Dagblaðið - 27.06.1980, Blaðsíða 1
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 1980. 15
|
Sjónvarp L
Laugardagur
28. júní
15.00 tþróttahátíðin í Laugardal. Um 10 þúsund
þátttakendur frá öllum héraðs- og sérsam-
böndum ISt koma fram á þessari íþróttahátíð,
sem á að sýna fjölbreytni íþróttalífsins í
landinu og verða yfir 20 íþróttagreinar á dag-
skrá, bæði sýningar- og hópiþróttir og keppnis-
íþróttir. Auk hins óvenjumikla fjölda íslenskra
iþróttamanna og fimleikafólks kemur 150
kvenna fimleikasvcit frá Noregi í héimsókn
og sýnir á hátíðinni. Árið 1970 var haldin
íþróttahátíð hér á landi með svipuðu sniði og
var þá þegar ákveðið að halda þessa að 10
árum liðnum. Bein útsending. Kynnir
Bjarni Felixson.
18.30 Fred Flintstone I nýjum ævintýrum. Þýð-
andi Jóhanna Jóhannsdóttir.
18.55 Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Shelley. Gamanþáttur. Þýðandi Guðni
Kolbeinsson.
21.00 Dagskrá frá Listahátlð.
22.00 Vinstrihandarskyttan s/h (The Left
Handed Gun). Bandariskur „vestri” frá árinu
1958. Aðalhlutverk Paul Newman. Myndin
fjallar um útlagann fræga, Billy the Kid. Þýð-
andi Jón O. Edwald. Myndin er ekki við hæfi
ungra barna.
23.40 Dagskrárlok.
Sunnudagur
29. júní
18.00 Sunnudagshugvekja. Séra Kjartan örn
Sigurbjörnsson, prestur í Vestmannaeyjum
flytur hugvekjuna.
18.10 Þumalfingur og sigarettur. Litil stúlka og
faðir hennar gera með sér samkomulag um að
hún hætti að sjúga þumalfingurinn og að hann
hætti að reykja. Þýðandi Björn Baldursson.
(Nordvision — Danska sjónvarpið).
18.35 Lífið á Salteyju. Heimildamynd um lífið á
Hormoz, saltstokkinni eyju suður af Iran.
Þýðandi og þulur óskar Ingimarsson.
19.00 Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 I dagsins önn. Þessi þáttur fjallar um vega-
gerðfyrrá tímum.
20.45 Milli vita. Áttundi og síðasti þáttur. Efni
sjöunda þáttar: Meðan Karl Martin er fjarver-
andi, elur Maí vangefið barn. Karli finnst
hann hafa brugðist konu sinni og vinnufélög-
um og verður erfiðari í umgengni en nokkru
sinni fyrr. Karl Martin vitjar föður síns, sem
liggur banaleguna, en er handtekinn af æsku-
vini sinum, Eðvarð, sem gengið hefur í lið með
Þjóðverjum. Þýðandi Jón Gunnarsson.
(Nprdvision — Norskasjónvarpið).
21.55 Á bökkum Amazón. Brasilísk heimilda-
mynd um mannlif á bökkum Amazón-fljóts.
Þýðandi Sonja Diego.
22.40 Kosningasjónvarp. Fylgst verður með ■
talningu atkvæða, birtar tölur og spáð í úrslit
kosninganna. Rætt verður við forsetafram-
bjóðendur, kosningastjóra frambjóðenda og
aðra gesti. Einnig verður efni af léttara taginu.
Umsjónarmenn Ómar Ragnarsson og Guðjón
Einarsson. Stjórn undirbúnings og útsend-
ingar Maríanna Friðjónsdóttir.
Dagskrárlok óákveðin.
Mánudagur
30. júní
20.00 Fréttir og veður.
20.45 Auglýsingar og dagskrá.
20.55 Tommi og Jenni.
21.00 Iþróttir. Umsjónarmaður Jón B. Stefáns-
son.
21.35 Sumarfrí. Lög og létt hjal um sumarið og
fleir?.. Meðal þeirra, sem leika á létta strengi.
eru félagar úr Kópavogsleikhúsinu. Þeir fiytja
atriði úr Þorláki þreytta. Umsjónarmaður
Helgi Pétursson. Stjórn upptöku Andrés
Indriðason.
