Dagblaðið - 07.03.1980, Blaðsíða 23

Dagblaðið - 07.03.1980, Blaðsíða 23
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 7. MARZ 1980^ <s ■ÍÉKtt Útvarp 27 Sjónvarp i MIÐDEGISSAGAN - útvarp kl. 14.30: ÆVIMINNINGAR SÉRA SVEINS VÍKINGS Sr. Sveinn Víkingur var fæddur að Garði f Kelduhvern og á myndmnt má sjá slðasta bæjarhúsið, það er lengst stóð af elzta bænum að Garði. Þegar þessi mynd var tekin, fyrir árið 1950, var þríbýli í Garði. í þessum gamla bæ bjuggu þá Sveinbjörg Valdimarsdóttir og Þorgeir Kristjánsson. Nú sést ekkert eftir af þessum forna bæ, en hann var rifinn fyrir fjöldamörgum árum. — Eins og sjá má hefur bærinn verið orðinn lélegur er þarna var komið sögu og verið „endurbættur” á ýmsa lund með ýmsum byggingarefnum. 1 glugganum má sjá Sveinbjörgu. DB-mynd A.Bj. I dag kl. 14,30 heldur Sigríður Schiöth áfram lestri miðdegissög- unnar Myndir daganna, minningar séra Sveins Víkings. Séra Sveinn Vík- ingur gaf út Myndir daganna 1965— 1966. Voru það tvö bindi. í fyrri bók- inni lýsir séra Sveinn uppvaxtarárum sínum og ættfólki. Hann fæddist i Garði í Kelduhverfi 17. janúar 1896. Þar ólst hann upp til fimmtán ára aldurs. Í bókinni lýsir séra Sveinn æskuvinum sínum og skemmtilegum atburðum. Séra Sveinn Víkingur starfaði mikið að félagsmálaum og sat i ýmsum nefndum. Var hann m.a. skipaður formaður nefndar til undir- búnings Skálholtshátiðarinnar 1955. Séra Sveinn hafði mikinn áhuga fyrir dulrænum fyrirbrigðum og var hann KASTUÓS - útvarp kl. 21.25: forseti Sálarrannsóknarféalgsins frá árinu 1960. Hann skrifaði margar bækur og auk þess þýddi hann allmikið af bók- um og leikritum. Ein af vinsælli bókum scm sr. Sveinn þýddi er Dagbók önnu Frank. Alls verða það fimmtán lestrar sem : Sigriður les og ftmmti lesturinn er í | dag. Sveinn lézt fyrir nokkrum árum. Fræg sakamál og pólitísk innræting — umf jöllunarefniö í kvöld í Kastljósi í kvöld verða tvö mál tekin fyrir. Annars vegar verður fjall- að um fyrningu sakamála, m.a. i tengslum við skipakaupamálið frá Noregi,” sagði Guðjón Einarsson fréttamaður umsjónarmaður Kast- Ijóss í kvöld. „Rætt verður við Jónatan Þórmundsson lagaprófessor, Hall- varð Einvarðsson rannsóknarlög- reglustjóra, Garðar Valdimarsson skattrannsóknarstjóra og DavíðÓlafs son formann stjórnar Fiskveiðisjóðs. Annað málið er pólitisk innræting í skólum. Verða væntanlega einhverj- ar umræður urn það mál í sjónvarps- sal. Ekki er enn ákveðið hverjir taka niunu þátt i umræðunum eða hvaða stefnu umræðan tekur,” sagði Guðjón ennfremur. Aðstoðarmenn hans i kvöld eru þeir Vilhelm G. Kristinsson og Guð- niundur Árni Stefánsson. Kastljós er á dagskrá kl. 21,25 og er klukku- Istundar langt. -ELA. Jónina H. Jónsdóttir leikari umsjónarmaður barnatimans I fyrramalið. DB-mynd Hörður. AÐ LEIKA OG LESA — útvarp kl. 11.20 ífyrramálið: Frumsamdar smá sögur og Ijóð —eftir lOára dreng „ÓIi Jón Jónsson 10 ára segir okkur svolítið af sjálfum sér. Hann les tvær frumsamdar smásögur. önnur nefnist Sanngjarna veran og hin Ekki er allt gull sem glóir. Síðan fer Óli með kvæði sem nefnist Ljóð á barnaári. Einnig les hann upp úr dagbók sem hann hefur haldið fyrir barnatimann í eina viku. Það er nýtt hjá okkur að hafa það,” sagði Jónína H. Jónsdóttir, umsjónar- maður barnatímans i fyrramálið, sem nefnist Að leika og lesa. Einnig kemur í þáttinn Finnur Lárus- son 13 ára og ræðir um vísindamenn. Finnur les síðan úr bókinni Talað við dýrin eftir Konrad Z. Lorentz. Þá ræðir Óli Jón við Finn, og spyr hann nt.a. hvort hann ætli að verða