Dagblaðið - 25.02.1980, Qupperneq 20
Bókin virðist sögð í einlægni, þótt
hún sé ekki laus við að vera ruglings-
leg og viða stiklað mjög á stóru. En
það er áreiðanleganokkuðtil í orðum
kanadísku skáldkonunnar Gabríellu
Roy, að konum eins og Margaret
sem þora að segja sannleikann geti
orðið betur ágengt við að breyta á-
standinu í heiminum heldur en öllum
ríkisstjórnum.
Karlar leysa
vandamál, konur
fara í búðir
Margaret er ekki í þeim hópi, sem
tæta niður fyrrverandi maka sína á
prenti, sjálfum sér til fjárgróða og
öðrum til skemmtunar. Hún skrifar
uni hann sem sjarmerandi og
prýðilega menntaðan mann, ástríkan
föður og tryggan vin. En hann er
feiminn, segir hún, og svo tekur hann
gjarnan skynsemina fram yfir
tilfinningarnar. Hún segir að hann
hafi ævinlega hvatt hana til að vera
sjálfstæð, gera það sem hana sjálfa
Bók
mennfir
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 25. FEBRUAR 1980.
— en leiddist svo mikið að hún stakk af frá öllu saman
Hippastúlkan er varð
forsætisráðherrafrú
Pierre Trudeau var að vinna
kosningasigur í Kanada, en ekki naut
hann til þess stuðhings eiginkonu
sinnar. Hún yfirgaf hann og þrjá
unga syni þeirra fyrir nokkrum
misserum til að lifa sínu eigin lífi.
Siðan skrifaði hún bók um sjálfa sig,
sem hún kallar Beyond Reason, eða
þar sem skynsemin nær ekki til.
Bókin hlaut umtal sem hin
ómerkilegasta slúðurbók, sem aðal-
lega byggðist á upptalningu
konunnar á því, hverjir af þjóðar-
leiðtogum heimsins hefðu virkað
kynæsandi á hana i opinberum
veislum. Var mikið iinussað yfir
henni.
Verkaskipting
á hefðartindum...
En með því að Trudeau blómstrar
sv.o vel þessa daga dreif ég mig í að
lesa hana og er skemmst frá þvi að
segja að hún var talsvert öðruvisi en
ég bjóst við. Þarna eru engar krass-
andi kynlýsingar. Ólíkt
blaðafregnum er það djarfasta sem
fer milli hans og Margrétar Trudeau
(að minnsta kosti það sem sagt er frá)
að hann segir að það að horfa í sólina
sé ekkert hjá þvi að líta í bláu augun
hennar . . .
Hins vegar er bókin einkar fróðleg
um það hvernig eiginkonur valda-
mikilla stjórnmálamanna lifa, hún
segir mikið um hina ströngu verka-
skiptingu milli karls og konu þarna
uppi á hefðartindunum, og einnig
lýsir hún því, hvernig það er fyrir
unga og óreynda hippastúlku að gift-
ast manni þrjátíu árum eldri í
mikilvægri ábyrgðarstöðu.
langaði til. En líklega hafi honum
orðið á skyssa í sambandi þeirra,
þegar hann einangraði hana frá
stjórnmálastörfum sínum. Han'
draumur var að eiga heimili sem væri
einkaveröld, griðastaður. Þar átti
hún að una ánægð við sitt, en hann
aftur að eiga starfssvið, þar sem
heimsmálunum var ráðið til lykta.
Henni fannst sér vera stuggað burt
frá öllum stjórmálum. Aftur á móti
fékk hún að kaupa borðbúnað og
rúmfatnað fyrir opinberar byggingar
og henni tókst að innleiða aukna
smekkvísi í innkaupum kanadiska
ríkisins, t.d. hvað snerti gjafir til er-
lendra gesta.
Gullfiskur
í glerkeri
Annað atriði serti gerði henni
erfitt fyrir voru hin endalausu forms-
atriði. Þegar hún giftist gerði hún sér
enga grein fyrir hvað hún var að
ganga út i. Hún var tvítug, nýkomin
úr ævintýrareisu til Marokkó, þar
sem hún að hætti annarra amerískra
millistéttarbarna reyndi að losa sig úr
viðjum hinna farsælu hegðunar-
munstra meðalborgarans og lifa sem
síðhærður hassreykjandi hippi. Að
giftast forsætisráðherra Kanada var
of góður brandari til að segja
neitakk.
