Dagblaðið - 20.09.1980, Page 2
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 1980.
2
Unglingar í dag:
Eirðarlaus og dekraður aulaskríll
Einar Ingvi Magnússon skrifar:
Á undanförnum helgum hafa ungl-
ingar á höfuðborgarsvæðinu skemmt
og eyðilagt umtalsverð verðmæti í
drykkjuæði og látum. Og þeir eru
vist margir sem vita upp á sig skömm-
ina er þeir lesa þessar línur.
Það máttum við vita fyrirfram að
það er aldrei til góðs að veita ómót-
uðum unglingum of mikið frelsi.
Margir hafa getið sér til um ástæð-
una fyrir þessum látum litlu barn-
anna. Ein telur að byggja þurfi yfir
þá milljónaskemmu þar sem þeir
gætu drukkið sitt brennivín og hrist
sig í ölæði, en annar heldur að það
vanti bara klósett fyrir þá í miðbæinn
til að míga í.
Ég held að hvorugt þetta sé hið
rétta. Ástæður þessa hamagangs eru
tvær. í fyrsta lagi er sú að þessi ó-
þjóðalýður er uppskera breyttrar
þjóöfélagsskipunar er mæður fóru í
stærra mæli út á vinnumarkaðinn og
ungdómurinn missti við það heimilis-
öruggiö.
f öðru lagi er það, að ungl-
ingarnir í dag hafa einfaldlega ekkert
fyrir lífinu. Þeir hafa það allt of gott.
Þetta eru aumingjar sem súpa sig
fulla um hverja helgi vegna þess að
þeir hafa ekkert annað að gera og
eiga auk þess allt of mikið af pening-
um. Þeir kunna ekki að bera virðingu
fyrir neinu. Þyrftu þeir að vinna til
þess að hafa í sig og á eyddu þeir ekki
tíma í þessar helgarskemmtanir sínar,
auk þess sem þeir myndu þá læra að
bera virðingu fyrir verðmætum. Það
sem hrjáir þennan aulaskríl er ein-
faldlega eirðarleysi og dekur.
%
Reykvfsk æska i miðborginni aðfara-
nótt laugardags.
DB-mynd: Ragnar Th.
*
Áfengið hefur sent margan manninn i ræsið.
„Ég hætti á morgun”:
Fleiri slíkar
myndir
— Koma fólki til að hugsa um
áfengisvandamálið
„Ein ódrukkin” skrifar:
Ég vildi gjarnan koma á framfæri
ánægju minni og margra annarra
með sýningu myndarinnar á sunnu-
dagskvöldið 14. sept., er hét ,,Ég
hætti á morgun”. Það eru einmitt
svona myndir sem þarf að sýna mikið
meira ef til fræðslu fyrir alla og ekki
sízt unglinga. Sonur minn 15 ára
gamall horfði á þessa mynd með okk-
ur og taiaði um það á eftir að einmitt
svona myndir værú það sem kæmi
fólki til að hugsa um þetta stóra
vandamál og skilja það betur. Sem
sagt meira af slíku efni. Gæti það
ekki verið hugmynd sem vert væri að
framkvæma eða fela samtökum eins
og t.d. SÁÁ að hreinlega búa til kvik-
mynd fyrir sjónvarp um áfengismál,
t.d. setja á svið líf fjölskyldu sem á
við slika örðugleika að etja er skapast
við ofnotkun á áfengi? Af nógu efni
hlyti aö vera að taka. Staðreyndin er
nefnilega sú að enginn, sem af eigin
raun kynnist ekki þeim hörmungum
sem fylgja því ef einhver heimilis-
maður er áfengissjúklingur, getur
skilið þvílik martröð ástandið getur
orðið.
