Dagblaðið - 20.09.1980, Page 7

Dagblaðið - 20.09.1980, Page 7
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 1980. 7 Hörð gagnrýni á Rannsóknarlögreglu ríkisins: „Málsmeðferðin ámælisverð og alls ekki viðhlítandi” — er álit Jóns V. Jónssonar í Hafnarfirði sem telur rannsóknarlögregluna ekki hafa sinnt rannsókn á kærumáli hans á hendur tveimur lögfræðingum „Ég fór á fund dómsmálaráðherra á miðvikudagsmorguninn og ítrekaði kvörtun vegna þess að kæruatriði sem ég hef lagt (Vrir rannsóknarlög- reglustjóra ríkisins og varða meint fjármálamisferli tveggja lögfræðinga eru enn lítt eða ekki rannsökuð. Ráð- herrann tók vel málaleitaninni en sagði þó að rannsóknarlögreglustjóri væri erlendis og því yrði það að bíða heimkomu hans að fá frekari upplýs- ingar um stöðu málsins,” sagði Jón V. Jónsson verktaki i Hafnarfirði í samtali við blaðið í gær. Dagblaðið skýrði frá þvi 16. ágúst sl. að Jón V. Jónsson hafi kvartað yfir því við Friðjón Þórðarson dóms- málaráðherra að hann telji rannsókn á kærumáli sem hann vísaði til Rann- sóknarlögreglu ríkisins í mai 1978 hafa dregizt óeðlilega mikið. Málið varðar tvo lögmenn sem störfuðu hjá Jóni frá miðju ári 1975 og fram eftir árinu 1977. Annar þeirra, Svanur Þór Vilhjálmsson hdl., annaðist einkum fjársýslu, en hinn, Þorvaldur Lúð- víksson hrl., lögmannsstörf (einkum málflutning og málarekstur). Á þess- um tíma fóru miklar fjárhæðir um hendur lögmannanna eða um 200 milljónir á þáverandi ■ verðgildi. Skömmtuðu þeir sér yfir 11 milljónir í laun af þeirri upphæð og vítti Lög- mannafélag íslands þá á sínum tíma fyrir þessa kaupskömmtun. Jón V. Jónsson heldur því fram að þeir hafi misfarið með fjármuni í eigu fyrir- tækis hans. f kærubréfi sem sent var Rann- sóknarlögreglunni er krafizt rann- sóknar á eftii farandi atriðum: — Engin gögn eða fylgiskjöl fengust fyrir fjármagni er fór um hendur lögmannanna á fyrrgreindum tíma og ekkert bókhald fært að því er virtist. — Lögmennirnir skömmtuðu sér kaup án þess að gera Jóni V. grein fyrir því. Segir hann að pen- ingarnir sem lögfræðingarnir borguðu sjálfum sér hafi verið þeim afhentir til greiðslu á kröf- um ýmissa aðila. Hafi kröfurnar annaðhvort ekki verið greiddar eða greiddar svo seint að á þær féllu dráttarvextir. Þá heldur verktakinn þvi fram að annar lög- fræðingurinn hafi selt í leyfisleysi bifreið í eigu fyrirtækisins og sölutilkynning verið fölsuð. Jón V. Jónsson heldur því fram að „þrátt fyrir að reynt hafi verið að beita öllum ráðum til þess að fá mál þetta rannsakað niður í kjölinn þá hefur rannsóknin ekki þokazt neitt áleiðis og ef fram heldur sem horfir þá sofnar það svefninum langa hjá Rannsóknarlögreglunni.' ’ Jón hefur rætt málið við tvo fyrr- verandi dómsmálaráðherra, þá Stein- grím Hermannsson og Vilmund Gylfason. Þá hefur hann tvívegis gengið á fund Friðjóns Þórðarsonar núverandi dómsmálaráðherra og skrifað honum bréf að auki i septem- berbyrjun. Fer hann þess á leit að ráðherra „hlutist til um að opinber rannsókn fari fram á þeirri málsmeð- ferð sem kæra mín hefur hlotið hjá embætti Rannsóknarlögreglu ríkis- ins.” í bréfi til ráðherra segir sömuleiðis að málsmeðferð Rannsóknarlögregl- unnar sé „mjög ámælisverð og langt frá því að vera viðhlítandi”. Enn- fremur: „Þrátt fyrir að kærð sé bókhalds- óreiða, misferli með fé og skattsvik, þá hefur enn þann dag í dag eigi verið kannað hvort lögmennirnir hafi fært staf í bókhaldi, enda þótt það sé mjög ákvarðandi atriði varðandi ýmis kæruatriði að hafa bókhald þeirra til skoðunar.” DB hefur ekki tekizt að leita um- sagnar rannsóknarlögreglustjóra ríkisins, sem varerlendis. - ARH Þrasað um ketti og þresti í borgarstjóm: Einn hektari lands undir flækingsketti — Þrastavinafélagiö sem er 48 nemendur í MS mótmælti lóðaúthlutun undir jafnblóðþyrst rándýr og kettir eru „Umsókn okkar um lóð undir