Dagblaðið - 25.02.1980, Síða 16
16
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 25. FEBRÚAR 1980.
Iþróttir
LAKEPIACID
A-Þjóðverjar
sterkastir
— Í4ra manna
bobsleðakeppni
A-svcií A-Þjóðverja bar sigur úr býl-
urin í fjögurra manna bobsleöakeppn-
inni í I.ake Placid, en keppninni lauk í
gær. A-Þjóðverjarnir undir sljórn
Meinhard Nehmer náðu beztu
tímunum í öllum umferðunum aöeinni
undanskilinni og sigur þeirra var mjög
öruggur. Alls eru farnar fjórar ferðir
og þýzka sveilin kom inn á samtals 3
min. 59,92 sek. Meinhard þessi Nehmcr
var einnig í sigursveit A-Þjóðverja í
Innsbruck 1976 og varð fyrsti maður-
inn til að vinna tvö 4-manna
boðbsleðagull í röð. Röð efslu sveila
varð þessi:
A-Þjóðv., A-sveit,
Sviss, A-sveit,
A-Þjóðv., B-sveil,
Austurríki, A-sveit,
Austurríki, B-sveit,
Sviss, B-sveit,
3:59,92 mín.
4:00,87
4:00,97
4:02,62
4:02,95
4:03,69
Pétri tókst
ekki að skora
„Mér tókst ekki að skora neitt þess-
ara marka okkar — fékk knöllinn lítið
og er langt í frá ánægður með minn
hlut í leiknum,” sagi Pétur Pétursson
er DB sló á þráðinn til hans í gærkvöld.
Feyenoord sigraði Sparta 4—0 í hol-
lenzku úrvalsdeildinni og dró aðeins á
Ajax, sem gerði jafntefli við AZ ’67.
„Tvö þessara marka okkar voru sjálfs-
mörk og það ekki af lakara taginu.
Þrumuskot í eigið net. Bennie Wijn-
steekers skoraði annað markið og Jan
Peters hitl af okkar hálfu,, en þetta
Sparta-lið er nú fallið stórvcldi. Nær
uppselt var þó á leikinn eins og oftast
þegar þessi Rotterdam-lið leika
saman.”
Úrslit i Hollandi urðu þessi í gær:
Deventer — Arnhem
NAC Breda — Haarlem
Ajax — AZ ’67
Excelsior — Utrecht
Sparta — Feyenoord
Den Haag — Roda
Maastricht — Twente
PSV — PEC Zwolle
NEC Nijmegen — Tilburg
Staðan eftir þessa umferð
þessi:
Ajax
AZ '67
F'eyenoord
Utrecht
Roda
PSV
Tilburg
Twente
Den Haag
Excelsior
Deventer
PFX' Zwolle
Maastricht
Haarlem
Arnhem
Sparta
NAC Breda
22 12
23 10
23 12
23 9
3 43—19 31
6 35—27 27
8 35—28 27
7 40—27 25
7 33—42 24
8 28—29 23
8 28—29 23
8 38—41 23
10 35—30 22
9 23—28 19
9 27—37 19
11 29—45 17
11 28—46 17
NEC Nijmegen 23
14 32—47
13 15—36
16 21—42
Ekkert var leikið i belgísku deilda-
keppninni um helgina þar sem bikar-
keppnin var á dagskrá. Reuter-frétta-
stofan hefur ekki ómakað sig til þessa
og birt úrslit úr bikarleikjunum en við
vilum þó að Standard Liege, lið Ásgeirs
Sigurvinssonar, náði jafntefli á útivelli
gegn Anderlecht, 1—1„ Sá leikur fór
fram á laugardag. Liðin verða því að'
mætast að nýju á heimavelli Standard
og þá ættu sigurmöguleikar þeirra að
i góðir.