Skandinövum býðst:
Ódýr helgarpakki
til Reykjavfliur
— „Athugið jólafargjöldin”, svarar blaðafulltrúi Flugleiða
Itirgir Þorvaldsson (1136-1587) skrif-
ar:
Ég las þessa auglýsingu í Morgun-
blaðinu í dag og undrast mjög að
okkur íslendingum skuli ekki vera
boðin slík vildarkjör sem þessi eru,
það myndi eflaust margur þiggja það
að fara til Köbenhavn, Osló eða
Stokkhólms i 3 daga fyrir 162.000.
Þess vegna beini ég spurningu minni
til Sveins Sæmundssonar, blaðafull-
trúa Flugleiða, hvort við megum eiga
von á þessu flugi á næstunni, athugið
að flugfar frá Keflavík til Köbenhavn
og til baka til Keflavíkur kostar í dag
fyrir venjulegan íslending kr. 358.600
að viðbættum flugvallarskatti. Til
Osló og til baka til Keflavíkur kr.
326.800 á sama tíma og auglýst er: Ef
þú kaupir miða hér hjá Flugleiðum
og þarft til dæmis að skreppa í erindi.
Hvaða réttmæti er i þessu?
Sveinn Sæmundsson, blaðafulltrúi
Flugleiða, svarar:
Hér er um tilraun félagsins að ræða
til að lengja ferðamannatímann, nýta
betur hótelin og flugvélarnar sem eru
frekar þunnskipaðar á þessum tima.
Þetta er aðeins „helgarpakki” og
ekki er hægt að framlengja dvölina.
Rétt er að taka fram að slík kynn-
ingarfargjöld eru ákaflega algeng
meðal flugfélaga. Evrópufélög bjóða
nær daglega upp á ný kynningarfar-
gjöld til Bandaríkjanna og með
þessu erum við að reyna að bæta
okkur upp þann samdrátt sem varð í
sumar.
Við gerum islendingum svipað
tilboð með jólafargjöldum okkar, en
þau eru 70% af fargjaldinu aðra leið.
Til Oslóar og til baka er jólafar-
gjaldið 117.900 og miðast við 10—45
daga dvöl. Það býðst allan desember-
mánuð.
Fyrir þá sem ekki vilja hafa tak-
markaðan dvalartíma gilda svokölluð
„normal” fargjöld en það er í dag til
Oslóar 326.800. Hins vegar ferðast
meirihluti farþega á sérfargjaldinu Auglýsingin sem birtist i Aftenposten
sem er 223.000. og Morgunblaðið segir frá.
NYHET
SAGAJET WEEKÉND I
REYKJAVTK
Avreise i oktober: T7~« t fi'O/J
Fredager - retur mandager. MmJL •
Avreise 1. novembet - 31.
mars:
Lerdager retur tirsdager.
Prie pr. pere. som
■nkiudww:
Flyreise Oslo Rey
kjavik tur/retur.
Transport Keflavik fly
plass HoteKtur/reJur.
3 overnattinger i dobbelt-
vaerelse pá Hotel Loftleidir,
med 2 kontinentale frokoster.
Tiegg for enkehværetee. kr.
107. .
Lufhavnavgift pá Island. kr. 90.-.
Reisen má bestilles og betales
senest 14 dager for avreise.
Mulighetene til utflukter pá is-
land er mange. og ti en nmebg
Kontakt ICELANDAIR,
Fr Niniím Pi/„ 9 . Tif 02/42 39 75 i
HVER BER ÁBYRGDINA?
0491-4988 hringdi:
Nú hafa oliufélögin í skjóli einok-
unar sett á markað ónýtt bensín sem
engir aðrir líta við. Þess vegna langar
mig að spyrja hver beri ábyrgðina á
þeim skemmdum sem það mun
valda. Kunningi minn á nýjan Datsun
Cherry og á vélinni í honum stendur
skýrum stöfum að alls ekki megi nota
bensín með lægri oktantölu en 93.
Minn eigin bíll, sem er með háþrýsta
vél, er þegar farinn að „berja” og
sóta mjög mikið.
Er verið að dæla einhverjum óþverra I
islenzka bifreiðaeigendur?
DB-mynd: Ragnar Th.
Raddir
lesenda