Dagblaðið - 18.09.1980, Blaðsíða 7

Dagblaðið - 18.09.1980, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1980. Erlendar fréttir i REUTER i Pólland: Lech Walesa ætlar til Rómar aðræða viðpáfa Lech Walesa, leiðtogi verka- manna i Gdansk og sá er stóð fyrir verkföllum þar fyrir nokkru, tilkynnti í gær að hann hygðist ganga á fund Jóhannesar Páls annars páfa í Róm. Hyggst Walesa fara þangað í næsta mánuði. Jóhannes Páll páfi er pólskur að ætterni og var kardi- náli þar í landi fram að því að hann var kjörinn páfi. Kaþólska kirkjan er mjög sterk í Póllandi og tvímælalaust sterkasta aflið i öllu andlegu lífi. Lech Walesa verkalýðsforingi er mjög trúræk- inn eins og strangtrúaðir kaþól- ikkar munu vera. Tók hann mik- inn þátt í þeim messum sem prestar sungu í Leninskipasmíða: stöðinni í Gdansk á meðan á verkfallinu stóð., Bandaríkin: Iðnaðarframleiðsla aftur á uppleið Iðnaðarframleiðsla i Banda- ríkjunum jókst nokkuð i síðasta mánuði. Er það i fyrsta skipti sem slíkt gerist síðastliðna tíu mánuði. Þykir þetta styðja þær fullyrðingar Carterstjórnarinnar að samdrætti í efnahagslífi Bandarikjanna sé að ljúka og við taki uppgangstímabil. í skýrslu frá Seðlabánka Banda- rikjanna segir að aukning á nýtingu iðnfyrirtækja hafi orðið um 0,1% i á- gústmánuði síðastliðnum. Auk þess var tilkynnt í gær að verksmiðju- framleiðsla hefði aukizt um 0,5% í júlí síðastliðnum. Er það í fyrsta skipti í sex mánuði að svo verður. Hagfræðingur á vegum stjórnar Jimmy Carter Bandaríkjaforseta sagði í gær að hinum mikla sam- drætti sem hafizt hefði í bandarísku efnahagslífi i janúar síðastliðnum hefði lokið í síðasta mánuði. Þar með hefði þetta reynzt stytzta en alvarleg- asta samdráttarskeið sem komið hefði í bandarisku efnahagslífi síðan síðari heimsstyrjöldinni lauk. Viðskiptaráðuneyti / Banda- ríkjanna tilkynnti í gær að veruleg aukning hefði orðið í byggingariðn- aði í síðasta mánuði. Næmi aukningin 12,1% miðað við ‘mánuðinn á undan. Benti þetta til þess að byggingariðnaður vestra væri aftur í sókn. Ymsir hagfræðingar halda því fram að þó svo að efnahags- samdrætti í Bandaríkjunum sé lokið að sinni þá muni batinn verða hægur á næstu mánuðum. Telja þeir að veruleg batamerki muni ekki sjást — táknar líklega lok stytzta en alvarlegasta efnahagsaftur- kippsins frá lokum síðari heimsstyrjaldar fyrr en þingið í Washington sam- þykki skattalækkanir sem muni ýta undir aukinn hagvöxt. Washington: Billymáli að Ijúka Þingnefndin sem kannaði tengsl Billy Carters, bróður forseti Banda- rikjanna, við Líbýumenn hefur nú lokið yfirheyrslum sínum. Ekki virðist neitt hafa komið fram sem hrekur þá fullyrðingu forsetans að enginn úr starfsliði hans hafi veitt Billy neinar mikilvægar upplýsingar úr stjórn- kerfinu. Zimbabwe: Mugabe rekur Wallshers- höföingja Robert Mugabe, forsætisráðherra Zimbabwe, tilkynnti