Dagblaðið - 18.08.1979, Side 8

Dagblaðið - 18.08.1979, Side 8
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 1979. Krossgáta 5 'S s ! </) , 3 ;c2 </> ho J N 4 .0 4 4) 4 P» 4 CC 4 K o: Uí “N ffc uc 4 • <4 tv V • 4 4 4 -0 4 k ■\ 4 4) N A 4 4 tt 4 4 Uj 4 4 o: > CC o: 4 0 4 o: (4 0 0 4 4 0 £ q: <4 • V- (4 4 4 CD o: <4 K •v. & 4 4 cc 4 $ s: -í \ a \ 4) 4 4 K 4 K 0 CV 4 4 • Uj U u. 4 4 A 4: öí o: S kA -4 QC A 4 .0 4 $ 4 -4 VW CU 4 4 4 K o: (v UD tu vO 4 5C 4 4 CC 4 cn • a 4 £ ar 4 4 u: 4 4) 4 • VD ;o > a: ö 4 £ •'O K K 0 4 4 $ Uj 4 4 4 4 -O A 4 4 K '0 X q: K 4 > K 4 CQ cc 4 4 4 4) 4 4 4 o: 4 k K 4 4 <4 Hús Árna Thorlacius er rúmlega 150 úra gamalt, reist árið 1828. DB-myndir Árni Páll. Hús Árna Thorlacius íStykkishólmi: ELZTA HÚS BipJARINS RAÐHUS? Líkur eru á að elzta hús Stykkis- hólms muni í framtíðinni gegna hlut- verki nokkurs konar ráðhúss bæjar- ins og að þar fari fram hátíðlegri fundir og móttaka tiginna gesta er sækjabæinn heim. Það hús sem hér um ræðir er frá árinu 1828. Árni Thorlacius, sem nefndur hefur verið faðir Stykkis- hólms, lét á sínum tima sækja húsið á sínu eigin skipi til Björgvinar, og er það fyrsta tvílyfta einbýlishúsið á fs- landi á seinni öldum. Það er af mjög sérstakri norskri stílgerð og þykir meðal annars merkilegt af þeim sök- um. Það var byggðasafnsnefnd Snæ- fellsnessýslu sem keypti þetta hús og ákvað að það skyldi gert upp. Hún fékk síðan Þjóðminjasafn og húsfrið- unarnefnd til liðs við sig og var Hörður Ágústsson listmálari beðinn að hafa eftirlit með „endurgerving- unni” sem hann nefnir svo. Húsið var sett í upprunalegt horf að utan á árunum 1973—’74 en siðan varð hlé á framkvæmdum vegna fjár- skorts. f fyrra var hafizt handa á nýj- an leik og unnið að viðgerðum á lofti og 1. hæð. Lárus Pétursson smiður í Stykkishólmi vinnur að þessum við- gerðum undir umsjá Ágústs Bjart- mars, fulltrúa byggðasafnsnefndar. Árni Thorlacius var mikill athafna- maður í Stykkishólmi á fyrri hluta 19. aldar og er af mörgum talinn einn af merkilegri mönnum þeirrar aldar. Hann hóf til dæmis veðurathuganir og var mikill stuðningsmaður Jóns Sigurðssonar forseta og Sigurði Breiðfjörð skáldi einnig mjög innan handar. Þarna er verið að setja í uppruna- legt horf einstaklega glæsilegt heimili Dyraumbúnaður hússins hefur verið endurnýjaður eftir teikningu frá Herði Ágústssyni. 1 dyrunum stendur Lárus Pétursson smiður, sem hefur unnið að þessu verki. íslenzks höfðingja og kaupmanns á fyrri hluta 19. aldar. Húsið er friðað af húsfriðunar- nefnd og Snæfellingar ætla að gera það að byggðasafni auk þess sem þeir gera sér vonir um að það geti gegnt því hlutverki sem að ofan greinir. Húsvörður yrði í húsinu og kæmi til greina að hafa litla verzlun niðri. Hvenær af þessu getur orðið ræðst mjög af fjármagni en sem stendur er unnið af fullum krafti við „endur- gervinguna”. -GAJ STALU 5 KÖSSUM AF SÓLGLERAUGUM Óboðnir gestir komu í heimsókn í Verzlunina Þverholt í Mosfellssveit í fyrrinótt og fóru inn um glugga yfir hurð. Inni tæmdu þeir tóbakshillur og stálu einnig ótal kveikjurum. Tals- verður skammtur sælgætis var líka hafðurábrott. Á vörulager á bakvið stálu þeir fimm kössum af sólgleraugum af nýjustu gerð, svo peyjarnir ættu ekki að blind- ast af sól á næstunni. - ASt. Eltir af innbrotsstad Tveir ungir menn voru eltir frá Bíla- partasölunni í Höfðatúni í fyrrinótt og þeim stungið í fangageymslu fyrir mis- heppnað innbrot og þjófnað. Ibúi i grenndinni horfði á þá hefja atlögu að glugga Bílapartasölunnar. Gerði hann viðvart og voru þá peyjarnir komnir inn í húsið og höfðu þar brotið upp hurð. Þá urðu þeir varir lögreglunnar og hlupu á brott, en náðust fljótt. Þeir voru teknir til yfirheyrslu í gærmorgun. - ASt.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.