e.t.v. fer Alan Ball frá
félaginu vegna kaupdeilna. Lawrie
McMenemy framkvæmdastjóri veit
sínu viti og hann þekkir sína menn vel
og treystir þeim greinlega i hinni hörðu
1. deildarbaráttu.
Ulp
Stoke City
Stoke hefur keypt hollenzka ungl-
ingalandsliðsmanninn Ursem frá AZ
’67 fyrir 80.000 pund svo og Roy Evans
frá Fulham fyrir 100.000 pund. Þá eru
allar líkur á að Alan Dodd hverfi frá
félaginu til Birmingham eða West Ham
en hann hefur ekki viljað ganga að
kaupsamningum Stoke og vill meiri
peninga. Annars er Stoke liklegt til að
lenda ibasli í vetur.
Tottenham Hotspur
Eina hreyfingin hjá Spurs eru kaupin
á Terry Yorath frá Coventry á 300.000
pund en heldur þykir okkur ólíklegt
annað en að vörnin verði áfram í sama
baslinu þrátt fyrir tilkomu hans og
meira til ef loka á þeim hrikalegu
götum er þar mynduðust oft í fyrra.
WBA
Albion hefur nælt í þá Barnes og
Owen frá City og eru það mjög góð
kaup en í staðinn seldi félagið Laurie
Cunningham til Real Madrid fyrir
900.000 pund. Þá hefur Albion einnig
fest kaup á júgóslavneska landsliðs-
markverðinum Ivan Katalinick fyrir
200.000 pund. Len Cantello fór svo til
Bolton eins og getið er um áður. Albion
mætir sterkt til leiks i vetur og bíða
menn spenntir eftir að sjá hvemig þeir
City-félagar falla inn í liðið.
Wolves
Úlfarnir hafa aðeins keypt Emlyn
Hughes frá Liverpool fyrir 100.000
pund og er það eina breytingin í þeirra
herbúðum frá i fyrra. Allt þykir þó
benda til þess að Steve Daley yfirgefi
félagið áður en langt um liður og fer þá
helzta driffjöður liðsins.
-SE/SSv.