í gær að hann hefði rekið Peter Walls, æðsta foringja hers Zimbabwe, úr embætti. Sakaði Mugabe Walls um ótrúmennsku í starfi og einnig að hann hefði skaðað hags- muni landsins. Walls var áður æðsti foringi hers Ródesiu á meðan hvítir voru þar við völd. Var hann helzti ógn- valdur svartra skæruliða. Þegar landið hlaut sjálfstæði og var nefnt Zimbabwe tók Walls að sér æðstu stjórn hersins. Fljótlega skarst þó í odda. Mugabe mun hafa neitað að veita Walls hershöfðingjanafnbót. Einnig lýsti Walls þvi yfir að hann hefði á sínum tima ráðlagt Margaret Thatcher forsætisráðherra Breta, að viðurkenna ekki úrslit kosninganna þegar Mugabe vann sigur og komst til valda. Walls er nú í orlofi í Englandi. Brottrekstur hans tók gildi frá og með 15. þessa mánaðar. Talið er að Mugabe hafi verið að verða við kröfurn margra flokksmanna sinna þegar hann vék Walls úr embætti. El Salvador: Hertóku skrif- stofur Amer- Vopnaðir skæruliðar vinstri manna hertóku í gær byggingu Samtaka Ameríkuríkja í San Salvador, höfuðborg E1 Salvador. Tóku þeir átta 'gisla og héldu byggingunni enn i morgun ásamt gíslunum. Rétt um tuttugu og fimm félagar í samtökum vinstri manna sem berjast gegn herstjórninni í El Salvador réðust inn i bygginguna um miðjan dag í gær. Nokkrum skotum var hleypt af byssum en síðan var öll byggingin á valdi innrásarmannanna. Að sögn fulltrúa Rauða krossins í E1 Salvador, sem fóru inn i byggingu Samtaka Ameríkuríkja skömmu eftir að hún var komin í hendur ,skæruliðanna, særðust engir né féllu við töku hcnnar. Aðallulltrúi Samtaka Ameríku- ríkja, Albino Roman Y Vega, en hann er einn gíslanna, sagði frétta- mönnum í símtali í gærkvöldi að vel væri farið með þá. Vinstri skæruliðarnir segjast krefjast þess að pólitískir fangar verði látnir lausir í El Salvador. Einnig krefjast þeir þess að aflétt ' verði hernaðarástandi i landinu. Það hefur gilt frá þvi í marz síðastliðnum. Auk þess er þess krafizt að yfir- gangi herliðs stjórnarinnar Ijúki nú þegar. BYGGINGAVÖRUDEILD SAMBANDSINS auglýsir byggingarejhi, SMÍÐAVIÐUR Öll verð eru U/S pr. Im. 75X225 Kr. 5.472.- 75X200 Kr. 4.865.- 63X125 Kr. 2.384.- 50X175 Kr. 2.648.- 50X150 Kr. 2.487.- 50X100 Kr. 1.513.- 38X175 Kr. 2.013.- 38X150 Kr. 1.972.- 38X125 Kr. 1.923.- 38X100 Kr. 1.273.- 32X150 Kr. 1.452.- 32X100 Kr. 968.- 25X175 Kr. 1.694.- 25X150 Kr. 1.518.- 25X125 Kr. 1.265.- 19X150 Kr. 1.079.- 19X125 Kr. 962.- ÚTIVIÐUR IV 75X225 Kr. 4.052.- 50X200 Kr. 2.229.- 50X175 Kr. 1.951.- 50X150 Kr. 1.672.- 50X115 Kr. 1.071.- 50X100 Kr. 1.115.- 38X100 Kr. 847.- 32X150 25X200 Kr. 1.030.- 25X175 Kr. 976.- 25X150 Kr. 836.- 25X125 Kr. 576.- 25X100 Kr. 558.- Kr. 931.- Kr. 773.- Kr. 698.- Kr. 403.- Kr. 885. Kr. 655. Kr. 655. Byggingavörur ÁRMÚLA29 Sambandsins cími Armúla 29-Sími 82242 wlll■■ OZZ1Z

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.