Dagblaðið - 07.03.1980, Side 14
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 7. MARZ 1980.
18
Myndlist
AÐALSTEINN
INGÖLFSSON
Ballasar — Tveir heimar, blönduð tækni.
(I.jósm. Bj. Bj.).
ÖRNINN 0G
HÆNURNAR
Mikið skelfing væri alll myndlisl-
arlif hér á landi miklum mun daufara
væri Baltasar ekki til staðar til að hrífa
með sér fólk eða storka fwí með
handbragði sínu og hátterni. Hann
vinnur meir og hraðar en aðrir,
ræður yfir meiri tækni en aðrir, — og
selur meir og dýrar en aðrir. Ekki er
nema von að í litlu þjóðfélagi sjái
sumir ofsjónum yfir umsvifum hans
og velgengni. Reyndar er ekki laust
við að Baltasar sjálfur sé farinn að
líta á sig sem prófessjónal einfara og
kannski pislarvott, sem hundeltur er
af ýmiss konar „hænum” i íslensku
listalifi, — ef marka má nýleg verk
hans.
Vissulega hefur Baltasar fengið
sinn skerf af óréttmætri gagnrýni á
ferli sínum, kannski meir en aðrir, og
á röngum forsendum. En það breytir
ekki því að ef litið er sæmilega hlut-
lausum augum á myndlist hans, má
ýmislegt að henni finna.
Kjarni og hismi
Þegar best lætur eru myndir hans
undursamlega kvikar, glóandi af
djúpum litum og bráðsmitandi lífs-
gleði og komist Baltasar í náin til-
finningatengsl við fyrirsætur sínar,
málar enginn maður hérlendur
magnaðri portrettmyndir. En
Baltasar endurtekur sig lika einum of
oft, er helst til áhrifagjarn, treystir
stundum einum um of á innblástur
augnabliksins og tæknibrellur á
kostnað inntaks, — og er ekki enn
búinn að hrista af sér myndskreyting-
ar Morgunblaðsins forðum.
Þetta þýðir að sýningar Baltasars
eru oftast afskaplega misjafnar:
glæsilegur kjarni, umkringdur ýmiss
konar myndrænu hismi. Þetta á
einnig við um sýningu þá sem
Baltasar nú heldur að Kjar-
valsstöðum, en hún er nt.a. sérstök
fyrir það að listamaðurinn vinnur
eftir Ijóðum sem honum eru kær. Sú
tilhögun hefur getið af sér einhverja
bestu myndröð sem ég hef séð eftir
Baltasar, — við „Fáka” Einars Bene-
diktssonar. Þar beitir málarinn mjög
stifri, nær geómetrískri
uppbyggingu, sem myndar ramma
utan um þau expressjónísku tilbrigði
sem hann notar til tjáningar á
sambandi manns og hests.
i
■p -
Baltasar ásamt „Þegar ernirnir fljúga.. .”, olia.
Ekki úr böndum
Þannig fer ekkert úr böndum hjá
Baltasar og jafnvægi ríkir í hverri
mynd. Svipaöri myndbyggingu beitir
hann í þrístæðu um Pablo Neruda,
sem þó er ekki nándar nærri eins
mögnuð og Fákaserían einmitt fyrir
losaralegri útfærslu. En það er fleira
gott á sýningunni, seiseijú. í „Þá”,
— mynd af Jökli Jakobssyni, er
vissulega snertur af varanlegu list-
gildi, en þó finnst manni að sú sálar-
ró sem gefin er i skyn með
uppstillingu Jökulsá myndfletinum,
fari næstum því út i buskann með
hamagangi pensildráttanna. Það er
stundum eins og Baltasar geri sér
ekki grein fyrir þvi hvenær nóg er
kontið. En það er líka gaman að sjá
hvc vel þeini hefur komið saman,
Ragnari H. Ragnar og Baltasar,
eftir bráölifandi en samt óvenju
stillilegri portrettmynd að dænia.
Óklárað og
ofklárað
Afganginn af sýningunni kann ég
ekki að meta, þrátt fyrir sýnikennslu
í öllum þeim tæknibrögðum, sem
notuð eru i nútímamálverki og
tilvisanir í ýmsa nútimalistamenn,
— eða kannski vegna þeirra? Lands-
lag og hestar eru meðhöndlaðir hratt
og hugsunarlaust, sumt annað finnst
manni annað hvort óklárað eða of-
klárað. Sumt heyrir til dægurflugna
eða ýkja („Ötult embætti” og „Það
sem keisarans er. .”) og pólitisk
vitund Baltasar leiðir hann út i slag-
orðamálverk, vel meint og gerð í
hjartans einlægni, en verða honum
tæpast til framdráttar eftir daginn i
dag, fremur en öðrurn myndlistar-
mönnum, sem gera slík verk. Væri
ókurteisi að biðja um einfaldari verk
og agaðri, verk með húmor eins og
Nr. 13 („Angels fly. .”), — umfram
allt verk sem samboðin eru hinum
miklu eðlisgáfum listamannsins?
rnaö heilla
Laugardaginn 11. ágúst voru gefin
saman af séra Emil Björnssyni í kirkju
óháða safnaðarins þau Kristín
Jóhannesdóttir og Jónas Þ. Þórisson.
Heimili þeirra er að Flyðrugranda 20.
Ljósmyndastofa Mats.
Þann 17. 11 voru gefin saman í
hjónaband af séra Sigurði Hauki
Guðjónssyni þau Ingunn Björnsdóttir
og Ingi Hans Agústsson. Heimili þeirra
er að Hraunbæ 26. Ljósmyndastofa
Mats.
Nýlega voru gefin saman i hjónaband
af séra Árna Pálssyni i Kópavogskirkju
þau Bára Katrin Finnbogadóttir og
Högni Gunnarsson. Heimili þeirra er
aö Hjarðarfelli, Snæfellsnesi. Ljós-
myndastofa Mats.
i
Laugardaginn 22. sept. gaf séra Arni
Bergur Sigurbjörnsson saman þau
Klinu Guðmundsdóttur og Arnar
Guðmundsson i Ólafsvikurkirkju.
Heimili þeirra er að Brautarholti 22.
Ólafsvík. l.jósmyndastofa Mats.
Nýlega voru gefin saman i Kópavogs-
kirkju af séra Árna Pálssyni þau Inga
Jóna Finnbogadóttir og Sævar Eiriks-
son. Heimili þeirra er að Norðurgarði,
Skeiðum. Ljósmyndastofa Mats.
Laugardaginn 6. október voru gefin
saman af séra Ólafi Skúlasyni í
Bústaðakirkju þau Þórdís Ingadóttir
og Bjarni Ágústsson. Heimili þeirra er
að Mariubakka 22. Ljósmyndastofa
Mats.
Laugardaginn 13. 10 gaf séra Bragi
Friðriksson saman þau Svövu Magnús-
dóttur og Guðmund Birkisson i Garða-
kirkju Heimili þeirra er að Tjarnar-
götu 6, Keflavík. Ljósmyndastofa
Mats.
Laugardaginn 10. nóvember voru gefin
saman af séra Frank M. Halldórssyni í
Neskirkju þau Brynhiidur Scheving
Thorsteinsson og Gunnar Ingi
Gunnarsson. Heimili þeirra er að Espi-
gerði 2. Ljósmyndastofa Mats.