Dagblaðið - 12.03.1980, Page 5
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 12. MARZ 1980.
5
Menningarverðlaun DB1980:
„Skemmtilegt og
fjölbreytt val”
— verðlaunin afhent og úrslit kynnt á föstudaginn
Um hádegið í gær var endanleg orðið
ljóst hverjir mundu fá Menningarverð-
laun DB árið 1980 í listgreinunum
fimm, bókmenntum, tónlist, leiklist,
myndlist og byggingalist og höfðu
dómnefndir þá tekið greidd atkvæði
lesenda til athugunar. Var þá þegar
liaft samband við listafólkið sem
undantekningarlaust tók tiðindunum
með hinni mestu ánægju.
Á föstudaginn munu svo fulltrúar
DB, hinir útvöldu, dómnefndir og
forystumenn i ýmsuni listamanna-
samtökum koma saman til málsverðar
i Þingholti, Hótel Holti. Þar munu
menn borða íslenzka sjávarrétti sem
þeir Jónas Kristjánsson ritstjöri DB og
hinir snjöllu matsveinar staðarins hafa
skipulagt og með þeim verða að sjálf-
sögðu drukkin hin beztu hvitvin. Við
afhendingu Menningarverðlauna DB í
fyrra þótti þessi málsverður takast afar
vel og standa vonir til þess að ekki
verði hann síðri i ár.
Um úrslitin sagði Aðalsteinn Ingólfs-
son, ritstjóri Menningarmála DB:
,,Mér fannst valið i fyrra takast
einstaklega vel og var satt að segja
hræddur um að ekki mundi aftur
lukkast að hóa saman svona vel völdu
listafólki, en ég verð að segja að mér
finnst þetta alveg eins skemmtilegt og
fjölbreytt val."
Lesendur DB munu fá úr því skorið
hverjir fá viðurkenningar blaðsins í
föstudagsblaðinu 14. marz. -I)S.
Vitni vantar aðárekstri
Um kl. 08 á mánudagsmorgun
varð árekstur á mótum Hofsvalla-
götu og Hringbrautar í Reykjavík.
Ók þar lítil fólksbifreið, líklegast
Honda, steingrá að lit, utan i Lada
Topaz 1600, gulan að lit.
Ladan skemmdist lalsvert en
Hondan minna. Til að greiða fyrir
rannsókn málsins er brýn þörf á að
vitni gefi sig fram hið fyrsta við.
lögregluna í Reykjavík.
Fréllasljórar, DB, Jónas Haraldsson
og Ómar Valdimarsson, grandskoða
úrskurði nefndanna vegna Menningar-
verðlauna DB ásaml Aðalsteini
Ingólfssyni. Allir voru þeir sammála
um að valið hefði lekizl vel. Að
baki þeirra er gripur sá sem Jónina
Guðnadóllir hannaði fyrir I)B i fyrra.
DB-mynd: Hörður.
Aflast vel á Eskifirði
LAUS STAÐA
HEILSUGÆZLULÆKNIS
Laus er til umsóknar önnur staöa heilsugæzlulæknis á Akranesi.
Staðan veitist frá 1. ágúst 1980.
Umsóknir ásamt upplýsingum um læknismenntun og störf sendist ráóu-
nevtinu fyrir 7. apríl 1980.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
7. marz 1980.
írafoss tók það sem eflir var af salt-
síld hérá Eskifirði, rúmar I550tunnur,
i vikunni sem leið. Hún átti að vera
farin fyrir löngu en írafossi hlekktist á
og varð að fara í viðgerð í Hamborg.
Skipað var um borð í Hofsjökul 2050
kössum af freðfiski og 800 tonnum af
lýsi á föstudag, áður voru farin 2200
tonn af lýsi.
Hólmanesið kom með 50 tonn af
MK>BORG
fasteignasalan i Nýja bíóhúsinu Reykjavík
Símar 25590,21682
blönduðum ágætis fiski.
Eitt þúsund tonn af loðnumjöli er
nýfarið héðan en loðnubræðslu lauk
um helgina. Jón Kjartanson togari fór
á loðnuveiðar á föstudag en Seley
landaði 250 tonnum af loðnu.
