Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 12.03.1980, Qupperneq 23

Dagblaðið - 12.03.1980, Qupperneq 23
Guðrún Guðlaugsdóttir dagskrárfulltrúi útvarpsins og aðstoðarmanneskja Morgunpóstsmanna þennan mánuð. DB-mynd R. Th. „Ég fékk leyfi hjá yfirmönruim mínum til að vinna með þeim Morgunpóstsmönnum. >eir voru búnir að biðja mig um það. En auðvitað er þetta gert í mínum fritíma,” sagði Guðrún Guðlaugs- dóttir dagskrárfulltrúi hjá útvarpinu í samtali við DB. Guðrún er aðstoðar- manneskja þeirra Páls Heiðars og félaga Sigmars í Morgunpóstinum þennan mánuð. „Mig langaði til að prófa þetta. Ég hef aldrei áður unnið við beina út- sendingu,” hélt Guðrún áfram. „Mér finnst þetta mjög spennandi starf. ” *— Hvernig byrjið þið á morgnana og er ekki erfitt að vakna alltaf svona snemma, Guðrún? „Við byrjun klukkan sex á morgn- ana. Ég hef nú alltaf verið morgun- hani svo mér finnst þetta ekkert erfitt. Ég fer bara snemma að sofa á kvöldin.” — Hvað gerið þið klukkan sex? „Við byrjum nú alltaf á því að hita okkur kaffi. Svo þarf að tína til það sein nota í í þáttinn. Skrifa niður ýmislegt og svo auðvitað að líta í blöðin: Það er mjög stór þáttur hjá okkur. Það er líka ágætt að vera vel vaknaður áður en útsending hefst,” sagði Guðrún ennfremur. I henni heyrum við i fyrramálið kl. 7,25 ásamt Morgunpóstsmönnum. Ný rödd í Morgunpósti: r „EG HEF NU ALLTAF VERH) MORGUNHANr Guðrún Guðlaugsdóttir dagskrárfulltrúi EINU SINNIVAR - sjónvarp kl. 18.30: Múhameðstrúin ryður sér til rúms „Þessi þáttur segir frá upphafi Rómarveldis og allt þar til múhameðs- trúin berst til Frakklands. Margar sögufrægar persónur koma fram og svo þeir sem hafa fylgt þáttunum, svo sem gamli vitringurinn fróði, Pétur og lllugi,” sagði Ómar Ragnarsson annar sögumaður þáttarins Einu sinni var sem er á dagskrá sjónvarpsins í dag kl. 18.30. Auk Ómars les Bryndís Schram. Einu sinni var er franskur teiknimyndaflokkur og segir frá upp- hafi mannkynsins og þróun þess allt til dagsins i dag. Þýðandi er Friðrik Páll Jónsson. -KI.A. TÓNSTOFAN - sjónvarp kl. 22.00: KLASSÍSKUR GÍTARLEIKUR Úr franska myndaflokknum Einu sinni var. SÝNTINN í FRAMTÍÐINA Ég hafði gaman af þættinunt i sjönvarpinu um örtölvubyltinguna. Bretar hafa gott lag á skemmtilegum fræðsluþáttum. Við höfum átt þvi láni að fagna að sjá suma þeirra i islenzka sjónvarpinu. Það efni ber einsog gullafeiri. Við höfum séð landa okkar, Magnús Magnússson, stjórna slikurn þáttunt. Við höfum séð Kenneth Clark sljórna þáttum um menningar- sögu mannkyns. Og nú er hafinn þáttur unt hinar litlu örtölvur, sem eru að byrja að breyta heiminum. Slíkir þættir, sem vel eru gerðir, segja meiri sögu en langar bækur. Og eru þar á ofan mun viðkunnanlegri. Ég vildi sannarlega eiga á myndbandi- alla þá brezku fræðsluþætti sem hér hafa verið sýndir. Fáum er kunnugt urn að Bretar reka heilan háskóla i sjónvarpi. Þessi háskóli þykir hafa gefizt rnjög vel, þótl um tilraunastarfsemi sé að ræða. Ég eyddi cinu sinni tveintur morgnum á hótelherbergi i London til aðdást að þessum kennsluþáttum. Auðvelt er að sjá fyrir sér, hvcrnig góðir skólar eigi að vera, skólar rneð sjónvarpstækjum og mynd- scgulböndum, skólar með hljóðböndum og myndböndum, þar seni unnt er að koma fyrir allri heimsins þekkingu. Og þá er auðvitað allt í lagi að sýna Tomma og Jenna og Dýrlinginn í frimínútunum. Jónas Krisljánssun. Sænska óperusöngkonan So/veig Farínger heldur tónleika í Norræna húsinu fimmtu- daginn 13. marz kl. 20.30. Á efnisskrá verða m.a. verk eftir Stenhammer, de Frumerie, Carl Nielsen, Debussy, Erik Satie og Hugo Wolf. Undirleikari Eyvind Möller. Aðgöngumiðar seldir í kaffistofu hússins og viðinnganginn. Allir velkomnir FÓLKID VIÐ LÓNIÐ - sjónvarp kl. 21.05: Tonet heldur áfram að skjóta sig í Neletu „Tonet fer að gera út á Sequista- miðunum í félagi við kráareigand- ann. Hann heldur áfram aðskjóta sig i Neletu. Karlinn hennar kemst að því og verður æfur,” sagði Björn Bald- ursson dagskrárfulltrúi sjónvarpsins er hann var spurður um þáttinn Fólkið við lónið. Það er fimmti og næstsiðasti þátturinn sem sýndur verður í kvöld. Í fjórða þætti gerðist það helzt að Neleta, sem er æskuunnusta Tonets, byrjar að vinna á kránni. Canamel kráareigandi varð skotinn í henni og þau giftu sig. Stuttu síðar lýkur striðinu og Tonet snýr heim á ný. Hann hefur lítið breytzl við veru sína á Kúbu og el.kert áhugasamari um að vinna. Þegar dregið er um fiskimiðin fyrir næsta árið fær Tonet „stóra vinning- inn”. Þátturinn er á dagskrá kl. 21,05 i kvöld og þýðandi er Sonja Diego. -KI.A. Simon I varsson og Siegfried Kobilza er þeir héldu tónleika hér á landi f haust. DB-mynd R. Th. Hin klassiska tónslofa er á dagskrá sjónvarpsins í kvöld kl. 22,00. Í heimsókn í þáttinn koma tveir gitar- leikarar. Þeir Símon ívarsson og Sieg- fried Kobilza. Þeir félagar fóru í hljóm- leikaferð um landið i haust og var ágætlega tekið. Var þátturinn tekinn upp þá. Símon ívarsson stundar nú nám i Sviss. Siegfried Kobilza er Austurríkis- maður. Hann hefur getið sér gotl orð i heimalandi sinu og spilað á niörgum tónleikum þar. í þættinum í kvöld leika þeir félagar .fjóra dúetta á klassiska gítara. Kynnir er sem fyrr Rannveig Jóhannsdóttir og mun hún spjalla við þá á milli þess sem þeir leika. Þátturinn er tuttugu mínútur að lengd og upptöku stjórnaði Tage Ammendrup. -KLA. Norræna húsið DAGBLAÐID. MIÐVIKUDAGUR 12. MARZ 1980. &r i GÆRKVÖLDI v

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.