Dagblaðið - 25.09.1980, Page 4
18 .
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1980.
Hvaö er á seyöium helgína?
Iþróttir
Landsleikir í
handknattleik
LAUGARDALSHÖLL
LAUGARDAGUR
Island-Noregur kl. 15.
SUNNUDAGUR
Island-Noregur kl. 20.
Reykjavíkurmót
í körfuknattleik
FIMMTUDAGUR
HAGASKÓLI
ÍR-tS J.n.kl. 18.
Ármann-Fram m.fl. karla kl. 20.
ÍR-ÍSmfl. karlakl. 21.30.
Kvikmyndir:
Fjalakötturinn vaknar úr sumardvala
Kvikmyndaklúbbur framhalds-
skólanna, Fjalakötturinn, hefur
hafið sýningar á ný eftir sumarhlé.
Nú fara sýningar fram i Regnbog-
anum í stað Tjarnarbíós, en þar var
sýningaraðstaða fremur frumstæð.
Dagskrá klúbbsins er fjölbreytt að
vanda og ættu allir að geta fundið
eitthvað fyrir sinn smekk. Franskar
og auslur-evrópskar kvikmyndir eru
meginuppistaðan í dagskránni. Af
frönskunt má nefna myndir eftir
meistara Godard, Truffaut og
Bunuel auk syrpu af tilraunakvik-
myndum eftir jrekkta listamenn á
borð við Duchamp, Léger og Man
Ray. Nokkrar tékkneskar myndir erú
á dagskrá. Jiri Mensel er aftur
mættur til leiks en hann var seltur í
bann eftir innrásina 68 eins og flestir
aðrir skapandi listamenn. Þá eru
einnig myndir eftir Veru Chytilova en
hún fer að verða einn best kynnti
leikstjóri austantjaldslandanna hér á
landi, átti m.a. mynd á síðustu kvik-
myndahátíð auk þess hafa myndir
hennar verið sýndar i kvikmynda-
klúbbnum. Ekki má gleyma rúss-
nesku stórmyndinni Seglinum eftir
Andrei Tarkovskí en það er eflaust
besta myndin á dagskránni i vetur.
Þekktasta myndin er þó 1900 sem
verður sýnd nú um helgina. Það er
alveg furðulegt að kvikmyndahúsin
skuli ekki hafa keypt þessa stórmynd
til landsins fyrr. Því hér er á ferðinni
mynd sem á erindi langt út fyrir
meðlimahóp klúbbsins. Af öðrum
myndum má nefna japönsku mynd-
irnar Drengur eftir tilfinningamann-
inn Oshima og Idjótinn eftir
Kurosawa. Bandariskar og breskar
kvikmyndir fá nú meiri sess i dag-
skránni en áður. Hinir ofsóttu og
hinir eltu eftir Coppola sem er jafn-
framt hans fyrsta mynd verður sýnd
og hinir fjölmörgu aðdáendur
Kubrick fá einnig að sjá Lolitu.
Viturt blóð eftir John gamla Huston
er einnig á dagskrá klúbbsins. Hér
hefur aðeins verið stiklað á stóru en
seinna er ætlunin að gera þessum
konfektkassa kvikmyndaunnenda
nánari skil. En alls verða sýndar 34
kvikmyndir i vetur auk nokkurra
aukasýninga sem verða i Tjarnarbíói.
Einungis er hægt að kaupa skirteini
Duminique Sanda i mynd Bertoluccis „1900".
sem gilda á allar sýningar klúbbsins
og kostar það 13.000 kr. Skírteini eru
seld i Regnboganum fyrir sýningar
sem verða á fimmtudögum kl. 18.50,
laugardögum kl. 13.00 og sunnu-
dögum kl. 18.50.
Leiklist
FliytMTUDACfUK
LeikfélaK Reykjavlkur: Ofvilinn, 101. sýning. Kl.
20.30.
Þjóðleikhúsið (Lulu sviðiðl í öruggri borg. Ki. 20.30.
FOSTUDAGUR:
Lcikfélag Rcykjavikur: Aðsjá lil |)in maður. I iminin
sýning. Kl. 20.30. Gul kon.
Þjóðleikhúsið: Snjór. sjöunda sýning ki. 20.00.
LAULÍARDAGUK
Leikfélag Reykjavikur: Ofvitinn. 102. sýning. Kl.
20.30.
Þjóðleikhúsið: Snjór, áttunda sýning. Kl. 20.
CiuAmundi Torfasyni er hér brugffiA í fyrri leik Fram og Hvidovre í
Kaupmannahöfn. DB-mynd Bjarni Kriðriksson.
Knattspyrna:
„VIÐ VINNUM
DANINA2-0”
,,Við vinnum Danina 2—0” sagði
hinn harðskeytti bakvörður þeirra
Framara, Símon Kristjánsson, við
DB er hann var spurður um úrslit í
leik Fram og Hvidovre, sem fram fer
á Laugardalsvellinum á sunnudag kl.
14 í Evrópukeppni bikarhafa. Fyrri
leik liðanna, sem fram fór í Kaup-
mannahöfn, lauk með sigri Dananna
1—0 og skoruðu þeir sitt eina mark
úr vitaspyrnu, sem var í raun óþörf.
Danska liðið er í hópi þeirra sterk-
ari í heimalandi sínu og þótt ein-
kennilegt megi virðast er það
Englendingurinn Leroy Ambrose,
sem er þeirra skæðasti leikmaður og
er hann eini leikmaður liðsins, sem
hefur knattspyrnuna að atvinnu að
fullu.