En við giftinguna lenti hún heldur
betur inrii í munstrinu aftur.
Siðareglur hins opinbera lífs lögðu
henni þungar skyldur á herðar. Augu
allrar kanadísku þjóðarinnar hvildu á
henni, „eins og ég væri gullfiskur í
glerkeri” og kröfðust þess að hún
fylgdi forskriftum um framkomu og
Margaret Trudeau ásamt sonum. sínum.
klæðaburð — en léti ekki eigin
tilfinningar ráða í þvi efni.
Þar að auki voru þau hjón
umkringd af lífvörðum nótt sem
nýtan dag.
Ekki gallalaus,
en einlæg
Margaret hegðar sér oft talsvert
barnalega, og viðurkennir það sjálf.
Ósjaldan flýr hún á náðir
hasspípunnar eða óraunsærra ástar-
drauma.
En hún hefur ekki glatað þeim
eiginleika sem því miður eldist af
okkur flestum: að sjá lífið eins og
það er en ekki eins og við eigum að
sjá það.
-IHH.
Menningarverðlaun DB:
Nefndir bíða atkvæða
Nú eru þegar farnir að berast at-
kvæðaseðlar vegna Menningarverð-
launa DB og nefndirnar fimm eru
sestar á rökstóla til að ræða verðleika
ýmissa þeirra sem nefndir hafa verið. I
nefndunum eru: Rannveig Ágústs-
dóttir, framkvæmdastjóri Rithöfunda-
sambands íslands, Ólafur Jónsson fil.
kand. og gagnrýnandi DB, Valdís
Óskarsdóttir rithöfundur, Aðalsteinn
Ingólfsson, ritstj. menningarmála á
DB, Hrafnhildur Schram listfræðing-
ur, Magnús Tómasson myndlistar-
maður, Helga Hjörvar, formaður
Bandalags íslenskra leikfélaga, Jón
Viðar Jónsson leikhúsfræðingur, Eyj-
ólfur Melsted, tónlistarfræðingur og
gagnrýnandi DB, Fjölnir Stefánsson,
tónskáld og skólastjóri, Gunnar Egil-
son klarinettuleikari, Gestur Ólafsson
arkitekt, Þorsteinn Jónsson, forstj.
Listaskála ASI, og Páll V. Bjarnason
arkitekt. Allt þetta sómafólk bíður nú
atkvæða lesenda DB með óþreyju, en
frestur til skila er til 5. mars. Sjálf verð-
launaveitingin fer fram að Hótel Holti
föstudaginn 14. mars. í DB á morgun
verður farið í heimsókn til Hauks Dór
sem vinnur nú að gerð sérstakra gripa
fyrir DB, en Ófeigur Björnsson gull-
smiður mun svo reka endahnútinn á
það verk með sérstökum áletruðum
festingum.
- Al
Sverrir Hólmarsson afhendir Stefáni
Baldurssyni viðurkenningu DB 1979
fyrir „sérlega vönduð vinnubrögð við
uppsetningu hefðbundinna verkefna og
frumkvæði að hópvinnu í leikhúsi”.
BÓKMENNTIR TÓNLIST
Höf: Tónlistarmaður/
Bók: menn:
Skýringar: Skýringar:
Nafnnúmer Nafnnúmer
sendanda: sendanda:
Sendist: Sendist:
Menningarverðlaun Menningarverðlaun
DB-1980 DB-1980
Dagblaðið Síðumúla 12. Dagblaðið Siðumúla 12.
Fyrir 5. mars. Fyrir 5. mars.
LEIKLIST Listamaður/ menn: Leikverk MYNDLIST Listamaður/ hópur: BYGGINGARLIST Arkitekt/ arkitektastofa:
starfsemi: Bvnninn:
Skýringar: Skýringar:
Skvrinnar:
)
Nafnnúmer Nafnnúmer Nafnnúmer
sendanda: sendanda: sendanda:
Sendist: Sendist: Sendist:
Menningarverðlaun Menningarverðlaun Menningarverðlaun
DB-1980 DB-1980 DB-1980
Dagblaðið Síðumúla 12. Dagblaðið Síðumúla 12. Dagblaðið Síðumúla 12.
Fyrir 5. mars. Fyrir 5. mars. Fyrir 5. mars.