Dagblaðið - 20.09.1980, Blaðsíða 13

Dagblaðið - 20.09.1980, Blaðsíða 13
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 1980. 13 Úrslitin f keppninni um Sumarmynd ’80: Sumar við Heklu 1980 bar sigur úr býtum Sigurvegarinn í keppni Dag- blaðsins um Sumarmynd 1980 er Gunnar örn Gunnarsson. Mynd hans, sem er svarthvít, nefnist Sumar við Heklu 1980. Dómnefnd keppninnar var einhuga um að Gunnari baeri fyrsta sætið. í öðru sæti varö sömuleiðis svarthvit mynd. Hún er eftir Sigurð Stefán Jónsson og ber ekkert nafn. Dómnefndin tekur sér það bessaleyfi aö nefna hana Viö flugum í gær. Í þriðja sæti varð litmynd Kristjáns Gíslasonar af mönnum í drullupytti. Myndirnar sem eru í þremur efstu sætunum hljóta allar verðlaun. Dómnefndinni fannst ófært annað en að velja fjórðu og fimmtu beztu myndirnar einnig, þó að þær verði ekki verðlaunaðar. Tíminn og eilífðin, litmynd Jóns Brynjólfs- sonar, skipar fjórða sætið og í því fimmta er Ágúst ’80 kl. 3.00 að nóttu eftir Gunnar Gunnarsson. — Hann er ekki sá sami og hlýtur fyrstu verðlaunin. Greinargerð Um Sumarmyndina ’80 hefur dómnefndin þetta að segja: Mynduppbyggingin er mjög góð og öll vinna og frágangur til fyrirmynd- ar. Myndin er dæmigerð fyrir sumarið 1980 að þvi leyti að hún greinir frá þeim atburði, sem einna hæst bar á sumrinu. Myndin í öðru sæti fær þann dóm að hún sýni næmt auga höfundarins fyrír formum. Sú mynd segir einnig sitt um atburði sumarsins, þó að höfundurinn hafi ef til vill ekki haft fiugmál tslendinga i huga, þegar hann sendi myndina i keppnina. Myndin, sem hlýtur þriðja sætið fær beztu einkunn fyrir húmor. Um hinar myndirnar tvær hefur dómnefndin þaö að segja að sú sem hlýtur fjórða sætið er hin dæmigerða úr fjölskyldualbúminu að öðru leyti en því aö myndbyggingin öll er til fyrirmyndar. í myndinni í fimmta sæti fær hugmyndaflugið lausan tauminn. Verðlaunin Gunnar öm Gunnarsson hlýtur að launum fyrir Sumar við Heklu 1980 ferð til Ibiza á vegum ferða- skrifstofunnar Úrvals næsta sumar. Sigurður Stefán Jónsson fær mynda- vél af geröinni Canon AEl frá heild- verzlun Hilmars Helgasonar í önnur verðlaun. Þriöju verðlaunin, sem falla Kristjáni Gislasyni í skaut, eru sex daga ferð á Arnarvatnsheiði með Arinbirni Jóhannssyni. Sú ferð verður sömuleiðis farin næsta sumar. — Heildarverðmæti vinninga í þess- ari keppni er um ein milljón króna. Dagblaðið þakkar öllum þeim fjölda áhugaljósmyndara sem tóku þátt í keppninni um Sumarmyndina 1980 fyrir áhugann og þátttökuna. Keppnin heldur að sjálfsögðu áfram að ári. -ÁT- / fimmta sætí: Ágúst '80 ki. 3.00að nóttu. Höfundurínn er Gunnar Gunnarsson. I fjórða sætí: Tíminn og eiiifðin eftír Jón BrynjóHsson. Jón skýrir nafnið þannig: „Lrtii stúlka stigur eitt skref með duidu brosi. Þessi tiiviijun augnabliksins i sambandi við úrið é handieggnum og krossinn i brjóstinu eru forsenda heitisins Tíminn og eifífðin. Úrið er tákn timans og krossinn tókn eiVrfðarinnar, efnisleg og éþreifanleg tékn torskilinna hugtaka. Litia stúikan, sem er aðeins tveggja ára, túlkar tímann með skrefinu og eiiífð- inga með dukfu brosi. Mælieiningar timans eru eins konar skref og dulið bros gefur til kynna istand sálarinnar, hinnar andlegu hliðar mannsins, en það er hið andlega sem er eiVrft" Dómnefndin að störfum. Frá vinstri eru Aðalsteinn Ingóffsson, Sigurgeir Sigurjónsson, Ásgeir Tómasson og Ragnar Th. Sigurðs- i son. DB-mynd Þorri. íþriðja sæti: Nafnlaus myndaf mönnum i druUupytti eftir Kristjin Gíslason. tí HOBHBaeSBBBi ■HMHii

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.