Dagblaðið - 12.03.1980, Page 4
4 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 12. MARZ 1980.
LJOSMYNDIR:
BJARNLEIFUR
BJARNLEIFSSON
Verðlaunakökumar
Fjöldamargir hafa hringt ogl
komið að máli við Neytendasíðuna!
vegna verðlaunauppskriftanna. Fólk
'bíður í ofvæni eftir því að fá þessar
uppskriftir til þess að reyna þær. Hér
koma þær loks.
Sírópsbrauð, 1. verðlaun:
Reidunn Jónasson
300 g síróp
350gsykur I
700ghveiti |
6 di súrmjólk
1 tsk. negull
2 tsk. natron
Rifinn börkur af einni appelsinu. >
Öllu blandað saman og bakað i
smurðri ofnskúffu í ca 45 mín. við
150° hita. Skorið í sneiðar og borið:
fram með smjöri.
„Tyggjóterta", II. verðlaun:
Þórey Björgvinsdóttir
Hrært deig. Bakast í tveimur.
smurðum tertuformum í 150—I70°C
heitum ofni. Kremið er búið til á
eftirfarandi hátt:
Sykurinn er soðinn i 1 bolla af
vatni í allt að 20 min. (undir loki).
Matarlimið er leyst upp í 1/2 bolla af
vatni, sykurpotturinn tekinn af
hitanum og matarliminu bætt út í.
Hrærið vel í þangað til kremið er
orðið þykkt og hvítt. Bezt er að gera
þetta í hrærivél, en gætið þess að
nota ekki glerskál, því hún gæti
sprungið.
Botnarnir eru lagðir saman rneð
sultunni og kreminu, og því síðan
smurt ofan á kökuna. — Þórey
skreytti sína köku með heima-
tilbúnum marsipanblómum, en að
sjálfsögðu er hverjum í sjálfsvald sett
hvernig hann skreytir kökuna. Hún
tók fram að vel mætti minnka sykur-
magnið í kökunni í 250 g án þess að
kakan beri skaða af. Lika tók hún
fram að ekki þyrfti nauðsynlega að
hræra kökudeigið nema örstutta
stund.
Gerbollur með f yllingu,lll.
verðlaun:
Sigríður Garðarsdóttir
,1000g hveiti
20gsykur
1 dl perluger
1/2 lítri mjólk
2egg
3 tsk. salt
egg til að pensla
4 græn epli
1/2 Isk. kanill
2 msk. sykur
Velgið mjólkina og leysið gerið
upp, hrærið eggin út í og hellið yfir
þurrefnin, sem smjörl. hefur áður
verið mulið út í. Hrærið deigið
saman og hnoðið það svo. Hefist á
vel volgum stað í ca 30 mín. Þá rúllað
út í 40 stykki. Flysjið eplin og skerið i
litla bita og blandið saman sykri og
kanel og látið sem fyllingu i bollur.
Hefist enn i ca 15 mín., penslið með
egginu og bakið við 250° í 10—15
mínútur.
Mörgum hefur þött athyglisvert aö það skyldi vera sírópsbrauð sem hlaut I.
verðlaun I uppskriftakeppni Dagblaðsins og Landssambands bakarameistara.
Mönnum dettur I hug mikið skreyttar striðstertur þegar uppskríftasamkeppni ber
á góma. En að þessu sinni var verið að leita efiir ódýru og góðu „bakkelsi" sem
hentaði tilþess að hafa á boðstólum I bakaríum.
200 g hveiti
300gsykur
2 1/2 dl súrmjólk
1 tsk. natron
lOOgsmjörl.
40—50 g kakó
1 egg
KRF.MIÐ:
200 g sykur
I 1/2 holli vatn
4 blöð matarlim
I tsk. vanilludropar
100 g sulla.
Gerbollurnar með eplafyllingu sem fengu III. verðlaun. Þessar bollur voru sér-
lega Ijúffengar, sennilega langbeztar volgar. Höfundurinn er Sigriður Garðars-
dóttir, nemandi IJjölbrautaskólanum I Vestmannaeyjum.
DB-mynd Bjarnleifur.
„Tyggjóterta” fékk II. verðlaun. Nafiiið fékk tertan vegna þess að börn
Þóreyjar, sem tertuna bakaði, kölluðu hana þessu nafhi, ef kremið vildi verða
seigt, sem stundum kom fyrir. Þetta var ein af fáum sœtum tertum, sem voru
meðal þeirra tuttugu og fimm uppskrifta sem tóku þátt i lokakeppninni. Hún er
fagurlega skreytt, með hvítu kreminu og að auki heimatitbúnum
marsipanblómum.
Bezti óáfengi drykkurinn:
Vilja menn alls ekki óáfenga drykki?
Loksins virðist vera að komast ein-
hver skriður á uppskriftir að „bezta
óáfenga drykknunt”. Uppskriftir eru
loks farnar að berast. Satt að segja
kemur okkur það mjög á óvart að
bindindismenn skuli ekki láta frá sér
heyra meira en orðið er. Það er kann-
ski bara einhver misskilningur að
fólk vilji gjarnan fá góða óáfenga
drykki á börum landsins og veitinga-
húsum — eða jafnvel i heimahúsum.
í það minnsta finnst mér að góð-
Undirbúningsncfndin að samkeppninni um „bezta óáfenga drykkinn” að fundar-
störfum. Talið frá vinstri Hörður Sigurjónsson, formaður Barþjónaklúbbsins,
Astrabar Ragnar Pétursson, Snorrabæ, Sveinn Sveinsson, Átthagasal og Pétur
Sturluson, Skálafelli.
DB-mynd Bjarnleifur.
tenrplarar ættu að láta heyra frá sér
og nota þetta tækifæri til að vekja at-
hygli á óáfengum drykkjarföngum.
Ætlazt er til að gefin séu upp
nokkuð nákvæm mál af því sem í
drykkinn fer, þannig að heildarmagn
geti verið 18 sentilítrar, eða það sem
þarf til þess að fylla venjulegt sjússa-
glas. Skilafrestur í uppskriftasam-
keppninni hefur verið ákveðinn 20.
marz. — Vegleg verðlaun verða í
boði, en þau hafa ekki verið ákveðin
nánar enn sem komið er. Dómnefnd
mun velja úr uppskriftunum sem ber-
ast og verðlaunaveitingin fer frant
um leið og „Iong drink” keppni fer
fram hjá Barþjónaklúbbnum á Hótel
Sögu um miðjan aprilmánuð.
Takið nú á ykkur rögg og sendið
okkur uppskrift að góðum óáfengum
drukk. Merkið seðilinn nreð dulnefni
og sendið rétt nafn með í lokuðu um-
slagi. Þetta verður allt eftir kúnstar-
innar reglum og engin brögð höfð i
frammi.
-A.Bj.
Innihald:
Bezh
óáfengi
drykkurinn
■dr
Dulnefni sendanda: