Dagblaðið - 12.07.1980, Side 14

Dagblaðið - 12.07.1980, Side 14
14 DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 1980. Hann vinnur í btíkksmiðju meðan hún hugsar um búið „Konan sér um búið og ég vinn hérna,” sagði Þorsteinn Sverrisson sem viö hittum í blikksmiðjunni SörlaáHvolsvelli. „Við erum með nokkrar kindur og kálfa. Konan er vön sveitastörfum en ég er úr Kópavoginum og kann ekkert til þeirra. Því skiptum við með okkur verkum. Ég er hérna 10 tíma á dag og fer þá heim til min, að Núpi,” sagði Þorsteinn. Þorsteinn hefur unnið í blikk- smiðjunni í 8 mánuði. Þar eru fram- ieiddir allir mögulegir hlutir úr blikki, meðal annars þakrennur. „Við gerðum 35 kilómetra af þak- rennum i fyrra. En eftirspurnin er eitthvað að dragast saman. Fólk vill heldur orðiö plastrennur. Þær eru ódýrari en vilja líka brotna og skemmast fyrr,” segir Þorsteinn. Blikksmiðjan er í eigu Harðar Helgasonar og fjölskyldu hans. Undanfarið hefur verið erfitt að fá vinnukraft vegna hinnar miklu vinnu við Hrauneyjafossvirkjun. Sumar- leyfi blandast líka inn i og til dæmis var eini lærði blikksmiður smiðj- unnar í sumarfrii daginn sem við lituminn. -ns. Þorsteinn Sverrisson með eina af þeim mörgu þakrennum sem hann vinnur við aðgera. DB-mynd: Sig. Þorri. Islenzkir „Ham- borgarar”fagna íslenzkir „Hamborgarar” fögnuðu 17. júní þann 29. júní sl. — reyndar aðeins á seinni skipunum en þeim mun ánægjulegri varð samkundan. Þjóðversk hjónakorn höfðu verið svo vingjarnleg að bjóða öllum mannskapnum til síns heima og samtals urðu það um 30 manns, á öllum aldri, sem tóku þátt ígarðsam- kvæminu. Veðurguðirnir voru heldur þung- búnir þann daginn , en rigningar- skúrirnir gerðu gamanið aðeins heimilislegra fyrir útsynningsvana Islendingana, enda ,,maður er annars gaman”, og menn undu sáttir við sitt; yngri kynslóðin í fjörugum leikjum og þeir eldri uppteknir i þjóðmálaumræðunum. Veitingarnar voru og með þjóðhá- tíðarbrag; glóðarsteiktar kjötsneiðar — (athöfnin fór fram þarna á staðnum) — ásamt gómsætu meðlæti og íslenzku rjómapönnukökurnar í á- bætinn kórónuðu svo þjóðlegheitin. Myndirnar hér á siðunni tók frétta- ritari DB í Hamborg, HansSætran. Gísli hellir sér í golfið —eftir 18 ár íforystu fyrir ÍSÍ Það er Gísli Halldórsson, fyrrum forseti fþróttasambands íslands, sem hérslærupphafshögg sitt í meistara- móti Nesklúbbsins á miðvikudaginn. Eftir átján ár í forystu fyrir iþrótta- hreyfingunni í landinu hefur Gísli nú gefið sér tíma til að iðka íþróttir sjálfur og hefur snúið sér af fullum krafti að golfinu. Meistaramót Nesklúbbsins er fyrsta golfmótið sem Gísli tekur þátt í. DB-mynd: Rúnar Gunnarsson.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.