Möguleikar Fram á sigri í leiknum
eru nokkuð góðir, að ekki sé nú talað
um ef liðið nær samstilltum leik. í
framlínuna vantar þá að visu illilega
hinn skæða Pétur Ormslev, en þeir
nafnar Guðmundur Torfason og
Steinsson fá það verkefni að hræra
upp í vörn Dananna. Þá er möguleiki
á að hinn eldfljóti Gunnar Orrason
fái að spreyta sig en ekki veitir af
spretthörðum leikmönnum til að
opna vörnina hjá Hvidovre, sem er
nokkuð sterk. „Ég tel þó að vömin sé,
veikasti hluti liðsins og við ættum að
geta fundið leið í gegnum hana,”
sagði Hólmbert Friðjónsson, þjálfari
Framaranna. Hvernig svo sem til
tekst er víst að um hörkuleik verður
að ræða. Danirnir lýstu þvi yfir fyrir
fyrri leikinn að það væri hneisa að
falla út fyrir Fram og vist er þvi að
þeir munu leggja sig alla fram við að
vinna samanlagt. Takist þeim það
bíða þeirra 600.000 krónur í bónus.
Framarar fá hins vegar ekkert nema
hrósið ef þeir vinna en þeir munu
áreiðanlega reyna að vinna til þess.
Allir á völlinn og hvetjum Framarana
til sigurs gegn Baununum.
-SSv.
SUNNUDAGUR
Leikfélan Reykjavikur: Að sjá lil þin maður. Sjotia
sýning. Kl. 20.30. Graen kort.
Ráðstefnur
Ráðstef na Jaf nréttisráðs
að Hótel Esju
Jafnréttisráð heldur ráöstefnu með jafnréttisnefndum
sveitarfélaga og sveitarstjórnum að Hótel Esju, föstu-
daginn 26. september nk. Tilgangur ráðstefnunnar er
aö sluðla að meiri samvinnu milli hinna einstöku jafn
réttisnefnda og Jafnréttisráðs og aðsloða nefndirnar
við verkefnaval.
Meginefni ráðstefnunnar er þátltaka kvenna i
stjórnmálum, en einnig verða flull crindi um
fræðslumál, atvinnumál, fjölskyklumál og skipulags
mál m.t.t. jafnréttis og jafnrar stöðu karla og kvenna.
Bílbeltin
á dagskrá
í Norræna
húsinu
í kvöld verður almennur fundur um
bílabeltamál í Norræna húsinu. Ættu
áhugamenn að fjölmenna þangað. Sér-
fræðingur alþjóða heilbrigðis-
stofnunarinnar í umferðarmálum
flytur erindi og hringborðsumræður
verða á eftir milli Óla Þórðarsonar,
borgarlæknis, Ómars Ragnarssonar og
fulltrúa Borgarspitalans. Fundurinn
hefst kl. 8.30.
-A.St.
LAUGARDAGUR
HAGASKÓLI
Lram-tR S. fl. kl 14.
Fram-ÍR 4. fl. kl. 15.
Fram-tR 3. fl. kl. 16.
Fram-IR 2. fl. kl. 17.15.
SUNNUDAGUR
LAUGARDALSHÖLL
KR-Armann 4. fl. kl. 14.
ÍR-Valur m.fl. karla kl. 15.
Fram-ÍS m.fl. karla kl. 16.30.
Ferðalög
Útivistarferðir
Föstud. 26.9 kL 20.
Haustlitaferð I Húsafell, gist inni, sundlaug. sauna,
gönguferðir i fallegu umhverfi. Farseðlar á skrifst.
Lækjarg. 6a,s. 14606.
Sunnudagurinn 28. september kl. 13. Botnsdalur.
Glymur, 198 metrareða Hvalfell. Verðkrónur 5000.
Útivistarferðir
Sunndagur 28. september
KL 8: Þórsmörk i haustlitum, 4 tima stans i Mörkinni.
Verð 10.000 kr.
KL 13: Botnsdalur i haustlitum og þar má velja um
Kvikmyndir:
Óðal feðranna endursýnd
í Reykjavík í eina viku
Hringferð kvikmyndarinnar Óðal
feðranna um landið fer nú senn að
Ijúka. Aðeins er eftir að sýna hana i
Vestmannaeyjum og Höl'n i Horna-
firði til að hringurinn lokist. Úr þvi
verður bætl von bráðar. Einnig eru
að hefjast endursýningar á Óðalinu.
Þær byrja á morgun i Laugarásbiói
og verður myndin sýnd þar á öllum
sýningum í heila viku.
„Einnig verður myndin sýnd i
Vestmannaeyjum á næstunni, hún
byrjar þar á sunnudaginn kemur og
verður sýnd þar á meðan aðsókn er
næg,” sagði Ragnheiður Harwey rit-
ari Hrafns Gunnlaugssonar við gerð
Óðals feðranna. ..Væntanlega verður
hún siðan tekin til sýninga á Höfn um
aðra helgi.”
Ragnheiður sagði að alls hefðu nú
um sjötiu þúsund manns séð mynd-
ina. Upp úr næstu mánaðamótum
verður hún sýnd i Stokkhólmi.
Einnig verður hún sýnd í New York i
október, sem framlag íslands á nor-
rænni kvikmyndahátíð þar í borg.
-ÁT
Ur Oðali feóranna. Borgnesingurinn
Sveinn Kiðsson í hlutverki vefrar-
mannsins.
í næsta mánuði verður hún sýnd
í Stokkhólmi og New York