Iþróttir
Bþróttir
Iþróttir
„HEFÐIHELDUR VIUAB
NYIAN ÆFINGABUNING”
—sagði hinn fimmfaldi ólympfumeistari Eríc Heiden eftir stórkostlegan sigur
í10.000 metra skautahlaupinu
„Það getur vel verið að Carter for-
seti hafi hringt í mig en ég tók hins
vegar simann úr sambandi,” sagði Eric
Heiden við fréttamenn eftir að honum
hafði tekizt hið ótrúlega á vetrar-
ólympíuleikunum í Lake Placid.
Heiden sigraði með gífurlegum yfir-
burðum í 10.000 metra skautahlaupinu
og setti nýtt glæsilegt heimsmet á vega-
lengdinni. Þar með hafði hann sigrað í
öllum skautahlaupunum í Lake Placid
— hlotið fimm gullverðlaun. Nokkuð,
sem aldrei hefur gerzt fyrr á ólympíu-
leikum. „Það er slæmt að einhverjir
menn skuli hafa ákveðið að Bandaríkin
taki ekki þátt í ólympíuleikunum i
Moskvu,” sagði Heiden. „Stjórnmál
og íþróttir eiga enga samleið,” bætti
hann við.
„Mér er nokk sama um alla þessa
verðlaunapeninga. Það er frammistaða
mín hverju sinni sem er mér meira virði
og ég er ánægður ef ég veit að ég hef
gert mitt bezta,” sagði Heiden og lét
litið yfir sér eftir alla sigrana.
Frammistaða þessa 21 árs Banda-
ríkjamanns á vetrarólympiuleikunum
hefur verið hreint með ólíkindum. Í öll-
um hlaupunum hefur hann sigrað með
miklum yfirburðum en þó aldrei eins
og í 10.000 metra hlaupinu á laugar-
dag. Fyrir leikana var heimsmetið 14
mín. 34,33 sek. og það átti Sovét-
maðurinn Victor Leskin. Margir
Bandaríkjamenn gerðu sér vonir um að
Heiden tækist að hnekkja því en engan
óraði fyrir slíku afreki, sem raun bar
vitni.
Norðmaðurinn Tom Oxholm hljóp
fyrstur af stað — tveir og tveir hlaupa
saman — og hann kom í mark á mjög
góðum tíma, 14 mín. 36,30 sek. Það
var 7 sek. betra en hann átti bezt.
K
Eric Heiden vann fimm gullverðlaun á
ólympíuleikunum. Afrek sem enginn
annar getur státað af og víst er að hin
glæsilegu hlaup hans verða lengi í
minnum höfð — ekki hvað sízt á meðal
Bandaríkjamanna sjáifra, sem nú
dýrka þennan látlausa pilt.
Heimsmethafinn Leskin og Heiden
lentu saman í 6. riðli. Eftir 4000 metra
var Leskin 2 sek. á undan Heiden og á 4
sek. betri tíma en Oxholm. „Ég var
ekki viss um hvort ég ætti að reyna að
ná honum strax,” sagði Heiden, „svo
ég leit á þjálfara minn, Diane Holum.
Hún gaf mér merki um að taka þessu
rólega og hlaupa eins og mér væri eðlis-
lægt og þaðgerði ég.”
Aðeins fjórum hringjum síðar var
Heiden búinn að ná Leskin og eftir það
var aldrei nein spurning um hvor yrði
á undan heldur aðeins hve mikill
munurinn yrði. Heiden kom í mark á
nýju stórkostlegu heimsmeti en Leskin
varð hvorki meira né minna en 23 sek.
á eftir.
Röðefstu manna varð þessi:
14:28,13 min.
14:36,03
14:36,30
14:39,53
14:43,53
Eric Heiden, USA,
Piet Kleine, Hollandi,
Tom Oxholm, Noregi,
Michael Woods, USA,
Öyvind Tveter, Noregi
„Ég geri ráð fyrir að þessar gull-
medalíur mínar fari ofan í skúffu
heima hjá mömmu og rykfalli þar,”
sagði Heiden er hann var spurður hvar
hann geymdi öll sín verðlaun. „Ég
hefði miklu heldur viljað fá nýjan
æfingagalla.
