Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 12.03.1980, Qupperneq 24

Dagblaðið - 12.03.1980, Qupperneq 24
Misjafn dómur sendimanna Reykjavíkur og Kópavogs um ungversku vagnana: Viðgerðartíðni Ikarus- vagna verulega hærri” —en það sem þekkt er í dag, segir í áliti Ungverjalandsf ara Reykvíkinga. — Málið í höndum stjórnar SVR, segir borgarstjóri ,,Sá búnaður sem boðinn er af Ikarus, er af öðrum gæðaflokki en vagnar SVR eru í dag og útboðslýsing tekur mið af,” eru lokaorð skýrslu Egils Skúla Ingibergssonar borgar- stjóra, Jan Jansens verkstjóra hjá SVR og ögmundar Einarssonar for- stöðumanns Vélamiðstöðvar borg- arinnar urn ferð þeirra til Ungverja- lands. Hún var lögð fyrir borgarráð i gær. i Ungverjalandi skoðuðu þeir Ikarus-strætisvagna sem boðnir eru Reykvíkingum fyrir mun lægra verð en vagnar af öðrum tegundum. „Skýrslan er fyrst og fremst. tæknileg lýsing á vögnunum. Áframhald málsins er i höndum stjórnar SVR sem ræðir þetta tilboð og önnur á fimmtudaginn,” sagði borgarstjóri við Dagblaðið i morgun. Ljóst er af lestri skýrslu þeirra félaga að tæknilega standa Ikarus- vagnar að ýmsu leyti að baki bæði Volvo og Mercedes Benz-vögnum, sem eru í notkun hjá SVR. Sagt er að „ýmis vélbúnaður i vögnunum sé þess eðlis, að fullyrða megi, að við- gerðartiðni vagnanna yrði verulega hærri en það, sem þekkt er í dag.” Þess vegna er rekstrarkostnaður Ikarus talinn það atriði sem „hvað mest er í þoku”. Engin afstaða er tekin til þess í skýrslunni hvort Ikarus sé fýsilegur kostur fyrir SVR eða ekki. Karl Árnason, forstöðumaður Strætisvagna Kópavogs og samferða- ntaður Reykvikinganna til Ungverja- lands, segir á hinn bóginn, í sinni skýrslu sem lögð hefur verið fyrir bæjarráð Kópavogs, að eftir skoðun á Ikarus geti hann fullyrt, að „vagnarnir, sem til boða standa eru fyllilega sambærilegir að búnaði, byggingarlagi og uppfylla flestar þær kröfur sem gerðar eru til slíkra bif- reiða og til boða standa annars staðar.” -ARH. Davíð Á. Gunnarsson f ramkvæmdastjóri ríkisspítalanna: „Fjárlögin stjórnunar- fræðilegt axarskaff ’ —gagnvart ríkisspítölunum. Ýtrasta aðhald hef ur verið sýnt og verður ekki aukið nema með breyttum kjarasamningum „Fjárlögin nú gagnvart ríkisspitöl- unurn eru stjórnunarfræðilegt axar- skaft og dæmi um það hvernig ekki á að standa að fjárlögum fyrir slíka stofnun,” sagði Davíð Á. Gunnars- son framkvæmdastjóri Ríkisspital- anna í morgun. „Allt frá því að ríkisspítalarnir foru inn á fast kerfi fjárlaga, hefur raunveruleg fjárþörf þeirra ekki verið viðurkennd. Við höfum sýnt gífurlegt aðhald og minnkað kostnað. Nefna má sem dæmi að það tókst að minnka yfirvinnu úr 22% i 19% á sl. ári, en það þýðir sparnað upp á 160 milljónir króna. Þá má nefna að starfsmenn í upphafi árs voru 1847, en í lok ársins 1783. Það er því veru- legur samdráttur í raun. Við gerðum öllum aðilum grein fyrir því á sl. ári, að við þyrftum 53 starfsmannaheimildir til þess að sinna því starfi sem er nauðsynlegt. Það hefur ekki komizt í gegn. Álags- greiðslur hjá okkur eru 17% en i frumvarpinu er gert ráð fyrir 14%. Álagsgreiðslurnar eru þó staðreynd sem ekki er hægt að hreyfa nema með breyttum kjarasamningum. Þess vegna vantar hátt í 400 milljónir kr. þar. Þá vantar rúmlega 360 milljónir vegna þeirra starfsmannaheimilda sem nauðsynlegar eru. Það er hart að horfa upp á það, að dregið er úr öllu hjá ríkisspítölunum, meðan þeir spítalar sem búa við dag- gjaldakerfi fá að halda áfram óáreitt- ir. Enda missum við sérfræðinga til þeirra, þar sem þeir spítalar geta boðið betri kjör. Ríkisspítalarnir eiga enga pólitíska