vísinda- maður og það reynist vera. Nú síöan ræða þeir um lífið og tilveruna. Klippisafnið verður á sinum stað. Það eru úrklippur úr blöðum sem höfða til barna. Það er Drifa Guðjóns- dóttir sent les. Að lokum flytja nokkrir krakkar úr Álftamýrarskóla leikþátt, Norðurstúlkan, sem byggður er á Atómstöðinni eftir Halldór Laxness”, sagði Jónína ennfremur. Jónína kynnir atriðin og hefur tekið saman þáttinn. Hún er leikkona að mennt — atvinnu- laus leikkona að eigin sögn. -ELA. ÉG, PIERRE—sjónvarp kl. 22.25: „Drap móður sína og systkin fyrir guð” Gyðjan Manuela Wiesler Skrýtið hvað maður getur haft út- varpið opið og hrcint ekkert heyrt af því, sent þar fer fram. í gær sperrti ég • hins vegar eyrun, þar sem ég átti að segja eitthvað um dagskrána og hvernig mér hefði falliðhún. Mér fannst hún að ntörgu leyti góð, en allt of þung. Það vantaðf algjörlega létt efni. Ég hugsaði ntér^ gott lil glóðarinnar að hlusta á islenzk lög, en því miður alll af þyngra taginu. Meira að segja minn uppáhaldskvartett söng þarna og þeir, sem geta verið svo innilega skcmmtilegir, voru látnir flytja tvö lögaf þyngra taginu. Erindi Birnu G. Bjarnleifsdóttur um Brciðholt var áhugavert. Breið- Itolt, þetta ríki i ríki Reykjavíkur, státar af ýmsu, lægsta meðalaldri fólks og stærstu blokk landsins nteð eitt þús. ibúum cða samanlagt cins og ibúar Hveragerðis allir. Jón Múli var hress að vanda við kynningu sina á sinfóniutónleikunum. Maður sá Manuelu Wiesler bókslaflega fyrir sér svifa inn sviðiö i hvitunt kjól nteð gullband unt sig ntiðja, sem gyðja, og svo auðvitað nteð silfurlituðu flaut- una sína. Ef ntarka má af klappi áheyrenda vakti verkið Evridís sem Þorkell Sigurbjörnsson samdi fyrir Manuelu og hljómsveit ákaflega mikla hrifningu. Ég nýt þess, þvi ntiður, lítið að hlusta á slíka tónleika ú útvarpi. Ég endaði nteð því að hlusla á leik- rilið sem var spennandi. -EVI. —f rægt sakamál f rá árinu 1835. Mynd sem ekki er við hæf i bama „Þetta er morðsaga. Ég get ekki sagt frá henni því mér finnst að það gæti eytt allri spennu. Annars er ég búin að segja það við blöðin að ég vil ekki tala við þau, og ég vil ekkert láta eftir mér hafa um myndir,” sagði Ragna Ragnars, þýðandi myndarinnar Ég, Pierre Riviere, játa . . . .(Moi, Pierre Riviere) sem sjónvarpið sýnir i kvöld kl. 22,25. Myndin er frönsk frá árinu 1976. Ragna Ragnars þýðandi hefur aldrei viljað gefa blöðunum upp upplýsingar um myndir sem hún þýðir. Þetta kemur að sjálfsögðu niður á dagskrár- kynningu blaðanna sem þykir orðin sjálfsögð þjónusta við lesendur. Aðrir þýðendur sjónvarpsins hafa allir brugðizt vel við, er leitað hefur verið til þeirra. Við reyndum að fá Björn Baldursson til að segja okkur eitthvað frá mynd- inni i stað Rögnu. Litlar upplýsingar var að finna hjá sjónvarpinu um myndina en þó gat Björn sagt okkur meginatriðin. „Myndin fjallar um dreng sem drepur móður sína, systur og bróður. Við yfirheyrslur heldur hann því fram að guð hafi falið honum að vinna þetta verk vegna þess að faðir hans hafi sætt ofsóknum þessa fólks. Myndin sent er byggð á sönnunt atburðum styðst við frásögn sem piltur- inn skrifaði meðan hann sat i fang- elsinu. Hún lýsir vel hvernig maður hann var. Myndin er bæði raunsæ og sterk,” sagði Björn. Atburður þessi álti sér stað árið 1835 og varð þá mjög frægt sakamál í Frakklandi. Með aðalhlutverk fara Claude Herbert, Jacqueline Millier og Joseph Leportier. Það skal tekið fram að myndin er alls ekki við hæfi barna. -EI.A.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.