líknarstofnun félagsins var samþykkt í borgarstjórn. Við sóttum fyrst um fyrir tveimur árum og höfum reynt að halda þessu vakandi síðan. Þetta hefur farið betur en maður þorði að vona, þó vissulega hafi maður vonazt eftir góðum svörum,” sagði Svanlaug Löve, formaður Kattavinafélags íslands, í samtali við DB. í fyrradag samþykkti borgarstjórn að veita Kattavinafélaginu leyfi til að byggja í námunda við dýraspítala Wat- sons. Áður hafði beiðninni verið synjað í borgarráði. Lóðin sem Katta- vinafélagið fór fram á er einn hektari og þótti Sigurjóni Péturssyni það heldur stórt land undir flækingsketti. Þá var bent á að mörg fyrirtæki bíða úrlausnar í lóðamálum. Guðrún Helgadóttir borgarfulltrúi tók málið upp í borgarstjórn og flutti sem tillögu ásamt Albert Guðmunds- syni. 8 borgarfulltrúar greiddu atkvæði með tillögunni, sjö sjálfstæðismenn og Guðrún Helgadóttir. Sex fulltrúar meirihlutans greiddu atkvæði gegn til- lögunni, Guðrún Ágústsdóttir sat hjá. „Ég var nú búin að tala um að lóðar- stærðin gæti verið samkomulagsat- riði,” sagði Svanlaug er hún var spurð um lóðarstærðina. ,, Við getum vel sætt okkur við minni lóð. Hún má þó ekki vera of lítil, því við ætlum ekki að tjalda til einnar nætur.” 48 manns sem kalla sig Þrastavina- félagið sendu mótmælabréf til borgar- stjórnar þar sem segir: Við undirrituð, sem höfum bundizt samtökum til þess að vernda líf þrasta og annarra smá- fugla fyrir köttum, skorum á hæstvirta borgarstjórn að hafna umsókn Katta- vinafélags íslands um aukna aðstöðu katta í Reykjavik. Við teljum að margir ólýsanlegir harmleikir hafi hlotizt af því að halda jafnblóðþyrst rándýr og ketti á heimilum fólks í Reykjavík og bendum á það, að í heilum borgar- hverfum kemst nú vart þrastarungi á legg vegna sívaxandi kattaskara.” „Þetta er nú mesti misskilningur hjá Þrastavinafélaginu sem ég hef nú aldrei heyrt um fyrr en í gær,” sagði Svan- laug um bréf þrastavina. „Einmitt með því að hugsa um kettina og sjá um að þeir fái að éta láta þeir smáfuglana í friði. Við erum að vinna fyrir þröstinn i leiðinni. Félagar i Kattavinafélaginu, sem eru nú um 400, eru allsherjar dýra- vinir, annað væri ónáttúrlegt. Ég vil bara þakka þeim mönnum sem studdu félagið í borgarstjórn.” DB hafði samband við einn af undir- skriftarmönnum Þrastavinafélagsins og spurðist fyrir um félagið: „Ég er nú eiginlega ekkert í félaginu, ég skrifaði bara undir þennan lista þegar hann gekk í skólanum.” Það voru nemendur á aldrinum 16-20 ára í menntaskólan- um við Sund sem skrifuðu undir list- ann. „Ég veit nú ekki hvað hann heitir sá sem fann upp á þessu, við erum svo nýbyrjuð í skólanum og maður er ekki farinn að kynnast liðinu ennþá.” - ELA Tvennt á slysadeild — eftir árekstur á Bæjarhálsi Harður árekstur vaíð í gærdag í Árbæjarhverfi. Benz vörubifreið ók austur Bæjarháls og Fiat fólksbifreið norður Bæjarbraut. Fiatinn mun ekki hafa stanzað við biðskyldu heldur ekið í veg fyrir vörubifreiðina. Tvennt fullorðið var í fólksbifreið- inni og slasaðist það lítillega eftir þvi sem bezt var vitað í gær. Var fólkinu talið til happs að Fíatinn lenti á fæti lyftukrana sem var á vörubifreiðinni, en hefði annars getað lent undir henni. - ELA Á slysstað síðdegis í gaer — eins og sjá má er bíllinn illa skemmdur. DB-mynd: S. DANSSKOLI Siguröar Hákonarsonar BÖRN — UNGLINGAR — FULLORÐNIR Kenndir allir almennir dansar, svo sem: BARNADANSAR — SAMKVÆMISDAN SAR — DISCODANSAR — GÖMLU DANSARNIR O. FL. BRONS-SILFUR og GULLKERFI DSÍ KENNSLUSTAÐIR: Reykjavík: Þróttheimar, ný og glæsileg æskulýðsmiðstöð v/Sæviðarsund Kópavogur: Félagsh. Kóp. (Kópavogsbíó). örstutt frá skiptistöð SVK. Ath. Barnakennsla laugard. í Kópavogi Innritun og allar nánari upplýsingar daglega kl. 10.00—19.00 í síma 41557 DANSKENNARASAMBAND ÍSLANDS DSÍ

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.