„Ástæðan fyrir sigrum mínum hér í
Lake Placid er sú að ég hef verið reiðu-
búinn að leggja á mig miklar æfingar.
Ég er að eðlisfari sprettharður og það
kom mér til góða á skemmri vegalengd-
unum, en ég varð að æfa þrotlaust til
að ná árangri á þeim lengri. Þjálfari
minn, Diane Holum, á stóran þátt í
þessum sigrum mínum og án hennar
væri ég ekki merkilegur skautahlaup-
ari,” sagði Heiden.
Sigur yf ir Finnum og fyrstu 0L-
gull USA í íshokkí í 20 ár
- þrjú mörk í síðustu lotunni tryggðu Bandaríkjamönnum 4-2 sigur og ólympíugullið
Rúmlega 9000 áhorfendur ætluðu
bókstaflega að ærast af fögnuði er
Bandaríkjamenn sigruðu Finna 4—2 i
úrslitaleik ólympiuleikanna í íshokkí.
Bandaríkjamenn höfðu unnið ÓL-
gullið i fyrsta skipti i 20 ár og það sem
meira var, lagt höfuðóvininn, Sovét-
menn, að velli á leið sinni að titlinum.
Stórkostleg markvarzla Jim Craig, 22
ára gamals markvarðar Bandaríkja-
manna, var vafalilið stærsti hlekkurinn
í hinum sæta sigri þeirra. Hann varði
hvað eftir annað skot Finnanna af
stakri snilld og hinir 9000 áhorfendur
risu margsinnis úr sætum og klöppuðu
honum lof í lófa.
Bandaríkjamenn urðu að vinna sigur
í leiknum til að krækja í gullið. Fyrir
Hanni Wenzel
f sérf lokki
í svigi kvenna í Lake Placid
„Ég veit ekki hvort ég held áfram
skiðakeppni — kannski fer ég að eins
og Rosi Mittermaier. Hætti að keppa
og græði peninga á verðlaunum
mínum," sagði Hanni Wenzel,
Lichtenstein, eftir að hún vann yfir-
burðasigur í svigi kvenna i Lake Placid
á laugardag. Hin 23ja ára skiðadrottn-
ing, sem fædd er I Þýzkalandi, náði
bezlum tima i báðum umferðum og
vann sama afrek og Rosi Mittermaier i
Innsbruck fyrir fjórum árum. Hættu-
legustu keppinautar hennar, Anna-
Maria Moser Pröll, Austurriki, og
María-Theresa Nadig, Sviss, féllu í
keppninni á laugardag.
Keppendur voru 49 en aðeins 26
komust i mark eftir fyrri umferðina.
Meðal þeirra var Steinunn Sæmunds-
dóttir, sem keyrði brautina á 46.84 sek.
Það nægði í 19. sæti. Hins vegar féll
Steinunn í síðari umferðinni.
Tími Hanni Wenzel í fyrri umferð-
inni var 42.50 sek. og í þeirri síðari
keyrði hún á 42.59 sek. Hún var í
algjörum sérflokki — 1.41 sek. á undan
næsta keppenda.
Úrslit urðu annars þessi.
1. Hanni Wenzel, Lichtenst.,
2. C. Kinshofer, V-Þýzkaland,
3. Erika Hess, Sviss,
4. Maria-Rosa, Quario, Ítalíu,
5. Claudia Giordani, Ítalíu,
6. N. Patrakeyeva, Sovét,
Aðeins 19 stúlkur luku keppninni.
Það er nokkuð gaman að líta á neðstu
sætin. Nr. 16. Valentina Iliffe, Bret-
land, 1:38.56 min. 17. Jacui Cowderoy,
Ástralíu, 1:39.67 min. 18. Wang
Guizhen, Kína, 1:59.01 mín. og 19.