stuðningsmenn eins og hinir, en þeir eiga sterka menn að í sveitarstjórnum. Það er vonlaust að fara eftir töl- um, sem við vitum að ekki geta staðizt. Það er stjórnsýslulega rangt. Á sl. ári kom aukafjárveiting seint á árinu og svo verður sjálfsagt nú, en það er erfitt að vinna við slíkt kerfí.” - JH Vandi fiskvinnslunnar: Stein- grímur skipar nefnd — Tómas vill engu svara um gengisfall „Ég hef ákvcðið að biðja santtök fiskvcrkenda að tilnefna mann í nefnd til að kanna hvað gera rná til að leysa vandann eftir öðrum leiðum,” sagði Steingrimur Her- mannsson sjávarútvégsráðherra í samtali við DB i morgun. Á hann þá við aðrar leiðir cn að tryggja fisk- , vinnslunni 75% afurðalán og gengis- sig eða gengisfellingu auk smærri leiðréttinga, sem til untræðu eru. Ráðherrann benti á að fiskvinnslunni kæmi cinnig til góða að vextir hækkuðu ekki hinn 1. marz síðast- liðinn. Á fundi ríkisstjórnarinnar i gær var vandi ftskvinnslunnar ræddur. Þar voru Tómasi Árnasyni viðskipta- ráðherra veittar ýmsar heimildir til aðgerða, en hann hefur með banka- rnál aðgera. í morgun vildi Tómas Árnason engu svara tim það i hverju þessar heimildir væru fólgnar — til dæmis annað hvort gengissigi cða gengis- fellingu. — Málið væri aðeins i athugun. Áður hefur komið fram m.a. hjá sjávarútvegsráðhcrra að vandi frystiiðnaðarins væri mjög mikill. Telja ýrnsir að lækka verði gengið um allt að 15% til að rótta hag hans. ÓG. Ekkiþorum við að fullyrða að hundurinn sé þarna í sínu rétta umhverfi — en vart má á milli sjá hvor er ánœgðari, seppi eða strákurinn. DB-mynd: Sv. Þorm. > » >■# frfálst, áháð dagblað MIÐVIKUDAGUR 12. MARZ 1980. Orkuskatturinn: Samþykkir stjórnin frumvarp kratanna? „Við erurn alvarlega að hugleiða að styðja þetta frumvarp, kannski með smábreytingum,” sagði Ragnar Arnalds, fjármálaráðherra um frum- varp um orkuskatt sem fyrir liggur frá Alþýðuflokknum. Olíustyrkir eru teknir út úr fjárlaga- frumvarpinu, og verður 4,5—5 milljarða til þeirra nota aflað með sér- stakri skattlagningu, líklega á alla orku. Hækkun söluskatts hefur þó ekki verið alveg afskrifuð í þessu skyni. Ragnar sagði, að frumvarp Alþýðuflokksmanna um orkuskatta væri goit innlegg og stjórnarliðar gætu hugsað sér að gera það að lögum sem lausn málsins. __________________-HH. Fjárlagafrumvarpið: Mest aukning til Lánasjóðs námsmanna Stærsta breytingin til hækkunar á framlögum til einstakra sjóða og stofnana i nýja fjárlagafrumvarpinu miðað við fyrri frumvörp gengur til Lánasjóðs íslenzkra námsmanna. Framlag til lánasjóðsins hækkar um 1221 milljón krónur frá því, sem var i fjárlagafrumvarpi Tóntasar Árna- sonar. Lántökuheimild er auk þess aukin um 500 milljónir króna. Þrátt fyrir miklar hækkanir á fram- lögum ríkissjóðs til lánasjóðsins á siðustu árum, hafa framlögin verið miðuð við óbreyttar forsendur, það er að lánveitingar svöruðu til 85 prósent af „umframfjárþörf” námsmanna, og svo er enn. í málefnasamningi ríkis- stjórnarinnar er gert ráð fyrir, að lögin' um lánasjóðinn verði tekin til endur- skoðunar með hliðsjón af sam- komulagi við námsmenn um hækkun lánshlutfalls í þremur áföngum úr 85% i 100%. Þetta samkomulag var gert síðastliðið vor. Samkvæmt þvi skal hraða endurgreiðslum til sjóðsins frá þeini námsmönnum, sem hafa miklar tekjur að loknu námi. Þar sem útlán lánasjóðsins hafa verið verðtryggð er gert ráð fyrir, að eiginfjárstaða hans styrkist i frani- tiðinni og geri honum kleift að standa undir auknurn lántökunt. -HH. LUKKUDAGAR: 12. MARZ: 15298 Kodak Pocket A1 ;Vinnin i síma r hringi 22.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.