Dagblaðið - 25.02.1980, Page 2
2
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 25. FEBRÚAR 1980.
VÉLAVERKSTÆÐI
Egils Vilhjálmssonar H/F
SMIÐJUVEGI9 A - KÓP. - SÍMI444451
• Endurbyggjum vélar • Borumblokkir • Plönum blokkir og head • Málmfyllum sveifarása, tjakköxla og aðra slitfleti m/ryðfríu harðstáli • Rennum ventla og ventilsæti. • Slípum sveifarása. SÍMl! 44445
L FULLKOMIÐ MÓTOR OG RENIMIVERKSTÆÐI ^
HEVÍ/LETT hp PACKARD
HEWLETT-PACKARD-einkaumboö 6 íslandi
STÁLTÆKI
Slakur árangur íslendinganna á ólympíuleikunum:
ff
A f hverju ekki
að líta hlutina í
réttu Ijósi?”
SkiðaáhugamaAur skrifar:
Vetrarólympiuleikarnir í Lake
Placid hafa mjög verið til umræðu
hjá fólki að undanförnu af einni eða
annarri ástæðu. Sem kunnugt er
sendu íslendingar 6 keppendur á
þessa. vetrarólympíuleika og það
verður að segjast hreint eins og er að
árangurinn hefur verið afar slakur
hvernig sem á er litið.
Hörmungarnar hófust í 30 km
göngunni. Þar gáfust tveir þriggja
göngumannanna upp á miðri leið en
sá þriðji komst í mark við illan leik.
Eftir keppnina báru þeir fyrir sig að
það hefði verið svo erfitt að ganga
vegna þess að það snjóaði ofan í
gervisnjóinn í brautunum. Skyidi það
hafa verið eitthvað auðveldara fyrir
alla hina keppendurna? Ég bara spyr.
Næst kepptu þessir göngumenn
okkar i 15 km göngu. Þeir urðu nr.
47, 48 og 51 af rúmlega 60 þátttak-
endum er luku göngunni. Bravó,
bravó, þeir komust þó a.m.k. aila
leið í mark!
Þá var komið að þætti Sigurðar
Jónssonar i stórsviginu. Hann
hafnaði i 35. sæti og allir voru himin-
lifandi. En með hvað voru menn
svona ánægðir? Sigurður lýsti því
sjálfur yfir í einu dagblaðanna að sér
hefði farið aftur frá því á siðustu
ólympiuleikum — a.m.k. hefði
honum ekkert farið frant.
Rúsínan í pylsuendanum var siðan
frammistaða Steinunnar Sæmunds-
Steinunn Sæmundsdúttir, ein af fslenzku keppendunum f Lake Placid.
dóttur í stórsviginu. Hún hafnaði í
29. sæti af þeim 41 er luku keppni, en
litið á timann! Hún var tæpum 18
sekúndum á eftir þeirri er kom fyrst í
mark. Það samsvarar því að vera um
3 hringjum á eftir fyrsta manni í
mark í 10.000 metra hlaupi ogenginn
væri ánægður með slikt. Hvernig er
þá hægt að vera ánægður með ár-
angur þessa fólks þarna úti? Af
hverju ekki að líta hlutina i réttu
Ijósi?
Svívirðing í garð UÍA:
„Látum ekki troða
okkur ofan í svaðið"
— segir einn af forráðamönnum f élagsins
Pétur Kiðsson, Borgarfirði eyslra,
skrifar:
Það er vel þess virði að vekja at-
hygli iþróttaunnendá á bréfi sent
birzt hefur i blöðunt fra Hcrmanni
Nielssyni, formanni UÍA.
Þar er vikið að þeirri aðför sem
Iþróttabandalag Reykjavíkur hefur
haft í frantmi gegn UÍA. Bandalagið
eða a.m.k. eitt félag innan þess,
hefur meinað UÍA afnot af frjáls-
íþróttastöðinni i Baldurshaga.
Afleiðingarnar eru að konia í Ijós
og megum við UÍA menn jafnvel bú-
ast við að missa á næstunni eitthvað
af okkar bezta frjálsíþróttafólki til
annarra félaga.
Þó hafa þau Pétur Pétursson,
Stefán Friðleifsson og Guðrún
Sveinsdóttir ekki ennþá yfirgefið
okkur enda hefur þetta fólk ákaflega
sterkan félagsanda. Það er legið stift í
þessu fólki að ganga í önnur félög,
bæði Reykjavíkurfélög og fleiri.
KA er að verða landsþekkt fyrir
snap á iþróttafólki frá öðrum félög-
um. Á síðastliðnu ári náðu þeir KA-
menn a.m.k. fimm manns i sínar
raðir og í ár virðist stefnan ætla að
verða svipuð á þeim vígstöðvum.
Margir hafa sagt, að slíkum
félögum væri nær að snúa sér að
eigin unglingastarfi. Við UÍA menn
getum geftð þessum félögum góðar
leiðbeiningar unt, hvernig standa
skuli að slíku starfi, því UÍA hefur
um þessar mundir á að skipa bezta
barna- og unglingaliði í frjálsum
íþróttum á íslandi.
Ég vek athygli á því að lokum að
við UÍA rnenn látum ekki troða
okkur ofan i svaðið eins og hugmynd
ýmissa virðist stefna að.
Keppni 1800 metra hlaupi sumarið 1978. Fremstur fer Stefán Hallgrimsson, þjálf-
ari UÍA. Að baki honum er Steindór Tryggvason, UÍA, sem síöar hefur gengið
yftríKA.