22.25 Konumorðingjarnir (The Ladykillers).
Bresk gamanmynd frá árinu 1955. Aðalhlut-
verk Alec Guinness, Katie Johnson, Peter
Sellers og Cecil Parker. Fjórir menn fremja
lestarrán og komast undan með stóra fjár
fúlgu. Roskin kona sér peningana, sem þeir
hafa undir höndum, og þeir ákveða að losa sig
við hættulegt vitni. Þýðandi Dóra Hafsteins-
dóttir.
23.55 Dagskrárlok.
KONUMORÐINGJARNIR — sjónvarp mánudaginn
30. júní kl. 22,25:
Sjónvarpið kveður
með úrvals kvikmynd
Varla verður annað sagt en að
sjónvarpið kveðji með reisn. Síðasti
útsendingardagur þess er mánudag-
urinn 30. júní en það kvöld verður
sýnd hin bráðsmellna gamanmynd
Konumorðingjamir. Myndin er brezk,
gerð árið 1965 og meðal leikara eru
tveir kunnustu leikarar Bretlands,
þeir Peter Sellers og Alec Guinness.
Með önnur stór hlutverk fara Katie
Johnson og Cecil Parker.
Myndin segir frá fjórum mönnum
sem fremja lestarrán. Þeir undirbúa
ránið í húsi sem gömul kona á en þar
kemur að þeir telja konuna of hættu-
legt vitni og ákveða að losa sig við
hana. En ekki fer'allt samkvæmt
áætlun. Mörg atvik verða til að tor-
velda þeim verknaðinn og gamla kon-
an setur heldur betur strik í reikning-
inn.
Konumorðingjarnir er einhver
bezta gamanmynd sem Bretar hafa
gert og það verður enginn illa svikinn
af að horfa á hana. Að sjálfsögðu
fær myndin fjórar stjörnur í kvik-
myndahandbókinni, annað væri ekki
sæmandi. Sem sagt, úrvals skemmt-
an.
- SA
Alec Guinness, Peter Sellers og Danny Green, sem leika þrjá ræningjanna, ræða
við gömlu konuna (Katie Johnson). Þeir notfæra sér göðvild hennar og húsnæði
meðan þeir skipuleggja „stóra ránið”, lestarrán eitt mikið.
Wolf Biermann á hljómleikunum f Háskólabíói á Listahátið 1980.
DB-mynd Sig. Þorri,
Utvarp miðvikudag 2. júlí kl. 22,35
BIERMANN LEYSIR
FRA SKJÓÐUNNI
Þýzki ljóða- og lagasmiðurinn Wolf
Biermann verður gestur ríkisútvarpsins
í þætti um hann nk. miðvikudags-
kvöld. Er þess skemmst að minnast að
hann sótti okkur heim á Listahátíð og
var viðtalið tekið við hann þá.
Eftir þá kynningu sem Biermann
hlaut í fjölmiðlum um það leyti er hann
,kom fram ætti hann að vera lands-
mönnum að góðu kunnur. Biermann
var, sem kunnugt er, neyddur til að
yfirgefa ættland sitt, Þýzka alþýðulýð-
veldið, það land er hann hafði ungur
kosið sér, er hann flutti þangað frá
Hamborg í Sambandslýðveldinu
Þýzkalandi. Setti hann sig upp á móti
hinu staðnaða skrifræði austan Berlin-
armúrs, svo yfírvöld þar þoldu ekki
nærveru hans. Fyrst var honum
bannað að koma fram opinberlega en
síðan var honum neitað um að gefnar
væru út bækur hans. Hélt hann i
söngvaferð vestur fyrir múr og notuðu
yfirvöldin austan megin þá tækifærið
og neituðu honum um að koma austur
fyrir aftur. Býr hann nú með fjölskyldu
sinni í Hamborg.
Vestan megin Berlínarmúrs sinnir
hann helzt því þessa dagana að reyna
að hindra að Franz Jósef Strauss nái
kjöri sem kanslari sambandslýðveldis-
ins. Hefur hann i þvi skyni gert víðreist
um V-Þýzkaland.
Má merkilegt teljast að ekki skuli
hafa verið hlutazt til um að útvarps-
þáttur þessi yrði ekki fluttur, því búast
má við harðri gagnrýni á þjóðskipulag-
ið austan Berlínarmúrs. Gagnrýni sem
Þjóðverjar ættu ekki að þurfa að þola
frekar en þjóðir Arabalandanna, þegar
fjallað er um dauðarefsingu þar í lönd-
um. Alla vega eru meiri viðskiptahags-
munir 1 húfi fyrir íslendinga í viðskipt-
um þeirra við Þýzka alþýðulýðveldið
heldur en nokkurn tíma í viðskiptum
við Saudi Arabiu. - BH