Ágætis afli hefur verið hjá neta-
bátunum og kom Hólmatindur i gær
nteð 70— 80 tonn.
Talsvert er um aðkomufólk hér á
Eskifirði i vinnu.
Regína/EVI
Ritsafnið
Rætur íslenzkrar
menningar
eftir Einar Pálsson er til sölu í skrifstofu Mímis,
Brautarholti 4, sími 10004 (kl. I—5 daglega).
LEIÐRÉTTING
á leiðbeiningum við útfyllingu skatt-
framtals einstaklinga árið 1980.
Kaflinn með fyrirsögninni „Söluhagnaður eigna” og með
undirfyrirsögninni „Söluhagnaður lausafjár” sem birtur
var: í Morgunblaðinu 28. febrúar 1980, bls. 27, 2. og 3.
dálkur; í Tímanum 29. febrúar 1980, bls. 10, 1. og 2.
dálkur; i Vísi 29. febrúar 1980, bls. 10, 1. og 2. dálkur; í
Þjóðviljanum 29. febrúar 1980, bls. 10,1. og 2. dálkur, og í
Dagblaðinu 6. marz 1980, bls. 21, 3. og 4. dálkur orðist
svo:
Hagnaður manns af sölu lausafjár (annars en hlutabréfa og
eignarhluta í samlögum og sameignarfélögum) sem ekki er
notað í atvinnurekstri eða sjálfstæðri starfsemi telst ekki til
tekna enda geri seljandi líklegt að sala þess falli ekki undir
atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi hans eða að eignar-
innar hafi ekki verið aflað í þeim tilgangi að selja hana
aftur með hagnaði. Uppfylli framteljandi þessi skilyrði þarf
hann ekki að reikna út söluhagnað af þessum eignum.
Uppfylli framteljandi ekki framangreind skilyrði um skatt-
frelsi söluhagnaðar telst söluhagnaðurinn að fullu til skatt-
skyldra tekna á söluári án tillits til verðbreytinga og skiptir
þá eigi máli hve lengi maðurinn hefur átt hina seldu eign.
Hagnaður af sölu þessara eigna telst mismunur á söluverði
þeirra annars vegar að frádregnum sölukostnaði og stofn-
verði (kaupverði að viðbættum endurbótum) þeirra hins
vegar.
Hagnaður af sölu hlutabréfa og eignarhluta í samlögum og
sameignarfélögum er alltaf skattskyldur á söluári.
Reykjavik, 10. mars 1980.
Ríkisskattstjóri.
Úrvafíð er hjá okkur
„RENNDU VID í RÍN"
J^rt-SOA/
„Plgalle“ „Princess“
Fimm áttunda hljómborð C-C
Fullkomið sjálfspilarakerfi, sjálfvirkur bassi og
trommuheili. Sjö raddir: Flauta, Horn, Tromp-
ett, Wa Wa, Fiöla, Píanó og Hapsicord. Inni-
byggður 20W magnari og tveir hátalarar. Inn-
stunga fyrir heyrnartól. A þetta hljóðfæri er
hægt að læra líka eins og venjulegt orgel og
nota venjulegar orgelnótur. Ótrúlega lágt verö.
Fullkomiö sjálfsspilkerfi, eins fingurs spila-
kerfi m.m. Strengjasveit, rafmagnsplanó og
hapsicord. Mjög góður orgelhljómur. Ein
bestu kaup á markaðnum.
HAMMOND
Vegna hagstæðs gengis dollaranns eru þessir
Rolls Roycar orgelana nú á mjög hagstæðu
verði. Þau eru með mjög fullkomnu sjálfvirku
kerfi, „heil hljómsveit með einum fingri“ og
hinn frábæra Hammondhljóm þekkja allir.
'JS'
kimBall
Bjóöum nú á lækkuðu verði Kimball
og flygla. Amerlsk gæðavara.
planó
HUOÐFÆRAVERZLUN FRAKKASTIG16 SIM117692