Faride Rahme, Líbanon, 2:28.48 mín.
25.09
26.50
27.89
27.92
29.12
29.20
tvo síðustu leikina, Bandaríkin gegn
Finnlandi og Sovétríkin gegn Svíþjóð,
höfðu Bandaríkjamenn 3 stig, Sovét-
menn og Sviar 2 hvor þjóð og Finnar 1
stig. Sá möguleiki var fyrir hendi að all-
ar þjóðirnar yrðu jafnar, en til þess
kom þó ekki.
Finnarnir voru greinilega á því að
gefa ekki þumlung eftir og Jukka
Povari náði forystunni fyrir þá um
miðja fyrstu lotuna. Hver lota er 20
mín. og eru leiknar þrjár slíkar. Banda-
ríkjamenn jöfnuðu metin með marki
Steve Christoff á 25. mín. en Finnarnir
náðu forystunni tveimur mín. siðar er
Mikko Leinonen skoraði. Staðan hélzt
óbreytt fram undir lok annarrar lotu en
sú þriðja var ekki búin að standa i
nema tvær mín. er Bandaríkjamenn
höfðu jafnað metin, 2—2. Eftir það gat
ekkert stöðvað þá og þeir bættu
tveimur mörkum við fyrir leikslok og
sigruðu 4—2. Ólympiugullið var i höfn
og fögnuður áhorfenda engu líkur.
Á sama tíma léku Sovétmenn sér að
Svíum eins og köttur að mús. Eftir
fyrstu lotuna var staðan orðin 4—0 og í
þeirri næstu bættu Sovétmennirnir
fimm mörkum við. Þeir voru því með
gjörunninn leik er þriðja lotan hófst og
þá leyfðu þeir sér að slaka á. Svíarnir
skoruðu tvívegis en öruggur sigur, 9—
2, var í höfn. Þessi glæsilegi sigur
dugði Sovétmönnunum þó ekki til
sigurs. Þeir urðu að láta sér nægja
silfrið að þessu sinni.
Lokastaðan i úrslitakeppninni varð
þessi:
Bandaríkin 3 2 10 10—7 5
Sovétríkin 3 2 0 1 16—8 4'
Svíþjóð 3 0 2 1 7—14 2
Finnland 3 0 12 7—111
I keppninni um 5. sætið sigruðu
Tékkar Kanadamenn með miklum yfir-
burðum, 6—1. Það voru þeir Statsny-
bræður, sem tryggðu sigurinn strax í
fyrstu lotu. Marian skoraði þá 3 mörk
og Anton 2, en þessir bræður hafa
vakiðgeysiathygli á leikunum.
Van Gool til
Coventry City
Coventry City festi um helgina kaup
á belgíska útherjanum Roger van Gool
frá þýzka liðinu Köln fyrir um 250.000
steriingspund. Van Gool hefur leikið
fjöldann allan af landsleikjum fyrir
Belga en hefur átt erfitt uppdráttar hjá
Köln að undanförnu. Þar eru tveir
útlendingar fyrir, Tony Woodcock og
Japaninn Okudera, og fleiri mega ekki
leika í einu.
KR vann
Grindavík
Af 4 fyrirhuguðum leikjum i 1. deild
kvenna i handknattleik um helgina fór
aðeins einn fram. KR sigraði Grindavik
23—6 I iþróttahúsinu i Njarðvík í
slökum leik. Þessi leikur hófst ekki fyrr
en kl. 16.30 i stað 13 og svo fór að
lokum að heimildarmaður DB á Suður-
nesjum missti af honum. Ekki í fyrsta
skipti sem tilfæringar með leiki skapa
vandræði. Þórsstúlkurnar komust ekki
suður og þvi varð að fresta báðum
leikjum þeirra. Leik Vals og Fram, var
frestað til 7. marz.